Morgunblaðið - 11.09.1981, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1981
21
mestu ágætiskonu. Hún er búsett í
Keflavík.
Ung að árum, árið 1921, fór
Karolína til Kaupmannahafnar til
þess að læra iðn sína. Frænka
hennar, Júlíana Sveinsdóttir,
dvaldi á þeim árum við listnám
þar og voru þær frænkurnar því
samtíða um árabil.
Karolína stundaði fyrst nám í
skólanum Dansk kunstlivsforen-
ing, sem þá var alþekktur fyrir
góða kennslu og fjölhæfa kennara.
Þaðan hvarf hún til starfs og
náms á vefstofu frk. Siegumfelt,
sem þekkt var fyrir vandaðan
vefnað sinn og hina kröfuhörðustu
viðskiptavini. Var til þess tekið,
hve oft hún skipti um vefara, því
fáir bjuggu yfir þeirri verkfærni
og dugnaði, er þar var krafist.
Sem dæmi má nefna, að þar óf
Karolína á 20 skafta vefstól, er
hafði 5080 þræði á 1 m og talar
það sínu máli til þeirra er til
þekkja.
Á þessum árum sátu vinnugleð-
in, námsáhuginn og starfsþrekið í
fyrirrúmi langa vinnudaga.
Stundir náms og vinnu voru ekki
greindar sundur, sem nú vill oft
verða. Fullyrða má, að þessi harði
skóli, ásamt eigin hæfileikum og
viljakrafti, hafi orðið Karolínu
það veganesti er dugði henni vel í
vandasömu og erfiðu brautryðj-
andastarfi hérlendis.
Eitt sinn kom hún auga á
óvenjulega blúndu í verslunar-
glugga í Kaupmannahöfn. Hafði
hún strax áhuga á að ná upp
munstri blúndunnar. Tók hún það
ráð að leggja leið sína að gluggan-
um, er hún kom því við, setja sér á
minni lítinn hluta blúndunnar
hverju sinni, og að lokum hafði
hún náð marki sínu. Að gefast upp
eða hopa voru óþekkt hugtök í lífi
Karolínu Guðmundsdóttur.
Árið 1923 kemur Karolína til
landsins fullnuma í iðn sinni. Hélt
hún fljótlega sýningu á verkum
sínum í húsi Listvinafélagsins, og
vakti þar verðskuldaða athygli
fyrir vandaða og fallega muni, og
má jafnvel fullyrða, að hún hafi
markað tímamót í íslenskri verk-
menningu á sviði yefnaðar.
Vefstofuna að Ásvallagötu 10A
stofnaði hún síðan árið 1938. Var
að henni mikill fengur, þar sem
hún var eini staðurinn, sem vann
handofna muni eftir óskum og
eigin vali viðskiptavinanna. Sér-
stök áhersla var iögð á vöruvönd-
un og ekkert til sparað endingar
voðanna.
Með tilkomu nýrra stílbrigða í
húsbúnaði komust ofin ullar-
áklæði og gluggatjöld almennt
meira í notkun, enda fóru þau
einkar vel við hinn nýja stíl. Var
þá ekki aðeins leitað til Karolínu
af einstaklingum, heldur einnig af
ýmsum opinberum stofnunum.
Vann hún þannig um árabil að
ýmsum verkefnum, sem frændi
hennar, Guðjón Samúelsson,
húsameistari ríkisins, fól henni.
Enn í dag má sjá ofin áklæði og
gluggatjöld hennar frá því um
1940 í Háskólanum, Búnaðar- og
Landsbankanum, og fleiri stöðum.
Á þeim árum, er íslenska ullin
þótti tæplega nothæf til fínni
handíða, og lítið sem ekkert var
unnið úr henni í skólum landsins,
hafði Karolína alltaf bjargfasta
trú á þessu verðmæti þjóðarinnar
og að þeir dagar kæmu að ullar-
iðnaöur nyti verðskuldaðrar virð-
ingar og styddi þjóðarhag í ríkum
mæli.
Ullarjafi var stöðugt ofinn á
vefstofunni. í efnisleysi stríðsár-
anna var oft löng biðröð við
vefstofuna. Ekki þarf að eyða
orðum að því, hve ullarjafinn
jafnþráða og í sínum fallegu litum
hefur verið mikilvægur allri
handavinnukennslu. Ótaldar eru
hendur þeirra nemenda er saumað
+
Þakka innilega auösýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
KLÖRU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Hátúni 10B.
