Morgunblaðið - 11.10.1981, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1981
Amsterdam
Hilton
8 dagar. Brottför alla fimmtu-
daga. Verö frá kr. 3.400,-. Hægt
að velja um dvöl á einum glæsi-
legustu lúxushótelum Evrópu,
Hilton eöa Marriott, eöa hlýlegu
fjölskylduhóteli.
Amsterdam er heillandi borg,
„Feneyjar Norður-Evrópu". Fjöl-
breytt skemmtanalíf, heimsfræg-
ir listamenn á leiksviöum, í óper-
um og konserthöllum. Verslunar-
og viöskiptasýningar. Hundruð
víöfrægra matar- og veitinga-
staöa. Listasöfn og sýningar.
Fjölbreyttar skemmti- og skoö-
unarferðir. Kvöldsiglingar viö
kertaljós á borgarskuröunum.
Og síðast en ekki síst: glæsi-
legar verslunargötur, hlaðnar
varningi á betra veröi en víöast í
Evrópu. Stærsta og ódýrasta
flughafnarverslun Evrópu.
París / Amsterdam
8 dagar. Brottför alla fimmtu-
daga.
Þið kynnist tveimur gjörólikum
glæsiborgum í einni og sömu
ferðinni.
Fjugferöir
Airtour Icéfcujcf
Miöb»jarmarkaðinum 2h.
Aöalstraati 9. Sími 10661.
Staöur:
Lækjarbrekka í Beniliöttstorfu
______Stund:_____
9.október kl.lt
_________Stell:________
Bell, frá Gustavsberg
Veitingastaðurinn Lækjarbrekka í Bernhöftstorfunni opnaði á
föstudaginn var. Til hamingju!
Glæsilegur staður í fallegu umhverfi.
Auðvitað hefur undirbúningurinn verið tímafrekur.
Allt skal vera vandað, stílhreint og falla vel við umhverfið.
En valið á matar- og kaffistelli var auðvelt:
Knútur Jeppesen arkitekt valdi auðvitað ,,Bell“ frá Kosta Boda í
Bankastræti. Frábærlega falleg gæðavara úr eldföstum steinleir.
Þaulhugsað notagildi.
Kosta Boda býður fjölbreytt úrval af fallegum matar- og kaffistellum. m
Einnig allskonar gjafvörur, skálar, bakka, kertastjaka og borðbúnað.
Allt vönduð merki frá víðfrægum sænskum og
þýskum framleiðendum.
Komið við í Kosta Boda. Fallegar vörur í fyrirrúmi.
Ljosapemr 25w-100wf
^KAUPFEIAGH)
i iJuM ^ -j Ij 1 1 1J
1 _
ísafjörður;
Þið munið
hann Jónas
Isafirði. 9. október.
KYNNING Litla leikklúbbsins á
verkum Jónasar Árnasonar, sem
fram fór i Félagsheimilinu
Hnifsdai í kvöld, föstudag, átti
greinilega miklum vinsældum að
fagna.
Fimmtán mínútum áður en
kynningin átti að hefjast varð að
loka húsinu og vísa fólki frá, þar
sem hvert sæti var þá setið.
Jón Baldvin Hannesson kennari
setti hátíðina, en síðan átti Finn-
bogi Hermannsson blaðamaður
viðtal við Jónas. Sýndir voru dans-
ar og lesið upp úr leikritinu Táp og
fjör, lesið var úr sögunni Tíðinda-
laust í kirkjugarðinum, sem nú er
til í leikgerð, og leikið úr Skjald-
hömrurn. Að lokum stjórnaði Jón-
as Árnason fjöldasöng, og frum-
flutti texta eftir sig, sem heitir
Langi-Mangi, við írska lagið Ris-
ing of Moon. Á milli atriða söng
tríó ljóð Jónasar, og lék undir á
gítara. Á þriðja hundrað manns
sótti sýninguna og þökkuðu gestir
með langvinnu lófataki í lokiri.
Leikritið Hallelúja eftir Jónas
Árnason verður frumflutt í vest-
firskri útgáfu hér um mánaðamót-
in. Verkið var upphaflega frum-
flutt á Húsavík á sl. vetri, og var
það skrifað sérstaklega fyrir Hús-
víkinga.
Jónas sagði fréttaritara Morg-
unblaðsins að mikill munur væri á
Vestfirðingum og Þingeyingum.
Hann hefði kynnst Vestfirðingum
lítillega á kosningaferðalagi fyrir
mörgum árum, nú hefði hann rifj-
að upp kynnin við grásleppuveiðar
á Barðaströnd á sl. vori.
- Úlfar
Gott útlit
með línuafla
í haust
AFLI var yfirleitt heldur rýr hjá
þeim vestfjarðatogurum, sem
voru að veiðum í september, en
margir þeirra voru frá veiðum
lcngri eða skemmri tima i mán-
uðinum vegna viðhalds og við-
gerða. Aftur á móti var óvenju-
lega góður afli hjá þeim línubát-
um í fjórðungnum, sem voru
byrjaðir róðra og lítur vel út með
afla á línu i haust, ef ógæftir
hamla ekki róðrum. Nokkrir bát-
ar frá Djúpi voru á netum og
togveiðum og fengu dágóðan
afla. en færabátar hættu flestir
fljótlega eftir mánaðamótin og
var afli þeirra þvi óverulegur.
I september stunduðu 12 togar-
ar og 68 bátar botnfiskveiðar frá
Vestjörðum, voru 46 með færi, 15
með línu, 4 net og 3 með botn-
vörpu. Rækjubátarnir voru allir
hættir veiðum nema Steingríms-
fjarðarbátarnir, sem voru ennþá
að veiðum.
Botnfiskaflinn í mánuðinum var
4.670 lestir, en var 6.261 lest í sept-
ember í fyrra. Er botnfiskaflinn
frá áramótum þá orðinn 72.897
lestir, en var 74.179 lestir á sama
tíma í fyrra. ______
Margeir á mót
í Grikklandi
MARGEIR Péturssyni hefur nú
verið boðin þátttaka á nokkuð
sterku alþjóðlegu skákmóti i Sal-
oniki á Grikklandi. Mótið hefst
þann 14. þessa mánaðar og eru 4
stórmeistarar og nokkrir alþjóð-
legir meistarar meðal keppenda,
sem cru 14.
Stórmeistararnir eru Westerin-
en frá Finnlandi, Ciocaltea frá
Rúmeníu, Lengyel frá Ungverja-
landi auk eins Búlgara, en um
nafn hans er ekki kunnugt enn. Af
alþjóðlegu meisturunum má nefna
Federovicz frá Bandaríkjunum,
Kindrermann frá Vestur-Þýzka-
landi og Nicolic frá Júgóslavíu. Þá
munu beztu skákmenn Grikkja
einnig tefla á þessu móti.