Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 2. desember Bls. 33 — 64 Stúdentafélag Reykjavíkur 110 ára Nil humani a me alienum puto Eftir Lýð Björnsson Um þessar mundir á einn elzti og virðulegasti félagsskapur landsins 110 ára afmæli. Slíkt tilefni er ærin ástæða til að huga að genginni slóð, enda er það í samræmi við forna hefð. Hér verður drepið á nokkra þætti úr sögu félagsins, en varðandi framtíðina skal minnt á, að enn skyggir Skuld fyrir sjón. „Fundir eru engir og bágt að koma þeim á eða laga þá svo, að menn fái þokka á þeim. Fjörið er dauft og á sundr- ungu um strjálbyggt land.“ Svo ritaði Ari bóndi Finnsson Jóni Sigurðssyni for- seta hinn 10. júlí 1861. Þetta voru orð að sönnu. Félagsstarfsemi hafði ekki verið iðkuð að marki í landinu um aldir, og þótti flestum framfarasinnum nóg um dofann. Jón forseti og fleiri hvöttu landa sína óspart til að stofna félög og taka virkan þátt í starfsemi þeirra. Þetta bar þann árangur, að allmörg félög voru stofnuð um miðbik 19. aldar og næstu áratugi og víðsvegar um land. Mest var gróskan um 1870. Þá stóð afmælishátíð 1000 ára byggðar í landinu fyrir dyrum og hennar vildu menn minnast á sem eftirminnilegastan hátt. Mörg þessara félaga urðu á hinn bóginn skammlíf og hafa lítil spor markað í sögunni. Reykjavík fór ekki varhluta af þessari hreyfingu. Þar efndu áhugamannahópar til leiksýninga um hátíðirnar flesta vetur 1850—1870. Nemendur Lærða skólans og stúdentar mynduðu kjarna þessara hópa, sem nú hefðu líklega verið nefndir starfshópar um leiklist. Þetta viðfangs- efni nægði ekki. Einn þessara hópa stofnaði málfundafélag laust eftir ára- mótin 1860—1861. Nefndist það í fyrstu Leikfélag andans, en nafninu var fljót- lega breytt í Kvöldfélagið. Þetta var leynifélag, sem einungis verðugir fengu aðild að. Obbinn af félagsmönnum hafði annað hvort lokið stúdentsprófi eða var við nám í Lærða skólanum. Má því segja, að þetta væri vísir að stúdentafélagi. Það starfaði fram á mitt sumar 1874. Um- ræður á félagsfundum voru oft fjörugar og ekki sízt, er frjálshyggjumenn og sósí- alistar þeirrar tíðar leiddu saman hesta sína á málþingum. Árið 1847 tók fyrsta háskóladeildin til starfa í Reykjavík. Þetta var prestaskól- inn. Nokkrum árum síðar eða árið 1860 hóf Jón landlæknir Hjaltalín að kenna læknanemum upp á eigin ábyrgð. Heim- ild til slíkrar kennslu fékkst fyrst tveim- ur árum síðar. Prestaskólinn var í fyrstu til húsa í Hafnarstræti 22 (Sivertsens- húsi), en flutti árið 1872 í Austurstræti 22 (Yfirréttarhúsið). Kennsla lækna- nema fór aftur á móti fram í spítalanum, eftir að sú stofnun tók til starfa, en spít- alinn var til húsa á efri hæð klúbbsins við suðurenda Aðalstrætis. Var því nokk- Stúdentafélag Reykja- víkur fékk Einar Jóns- son til að gera minnis- varða um Jónas Hall- grimsson. Myndin sýnír afhjúpun minnisvarö- ans á túninu fyrir fram- an Bernhöftstorfu hinn 16. nóvember 1907. Styttan var flutt suður í Hljómskálagarð árið 1945. Löghelgun Hvítbláins var eitt helzta baráttumál stúdenta á fyrstu tugum þessarbr aldar. Danskir stúdentar komu í heimsókn til landsins aldamótaárið. Stúdentafélagiö greiddi för þeirra á ýmsan hátt og hélt þeim samsæti á Hótel íslandi. Myndin sýnir gestina á Austurvelli í fylgd Björns Jónssonar ritstjóra, en hann var næstfyrsti formaður félagsins. urt vik milli vina. Fimmtán stúdentar voru við nám í prestaskólanum árið 1871 og fimm í læknanámi. Upphaf læknakennslu kann að hafa hvatt stúdenta til að bindast samtökum. Ymsir þeirra voru félagar í Kvöldfélag- inu, svo sem fyrr getur, en óvíst er, hvort allir stúdentar hafi talizt verðugir til inntöku þar. Mælt er og, að sumum þeirra hafi þótt lítið til félagsins koma. Stúdentar hafa löngum verið ötulir baráttumenn fyrir auknu frelsi. Úr þeirra röðum komu ýmsir traustustu fylgismenn Jóns Sigurðssonar í sjálf- stæðisbaráttunni og oddvitar þjóðarinn- ar á því sviði síðar. Mælt er, að þessum mönnum hafi þótt umfjöllun um sjálf- stæðismáliö innan Kvöldfélagsins vera í lágmarki og þeir hafi af þeirri ástæðu ekki haft áhuga á aðild. Leyndin yfir fé- laginu kynni og að hafa verið sumum þeirra þyrnir í augum. Víst er, að stúd- entar brugðu á það ráða að stofna eigið félag í stað þess að fjölmenna í Kvöldfé- lagið, en það stóð þeim vissulega til boða. Haft hefur verið fyrir satt, að Stúdentafélag Reykjavíkur hafi verið stofnað af stúdentum við læknaskólann og prestaskólann hinn 14. nóvember 1871. Markmið félagsins var að sögn Jóns biskups Helgasonar, „að koma á blóm- legu og þjóðlegu stúdentalífi í Reykjavík, fræða hver annan og skemmta með fyrir- lestrum og umræðum, glæða áhuga ann-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.