Morgunblaðið - 11.10.1981, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 11.10.1981, Qupperneq 38
3 8 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1981 Fundur Starfsmannafélags Flugleiða o.fl. að Hótel Loftleiðum: Harðar umræður um fyrirhugað leyfi Arnarflugs til áætlunarflugs StarfsmannafélaK FluKleiAa efndi til fundar að Hótel Loftleið- um sl. fimmtudaKskvöld ásamt mörKum öðrum verkalýðsfélög- um. Gestir fundarins voru Steinnrímur Ilermannsson sam- KönKumálaráðherra. Ilalldór E. SÍRurðsson fyrrv. samKönKU- málaráðherra, Hannihal Valdi- marsson fyrrv. samKöngumála- ráðherra. flu^ráð ok fluKmála- stjóri. Fundinn s<'>ttu á fimmta hundrað manns ok þar var eftir- farandi ályktun samþykkt. „Fjölmennur fundur starfs- manna Flugleiða, auk annarra áhugamanna um flugmál, haldinn að Hótel Loftleiðum 8. okt. 1981, skorar á stjórnvöld að halda vöku sinni í flugmálum íslendinga. Mat stjórnvalda við sameiningu flugfélaganna var að millilanda- áætlunarflug væri ekki til skipt- anna. Reynslan hefur sýnt að mat þetta var á rökum reist. Skipting áætlunarflugs í milli- landaflugi leiðir til fjöldaupp- sagna starfsmanna Flugleiða og kippir stoðum undan afkomu fjöl- margra heimila. Samkeppni í millilandaflugi er bezt mætt með einu styrku inn- lendu flugfélagi en ekki mörgum veikburða og smáum." A fundinum urðu miklar um- ræður um fyrirhugaða leyfisveit- ingu Arnarflugi til handa um að hefja áætlunarflug til Þýzkalands og Sviss, en Flugleiðir hafa haft einkaleyfi á áætlunarflugi til þessara landa hingað til. I ræðu sem Erling Aspelund fram- kvæmd.stj. Stjórnunardeildar Flugleiða flutti á fundinum benti hann á að hollt væri að horfa til baka ef menn vildu gera sér grein fyrir þessu máli. Samkeppnin, sem á sínum tíma hefði verið á milli Flugfélags Islands og Loftleiða, hefði verið óhagkvæm fyrir bæði fyrirtækin — skefjalaus sam- keppni t.d. í Skandinavíuflugi hefði leitt til stórskaða fyrir bæði félögin. Öllum hafi verið ljóst að kakan væri of lítil til skiptanna en þó hafi tekið áratugi að komast að samkomulagi um sameiningu fé- laganna. Tíminn hefði leitt í ljós að sam- einingin ætti fullan rétt á sér og væri Air Viking gott dæmi um hvað samkeppni í utanlandsflugi gæti leitt af sér. Skömmu eftir að Air Viking hefði verið úr sögunni hefði Arnarflug, sem stofnað var á rúst.um þess, hafið samkeppni við Flugleiðir en í ljós komið sem fyrr að ekki væri pláss á markaðinum fyrir nema eitt flugfélag. Stjórn- völd hefðu því þrýst á um að Flugleiðir keyptu Arnarflug og fengju því leiguverkefni en nú hefðu þessi sömu stjórnvöld kraf- ist þess að Flugleiðir seldu meiri- hluta sinn i Arnarflugi. Það er engin stefna til í þessum málum hjá stjórnvöldum, sagði Erling, aðeins hringlandi. Nú á að færa Arnarflugi áætlunarflugið til Þýzkalands og Sviss á silfur- bakka en um er að ræða mark- aðssvæði sem Flugleiðir hefur haft ærinn kostnað af að ná upp. Afieiðingin yrði skefjalaus sam- keppni og útkoman tvö veil flugfé- lög. Væri greinilegt að stjórnvöld hefðu lítið lært. Varðandi þá ríkisaðstoð sem Flugleiðum hefur verið veitt benti Erling á að hún væri hvergi nærri jafn mikil og þær tekjur sem ríkið hefði haft af rekstri flugfélagsins undanfarin ár. Ef Arnarflug fengi leyfi til áætlunarflugs á umrædd- um flugleiðum þýddi það nýjar fjöldauppsagnir starfsfólks Flug- leiða einmitt þegar fyrirtækið væri að ná sér upp úr öldudal vegna harðnandi samkeppni er- lendis. Virtist sér að sá áhugi sem samgöngumálaráðherra hefði sýnt á málefnum Flugleiða væri sýnd- armennska ein þar sem hann ætl- aði nú að beita sér fyrir aðgerðum - til að veikja flugfélagið. Sterkar og vel reknar flugleiðir væru bezti kosturinn í flugmálum íslendinga. Einar