Morgunblaðið - 18.09.1981, Síða 5

Morgunblaðið - 18.09.1981, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981 5 Gunnar E. Kvaran, fréttamaður: Málið verður ekki skýrt á annan hátt en að innbrot hafi verið framið á fréttastofu útvarps Morjíunhlaðinu harst í gær oftiríarandi yfirlýs- inK frá Gunnari E. Kvaran fréttamanni við Ríkisút- varpið: MORGUNBLAÐIÐ gerði í gær skil bókunum sem gerðar voru í Utvarpsráði dagana 11. og 15. september sl. um störf frétta- manna á fréttastofu útvarps. Þar sem misskilnings gætir í bókunum þeirra Ellerts B. Schram og Mark- úsar Arnar Antonssonar um það mál sem þeir gera að umtalsefni, tel ég rétt að eftirfarandi komi fram: I skýrslu sem ég sendi Herði Vilhjálmssyni, settum útvarps- stjóra, vegna fyrri bókunar út- varpsráðsmanna um meint „trún- aðarbrot" fréttamanna, skýrði ég honum frá tildrögum samtals sem ég átti við Kjartan Jóhannsson, formann Alþýðuflokksins, þann 30. júlí sl. vegna stöðvunar á útgáfu Alþýðublaðsins. í þessu samtali komu fram sjónarmið Kjartans til svonefndrar Alþýðu- blaðsdeilu. Hann kaus að gera þau ekki að umtalsefni í útvarpi að svo stöddu og var það að sjálfsögðu virt. Eins og glöggt kemur fram í skýrslu minni til útvarpsstjóra, sagði ég Kjartani að ég myndi bera samtal okkar undir sam- starfsmenn mína á fréttastofu. Það getur ekki talist trúnaðarbrot að bera fréttasamtöl undir sam- starfsmenn, allra síst þegar við- mælanda er gerð grein fyrir því í samtalinu. Sem fyrr segir átti samtal okkar Kjartan Jóhannssonar sér stað þann 30. júlí. Röskri viku síðar er haft eftir Vilmundi Gylfasyni í síðdegisblöðunum, að Kjartan Jó- hannsson formaður Alþýðuflokks- ins hafi látið svo um mælt í samtali við fréttamann Ríkisút- varpsins að Alþýðublaðsdeilan svonefnda snúist ekki um stjórn- mál, heldur sé þar um mannlegan harmleik að ræða. I framhaldi af þessum ummæl- um Vilmundar Gylfasonar bóka fjórir útvarpsráðsmenn síðan eft- irfarandi á fundi útvarpsráðs þann 11. september: „... Ekki er því að neita að þess hefur orðið vart að trúnaðarbrot fréttamanna og formleg tengsl sumra þeirra við ákveðna stjórn- málaflokka vekja tortryggni og kalla á pólitískar deilur eins og dæmin sanna. Við sjáum því ekki ástæðu til að gefa öllum frétta- mönnum allsherjar traustsyfirlýs- ingu, en fordæmum ómerkilegar dylgjur í þeirra garð.“ (leturbreyt- ing GEK). Hér er sem sagt ekki um eitt trúnaðarbrot að ræða heldur mörg, ef marka má bókun- ina. Hver eru þessi trúnaðarbrot? Athyglisvert er, að með bókun sinni slá útvarpsráðsmennirnir fjórir því föstu að frásögn Vil- mundar Gylfasonar af samtali Kjartans Jóhannssonar og frétta- manns Ríkisútvarpsins eigi við rök að styðjast. Svo sterk er vissan og trúin að ekki er látið svo lítið að leita staðfestingar á þessu hjá fréttastofunni. Um leið er reynt að gera fréttastofuna tor- tryggilega á grundvelli þess að nokkrir fréttamenn hafa fært sér í nyt þau mannréttindi að hafa pólitískar skoðanir og styðja stjórnmálaflokka. Ekki er hægt að skilja þennan hluta bókunarinnar á annan veg en að fréttamenn á fréttastofu Ríkisútvarpsins láti pólitískar skoðanir ráða frétta- flutningi sínum. Sé þetta rétt hjá útvarpsráðsmönnunum, af hverju er það ekki stutt með dæmum? Getur verið að útvarpsráðsmenn- irnir sem fordæma dylgjur í garð fréttamanna hafi fallið í þá gryfju sjálfir að fara með