Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981 57 Mótmæli gegn Kissinger + Henry Kissinger, fyrrum utanríkisráöherra Bandaríkjanna, var nýlega á fyrirlestrarferö í Brazílíu. Meöal annars heimsótti hann Brazilíu-háskóla og hélt þar erindi sem fjallaöi alemnnt um alþjóö- lega samvinnu ríkja, en oftlega heyröist ekki til hans fyrir æstum múg, sem lét öllum illum látum, kastaöi grjóti aö háskólabygging- unni, hrópaöi vígorö og brenndi bandaríska fánann. Kissinger lét sér ekki bregöa og lauk máli sínu, en mátti svo dúsa ásamt áheyr- endum sinum nálega tvær klukkustundir í háskólanum, meðan lög- regla stillti til friðar úti fyrír. Um 300 manns hlýddu á Kissinger, flestir stjórnarerindrekar, og var haft eftir einum þeirra, aö Kissinger heföi veriö „einstaklega rólegur allan tímann — miklu rólegri en óg sjálfur sem stóö hreint ekki á sama“. Á eftir gerði svo Kissinger bara aö gamni sínu, og þegar blaöamenn höföu á oröi aö þessi aöför heföi hæglega getaö leitt til þess aö hann heföi veriö tekinn sem gísl, sagöi hann: „Þaö heföi nú veriö svart, piltar, því þaö heföi engum komiö til hugar aö leggja fram lausnarfé til að frelsa mig, nema mér sjálfum, og óg er fátækur rnaöur." Kissinger ræddi viö ráðamenn ýmsa í landinu í þessari ferö sinni, og hrósaöi þá Ronald Reagan mjög, og hans efnahagsstjórn og utanríkismálastefnu. Hann varöi stjórnarfyrirkomulagiö í Argentínu og Chile og lofaöi Brazilíu- menn fyrir aukiö mikilvægi í alþjóöamálum. En mótmæli stúdent- anna viö háskólann stóöu í tengslum við verkfall prófessora í Braz- ilíu i landinu, en stjórnvöld þar skera nú niöur fé til menntamála, eins og víöa annars staöar. „Rektor sagöi ekki peninga til aö ráöa prófessor á námskeiö í tungumálaþýðingu, en hann getur eytt 15 þúsund dollurum til aö fá til háskólans heimsvaldasinna, sem hefur látiö myröa milljónir manna,“ sagöi einn mótmælandinn og annar hrópaöi: „Peninga til kennara — ekki moröingja." En Kissinger lót sér sem sagt ekki bregöa, hvorki viö svíviröingar né grjótkasti og nú er hann kominn í örugga höfn heim ... + Þetta fólk er þekkt í heimi kvikmynda: Catherine Deneuve og Francois Truffaut. Catherine er víöfræg leikkona en Truf- faut er heimskunnur franskur kvikmyndaleikstjóri og framleið- andi. Myndin þessi var tekin í Hamborg í Vestur-Þýskalandi, þar sem nýjasta mynd Truffauts var frumsýnd fyrir skemmstu. „The Last Metro“ heitir hún og þaö er einmitt Catherine Deneuve sem leikur aðalhlutverkiö í þeirri mynd ... Snilligáfa Mozarts kom snemma í Ijós — en hinn ungi Columbíu- maöur, Leandro Aconcha, á mik- ið eftir ef hann ætlar að feta í sporin hans. eska tónlistarmenn í Lucerne. Svo lék hann fyrir fullu húsi víöa um Evrópu næstu árin og þegar hann var ellefu ára gamall hafði hann þegar samiö fimm tónverk, þar á meðal 20 mínútna syn- fóníu. Þaö árið stjórnaði Le- andro í fyrsta sinn hljómsveit. Þaö var i hans eigin heimalandi, Columbíu, og var óskemmtileg reynsla fyrir hinn unga snilling. „Þessir kallar stríddu mér eins og þeir gátu,“ segir hann, „en til allrar hamingju létu þeir eins og menn þegar til kastanna kom. Tónlistarmönnum er ekki gefiö um krakka og ég vildi ekki leika með þeim — en nú hef ég breyst og þeir hlusta orðið á mig.