Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 12
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981 Tryggvi Gunnarsson tapaði stórfé á byggingu brúar yfir Ölfusá. Saga verktakaiðnaðar eftir Armann Örn Armannsson, formann Verktakasambands Islands Hér fer á eftir erindi, sem Ármann Örn Ármannsson, formaður Verk- takasambands íslands, flutti á mál- þingi Verktakasambandsins í sept- ember 1981. 8aga Verktakaidnaðar Eftir Ármann Örn Ármanns- son, formann Verktakasambands íslands. Nú þessa dagana er rætt á opinberum vettvangi með stolti um innlendan verktakaiðnað í sambandi við Borgarfjarðarbrú og Hrauneyjafossvirkjun. Þetta hefur ekki alltaf verið svo. í þeirri kennslubók, sem mest hef- ur verið notuð um íslenska at- vinnusögu „Úr þjóðarbúskapnum" eftir prófessor Olaf Björnsson er orðið verktakaiðnaður ekki til og verkiegar framkvæmdar naumast. Ekki er ég þar að ásaka höfund- inn, svo ágætur sem hann er, held- um endurspeglar þetta sennilega þjóðarvitundina. Þetta er athyglisvert ekki síst þegar horft er til nágrannalanda eins og t.d. Svíþjóðar en þeir héldu á sl. ári upp á 50 ára afmæli verk- takasambandsins sænska og ný- lega héldu evrópusamtök verk- takaiðnaðar upp á 50 ára afmæli sitt. Verklegar framkvæmdir á þess- ari öld hafa engu að síður verið mjög snar þáttur í brauðstriti ís- lendinga og verulegur hluti þjóð- arframleiðslu farið til þessarar at- vinnugreinar. Vitið þið að árleg malarfylling í íslenska vegi (rúml. 2 millj. rm) myndi þekja Breiðholtshverfið með 'A m djúpu lagi af möl? Vitið þið að rúmtak bygginga á Land- spítalalóð (160 þús. rm) er nær jafnt rúmtaki 600 íbúða í fjölbýl- ishúsum? Vitið þið að steypumagn í eina meðalvirkjun eins og Hrauneyja- fossvirkjun (40.000 rm) er nálægt steypumagni allra einbýlishúsa, sem byggð voru á síðasta kjörtímabili í Reykjavík? Við veltum yfirleitt ekki fyrir okkur slíkum samjöfnuði, en verk- legar framkvæmdir eru stór at- vinnuvegur á íslandi sem annars staðar. Verklegar framkvæmdir eru sennilega jafn gamlar mannkyn- inu og flest elstu menningarverð- mæti, sem varðveist hafa bera vott um dirfsku og snilld manns- andans. Við ætlum að verklegar framkvæmdir nútímans verði arf- ur okkar til framtíðarinnar. Verktakaiðnaður hefur verið skilgreindur sem öll skipuleg starfsemi í mannvirkjagerð þar sem bcitt er nútíma aðferðum við fram- leiðslu og stjórnun. Vissulega bæði „AHir virdast sammála um að íslenskir verktak- ar hafi öðlast dýrmæta reynslu við síðustu stór- virkjanir. Eiga verktak- arnir nú að fara á at- vinnuleysisstyrk þangað til ráðamenn geta kom- ið sér saman um hvar næst eigi að vinna?“ -r'rf loðin og teygjanleg skilgreining, en ég hef ekki aðra haldbetri. Saga verktakaiðnaðar hér á landi hefur ekki verið skráð mér vitanlega og verður ekki rakin hér, nema sem örstutt ágrip. Það sætir raunar furðu að hvorki skuli hafa verið skrifuð saga verklegra framkvæmda né heldur sé til nein byggingarlista- saga á íslenskri tungu. Er hér um tímabær verkefni að ræða svo snar þáttur sem byggingarlist og verklegar framkvæmdir eru í lífi þjóðarinnar og er hér með komið á framfæri þeim tilmælum til sagnfræðinga, hagfræðinga eða verkfræðinga, að úr þessu verði bætt. Væri gleðilegt, ef um það gæti tekist samstarf milli Háskóla Islands, Verktakasambands og við- komandi stofnana ríkisins, að tek- Ármann Örn Ármannsson in yrði saman saga verklegra framkvæmda á íslandi á þessari öld því fjölmargt má eflaust af henni læra. Það væri okkur öllum til góðs að hafa fyrir okkur sögu- legan grunn fyrir þeim miklu framkvæmdum sem íslendingar eru vissulega að vinna að nú og í nánustu framtíð. Hér verða rakin örfá atriði verktakaiðnaðar á íslandi á nokkrum mikilvægum sviðum, en tímans vegna verður að takmarka umfjöllun mjög. Hér er enginn tími til að fjalla um efni eins og vinnuumhverfi starfsmanna, áætlanagerð, tækni- breytingar