Morgunblaðið - 11.10.1981, Síða 1

Morgunblaðið - 11.10.1981, Síða 1
72 SÍÐUR 227. tbl. 68. árg. SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Kista Sadats borin frá bænahúsi Maadi-hersjúkrahússins í Kairó. Framan við líkkistuna er einkalífvörður Sadats, Nassef (sem var ekki viðstaddur þegar Sadat var myrtur). Heimsleiðtogar íylgja Anwar Sadat til grafar kaíro. 10. okt. AP. ANWAR SADAT var borinn til Spá meiri- háttar mat- vælakreppu Washingtun. 10. október. AP. UPPIJF.ÁSTUR í Bandarikjunum og víðar kann að valda miklum matvælaskorti á þessum áratug ok meiri vanda i heiminum en olíukreppan á 8. áratugnum, seg- ir í skýrslu sem Lester Brown yf- irmaður Worldwatch-stofnunar- innar hefur scnt frá sér. bar seg- ir að tvöföidun matvælafram- leiðslu i hciminum siðan á 6. ára- tuKnum hafi orðið á kostnað Króðursællar moldar o« illa hafi verið farið með land. Gróðursæld 34% akurlendis í Bandaríkjunum hefur minnkað verulega vegna uppblásturs á und- anförnum árum segir í skýrslunni. „Uppblástur er kannski alvarleg- asta hættan sem steðjar að mannkyninu í dag,“ sagði Brown á blaðamannafundi í dag. Hundrað lönd í heiminum flytja korn inn frá Bandaríkjunum og Kanada í dag. Sprenging í London London. 10. okt. AP. BIFREIÐ sprakk í loft upp hjá Chclsra-hcrhúðunum. steinsnar frá Buckingham- höll i dag og milli 30 og 10 slösuðust, þar af sex alvar- lega. óttazt er að einn maður hafi beðið hana. Sprengingin varð í bilskúr sem er verið að endurnýja við hliðina á herbúðunum sem eru bækistöð 1300 manna lífvarð- arsveitar drottningar. Fimmtu skák- inni frestað Meranó. 10. októbcr. AP. FIMMTU skák þcirra Viktor Korchnois og Anatoly Karpovs var frestað á laugardag fram á mánu- dag að ósk Korchnois í dag. Karpov hefur unnið þrjár skákir af fjórum. en einni lauk með jafntefli kepp- endanna um heimsmeistaratitilinn i skák. grafar i dag nálægt þeim stað þar sem hann var veginn, á her- sýningarsva'ði í Nasr. norðaust- ur-útborg Kairó, og heimsleiðtog- ar og egypzkir hermenn fylgdu honum síðasta spölinn. Víðtækar öryggisráðstafanir voru gerðar og almenningi var haldið í hæfilegri fjarlægð. En hundruð grátandi syrgjenda söfn- uðust meðfram þjóðveginum til staðarins. „Við fórnum okkur fyrir Sadat með blóði okkar og sálum," sönglaði einn syrgjendanna, en svartklæddar konur, sem héldu á mynd af Sadat, grétu. Kista Sadats var flutt á hest- vagni í fylgd lífvarða, fallhlífaliða og hermanna úr stórskotaliðinu og öðrum deildum heraflans að graf- hýsi óþekkta hermannsins þar sem hann mun hvíla unz lokið er smíði marmaragrafhýsis. Á grafsteini hans stendur: „Hetja í stríði og friði ... sem lézt fyrir land sitt.“ Eftirmaður Sadats, Hosni Mub- arak, gekk við hlið sonar forset- ans, Gamal, næst kistunni. Ekkja hans, Jihan Sadat, sat á áheyr- endapalli nálægt staðnum þar sem hann var veginn, ásamt þremur dætrum og öðrum konum sem meg'... tki samkvæmt múham- eðsku..Vx siðvenjum taka þátt í jarðarför. Alexander Haig utanríkisráð- herra og þrír fyrrverandi forsetar Bandaríkjanna — Richard Nixon, Gerald Ford og Jimmy Carter — gengu í fararbroddi bandarísku sendinefndarinnar. Menachem Begin, forsætisráðherra Israels, gekk alla leiðina frá hóteli sínu þar sem hann má ekki nota farar- tæki á hvíldardegi Gyðinga Karlmenn úr fjölskyldu Sadats mættu við bænastund fyrir útför- ina í bænahúsi í Maadj-hersjúkra- húsinu sunnan við Kaíró þar sem lík forsetans hefur legið síðan hann var skotinn til bana á þriðju- daginn. Síðan var líkið flutt í þyrlu til Nasr, eða Sigurborgar- innar. Sorg almennings hefur ein- kennzt af stillingu síðan Sadat var veginn, en í dag voru hengdir borðar í nokkrum hverfum til að hylla hinn fallna leiðtoga. „Ganga Sadats mun halda áfram, tilræðis- mennirnir stöðva hana aldrei," sagði á einum þeirra. Heitara en sólin sjálf Baltimore. 10. októbcr. AP. VOYAGER II fann mesta hitasvæðið sem fundist hefur til þessa í sólkcrfinu á ferð sinni til Satúrnusar i ágúst. Visindamenn sögðu í dag að hitinn á svæðinu væri hundr- aðþúsund sinnum meiri en á yfirborði sólar. Hann er á bil- inu 600 milljón til 1 milljarð- ur F'ahrenheit en hitinn á yf- irborði sólar er 10.000 gráður á Fahrenheit. Hitasvæðið umlykur Sat- úrnus í yfir 170.000 mílna hæð. Vísindamenn kunna ekki skýr- ingu á hitasvæðinu en tals- maður þeirra sagði að lausn á þeirri gátu gæti hjálpað jarð- arbúum að finna lausn á orkuvandamálum sínum. Samsæri um að myrða Reagan? Ncw York. 10. októbcr. AP. FBI og handariska leyniþjónustan rannsaka möguleika á því að aftökusveitir þjálfaðar af mönnum úr bandarisku Grænhúfusveit- unum og á mála hjá Moammar Khadafy Libýuleiðtoga hafi gert með sér samsæri um að myrða Ronald Reagan forseta. Þetta er ástæðan til þess að forsetinn og George Bush vara- forseti fóru ekki til Kaíró til að vera við útför Anwar Sadats for- seta að sögn Douglas Kikers, fréttamanns NBC. I Washington vísaði talsmaður leyniþjónust- unnar fréttinni á bug. „FBI og leyniþjónustan óttuð- ust að morðsveitirnar myndu reyna að myrða þá báða þegar þeir væru þar,“ sagði Kiker í frétt frá Fort Bragg, Norður- Karólínu. Tilkynnt var í Hvíta húsinu á miðvikudaginn að Reagan og Bush myndu ekki mæta við út- förina af öryggisástæðum. NBC sagði að rannsakaðar væru fréttir um hvort Khadafy hefði fengið fyrrverandi her- menn úr Grænhúfusveitunum til að þjálfa aftökusveitir og taka þátt í „samsæri um að myrða forsetann". Fréttaritarinn hefur eftir heimildum í CIA að Khadafy hafi orðið „svo æfur“ eftir að bandarískar herþotur grönduðu tveimur líbýskum þotum í sumar að „... hann fyrirskipaði bana- tilræði við Reagan". Kiker lagði áherzlu á að „að- eins fyrrverandi meðlimir Grænhúfusveitanna“, menn sem hefðu dregið sig í hlé, hætt her- mennsku af öðrum ástæðum eða fengið tilboð um „geysimiklar fjárhæðir", væru taldir viðriðnir samsærið um að myrða forset- ann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.