Helgason forstöðumaður hjá Flugleiðum benti á að Flug- leiðir hefðu um árabil verið neyddar til að greiða halla af inn- anlandsflugi með því að hækkun- arbeiðnir á flugfargjöldum hefðu verið afgreiddar seint og gjarnan skornar niður hjá Verðlagsráði. Sú aðstoð sem ríkið veitti nú fyrir- tækinu væri ekki annað en endur- greiðsla á þessu fé. Þá benti Einar á að samkeppni ætti því aðeins rétt á sér að hún leiddi til varan- legs lægra verðs eða bættrar þjón- ustu — eða aldrei hefði sýnt sig að önnur flugfélög gerðu betur en Flugleiðir. Forsendur samein- ingarinnar stæðu óhaggaðar og bæri stjórnvöldum að taka tillit til þess. Ingibjörg Nordal flugfreyja benti á að Félag íslenskra flug- freyja hefði á undanförnum árum háð harða baráttu fyrir starfsör- yggi meðlima sinna. Ef áform samgöngumálaráðherra yrðu að raunveruleika væri fyrirsjáanlegt að fjölda flugfreyja yrði sagt upp og starfsreynslu þeirra, sem væri vissulega dýrmæt fyrir milli- landaflugið, kastað fyrir róða. Með þessu væri sá ótvíræði árang- ur er náðist við sameininguna, sem vissulega hefði kostað mikla erfiðleika, eyðilagður. Þorgeir Magnússon flugmaður benti á að markaðurinn þyldi ekki nema eitt flugfélag. Er flugfélögin hefðu verið sameinuð á sínum tíma hefði verið lagt til grundvall- ar að Flugleiðir hefðu einkaleyfi á áætlunarflugi til útlanda. Þessar forsendur stæðu áhaggaðar, en ætlun samgönguráðherra væri sú að færa Arnarflugi hluta af mark- aðssvæði Flugleiða á silfurbakka, veikja þannig stöðu þess og brjóta niður þann árangur er náðst hefði við sameininguna. Geir Hauksson flugvirki las upp ályktun frá stjórn og trúnaðarráði Flugvirkjafélags íslands þar sem bent var á að þjóðhagslega hag- kvæmt væri að viðhald flugvéla færi sem mest fram hér á landi. Flugvirkjum hefði fjölgað hér meðan starfsfólki Flugleiða fækk- aði, en þó Arnarflug hefði 3 flug- vélar á sínum vegum væri ekkert viðhald á þess vegum hérlendis. í ályktuninni segir að forsendur sameiningarinnar séu óbreyttar og sé markaðurinn ekki frekar til skiptanna nú en er hún var gerð. í ræðu sinni sagði Steingrímur Hermannsson samgöngumálaráð- herra m.a. að hann hafi aldrei tal- ið sameiningu flugfélaganna rétta úrræðið — fremur hefði átt að skipta leiðum. Það væri óæskilegt frá sjónarmiði neytandans að eng- in samkeppni væri og skapaði það mikla tortryggni. Flugleiðasam- steypan hefði eignast mikið hótel- rými, bílaleigu o.fl. og hefði mjög sterk tök á ferðaskrifstofunum. Ferðaskrifstofurnar una ekki lengur þessari einokun, og einok- un á engan rétt á sér nema hún sé algerlega óhjákvæmileg, sagði Steingrímur. Hann benti á að varla teldu margir heppilegt að Eimskip hefði einokun á sigling- um, þar virtist nóg rými fyrir samkeppni og myndi það gilda og um flugmálin. Steingrímur sagðist hafa haft efasemdir um hvort veita ætti Flugleiðum ríkisaðstoð þegar sem verst gekk í Atlantshafsfluginu og hefði hann á þeim tíma heyrt ýmsar sögur er vöktu tortryggni um að stjórnun félagsins væri allskostar eins og hún ætti að vera. Sagðist hann ekki leggja mat á hvort þessar sögusagnir væru allar sannar en hins vegar sett það skilyrði fyrir aðstoð að grundvöllur yrði fyrir annað flug- félag að starfa hér á landi. Taldi hann það hæpið orðalag að Arnar- flug fengi áætlunarflug til Þýzka- lands og Sviss á silfurbakka — væri undarlegt ef þetta litla flug- félag yrði risanum að falli. Flugfé- lögin gætu haft með sér samstarf t.d. um viðhald á flugvélum og flugafgreiðslu. Hér væri um beinlínis nauðsyn- lega ráðstöfun að ræða, sagði Steingrímur. Ef ekkert yrði að gert myndi reka að því að íslenzk- ar ferðaskrifstofur notfærðu sér rétt sinn til að leita til erlendra flugfélaga og væri þá illa farið. Lausn