Morgunblaðið - 11.10.1981, Page 37

Morgunblaðið - 11.10.1981, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1981 37 VinsæUa- listarnir ENGLAND Stórar plötur 1. ( 1) ABACAB — Genesis 2. ( 5) SUPER HITS 1&2 - Ýmsir 3. ( 2) DEAD RINGER - Meat Loaf 4. ( 6) WIRED FOR SOUND - Cliff Richard 5. ( 7) HOOKED ON CLASSICS — Royal Philharmonic Orchestra 6. ( 3) TATTOO YOU - Rolling Stones 7. ( 8) SHAKY — Shakin Stevens 8. ( 4) RAGE IN EDEN - Ultravox 9. (-) DEMIN & LEATHER - Saxon 10. (10) WALK UNDER THE LADDERS — Joan Armatrading Litlar plötur 1. ( 1) PRINCE CHARMING - Adam and The Ants 2. ( 9) INVISIBLE SUN — Police 3. ( 3) HANDS UP - Ottawan 4. ( 5) PRETEND — Alvin Stardust 5. ( 4) SOUVENIR — Orch Man in the Dark 6. (11) UNDER YOUR THUMB — Godley & Creme 7. ( 8) BIRDIE SONG - Tweets 8. ( 2) TAINTED LOVE - Soft Cell 9. ( 7) ENDLESS LOVE — Diana Ross 10. (22) SHUT UP - Madness BANDARÍKIN Stórar plötur 1. ( 1) TATTOO YOU — Rolling Stones 2. ( 2) FOUR — Foreigner 3. ( 4) BELLA DONNA — Stevie Nicks 4. ( 3) ESCAPE — Journey 5. ( 6) NINE TONIGHT — Bob Sweger 6. ( 7) THEINNOCENT AGE — Dan Fogelberg 7. ( 5) PIRATES — Rickie Lee Jones 8. ( 6) PRECIOUS TIME - Pat Benatar 9. (10) BREAKIN' AWAY - Al Jarreau 10. (22) SONGS IN THE ATTIC - Billy Joel Litlar plötur 1. ( 1) ENDLESS LOVE - Diana Ross og Lionel Richie 2. ( 2) ARTHUR'S THEME - Christopher Cross 3. ( 3) STOP DRAGGIN’ MYHEARTAROUND - Stevie Nicks og Tom Petty 4. ( 4) WHO’S CRYING NOW - Journey 5. (11) FOR YOUR EYES ONLY — Sheena Easton 6. ( 7) STEP BY STEP - Eddie Rabbitt 7. ( 9) START ME UP - Rolling Stones 8. (13) PRIVATE EYES - Daryl Hall & John Oates 9. ( 8) URGENT - Foreigner 10. (10) HOLD ON TIGHT - ELO Listi ensku .independent" sjáltstæðu útgáfufyrirtækjanna. 1. ( 3) WISE AND FOOLISH - Misty 2. ( 1) RED MECCA - Cabaret Voltaire. 3. ( 6) IN CONCERT - T Rex. 4. ( 9) COVER PLUS - Hazel O'Connor 5. ( 2) PRESENT ARMS — UB-40 Litlar plötur: 1. ( 7) JUST CAN'T GET ENOUGH — Depeche Mode 2. ( 2) ALL OUT ATTACH EP - Blitz 3. ( 3) ONE IN TEN - UB-40 4. ( 1) RELEASE THE BATS — Birthday Party 5. (12) YOU SCARE ME TO DEATH - Marc Bolan Listinn er fenginn að láni úr NME. Hann er miðaöur viö sölu í verslunum viöa um Bretland sem sérhæfa sig i nýrri tónlist. þessu asnalega orði er samt ekki átt við Stockhausen og þá, verður að þekkja og kunna hefðbundna tónlist. Fyrst er að læra að spila hreint fyrr en hægt er að gera tón- ana falska, eða réttara sagt, prófa sig áfram við nýja tóna. Nútímatónlist býður upp á allt. Öll hljóð standa manni til boða og þá er að nýta þau. Ég hef trú á einni hljómsveit hér á landi til að gera það. Þrír ungir Garðbæingar sem vita hvað er að gerast í hljóm- listinni. Jhone-Jhone kalla þeir sig. Þeir eru sko með í lífinu eða músík- inni. Líf er músík, músík er líf. - Það er hinsvegar sorglegt hversu margir eru haldnir þeirri firru að halda að nýbylgjan þýði algert frí. Að hver sem er geti keypt sér gamlan gítar og byrjað að berja strengi, íklæddur plastfötum eða leðurfötum og þóst vera að spila músík. Eins og það sé nóg að vera pönkfrík. Það eru til alltof mörg grey sem halda að þau geti spilað en hafa samt aldrei lært neitt. Fyrst verður að kunna til verka áð- ur en hægt er að hefjast handa um breytingar, samanber að klessu- málari getur aldrei gert góð klessu- málverk nema hann hafi fyrst náð valdi á landslaginu. Líkt og ljóð- skáld getur ekki leyft sér að yrkja formlaust fyrr