Morgunblaðið - 11.10.1981, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1981
Fundur um fiskverð
í byrjun vikunnar *
eftir 10 daga hlé
ENGIR fundir voru haldnir um
fiskvorð í vikunni saífði Ólaf-
ur Davíðsson, forstjóri bj<)ð-
hajjsstofnunar, að mikið af tím-
anum hefði farið í verðlaitniniíu
á síld framan af vikunni o>? að-
stæður hefðu ekki verið til að
halda fund um fiskverðið í yfir-
nefndinni. Hann saKðist myndu
hoða til fundar fljótleita eftir
hel>?i.
Aðspurður um þá gagnrýni, sem
fram hefur komið á útreikninga
Þjóðhagsstofnunar um afkomu
vinnslugreinanna, sagði Ólafur, að
hún hefði einkum byggzt á því að
varðandi söitun og herzlu væri
ekki miðað við framleiðslu á þess-
um árstíma heldur allt árið í
heild, þar sem vertíðin skipti
mestu máli og mánuðirnir þar á
eftir. Venjan væri sú að reikna
þetta á þennan hátt og þeim, sem
um málin fjölluðu, væri öllum
ljóst við hvað væri miðað, auk
þess sem ítarlega væri gerð grein
fyrir því í forsendum útreikn-
inganna. Ólafur sagði ennfremur
að öllum væri ljóst að óvissa væri
framundan í sölumálum og einnig
það kæmi fram í forsendunum.
Bankamenn boða til
verkfalls ef ekkert
miðar á næstu dögum
FUNDUR verður væntanlega
haldinn hjá sáttasemjara fljót-
lega eftir helgi i deilu banka-
manna og bankanna, en undan-
farið hafa aðilar ra?ðst við án af-
skipta rikissáttasemjara.
Lítið hefur þokað í átt til sam-
komulags og sagði Vilhelm G.
Kristinsson, formaður Lands-
sambands bankamanna, í gær, að
ef ekkert gerðist á næstunni yrði
efnt til verkfalls fljótlega með 15
daga fyrirvara, en síðan getur
sáttasemjari frestað verkfallinu
um viku.
Samningar bankamanna hafa
verið lausir frá 1. september.
Kaupkrafa bankamanna er um
14,5% launahækkun, en það er
sami kaupmáttur og var 1978—79
að sögn Vilhelms. Hann sagði, að
einkum varðandi kaupliðinn hefðu
viðræður gengið stirðlega undan-
farið.
Hinn slasaði hífður upp úr lest Esjunnar. Mynd Mbi. Emiiía.
Vinnuslys um borð í Esjunni
NETARÚLLA féll niður i lest m/s Esju þegar verið var að lesta skipið i Reykjavíkurhöfn og varð 53 ára
gamall maður undir henni. Slysið átti sér stað skömmu fyrir klukkan þrjú á föstudaginn. Maðurinn var
fluttur á slysadeild Borgarspitalans og var gerð aðgerð á honum. Hann var sagður alvarlega slasaður en
ekki lifshættulega.
Seyðisfjörður:
Leitarmenn veðurtepptir
SeyðÍKÍirði, 9. október.
ÉG FÓR upp á Hérað i gær og
var mest hissa hvað það var mik-
ill munur á veðri. Hér á Seyðis-
firði var hægviðri en þar var
hvassviðri.
Hafsteinn Sigurjónsson fjall-
skilastjóri og fleiri Seyðfirðingar
höfðu þá verið uppfrá í 3 daga veð-
urtepptir. Blindað var á uppeftir-
leiðinni. Bæjargöturnar á Seyðis-
firði voru illar umferðar en nú er
búið að moka þær.
Daglega kemur fé af Héraði og
eru bændur að safna því saman.
Sennilega drepst ekki mjög margt
fjárins, því alltaf hefur verið hæg-
viðri.
Aðeins einn dag hefur verið
hægt að smala vegna veðurs, hinn
27. september. Það þurfti mikla
karlmennsku til þess því veðrið
var svo vont enda vantar enn
margt fé. Sumarið í sumar var
ágætt einn mánuð en vorið var
mjög kalt. Svo kom einn ágætur
mánuður en september mjög rign-
ingasamur.
Sveinn
Hvort sem litið er á þvottahæfni, efnisgæði,
handbragð eða hönnun, er Völund í sérflokki,
enda fyrsta flokks dönsk framleiðsla, gerð
til að uppfylla ströngustu kröfur vandlátustu
markaða veraldar.
Voiund
danskar þvottavélar
í hæsta gæðaflokki.
F<"jálst val hitastigs með hvaða
kerfi sem er veitir fleiri mögu-
leika en almennt eru notaðir, en
þannig er komið til móts við
séróskir og hugsanlegar kröfur
framtíðarinnar.
Hæg kæling hreinþvottarvatns
og forvinding í stigmögnuðum
lotum koma í veg fyrir
krumpur og leyfa vindingu á
straufríu taui.
En valið er þó frjálst:
flotstöðvun, væg eða kröftug
vinding.
Trefjasían er í sjálfu
vatnskerinu. Þar er hún
virkari og handhægari,
varin fyrir barnafikti
og sápusparandi svo um
munar.
Traust fellilok, sem lokað er
til prýði, en opið myndar bakka
úr ryðfríu stáli til þæginda
við fyllingu og losun.
Sparnaðarstilling tryggir
góðan þvott á litlu magni
og sparar tíma, sápu
og rafmagn.
Fjaðurmagnaðir demparar
í stað gormaupphengju
tryggja þýðan gang.
Fullkominn öryggisbúnaður
hindrar skyssur og óhöpp.
T'
bAb.
3ja hólfa sápuskúffa
2-^ og alsjálfvirk sápu-
og skolefnisgjöf.
Fjórir litir: hvítt, gulbrúnt, grænt, brúnt.
Tromla og vatnsker
úr ekta 18/8 króm-
nikkelstáli, því
besta sem völ er á.
Lúgan er á sjálfu
vatnskerinu, fylgir
því hreyfingum þess
og hefur varanlega
pakkningu.
Lúguramminn
er úr ryðfríum
málmi og
rúðan úr
hertu pyrex-
gleri.
Annað eftir
því.
Strax við fyrstu sýn vekur glæsileiki Völund athygli þína.
En skoðaðu betur og berðu saman, lið fyrir lið, stillingar,
möguleika, hönnun, handbragð og efnisgæði, og þá skilurðu
hvers vegna sala á vönduðum vélum hefur á ný stóraukist
í nágrannalöndunum. Reynslunni ríkari huga nú æ fleiri að
raunverulegu framleiðslulandi og verðleikum fremur en
verði og gera sér Ijóst, að gæðin borga sig: strax vegna
meira notagildis, síðar vegna færri bilana, loks vegna lengri
endingar.
Volund
þvottavélar-þurrkarar-strauvélar
FYRSTA FLOKKS FRÁ
Traust þjónusta
Afborgunarskilmálar I
/rúnix
HÁTÚNI 6A • SÍMI 24420
Bjóöum alls konar mannfagnaö velkominn.
Vistleg salarkynni fyrir stór og smá samkvæmi.
Veisluföng og veitingar aö yðar ósk.
Hafið samband tímanlega.
HQTEL
LOFTLEIÐIR Sími 22322