Anna Arnadóttir.
t
Hugheilar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug við andlát og
útför
GUDRUNAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Freyjugötu 5.
Þorgeir Jónsaon,
Bjarni Guómundsson, Ebba Guömundsdóttir,
Sverrir Guðmundsson.
HEFUR ÞÉR KOMIÐ
TIL HUGAR
aó fylgjast meó öllu
í gegn um sjónvarp
Þessi lausn er nokkuð sem fáum hefur dottið i hug að notfæra sér. Þeir halda að það þurfi
stórfyrirtæki til að nota svona kerfi. En þegar farið er að skoða hlutina betur, skilja menn
hagkvæmni þessa kerfis. Engin hlaup, ekkert óöryggi, þú getur fylgst með öllu úr
sætinu þínu, um leið og þú vinnur pappírsvinnuna.
Sem dæmi mætti nefna vinnusali, vélasali, skrifstofu, birgðageymslu, vöruafgreiðslu, pökkun,
verslun, færiböndum, lestun, útisvæði, og svona mætti lengi telja.
Hægt er að senda myndir milli húsa ef á þarf að halda. Mikil hagræðing er í því að geta brugðið
upp skjölum og pappírum á skjáinn, og senda á milli ef þörf er á.
Einnig er hægt að nota kerfið á næturnar til að fylgjast með óviðkomandi mannaferðum.
Möguleikarnir eru fjölmargir, ef þig vantar frekari upplýsingar um nánara notagildi. erum við
tilbúinir að kynna þér tækin betur.
Qf) Radíóstofan hf.
Þórsgötu 14, símar 28377 - 11314 - 14131
hafa sín fyrstu saumspor í jafann
frá Karolínu.
Á námsárum sínum ytra lærði
Karolína éinnig að knipla. Var sú
listiðn mikið í tísku og í stíl við
fatnað og heimilisskraut þeirra
tíma og mjög svo stunduð af
konum í tómstundum. Kniplingar
Karolínu frá þessum árum eru
sérlega margbreytilegir og sýna
mjög sérstætt handverk. Eftir
heimkomuna kenndi hún knipl um
árabil.
Vefstofu sína rak Karolína til
ársins 1973 með sínum hæfu
vefurum, Elínu Björnsdóttur og
Huldu Gunnlaugsdóttur, en þá
keypti sú fyrrnefnda vefstofuna.
Hún er frænka Karolínu, og rekur
vefstofuna enn í dag.
Vinskapur okkar Karolínu hófst
þegar ég var innan við fermingu
og hefur varað æ síðan. Báðar
höfum við sama áhugann á ís-
lensku ullinni og margbreytileika
hennar til úrvinnslu, svo að um
kynslóðabil okkar í milli var ekki
að ræða.
Sérstaklega eru minnisstæðar
stundir mínar með Karolínu er
hún bauð mér að vefa mér til
dundurs við hlið sér á vefstofunni.
Mér er enn í minni næmleiki og
öryggi Karolínu í vali og röðun á
heimalituðu jarðlitunum hennar,
þegar hún óf og hannaði sína
eftirminnilegu borðrenninga.
Þegar komið var á vefstofuna
snemma á morgnana, stóð hún þar
alltaf með rjúkandi kaffið, en
hafði þá þegar farið í langa
gönguferð hvernig sem viðraði.
Hélt hún þeim vana fram á elliár.
Karolína vann heimili sínu stöð-
ugt fallega hluti til gagns og prýði
því hún kunni flestum betur að
nota stundirnar er gáfust frá
erilsömu starfi.
Djúpar samúðarkveðjur flyt ég
fjölskyldu Karolínu.
Minningin um hana fyllir hug
minn þakklæti og hlýiu.
Hólmfríður Arnadóttir
Enska fyrir börn
Beina aöferöin. Börnum er kennd enska á ENSKU.
íslenzka er ekki töluð í tímum. LEIKIR — MYNDIR —
B/EKUR. Skemmtilegt nám.
MÍMIR, Brautarholt 4,
5 Sími 10004 og 11109 (kl. 1—5 e.h.)
Sandsprautukönnur
Nýkomnar - 2 stærðir
umboðs & heildverzlun
Atlas hf
Grófinni 1. — Sími 26755.
Pósthólf 193. Reykjavík.
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al (iLYSINt. A-
SIMINN ER:
22480