Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981 63 Pólýfónkórinn: Ráðgerir hljómleikaferð til Spánar á næsta sumri Nokkrir nemendur Hótel- og veitingaskóla íslands i nuverandi starfsaðstöðu skólans. Félag matreiðslumanna: Skorað á ráðherra að bæta úr málum Hótel- og veitingaskólans PÓLÝFÓNKÓRINN hélt fyrir nokkru aðalfund sinn og greindi þar Friðrik Eiríksson formaður kórsins frá starfinu, en stjórnandi kórsins frá upphafi hefur verið Ingólfur Guð- brandsson. Fram kom á fundinum að mikil gróska hefur verið í starfi kórsins á sl. ári. í byrjun vetrar var haldið radd- þjálfunarnámskeið fyrir kórfélaga og kom þá söngkonan Eugenia Ratti til landsins. Hefðbundnir hljómleikar kórsins voru haldnir um páskana og var þá flutt Jó- Sækir Stykkishólm- ur um kaup- staðarréttindi? Siykkishólmi, 24. nivember. Á UNDANFÖRNUM árum hefir oft komið til tals í hreppsnefnd Stykkishólms- hrepps að sækja um kaup- staðarréttindi, en til þessa hef- ir lítill skriður verið á því máli. Nú hefir málið hinsvegar verið til umræðu undanfarið á hreppsnefndarfundum og hefir hreppsnefnd falið hreppsráði að gera sérstaka athugun á málinu og leggja síðan niður- stöður fyrir hreppsnefnd. Mun þetta mál verða skoðað gaumgæfilega og höfð hliðsjón af reynslu annarra sveitarfé- laga með líka íbúatö’u og Stykkishólmur, en þar munu nú vera búsettir um 1250 manns. Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi hefir nú starfað í 3 ár og sú reynsla sem af því hefir fengist er mjög góð. Þar eru nú 18 vistpláss og öll full- nýtt og margir sem eru á bið- lista og því er nú verið að hefja stækkun á heimilinu með það fyrir augum að bæta úr brýn- ustu þörf. Næsti áfangi er nú í undirbúningi og byrjun og munu þá bætast við 5—6 pláss. I dag eru vistmenn um helm- ingur víðsvegar úr sýslunni og helmingur Stykkishólmsbúar. — Fréttaritari Könnun á vegum heil- brigðisráduneytis: Lækningamátt- ur jarðsjávar Átta þingmenn úr fjórum þing- flokkum hafa lagt fram á Alþingi tillögu um könnun á lækningamætti jarðsjávar við Svartsengi, sem heil- brigðisráðherra hafi forgöngu um. Leiði könnunin til jákvæðrar niður stöðu verði þegar unnið að því að koma upp aðstöðu fyrir sjúklinga sem að læknisráði er talið rétt að noti jarðsjóinn til baða. Við könnun þessa skal hafa samráð við samtök lækna, samtök psoriasis- og exem- sjúklinga, svo og samtök annarra sjúklinga sem not gætu haft af slík- um böðum. I greinargerð er annarsvegar vitnað til frétta og frásagna af veruiegum bata psoriasissjúkl- ings, sem talinn var stafa af böð- um í heitum jarðsjó við Svarts- engi. Hinsvegar tilkostnaðar vegna utanferða slíkra sjúklinga, sem leita sér lækninga erlendis. Hér er því um athyglisverða til- raun að ræða, segir og í greinar- gerðinni, sem gæti gjörbreytt möguleikum þessara sjúklinga til þess að fá einhverja bót meina sinna án þess að fara til annarra landa. Fyrsti flutningsmaður er Matthías A. Mathiesen (S). hannesarpassía J.S. Bachs. Nú er hafið 25. starfsár kórsins og segir í frétt frá kórnum, að félagar muni leggja sitt af mörkum til að gera afmælisárið veglegt. Þegar hefur verið haldið annað radd- þjálfunarnámskeið og kom Eug- enia Ratti þá aftur til liðs við kór- inn. Hafnar eru æfingar á verki Jóns Leifs, sem er Oratorían Edda og er ráðgert að flytja hana á Listahá- tíð næsta vor. Um páskana hyggst kórinn halda upp á 25 ára afmæli sitt með flutningi Mattheusar- passíunnar, en þá eru liðin tíu ár frá því kórinn flutti verkið síðast. Áformuð er hljómleikaferð til Spánar næsta sumar. Mun kórinn m.a. taka þátt í listahátíð í Gran- ada. í kórnum starfa nú 130 manns, en fram kom á fundinum að þörf er á fleira söngfólki, eink- um karlaröddum, til að styrkja kórinn í hinu veigamikla tónverki, Oratoríunni Eddu eftir Jón Leifs. Var á aðalfundinum lögð áhersla á að hvetja söngfólk til að leggja kórnum lið. í stjórn Pólýfónkórs- ins eru nú Friðrik Eiríksson for- maður, Guðmundur Guðbrands- son gjaldkeri, Ásbjörg ívarsdóttir ritari og meðstjórnendur eru Edda Magnúsdóttir, Ólafur Þor- björnsson, Sigurjón Jónsson og Steina