“ Le- andro æfir sig sex stundir á degi hverjum með fööur sínum og öörum tónlistarmönnum sem heimsækja þá feðga, og segist ekki hafa yfir neinu aö kvarta: „Ég vil miklu heldur gera þaö sem ég geri núna, heldur en ganga í venjulegan skóla.“ Nýr snillingur í tónlistinni? + Dean Martin hefur ekki eitt svefnherbergi í húsi sínu, heldur þrjú — og býr hann þó einsamall — en eins og maöurinn sagði: Smekkur kvenna er misjafnl Og Dean Martin vill geðjast konum sínum og réöi því til sín menn að innrétta þrjú svefnherbergi, svo kona neitaði ekki að ganga í hús hans, fyrir þær sakir aö þar væri ekki svefnherbergi við sitt hæfi... + Leandro Aconcha er fjórtán ára piltur, fæddur í Columbíu, sem leikur sér í fótbolta eins og strákar á hans aldri, les brand- arabækur og klifrar í trjám. En Leandro gerir annaö, sem ekki er daglegt brauö í lífi fjórtán ára drengja, hann stjórnar synfóníu- hljómsveitum. „Þegar strákur var þriggja ára,“ segir faðir hans, sem er pánóleikari aö at- vinnu, „varð mór Ijóst aö hann var gæddur óvenjulegum tón- listarhæfileikum. Viö áttum heimili á Spáni í þennan tíma og strákurinn sat ævinlega hug- fanginn yfir kynningarlagi sjón- varpsþátta fyrir börn, sem nefndist „Vamos a la carna" (Faröu aö sofa).“ Og eitt kvöldiö settist Leandro litli á píanóbekk- inn í staö þess aö fara aö sofa og gekk fram af foreldrum sínum með því að leika lagiö með ein- um fingri. „Þá kenndi óg honum aö leika þaö meö báöum hönd- um,“ sagði faðir hans, og píanó- nám drengsins var hafiö. En þaö var ekki fyrr en þremur mánuö- um seinna sem fööur hans var Ijóst, að drengurinn haföi meira en óvenjulega músíkgáfu — hann haföi snilligáfu. Einn dag- inn æföi faöirinn mjög erfiöan þátt í einni sónötu Mozarts og eftir þá þrekraun brá hann sér í annað herbergi til hvíldar. Skömmu seinna heyrir hann .ama þáttinn leikinn á píanóið og þá var sá stutti á píanó- bekknum. „Þá ákvaö ég aö ein- beita mér aö því aö kenna hon- um,“ sagöi faöirinn. Alþjóölegur ferill Leandros litla hófst svo þegar hann var fjögurra ára og náði ekki ennþá niöur á fótstig- iö, en þá lék hann fyrir svissn- Honum líkaði vel + Nick Nolte, leikarinn, sem ís- lendingar minnast úr sjónvarps- þáttunum „Rich Man, Poor Man“ — Gæfa eöa gjörvileiki í ís- lenskri þýöingu — átti nýlega fjörutíu ára afmæli. Vinir hans fundu upp á því aö gleðja hann í tilefni dagsins meö maga- dansmær nokkurri, sem þeir tóku á leigu allan þann dag og færöu Nolte. Honum líkaði til- tækið vel... & MORALITY £ by Orchestral Manœuvres InTheDark á 00^^^ MLJAMOHLD ^KARNABÆR W laugaveg. 66 — Glæsib* — Austurstræl. >2 r Simi frs shint.boröi 85055 sUÍAOfhf Hljómsveit OMD er þekktust hér á landi fyrir lagiö Enola Day sem út kom í fyrra og hafa þeir sent frá sér þriöju plötu sína, „Architecture and Morality“ og hefur þessi plata aö geyma lögin Souvenir og Joan of Arc. Vinsældir þessara laga og viröing sú sem OMD nýtur um allan heim ætti aö vera þeim nægileg hvatning til aö tryggja sér eintak.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.