Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981 61 Fóstbræður í Skagafirði: Skagfirðingar þakka kórnum fvrir komuna Gunnar Gunnarsson skrifar: „Það voru góðir gestir, sem gistu Skagafjörð á dögunum. Karlakórinn Fóstbræður kom hingað norður til okkar í fásinnið föstudaginn 20. nóv., sl. og lék fyrir okkur með söng sínum og léttimálum, hélt samsöng í Mið- garði í Varmahlíð um kvöldið og dansleik á eftir. Skagfirðingar kunna vel að meta slíka fram- takssemi, enda var hvert sæti skipað í hinum stóra og rúmgóða samkomusal í Miðgarði, og söngn- um ágætlega tekið. Söngur Fóstbræðra var góður, og ekki spillti fyrir að þeir tóku skemmtilega „aríu“, vinsæl dæg- urlög frá ýmsum tíma, lagaperlur, sem Fjórtán Fóstbræður sungu inn á hljómplötur fyrir löngu síð- an, og alltaf verma hlustendur inn að hjartarótum. Þá fór vel á því, að hafa örstutt skemmtimál inni á milli söng- atriða, og þar átti kynnirinn, Jón B. Gunnlaugsson, stóran híut í gríni og gamansemi. Þær eigin- konur kórmanna áttu þó eigi minni hlut, framlag þeirra til skemmtunarinnar var bæði mikið og gott, og þótti sannast þar hið fornkveðna, „einn er maðurinn ei nema hálfur, með öðrum er hann meiri en hann sjálfur". Að samsöng loknum var boðið til veizlu í Varmahlíðarskóla. Karlakórinn Heimir bauð söng- bræðrum sínum að sunnan að þiggja kaffiveitingar. Þar var set- ið við söng og spjall, og fór vel á. Síðan dunaði dansinn í Miðgarði, og þangað lá straumurinn undir lágnættið. Fóstbræður gistu síðan í Varmahlíðarskóla um nóttina, en með morgninum héldu þeir norður yfir Öxnadalsheiði, til Akureyrar, að skemmta þar hið næsta kvöld. Síðan flugu þeir suður, yfir fjöll og dali, á sunnudeginum. Karlakórinn Fóstbræður hefur starfað í Reykjavík um fjölda ára. Hann var í upphafi stofnaður af félögum í KFUM, og hét nafni þess félags fyrstu árin, og hefur fyrir löngu síðan unnið sér virð- ingarsess meðal ísl. karlakóra. Ragnar Björnsson er söngstjóri Fóstbræðra og undirleikari með kórnum er Carl Billich. Söngmenn voru 34, og Skagfirðingar vilja þakka þeim öllum fyrir komuna, sönginn og leikinn og öll skemmti- legheitin, sem hittu vel í mark, og léttu okkur drungann á þessum frosthörðu skammdegistímum. Þessi för þeirra Fóstbræðra er farin fyrst og fremst sem fjáröfl- unarferð. Þeir eru að safna fé til Ameríkufarar á næsta ári. Þá munu þeir fara vestur um haf, til Bandaríkja N-Ameríku, og syngja þar á ýmsum stöðum vestra á veg- um samnorrænna menningarsam- taka, „Scandinavia today". Þar mun forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, koma fram fyrir hönd allra þjóðhöfðingja Norður- landa, og Fóstbræður munu syngja við það tækifæri. Nú í haust gefa Fóstbræður út hljómplötu með söng sínum. Á annarri plötusíðu eru sálmalög, en á hinni eru barnalög, og ágóða af sölu plötunnar verður varið til að mæta kostnaði við Ameríku- ferðina. Við viljum hvetja Skag- firðinga, sem aðra, til að styrkja hinn ísl. karlakór til þessarar far- ar, með þvi að kaupa þessa Fóst- bræðraplötu. í sönghléi á skemmt- un þeirra Fóstbræðra í Miðgarði gengu kórfélagar um sali og buðu plötuna til sölu, sem margir keyptu. Einnig seldu þeir kórfélagar happdrættismiða, og í lok skemmtunarinnar voru dregnir út þrír vinningar. Hinn 2. des. nk. verður svo dreginn út aðalvinning- urinn, sem er sólarlandaferð. Vel kann svo að fara, að einhver þeirra, sem voru í Miðgarði þetta kvöld, hljóti þann góða vinning." Skilur Njáll Árnýju? Steinunn