málsins væri í hans augum sú að lítið flugfélag sem veitti að- hald tæki til starfa, annaðist fyrst og fremst leiguflug, en hefði styrk af takmörkuðu áætlunarflugi. Sagðist Steingrímur ætla að vísa málinu til Flugráðs en taka end- anlega ákvörðun er álit þess lægi fyrir. A fundinum tóku 16 menn til máls. Tölverðar umræður urðu um flugmál innanlands og hvernig bú- ið væri að innanlandsflugi. Þá var rætt um flugskýlið á Keflavíkur- flugvelli og það vítt að stjórnvöld hefðu ekki ráðist í að byggja þar nýtt flugskýii. Lögreglumenn sækja hjólið við vakarbrúnina. Á innfelldu mvndinni er (roskmaður að leita á botni Tjarnarinnar. Leitað í Tjörninni SKÖMMU fyrir kl. 13 á föstudag var lögrcglunni í Reykjavík til- kynnt . að hjól lægi við vakar- brún á Tjörninni, skammt frá Tjarnarbrúnni. Var jafnvei talið að barn hcfði fallið i vökina og voru þegar gerðar ráðstafanir til leitar í Tjörninni. Froskmaður leitaði á botni Tjarnarinnar og lögreglumenn fóru út á gúmmíbáti. Þá var sjúkrabill hafður til taks, en sem hetur fer reyndist óttinn ástæðu- laus. í Ijós kom, að hjólinu, sem lá við vakarbrúnina. hafði verið stolið í fyrrinótt. Leitað í Tjörninni „Framtíð einkarekstrar44 yfirskrift Viðskiptaþings NÆSTKOMANDI fimmtudag. 15. október, hefst fjórða ViÁ skiptaþing Verzlunarráðs ís- lands að Ilótel Loftleiðum. Verð- ur þingið sett í Kristalssal hótels- ins klukkan 10.15 árdegis með ræðu formanns Verzlunarráðs- ins. Hjalta Geirs Kristjánssonar. Viðfangsefni þingsins að þessu sinni verður umræða um stöðu og framtíð einkarekstrar á íslandi. Fyrir hádegi verður fjallað um stöðu einkarekstrar í atvinnulíf- inu, en í hádeginu og eftir hádegið verður fjallað um hlutverk einka- framtaksins í atvinnulífinu á komandi árum. Síðan taka við al- mennar umræður um efni þings- ins. Ætlunin er, að Viðskiptaþing- inu ljúki með hópumræðum um og afgreiðslu á endurskoðaðri stefnu Verzlunarráðsins, en að undan- förnu hefur nefnd á vegum ráðsins unnið að endurskoðun á stefnu þess í efnahags- og atvinnumál- um. Eftir Viðskiptaþingið er síðan ráðgert að gefa stefnuna út að nýju í sérstakri útgáfu með mynd- efni og línuritum, sem útskýra frekar einstaka þætti stefnunnar. Viðskiptaþingið verður sem fyrr opið öllum áhugamönnum um máiefni þess meðan húsrúm leyfir. Þátttöku þarf að tilkynna á skrifstofu ráðsins og verða þing- gögn afhent á skrifstofunni frá mánudeginum 12. október. Þátt- tökugjald á Viðskiptaþinginu verður að þessu sinni 300 krónur og er hádegisverður, kaffiveit- ingar og þinggögn innifalin í því. Fyrsti fundur Blóögjafafélags íslands: Kvikmyndasýningog saga blóðgjaf a FYRSTI almenni fundur Blóðgjafafélags íslands verður haldinn í fundarsal Kauða kross íslands að Nóatúni 21 annað kvöld, mánudaginn 12. okt., og hefst hann kí. 21.00. World". Þá flytur Þórarinn Guðnason, læknir, erindi og fjallar um sögu blóðgjafa til lækninga. Einnig verður flutt skýrsla um starf félagsins, þá verða einnig almennar umræður og sýndar tillögur að merki fé- lagsins. Fundurinn er öllum opinn og eru félagsmenn hvattir til að taka með sér gesti og nýja fé- laga. Vinningar í happdrætti IOGT Bloðgjafafélagið var stofnað 16. júli sl. og er markmið þess fræðslustarf o.fl. varðandi hlóðgjafir. Á dagskrá fundarins verður kvikmyndasýning sem ber heitið „Blood is Red All Over the Vinningar í happdrætti IOGT til eflingar barnastarfi komu á eft- irtalda miða: 1. Utanlandsferð f. 2 (verðm. 14.000 kr.): nr. 9748. 2.-18. reið- hjól: 2-4: nr. 1734, 5343, 8398; 5—7: nr. 5619, 428, 8020; 8—10: nr. 6502, 878, 4566; 11-12: nr. 6873, 5988; 13-14: nr. 4444, 8142; 15-16: nr. 656, 8054; 17-18: nr. 4707, 1072. (Birt án ábyrgðar)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.