dylgjur? Þessi vinnubrögð útvarpsráðsmannanna vekja vissulega furðu. Eftir fyrri fund útvarpsráðs um þessi mál gerist síðan það, að inn á fréttastofu útvarpsins kemur Vilmundur Gylfason alþingismað- ur og segir þar í votta viðurvist að hann hafi haft undir höndum segulbandsspólu af samtali mínu Vilmundur Gylfason: „ÞAÐ ER ekki rétt eftir mér haft“ sagði Vilmundur Gylfason alþingismaður í gær, er Morgun- blaðið bar undir hann þá fullyrð- ingu að hann hafi i votta viður- vist sagst hafa haft undir hönd- um segulbandsspólu af samtali við Kjartan Jóhannsson. „Hið rétta er að ég sagðist hafa heyrt af segulhandi umrætt samtal“ sagði Vilmundur, „og það er auðvitað allt annað en að hafa undir höndum.“ Vilmundur sagði það hins vegar hárrétt hjá Herði Vilhjálmssyni, við Kjartan Jóhannsson, þar sem hin tilvitnuðu ummæli sé að finna. I framhaldi af þessum ummælum þingmannsins lét ég þess getið í skýrslu minni til útvarpsstjóra, að slíkt verði ekki skýrt á annan hátt en að átt hafi sér stað innbrot í fréttastofu útvarpsins. Því gögn mín um samtalið við Kjartan Jóhannsson, þar á meðal segul- bandsupptaka, voru geymd í skrif- borðsskúffu minni á frétta- stofunni. Það, hvernig Vilmundur Gyflason telur sig geta haft vitn- eskju um samtal okkar Kjartans Jóhannssonar, hvað þá heldur segulbandsupptöku af þessu sam- tali, getur hann einn skýrt. Mér og öðrum fréttamönnum á frétta- settum útvarpsstjóra, í Vísi í gær, að þegar tveir menn ræddust við í síma mætti hlusta samtal þeirra beggja vegna línunnar, í þessu tilviki ekki aðeins fréttastofumeg- in. Sagði Vilmundur það alls ekki vera fréttamönnum að kenna, að hann hafi heyrt umrætt samtal af segulbandi. Er hann var þá spurð- ur hvort hann væri að segja að hann hefði heyrt segulbandsupp- töku er gerð hefði verið hjá Kjartani Jóhannssyni, sagði hann að það segði hann ekkert um. Vilmundur kvaðst á hinn bóginn stofu útvarpsins er það hins vegar með öllu óskiljanlegt. Hitt er svo annað mál, að yfirlýsingar Vilmundar Gylfason- ar alþingismanns vegna þessa máls gerast nú æ flóknari og torskildari. Fyrst byrjar alþingis- maðurinn á því að vitna til samtals míns við Kjartan Jó- hannsson, sem hvorugur okkar, né neinn þeirra fréttamanna sem vitneskju höfðu um samtalið, hef- ur staðfest að séu réttar. Það nýjasta er að nú hefur alþingis- maðurinn lýst því yfir að „vitn- eskja hans“ um samtalið við Kjartan Jóhannsson sé ekkj komin frá neinum starfsmanni frétta- stofunnar. Samkvæmt þessu ætti því ekki að vera um neitt trúnað- arbrot hjá starfsmönnum frétta- stofu að ræða. Bókun meirihluta útvarpsráðs frá 11.9. sl. og ítrekun þeirra Markúsar Arnar og Ellerts B. Schram þann 15.9. sl. sem hyggja á upplýsingum Vilmundar Gylfasonar eru þannig fallnar um sjálfar sig að mínu mati. vilja minna á það, að þessar deilur um segulbandið væru í rauninni fáránlegar, Kjartan hefði staðfest að rétt væri eftir honum haft, og því þyrfti ekkert að fjölyrða um það meira. Nær væri að menn kæmu sér að kjarna málsins og ræddu aðalatriði en ekki algjör aukaatriði, líkt „og Eiður Svan- berg, sem kemur með einhverja bókun í útvarpsráði. Hvað á hann með að vera með einhverja bókun í útvarpsráði um aukaatriði þessa máls?“ spurði Vilmundur að lok- um. Rétt hjá útvarpsstjóra að hægt er að hlusta símtal á báðum endum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.