Pálsdóttir, Kópavogi, skrifar: „Ég vil nú benda á nokkur atriði í sambandi við grein Njáls Bene- diktssonar í Velvakanda 25. nóv- ember, þar sem hann gerir athug- asemdir við skrif Árnýjar Björnsdóttur frá 22. október. Mér finnst óviturlegt hjá Njáli að leita að sök hjá þessari konu. Ekki skil ég hvernig hann getur dæmt um þessa lífsreynslu, nema af hinni einu sönnu karlmannseig- ingirni. I stað þess að vera samsek í óreglunni virðist konan frekar reyna að losna við vínið út af heimilinu, sjálfsagt í örvænt- ingarfullri tilraun til að maðurinn sjái að sér, þó ekki væri nema S2P S\G6A V/öGA £ \lLVtmi Wu y\K0QA- LQóA^VALWí' ÓLtíLtfCJNÖVl, 3 lóM hans sjálfs vegna. Þar að auki þarf ekki að taka fram hvílíkur ófögnuður áfengi í óhófi er heim- ili, einkum þar sem börn eru, Njáll virðist ekki skilja hvers konar áhrif það hefur á alla til lang- frama. „Vissulega hefur maður samúð með Árnýju," segir Njáll, en held- ur virðist hluttekningin rýr og engu líkara en samúðin beinist miklu fremur að drykkjumannin- um. Njáli finnst skiljanlegt að hann fái sér tvær bokkur í stað einnar og freistast til að halda að það geti verið hennar sök. Hús- bóndinn gagnslausi leitar í ölæð- inu hefnda og pantar tvær flöskur í stað einnar. Síðan hvenær hafa konur nú lag á ofdrykkju manna sinna? Getur það verið sjálfselska að fara ekki frá drykkfelldum eig- inmanni, leysa upp heimilið og hugsanlega koma börnunum fyrir annars staðar, án þess að reyna leiðir til bjargar fyrst. Þeir, sem eiga von á pilsaslætti og hurða- skellúm þegar komið er heim, stunda sjálfsagt sína drykkju ann- ars staðar en heima hjá sér, og það er af tvennu illu skárra en að vanvirða heimili sitt með drykkju- látum. Nú fer fram umræða um að stofna athvarf fyrir þær konur, sem verða að flýja heimili sín sök- um óreglu eða valdbeitingar. Er óskandi að slík heimili rísi og þar mæti konum meiri skilningur en Njáll spanderar á Árnýju." riýjung: liraðréttir í hádeginu mánudaga til föstudaga. HRADRÉTTASEDILL HÆSTU VI ^sLa fyl Súpa fylgú með öllum réttum Rjómalögud blómkálssúpa Buff stroganoff 80.- Lambasneidar „au gratin“ 85.- Gufusoðin stórlúða með dillsósui 75.- Smjörsteiktur karfi í koníaki 79.- Pönnusteiktur skötuselur í karrýlegi 79.- Blandaðir síldarréttir 75,— Chefs special: Lundabringa í madeirasoði með eplasalati 87.- Þjónustugjald og söluskattur innifalið ARHARHÓLL Hverfisgötu 8—10, sími 18833. Karlmannaföt kr. 199,00 og 795,00. Terylenebuxur kr. 165,00 og 178,00. Gallabuxur kr. 145,00. Flauelsbuxur, kvensnið kr. 135,00, karlmannasnið kr. 145,00. Kuldafrakkar kr. 280,00. Peysur frá 74,00. Sokkar kr. 10,00. Frottesloppar kr. 150,00. Skyrtur, nærföt o.fl. ódýrt. Opið laugardag til kl. 12. Andrés, Skólavörðustíg 22A Tölvuskólinn Borgartúni 29 sími 25400 Tölvunámskeið ★ Viltu skapa þér betri stööu á vinnumarkaðnum? ★ Viltu læra að vinna með tölvu? ★ Á námskeiðum okkar lærir þú aö færa þér í nyt margvíslega möguleika sem smátölvur, (micro- computers) hafa upp á að bjóða fyrir viöskipta- og atvinnulífið. ★ Námiö fer að mestu fram með leiösögn tölvu og námsefnið er aö sjálfsgðu allt á íslensku. Námsefnið hentar auk þess vel fyrir byrjendur. ★ Á námskeiðunum er kennt forritunarmáliö BASIC, en það er langalgengasta tölvumálið sem notaö er á litlar tölvur. Innritun í síma 25400 m (ftmLVxVm/- V&WAoW \ víl/Em HL flVS 06'd/WO- <\A0Ó, 40VÍ/(VáM lLtáó\«m Sft) $ S, \\mmor 5vmi OÍMWi ALVSó LlóólA •l n

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.