Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981 50 Aðstæður á hverjum stað verða að ráða teppavali FORSTJÓRl og sölustjóri tcppafvrir tækisins Weston í Danmörku efndu til kynningarkvölds og umræðna um teppi nýlega í samvinnu við Sigurjón Asbjörnsson hjá lcecraft hf., sem er einkaumboðssali fyrir Weston gólf- teppi á íslandi. Til umræðnanna var fulltrúum frá skólum, sjúkrahúsum og öðrum stofnunum boðið svo og arkitektum og innkaupafulltrúum. Rætt var um hvaða teppi hent- uðu best á ólíkum stöðum og hvort þau ættu yfirleitt heima alls staðar eins og t.d. á svefnherbergisgólfum, í skólum og sjúkrahúsum. Sögðu Danirnir að mikilvægt væri að velja teppi með tilliti til aðstæðna á hverjum stað og bættu við að Weston framleiddi ýmsar gerðir teppa með ólík vandamál í huga og því væri að finna hjá þeim „rétta teppið á rétta staðinn". I umræðum um hreingerningar á teppum kom í ljós að sölustjórinn telur „teppashampoo" hreinasta eitur og benti á að best væri að nota biotex ef vatn væri ekki látið nægja. Hann sagði að besta ráðið gegn slæmum blettum þegar t.d. kaffi eða rauðvín hellist niður væri að strá á það kartöflumjöli. Weston-verksmiðjurnar eru f Hörning í Danmörku. Fyrirtækið var stofnað 1948 en teppin eru nú seld í gegnum 12 dótturfyrirtæki víðsvegar um V-Evrópu. Utsölu- stöðum Weston-gólfteppa hefur nú fjölgað á íslandi. Jóhanna Magnúsdóttir og Gunnar Theodórsson, innanhússarkitekt ríkis- spítalanna, ræda um teppi á svefnherbergi við forstjóra Weston, Ivan Högh, Sigurjón Asbjörnsson og sölustjóra Weston, Hardy Grönnebæk. Frá kynningarkvöldinu. Falur á íslandi BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur hef- ur gefið út teiknimyndabókina Falur á íslandi eftir Hollendingana Toon og Joop í íslenzkri þýðingu Ólafs Garð- arssonar. Áður hafa komið út tvær bækur um Fal, en sem kunnugt er eru Falsmenn snjallir knattspyrnukappar og sigursælir mjög. Þrátt fyrir það hitta Falsmenn fyrir ofjarla sína á íslandi, en auð- vitað er það vegna þess að aðstæður eru Islendingum í hag, auðvitað. Falur á íslandi er sett og filmuunn- in á Prentstofu G. Benediktssonar en prentuð á Italíu. Bókaútgáfan Örn og Örlygur: Charles Darwin og þróunarkenningin BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur hefur gefið út bókina Charles Darw- in og þróunarkenningin eftir John Chancellor í íslenskri þýðingu Steindórs Steindórssonar frá Hlöð- um. Bókin er í bókaflokki um fröm- uði sögunnar og frömuði landa- funda, en áður hafa komið út hjá Erni og Örlygi átta bækur í þeim flokki. Hver og ein bók er þó sjálf- stæð. Bókin um Charles Darwin er prýdd fjölda mynda, bæði svart- hvítra og litmynda, sem m.a. skýra kenningar Darwins, en á sínum tíma olli hann miklu fjaðrafoki og reiði er hann setti fram hina byltingarkenndu kenn- ingu sína um þróun lífsins í bók- inni „Uppruni tegundanna". Hafa fáar bækur sem út hafa komið valdið öðrum eins deilum, og þótti mörgum sem Darwin gerði lítið úr guðshugmyndinni með því að halda því fram að mennirnir væru komnir af öpum. Eru í bókinni nokkrar teikningar sem gerðar voru af Darwin á sínum tíma, til þess ætlaðar að gera lítið úr hon- um og kenningum hans. (flr rrétutilkynninfpi.) CharlesDarwin og þróun&rkenningin John Ckmelhr fnmík sa0»i»r <•»'»•»> fttúkM I a)M (Ljósm. Emilú). Nokkrir úr miðnefnd Samtaka herstöðvaandstæðinga. Fyrir enda borðs- ins er Pétur Reimarsson, nýkjörinn formaður miðnefndarinnar. Friðarhreyfingin og NATO-andstaðan sama eðlis - segja herstöðvaandstæðingar PÉTUR Reimarssom hefur verið kjörinn formaður miðnefndar Samtaka herstöðvaandstæðinga, en nefndin var kosin á landsráð- stefnu samtakanna sem haldin var í Olfusborgum fyrir nokkru. í fréttatilkynningunni frá Samtökum herstöðvaandstæð- inga í framhaldi af ráðstefnunni er lögð á það áherzla að samtök- in telji sig eiga samleið með þeirri friðarhreyfingu sem hef- ur í vaxandi mæli látið til sín taka í ýmsum Evrópulöndum að undanförnu, um leið og Samtök herstöðvaandstæðinga telja að andstaða