Einarsdóttir. Varamaður er Rafn Sigurbjörnsson. Á ALMENNUM félagsfundi Félags matreiðslumanna hinn 10. nóv. sl. var samþykkt tillaga sem hljóðar á þessa leið: „Félagsfundur í Félagi matreiðslumanna skorar á mennta- málaráðherra að bæta úr málum Hótel- og veitingaskóla fslands taf- arlaust þar sem hann er nú í hús- næðishraki og tækjaskortur er í lág- marki. Félagið vill benda á að Hótel- ALMENNA bókafélagið hefur sent frá sér bókina Kristalla, tilvitnanir og fieyg orð í samantekt séra Gunn- ars Árnasonar frá Skútustöðum. Er hér um að ræða aðra útgáfu þessa verks aukna um rúman þriðjung en fyrri útgáfan kom út 1956. í kynningu forlagsins á bókar kápu segir m.a.: „Kristallar — tilvitanir og fleyg orð er safn snjallyrða og frægra ummæla frá ýmsum tímum og víðsvegar að úr heiminum. Bókina munu sumir vilja lesa í einni lotu og mun skemmtilegur lestur. Aðr- ir munu vilja nota hana sem upp- flettirit og er efninu þannig skipað að hún er hentug til þeirra Fyrirtækið hefur einnig umboð fyrir bindivélar, bæði sjálfvirkar og handbindivélar. Impak sf. reka Eyj- ólfur Karlsson og Brynjólfur Sig- urðsson og segjast þeir vera tilbúnir og veitingaskólinn hefur átt mikinn þátt í að bæta og efla ferðamanna- iðnaðinn hér á landi með menntun fólks til starfa á vinnumarkaðinum um allt land.“ nota...“ Þá eina teljum við vitra sem játa vorar eigin skoðanir — Roche- foucauld. — Skynsamir menn skipta um skoðun, fíflin aldrei — T. de-Reiss. — Ég get ekki fallist á skoðanir yðar, en ég skal leggja líf mitt að veði til þess að verja rétt yðar til að halda þeim fram — S.C. Tallentyre. Fyrri tíðar menn áttu sannfæringu, vér nútímamenn ■höfum aðeins skoðanir — Heine. Kristöllum fylgir rækileg skrá yfir höfunda hinna fleygu orða bókarinnar ásamt upplýsingum um þá. Bókin er 272 bls. að stærð og unnin í Prentverki Akraness. að leysa úr margskonar pökkunar- vandamálum. Þeir hafa tekið við þjónustu á prentun á plast-varúð- arborða fyrir rafmagnsveitur, hita- veitur o.fl. Mæðginin Lone Herz og Tómas Ströbye. Hefur vakið mikla athygli erlendis: TÓMAS - sannsöguleg kvikmynd um þroskaheftan dreng - sýnd í Háskólabíói HÁSKÓLABÍÓ mun hefja sýningar á nýlegri danskri mynd, sem fjallar um þroskaheftan dreng, næstkomandi mánudag, og er sýning myndar innar framlag Háskólabíós til árs fatlaðra. Kvikmynd þessi hefur vakið mjög mikla athygli þar sem hún hefur verið sýnd, en hún er heimildar mynd um samskipti dönsku leikkonunnar Lone Herz og Tómasar sem er 14 ára gamall sonur hennar. Ekkert handrit var gert að myndinni þar sem Tómas á mjög erfitt með að fylgja fyrirmælum, og var myndin tekin upp á átta dögum meðan mæðginin dvöldu í sumarbústað á Skagen. Saga Tómasar er í stuttu máli gamall til að vera á meðferðar sú að hann var fæddur heilbrigð- ur en hlaut heilasjúkdóm á fyrsta ári og hefur aldrei náð sér eftir það. Hann er auk þess mik- ið tilfinningalega skaddaður og flogaveikur. Hann dvaldi heima hjá foreldrum sínum til níu ára aldurs en var þá settur á með- ferðarheimili. Tómas talar ekki og lifir að mestu í eigin heimi. í myndinni er brugðið upp mörg- um af þeim fjölmörgu vanda- málun^ sem fylgja því að annast þroskaheft barn, og varpað fram þeirri spurningu hvað um dreng- mn verði þegar hann verður of heimilinu. Þá hefur Háskólabíó komið fram með nýjungar í sambandi við kynningu þeirra mýnda sem sýndar verða næstu þrjá mánuði í kvikmyndahúsinu. Hingað til hefur sú kynning farið fram með veggspjöldum og ljósmyndum í anddyri hússins, en nú mun liggja frammi bæklingur fyrir bíógesti þar sem kynning verður á helstu myndum sem kvik- myndahúsið mun taka til sýn- ingar þrjá mánuði fram í tím- ann. Ný bók frá AB: Kristallar - fleyg orð og tilvitnanir Eyjólfur Karlsson og Brynjólfur Sigurðsson með auglýsingalímborða. Impak sf. setur aug- lýsingar á límborða IMPAK sf. er fyrirtæki sem sérhæfir sig í límböndum og prentun á rúllum. Það hefur nú nýlega fest kaup á afkastamikilli prentvél, sem gerir það kleift að prenta auglýsingar á pökkunarlímbönd á hagstæðu verði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.