Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981 39 Frá blaðamannafundinum: f.v. Sverrir Hermansson forstjóri Framkvæmdastofnunar ríkisins, Benedikt Ant- onsson skrifstofustjóri, Bjarni Einarsson framkvæmdastjóri Byggðadeildar, Helgi Olafsson framkvæmdastjóri Áætlunardeildar, Gudmundur B. Olafsson framkvæmdastjóri Lánadeildar, Vífill Oddsson verkfræðingur og Helgi Hjálmarsson arkitekt. Ljósm. Emih*. Framkvæmdastofnun ríkisins flutt í nýtt húsnæði NÝLEGA var lokið við smíði húss Framkvæmdastofnunar ríkisins að Rauðarárstíg 25. Húsið er á fjórum hæðum auk bakhúss og yfir hyggðrar bflageymslu og er heildarrúmmál þess 2.742 fermetr ar. Aðalinngangurinn er frá Rauð- arárstíg en á 1. hæð er Lánadeild Framkvæmdastofnunar til húsa. Sérinngangur er frá Þverholti á 2. hæð en þar er aðsetur forstjóra, fundarsalir og kaffistofa. Á 3. hæð er Byggða- og Áætlanadeild en Þjóðhagsstofnun leigir 4. hæðina. í bakhluta 1. hæðar eru tæknirými og geymslur auk fundarsalar og þar eru einnig bílageymslur. Á lóð- inni sem er fullfrágengin eru 45 bflastæði, þar af 12 í bflskýli. Á blaðamannafundi sem Framkvæmdastofnun ríkisins efndi til kom fram að kostnaður við gerð hússins nemur 18,9 millj. kr. eða um 6.800 kr. á hvern fermetra. Áherzla er lögð á þaö við hönnun hússins að þar yrði vinnuaðstaða sem bezt. Burðarvirki hússins er steypt, tveir steinsteyptir kjarnar liggja upp í gegn um mitt húsið en einnig eru súlur til styrktar. Húsið er því mjög sveigjanlegt gagnvart notkun, þar er auðvelt er að breyta herbergjaskipan til samræmis við þá starfsemi sem þar verður. Húsið er grunnhitað með ofnum en tvær neðri hæð- irnar eru lokaðar og búnar góðri loftræstingu. Lokun hæðanna er vegna hávaða að utan en það stendur í bæjarhluta þar sem töluverður hávaði er frá umferð. Á blaðamannafundinum kom fram að einstakir áfangar við Ljósm. ÓI.K.M. Hið nýja hús Framkvæmdastofnunar ríkisins við Rauðarárstíg. byggingu hússins voru boðnir út og reyndust tilboð í einstökum tilvikum um 80 prósent lægri en áætlaður kostnaður. Stærsti verktakinn við bygginguna var Byggingarfélagið Reynir sf., en aðrir verktakar voru Húmus hf., Trésmiðjan Grein hf., Tengi sf., Guðmundur Karlsson, Kristinn Auðunsson, Blikksmiðjan hf., Einar og Stefán sf. og Guðmund- ur Gíslason. Sú leið var farin varðandi loftræstingu hússins að í stað þess að hafa á því stromp var Jón Gunnar Árnason mynd- listarmaður fenginn til að hanna listaverk sem loftræstingin tengist. Öll arkitektavinna við húsið var unnin á Teiknistofunni Óðinstorgi sf., og einnig burðar- teikningar og teikningar af hreinlætislögnum. Hita- og loftræstiteikningar voru unnar af Verkfræðistofunni Önn sf., en rafteikningar af Rafteikningu hf. Teiknistofa Reynis Vil- hjálmssonar landslagsarkitekts vann lóðateikningar. Þjóðdansafélag Reykjavíkur 30 ára Þjóðdansafélag Reykjavíkur hefur gengist fyrir mörgum sýningum sl. sumar, svo sem á Akureyri, í Norræna húsinu, fyrir Sjálfsbjörg, í Árbæjarsafni og víðar. AÐALFUNDUR þjóðdansafélags Reykjavíkur var haldinn fimmtudag- inn 24. september sl., en félagið er 30 ára gamalt, var stofnað 17. júní 1951. í skýrslu formanns kom m.a. fram að norrænt þjóðdansamót NORD- LEK verður haldið í Gautaborg næsta sumar, en ísland hefur um langt árabil verið aðili að norrænu samstarfi um þjóðdansa og þjóðlög. Einnig kom fram að sýningar hjá félaginu hafa verið óvenju margar nú í sumar. Vetrarstarf Þjóðdansafélagsins er nú hafið, og er nú sem undanfarið gengist fyrir almennum dansnám- skeiðum fyrir börn og fullorðna. í fréttatilkynningu frá félaginu kemur fram að enn er möguleiki á því að bæta við í þá hópa sem fyrir eru. Kennsla fer fram í Fáksheimil- inu á mánudögum og miðvikudögum, barnaflokkar eru mánudaga, frá 16.30 og námskeið í gömlu dönsunum mánudags- og miðvikudagskvöld frá kl. 20. Þjóðdansar verða eins og áður í íþróttasal Vörðuskóla á fimmtu- dagskvöldum og hefjast 1. október kl. 20. Á aðalfundi Þjóðdansafélagsins var Ingibjörg Bragadóttir endur- kjörinn formaður félagsins, og Þorbjörn Jónsson var endurkjörinn formaður sýningarflokka, en hann hefur að mestu séð um framkvæmd sýninga félagsins sl. starfsár. Knattspyrnudeild Vals óskar eftir aö taka á leigu 3ja—4ra herb. íbúö í Reykjavík. Heitiö er reglusemi og góðri umgengni. Nánari uppl. veittar í síma 83008. GAMALL KOPAR Glæsilegir og eftirsóttir koparmunir í fjölbreyttu úrvali. Sendum í póstkröfu. verslunin _ Mamla Suðurlandsbraut 6, sími 31555 HTH B4Ð- INNRÉTTING4R Eigum til á lager HTH ba&innréttingar úrfuru. Hagstætt veró, stuttur afgrei&sluiími. innréttingahúsiö Háteigsvegi 3 sími 27344

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.