friðarhreyfingarinnar við kjarnorkuvopn í Evrópu sé sama eðlis og baráttan gegn herstöðvum hér og fyrir úrsögn íslendinga úr Atlantshafs- bandalaginu. Á fundi sem forráðamenn Samtaka herstöðvaandstæðinga efndu til kom fram að félaga- skrá væri engin til á vegum samtakanna, en hins vegar væri áætluð tala stuðningsmanna þeirra milli tvö og þrjú þúsund. í miðnefnd Samtaka her- stöðvaandstæðinga sitja þessir: Árni Hjartarson, Böðvar Guð- mundsson, Ingólfur Ingólfsson, Jón Ásgeir Sigurðsson, Keneva Kunz, Pétur Reimarsson, Reynir Ingibjartsson, Rósa Stein- grímsdóttir, Soffía Sigurðar- dóttir, Stefán Jóhann Stefáns- son, Þórbergur Þórsson og Þor- valdur Jón Viktorsson. Vara- menn eru: Ástráður Haraldsson, Ástríður Karlsdóttir, Einar Guðjónsson, Emil Bóasson, Erl- ing Ólafsson, Garðar Mýrdal, Guðmundur Georgsson, Kristín María Ingimarsdóttir, Pétur Þórarinsson, Sölvi Ólafsson, Tryggvi Þórhallsson og Þorgeir Pálsson. Aðalfundur Tónmenntakennarafélags íslands: Vilja að kórstjórn og þjálfun verði viðurkennd sem kennsla AÐALFUNDUR Tónmenntakenn- arafélags íslands var haldinn í Voga skóla í Reykjavík 3. okt. sl. Formað- ur félagsins, Jón Karl Einarsson, setti fundinn og lesin var fundargerð síðasta aðalfundar. Þá var lesin upp skýrsla formanns og gat Jón Karl þess m.a. að í starfi félagsins á sl. ári hefði borið hæst þing NMPU sem stjórn félagsins ásamt FT og FÍH gekkst fyrir að haldið var í Reykja- vík sl. sumar. Einnig minntist for maður á Landsmót íslenskra barna- kóra sem haldið var 30. maí í Há- skólabíói. Á eftir ræðu formanns voru reikningar félagsins lagðir fram og samþykktir. Þá ,fór fram stjórnarkjör en formaðurinn, Jón Karl Einarsson frá Akranesi, baðst undan endur- kjöri og var í hans stað kjörinn Guðmundur Ómar Óskarsson, Reykjavík. Tveir meðstjórnendur voru einnig kosnir, Anna Stef- ánsdóttir og Pétur Hafþór Jóns- son. Meðal mála á þinginu var hugsanlegur mótsstaður undir Landsmót íslenskra barnakóra úti á landi og á hvaða tíma það skyldi haldið. Málinu var vísað frá til stjórnar. Þá var rætt um væntan- legt 30 ára afmæli félagsins, „GÖSTA BEKLINGK saga" eftir Kelmu Lagerlöf er komin út í annarri útgáfu í þýðingu Haralds Sigurðssonar. Á kápusíðu segir m.a.: „Selma Lagerlöf fæddist árið 1858 og andaðist á sveitasetri sínu. Márbacka, 1940, rösklega áttræð. Hún var kennari að menntun, og ^framan af ævi fékkst hún við kennslustörf, samhliða skáldskap, sem ekki vakti mikla athygli. Árið 1891 kom Gösta Berlings saga út og með henni tryggði hún sér bók- námsútgáfu og gerð og ályktun þar sem skorað er á Kennarasam- band Islands að vinna að því í komandi samningum, að kórstjórn og kórþjálfun verði viðurkennd sem kennsla, var samþykkt. menntasigur og heimsfrægð, sem hún heldur enn, þó að níutíu ár séu liðin. Bókin var strax þýdd á fjölda tungumála og er nú fyrir löngu klassísk og gefin út í nýjum og nýj- um útgáfum víða um heim. Gösta Berlings saga er langfrægust allra rita Selmu, en annars liggur eftir hana fjöldi skáldsagna og ævintýra, og hefur margt af því verið þýtt á íslensku. Selma Lagerlöf hlaut Nób- elsverðlaunin árið 1909, fyrst kvenna.“ Víkurútgáfan gefur bókina út. „Gösta Berlings saga“ - eftir Selmu Lagerlöf í 2. útgáfu Ég vil líka lifa: Bók um þroskasögu fatlaðs drengs KOMIN er út bókin „Ég vil líka lifa“ eftir bandaríska rithöfundinn Ednu Hong. Sr. Jónas Gíslason dósent þýddi bókina og er útgef- andi bókaútgáfan Salt. „Eg vil líka lifa“ er þroskasaga Gunthers, sem var fæddur fatlað- ur, segir í frétt útgáfunnar. Hann var talinn einskis nýtur og látinn afskiptalaus, en síðar er honum komið fyrir á heimili fyrir van- gefna og fatlaða og mætir hann þar kærleika og umhyggju. Er í bókinni lýst hvernig hann verður smám saman nýtur þegn þegar hann fær verkefni við sitt hæfi. Þá segir í frétt útgáfunnar að Edna Hong hafi árið 1977 hlotið heið- ursdoktorsnafnbót við St. Olav College í Minnesota. Prentverk Akraness prentaði bókina og sá um bókband.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.