en hann hefur form- ið á valdi sínu. Hlustaó á fóninn Miðvikudagskvöld, úti er norðan- garri, inni er hlýtt og kaffið rýkur úr bollunum. Á fóninum snýst plata Þeys, Iður til fóta. Tveir úr hljómsveitinni, þeir Hilmar Örn Agnarsson og Guðlaugur Óttars- son, hlusta á plötuna með Poka- horninu og svara nokkrum spurn- ingum í leiðinni. Sp.: Hvort kemur á undan þeg- ar verk er samið, textinn cða lag- ið? Sv.: Góður texti skapar oftast gott lag, lög gera texta. Sp.: Hvort er auðveldara? Sv.: Hvorugt, ljóð er stemmning, hughrif. Á nýju plötunni sem við erum með í smíðum notum við ljóð sem aðalhvata við lagasmíðina en samt er textinn ekki sunginn; eins konar instrumental hugleiðing um ljóð. Sp.: Lagið Hás 12? Sv.: Textinn er óskýr, það er alls ekki ætlunin að fela neitt með því, söngurinn er sérkennilegur en við viljum ekki segja hvernig hann er gerður svona. Sumir halda að pressan hafi gallast á plötunni, skurðurinn sé of djúpur og söngur- inn hafi bjagast. En söngurinn á að vera svona. Textinn er um þennan eilífa bás sem okkur er skipað á. Þér og okkur. Básasystemið sem þjóðfélagið okkar býr við kemur í veg fyrir að fólk þurfi að ómaka sig við að hugsa sjálft eða skilgreina, allt er sett upp í litla handhæga kassa. Okkar takmark er samt ekki það að predika. Engar yfirlýsingar, lát- um aðra um þær. Og þó, kannski erum við með ómeðvitaðan boðskap í tónlistinni. Sp.: Aríareggae? Er þetta ein- hver nýfasismi úr ykkur? Sv.: Alls ekki, við vitum varla hvað fasismi er. Annars er dálítið fyndið hvernig margir gagnrýn- endur hafa brugðist við þessu lagi. Sagt að það væri alls ekki neitt reggae-legt. Sá sem lét þau um- mæli sér um munn fara hefur alls ekki lesið nafn lagsins nógu vel. Það heitir Aríareggae, ekki Babyl- on- eða Jamaicareggae. Aría, það er málið og þess vegna í þannig anda. Stíft, þótt eiginlega sé það heldur of mjúkt hjá okkur. Sp.: Lagið er skrifað á hljóm- sveitina alla. Hvernig geta svona margir verið semjendur að einu lagi? Varð þetta kannski til upp úr djammi? Sv.: Djamm er eitthvað frá hippatímanum. Við notum ekki þannig vinnubrögð, við göngum hreint til verks. Það er megn hass- fýla af þessu orði, djamm. Þessir hippar gátu bara ekki spilað það sem þeir áttu að spila, þeir hafa aliir verið útúrskakkir í spila- mennskunni, þess vegna kölluðu þeir óskapnaðinn sinn djamm. Við erum alltaf klárir í kollinum þegar við spilum, þurfum ekki að reykja hass, te er okkar fíkn. Sp.: Samanber lagið Tedrukk- inn? Sv.: Ja, það er auðvitað viss víma, og ekki verður maður timbraður af því. Sp.: Ég hélt að þið væruð að gera grin að ákveðnum hópi sem þykist til vinstri? Nú ekki? Jæja, þið voruð að tala um gagnrýnend- ur áðan, hvernig finnst ykkur að eigi að dæma plötur? Sv.: Menn verða að gerast per- sónulegir, koma með sitt álit, ann- að er ekki hægt. Menn misskilja oft hlutverk sitt í þessum efnum. Halda að þeir séu tónlistarmenn þótt þeir geti hlustað á plötur. Halda þá að þeir séu færir um að dæma. Eina sem þessir menn geta sagt, er hvort þeim sjálfum hafi líkað við plötuna eða ekki. Þeir sem dæma í blöðunum hér á landi vita oftast ekki hvað um er að vera í hljómlistinni, að minnsta kosti hvað poppgagnrýni viðkemur. Enda eru umsagnir í blöðum oft bara fréttatilkynningar frá útgáfu- fyrirtækjunum. Enda eru þeir sem um pennann halda iðulega á mála hjá þessum útgáfufyrirtækjum. Og svo lætur alþýðan plata sig upp úr skónum, trúir umsögnunum þeirra