Morgunblaðið - 11.09.1981, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1981
„'Re.Cjrdu cub gískrx bvob kcm -fyrir
pesear pylsur cx heimleiáinrw'
mmmn
• 1981 Univrxil Pnn Syndicota
úr jpúbinn t."
ást er...
... af> treysta hvort öfrru
af heilum huy.
TM Reg U S Pat Off — all nghts reserved
* 1979 Los Angetes Times Syndicate
helta er ekki heldur okkar
bíll?
Með
morgnnkafiinu
Fáið mér gleraugun mín,
mér sýnist ég vera kominn
af leið til lendinjfar?
HÖGNI HREKKVÍSI
Krúnurakar kvenfólkið
karlmenn nú á dögum
Hinn 30. ágúst sl. var löng grein
í Morgunblaðinu með yfirskrift-
inni: „Þið ættuð að tjarga nótabát-
inn í haust." Þar segir svo: „Þegar
Játvarður Bretakonungur stóð í
hinum víðfrægu ástarmálum, sem
kostuðu hann krúnuna að lokum,
gerði Morgunblaðið sér til dund-
urs að kasta fram vísuparti sem
síðan var botnaður af lesendum
blaðsins, sjálfsagt hundrað sinn-
um ef ekki meir. Fyrri parturinn
er þannig:
Simpson kemur víða við
og veldur breyttum högum.
Kjarval botnaði:
Mogginn kemur ekki út
snemma á mánudögum.
J.G. skrifar:
Ríkisútvarpinu hefur oft verið
legið á hálsi fyrir eitt og annað
efni sem hlustendum hefur borist
á öldum ljósvakans. Sýnist sitt
hverjum eins og eðlilegt er, þó
hafa óánægjuraddir verið hávær-
ari að undanförnu en oft áður,
vegna sögu sem margir áttu erfitt
með að skilja að til gagns og
ágætis væri fyrir hlustendur.
Þessvegna tel ég einnig skylt að
þakka það sem vel er gert og vil ég
koma á framfæri bestu þökkum til
Ríkisútvarpsins fyrir lestur Helga
Elíassonar úr bók Sr. Feiix Ólafs-
sonar kristniboða „Sól yfir Blá-
landsbyggðum".
Það er stundum haft á orði að í
framtíðinni komi kristniboðar til
okkar frá Afríku, vegna þess hve
andhverf Evrópa er kristindómi
og afkristnast í velferð sinni.
Kristnir menn í Eþíópíu hafa
orðið fyrir áreitni yfirvalda, settir
í fangelsi og jafnvel líflátnir, en í
þrengingum sannar trúin gildi
sitt, eins og einnig kemur í ljós
austan járntjalds, því vakti það
undrun mína þegar íslenskur
kristniboði sagði frá því að rússn-
Síðan segir: Ég held að ég fari
ekki með neina vitleysu er ég held
því fram að þessu botn Kjarvals
hafi einn lifað af þessi ár sem liðin
eru frá því er íslendingar gerðu
það sér til gamans að yrkja um
kvennamál Bretasjóla."
Ekki mun það saka þó ég setji
hér á eftir annan botn við vísuna.
Hann var lesinn í útvarpi litlu
seinna eftir að það kom til sög-
unnar. Botninn er svona:
Krúnurakar kvenfólkið
karlmenn nú á dögum.
Þessi botn hefir lifað góðu lífi
allt til dagsins í dag.
Vinsamlegast,
E.G. ELIiheimiIinu Grund.
esku hermennirnir í Eþíópíu
keyptu Biblíur og Nýja Testa-
mentið til þess að senda heim til
Rússland.
Hér á íslandi spretta upp félög
og stefnur sem boða viðhorf og
kenningar, sem á sandi eru byggð-
ar og jafnvel má heyra islenska
presta, sem hafa heitið því að
kenna Guðs heilaga Orð — gefa
steina fyrir brauð.
Islensk þjóð verður að læra að
skilja að Guð er kærleikur, sem
hatar syndina, en Hann hefur
gefið okkur son sinn Jesúm Krist
og Jesús elskar hvern einasta
mann, Jesús segir: „Komið til mín
allir". — „Engan sem til mín
kemur mun ég burtu reka“.
Mitt í velmegun okkar er neyð,
sem er orsök og afleiðing þess að
við leitum ekki til þess Guðs sem
skapaði okkur, heldur reynum að
búa til Guði sjálf. Heimurinn
þarfnast Jesú Krists og kærleika
Hans.
Ég endurtek þakklæti mitt til
ríkisútvarpsins og gaman væri að
heyra meira frá starfi íslenskra
kristniboða fyrr og í dag.
Svar Svav-
ars við
bílakaupum
Enn er komið út á „þrykk“
örbirgð veslings alþýðunnar.
Að hafa slikan hrokagikk
hæst á tindi stefnu sinnar.
Okkur segir svipurinn,
„sjáið“ til hvers Guð mig skapti.
Mitt er rikið — mátturinn,
munið það — og haldið kjafti.
Jónsi.
Um
söluskatts-
niðurfellingu
af Biblíunni:
Af
ótta?
Ríkisstjórnin hefir ákveðið að
fella niður söluskatt af Biblí-
unni, kvað við í fréttamiðlum
nýlega. Hvað hefir eiginlega
skeð? Ég sem hélt að ríkisklóin
myndi aldrei sleppa því, sem
einu sinni hefir verið klófest, ég
marka það af fenginni reynslu.
En hvers vegna verður þeim
sem lesa Biblíuna ekki gert að
greiða þennan skatt, sem er að
drepa bókaútgerð landsmanna
og gera rithöfunda að hálfgerð-
um ölmusumönnum?
Það skyldi þó ekki vera að
ríkisstjórnin sé með þessu, að
gera örvæntingarfulla tilraun til
þess að klóra í bakkann kol-
svartan, sem almenningsálitið í
landinu er búið að hrinda henni
fram á, og á ekki annað eftir en
að velta henni framaf, ofaní, já,
ofaní, þú skilur lesandi góður.
Það erekki óþekkt fyrirbæri
hjá trúarsöfnuðum víðsvegar um
þennan hrjáða heim, að menn
kaupi sér frið í sálinni, borgi
fyrir syndir sínar og fái kvittun
fyrir. Hitt mun lítt þekkt að
hópur manna kaupi þennan sál-
arfrið eða syndafyrirgefningu,
en láti sauðsvartan almúgann
borga brúsann. Vel væri ef þessi
brella okkar „félagsmála-
pakka“-ríkisstjórnar yrði til
þess að aðrir bókamenn sæju sér
leik á borði og krefðust jafnrétt-
is. Það er nefnilega til háborinn-
ar skammar að söluskattur skuli
vera á bókum.
„Heldur reynum að
búa til Guði sjálf“