sem átt hafa sér stað, né heldur verklegar framkvæmdir fyrr á öldum. Athyglisvert væri að velta fyrir sér t.d. hvers kyns húsakynni Flosi Þórðarson hafði að heimili sínu að Svínafelli þegar hann lét sig ekki muna um að bjóða heim til sín til vetursetu öll- um brennumönnum, 100 að tölu, eftir Njálsbrennu. Hér verður stiklað á stóru um sögu vega- og brúargerðar, virkj- anir, íbúðarbyggingar og húsbygg- ingar hins opinbera, en tímans vegna sleppt algerlega veigamikl- um þáttum eins og t.d. hafnar- gerð, verksmiðjubyggingum og hitaveituframkvæmdum. Vega- og brúargerð Enda þótt frændur okkar Svíar hafi átt sína 500 m löngu trébrú í byrjun 18. aldar út í Konguns- hólmann í Stokkhólmi, fer litlum sögum af slíkum mannvirkjum á íslandi fyrr en löngu síðar. Jök- ulsá á Dal er raunar brúuð fyrst meiri háttar vatnsfalla á fyrri hluta 19. aldar, en það er ekki fyrr en í lok 19. aldarinnar að skriður kemst á brúargerð, en þá eru Skjálfandafljót, Ölfusá, Þjórsá og Elliðaár brúaðar. Athyglisvert er að huga að einkaframtaki eins manns, Tryggva Gunnarssonar, en án hans framtaks er óvíst hvenær brú yfir Skjálfanda og Ölfusá hefðu orðið að raunveruleika. Þjórsárbrú aftur á móti var byggð alfarið af bresku verktakafyrir- tæki og af heimildum um þá fram- kvæmd þótti landanum sem Bret- inn hefði sennilega grætt á þeirri framkvæmd. Þótti það sýnu verra en það, að Tryggvi Gunnarsson tapaði stórfé persónulega á bygg- ingu Ölfusárbrúar. Á sama áratug (þ.e. síðasta áratug 19. aldar) var einnig lagður vegur yfir Hellis- heiði austur í Ölfus. Skriður fer þó ekki að komast á brúar- og vega- gerð fyrr en með bílaöld og á ár- unum 1920—1930 er sennilega meiri gróska í brúargerð en fyrr og síðar og er þá hvert stórvatns- fallið eftir annað brúað og vegir lagðir. Þá er einnig Vegagerð ríkisins stofnuð árið 1917 og hefur hún síðan verið leiðandi í fram- kvæmdum á þessu sviði. Nokkrar brýr voru í upphafi boðnar út til danskra verktakafyrirtækja, sem voru þó yfirgnæfandi á öðrum sviðum sérstaklega þ.e. í virkjun- um og hafnargerð. Frá upphafi tók ríkisvaldið vegaframkvæmdir í eigin hendur og síðan brúargerð og hefur svo haldist að mestu fram á þennan dag. Allir íslenskir vegir voru í upphafi malarvegir og það var ekki fyrr en á fjórða ára- tugnum að varanlegt slitlag var sett á veg á Islandi. Lög voru sett um brúargerð 1919 og vegalög 1924, sem gerðu ráð fyrir um- fangsmikilli vegagerð á næstu 8 árum eða alls um 2100 km. Stað- reyndin varð hins vegar sú, að á þessum tíma voru gerðir yfir 400 km og upphæð til vegagerðar var árlega nálægt tvöfalt hærri en áætlað var til hennar á fjárlögum. Þó framkvæmdir hafi verið miklar á þessum árum, má þó með sanni segja að líf hafi hlaupið í tuskurn- ar við hernám Breta 1940 en þá margfölduðust vegaframkvæmdir á einu ár. Svo fór einnig um umferð því 1939 notuðu Islendingar um 6 þús- und tonn af bensíni en 1944 yfir 30 þúsund tonn. Á þessum árum margfaldaðist einnig vélaeign Vegagerðarinnar. Vegagerðin hef- ur um fjölda ára haft geysilega miklu hlutverki að gegna og hefur að mati þeirra, sem til þekkja, haft mjög hæfa starfskrafta, bæði forustumenn, verkstjóra og al- menna starfsmenn. Spyrja má hvort þessir starfsmenn hefðu af- kastað enn meiru og betur ef fyrirtækið hefði verið óháð ríkis- valdinu. íbúdarhúsabyggingar Án þess að gamalii sögu þessa e.t.v. mikilvægasta þáttar verk- legra framkvæmda verði gerð hér nokkur skil, get ég ekki stillt mig um að geta um þá reglugerð, sem að mínum dómi gerir íslenska kaupstaði mest sér islenska. Það var um síðustu aldamót að gefin var út tilskipun í Reykjavík, að öll hús skyldu klædd báruðu járni eða öðru jafngóðu til hlífðar gegn eldi. Fljótlega eftir það fór steinsteyp- an að ryðja sér til rúms og hefur Krá framkvæmdum við Hrauneyjafossvirkjun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.