eins og þær séu marktækar. Sp.: Vikjum að hættuminni mál- efnum. Ilvað voruð þið lengi að vinna „Iður til fóta“? Sv.: 50 stúdíótíma. En lögin höf- um við spilað á hljómleikum síð- ustu tvo mánuði fyrir upptökur. En auðvitað höfðu þau breyst í með- förum, þroskast með okkur, ef svo má segja. Núna erum við að byrja á nýrri 14 laga plötu. Helming þess- ara laga höfum við flutt á hljóm- leikum, hin eru ný. Fluttum tvö þeirra á hljómleikunum i Þjóð- leikhúskjallaranum á mánudaginn. Það er góður staður, kjallarinn. Eiginlega sá besti sem hugsast get- ur. Hljómburðurinn góður, stemmningin eins og í breskum klúbbi. Já, á næstu plötu okkar hugsum við meira um textana. Förum eig- inlega nýjar leiðir í átt til nútíma- tónlistar enda hefur Hilmar verið að læra þau fræði í Tónlistarskól- anum síðustu þrjú árin. Sp.: Vel á minnst, þið eruð flest- ir með tónlistarmenntun að baki? Sv.: Jú, Guðlaugur hefur mikið verið að grúska í æðri músík, þá er ekki átt við þá tónlist sem kennd er í Tónlistarskólanum. Hilmar er á kafi í gamalli kirkjumúsík. En við erum ekki að monta okkur af skóla- göngunni. Tónlistarskólinn er alls ekki það góður skóli þótt ýmsir kennarar séu þar ágætir. En þetta er samt málið. Til að geta spilað í dag, ekki segja ný- bylgju, segðu nútímatónlist, með Sp.: Takk fyrir, en eigum við að skoða umslagið? Þið eruð með latneskar tilvitnanir i Bibliuna á bakhliðinni. Þarna er ein úr opinbcrun Jóhannesar. önnur úr Genesis, syndaflóðinu. Á framhlið- inni grasserar svo heilagur andi i dúfnalíki og fleiru. Sv.: Það kemur kannski spánskt fyrir sjónir. Segjum bara að við sé- um að votta kirkjunni virðingu okkar. Við lukum við plötuna um líkt leyti og nýi biskupinn var kos- inn. Þetta er okkar homage, með glott á vör, nota bene. Annars er best að fara ekki út í þessa sálma. Sp.: Nú, eruð þið ekki i dóma- dagshugleiðingum? Sv.: Nei, við látum Bubba um þær. Okkar þankar eru á öðrum sviðum. Allt frá Wilhelm Reich til leynifélagsskaparins Illuminati. Frá skýjabyssum til alheimssam- særis! Svo má ekki gleyma honum Helga Pjeturs, hann er okkar mað- ur. Þessar pælingar eru meðal ann- ars hvatinn að nýju 14 laga plöt- unni. Með henni erum við eiginlega að stíga skrefið til fulls. Ætli það taki almenning ekki tíu ár að með- taka hana. Sp.: Að lokum. Hvert er ykkar álit á plötunni ykkar. Iður til fóta? Sv.:Við getum ekki sagt að hún sé slæm, þá væri hún ekki á fóninum, ekki satt? Þetta er góður fílingur. Með plötunni setjum við fram þær tilfinningar sem við hrærðumst í síðasta sumar. Það er bara að vita hvort fólk almennt skynjar það sama og við, en auðvitað hefur hver sinn skilning samt sem áður. Tónlist er aðeins hægt að flokka í tvær áttir. Annaðhvort er hún góð eða slæm. Þetta er eina raunhæfa viðmiðunin og sú viðmiðun hlýtur alltaf að vera háð smekk og þroska þess sem á hlýðir. Þó ætti tónlist að vera notuð til þess að lyfta fólki upp, tónlist á skilyrðislaust að vera gleðigjafi en ekki hrinda mönnum í dýpi þunglyndisins. Segjum að tónlist sé góð ef hún er uppspretta gleðinnar. Endir. Hlióml eikar vikunnar Sunnud. 11/10 Kvintett Viöars Alfreös. Stúdentakj. Mánud. 12/10 Spilafífl. Fjölbraut/Breiöholti. Þridjud. 13/10 Nýja Kompaníið. Bústaðir. Fimmtud. 15/10 Kvintett Viðars Alfreös. Djúpiö. Spilafífl. Borgin. Föstud. 16/10 Bodies. NEFS. Laugard. 17/10 Nýja kompaníið. Djúpiö. Fræbbblarnir, Grenj. NEFS.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.