Morgunblaðið - 02.12.1981, Side 4

Morgunblaðið - 02.12.1981, Side 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981 hygli fyrir góða frammistöð Kins og áður hefur verið greint frá í Morgunblaðinu, tóku tveir íslend- ingar, þeir Jón S. Halldórsson og hórður Valdimarsson, þátt í rally- cross-keppni erlendis nú nýverið. Frammistaða þeirra vakti mikla at- hygli og ekki hvað síst það að þeir skyldu koma alla leið frá íslandi. Keppni sú sem þeir félagar tóku þátt í, var haldin í Hedemora í Svíþjóð og var liður í Norðurlandameistaramóti í rally-cross. Ekki gekk klakklaust að koma bílum þeim, sem íslendingarnir aetluðu að aka, til Hedemora þar sem aksturinn fór fram. Bilarnir voru afgreiddir frá skipi í rangri hafnarborg og urðu Jón og Þórður að sækja þá til Gautaborgar í stað Helsingjaborgar. Síðan tók við sleitulaus vinna að koma bílunum í keppnishæft stand, því ekki hafði tekist að Ijúka við það heima á íslandi. Bíll Jóns, BMW 1800, fékk hressilega „yfirhalningu" hjá hjálpsömum Islendingum og VW „bjalla" Þórð- ar sömuleiðis. Að þessu loknu óku kapparnir ásamt aðstoðar- mönnum áleiðis til Hedemora og var ekið samfleytt á tíunda klukkutíma og náðist þannig nokkrum mínútum fyrir keppnina. Virðist það fylgja Jóni að „vera á síðasta snúningi" í öllum rallmót- um er hann tekur þátt í og orðinn ali |>ekktur fyrir. Brautin, sem aka átti, var mestmegnis laus jarðvegur, en malbik á einum all löngum kafla. Brautin var að venju hringlaga, en ’ beygjur og hæðir á nokkrum stöð- um, m.a. var hálfgerður stökkpall- ur á einum stað og röðuðu margir áhorfendur sér þar og biðu spenntir. Alls var 31 keppandi í þessu rally-crossi og var það há- mark fyrir fjölda þátttakenda. Allir voru þeir frá Norðurlöndun- um. Keppnin fór þannig fram að hver keppandi átti að aka fjóra hringi, 5 bílar óku saman í hvert skipti. í undanrásunum fengu ökumenn 3 tækifæri, þ.e. óku í þremur mismunandi riðlum og var dregið í þá af handahófi. Þeir, sem næðu bestum tíma í þessum riðl- um og bestum heildartíma, kæm- Norðurlandamótið í rally-cross Jón S. Halldórsson á BMW sínum í einni af mörgum flug- ferdum bílsins. M.a. sagöi eitt sænskt bílablað að Jón hefði veriö villtasti ökumaður keppninnar. BMW Jóns var ófrýnilegur eftir keppnina, rúðulaus og klesstur eftir umræddan árekstur. ust í úrslit. í fyrsta riðli lenti Jón S. Hall- dórsson á móti Evrópumeistaran- um Per Inge Walfridsson á Volvo 343, ásamt tveimur öðrum öku- mönnum. Bílarnir voru ræstir af stað og Per Inge náði forystunni, en Jóni tókst að halda í skottið á honum, þrátt fyrir 200 hestafla mismun á afli bílanna. En sú dýrð stóð ekki lengi, framrúðan hjá Jóni mölbrotnaði vegna grjótkasts frá bíl Per Inge. Við þetta dróst Jón að vonum afturúr. Reyndar flögguðu stjórnendur keppninnar Jón út af brautinni, en hann mis- skildi það. Hélt hann að þeir væru að vara hann við hættu. Kom Jón síðan í mark síðastur allra, en hann gat ennþá gert betur í tveim- ur öðrum riðlum. Þórður Valdimarsson lenti einn- ig á móti sterkum ökumönnum í fyrsta riðlinum, en hann gleymdi sér í startinu og sat nær eftir. Kraftleysi bílsins háði honum einnig, enda fylgdi hann aðeins bílunum eftir og átti ekki mikla möguleika. Ennfremur varð hann fyrir því óhappi að kertahetta losnaði í lok akstursins. Fyrir næsta riðil íslendinganna tóku þeir til við viðgerðir á bílun- um, rúða fannst til nota í bíl Jóns og var henni smellt í af mikilli leikni. Jón lagfærði kúplingu bíls- ins, sem byrjað hafði að snuða. Hjá Þórði þurfti aðeins að festa kertahettu. Voru þeir síðan albún- ir í slaginn, reyndar var Jón hepp- inn að fá að vera með, því til greina kom að dæma hann úr keppni fyrir að aka með brotna framrúðu. Líklega hefur það ekki Sigurvegarinn, Faulke Andersen, fagnar sigri (í miðju) t.h. er Anders Hulqvist sem hlaut 3. sæti og t.v. Stig Emilson er hreppti annað sætið. þótt viðkunnanlegt, Jón kominn alla leið frá Fróni. Það var sama sagan í þessu öðrum riðli og í þeim fyrsta. Hvorki Jón né Þórður áttu nokkra möguleika gegn kraftmikl- um bílum hinna. Olíukælir sprakk hjá Þórði og missti bíllinn við það þann litla kraft, sem hann bjó yf- ir. En þriðji og siðasti riðillinn var enn eftir. Þar voru Jón og Þórður einnig í sitt hvorum riðli. VW Þórðar gaf næstum upp öndina í miðri braut og gubbaði olíu í allar áttir, stóð blár reykur afturúr bílnum, en í mark komst hann. Jón S. Halldórsson ætlaði sér stóra hluti, enda síðasti möguleiki fyrir hann að komast í úrslit. Hann fékk gott start og leiddi aðra bíla eftir brautinni og kætti þá íslenska áhorfendur sem þarna voru. En skyndilega lentu þrír bíl- ar í einum hnapp, Jón klemmdist á milli tveggja VW-bíla og brak og brestir fylgdu. Jón skellti bílnum til hliðar við þá og ætlaði að þeysa áfram, en við það fór kúplingin. Dólaði hann síðan það sem eftir var og hugsaði um það eitt að komast í mark. Þar með lauk þátt- töku íslands í þessu rally-crossi, en úrslitin voru enn eftir. í þeim sigraði Faulke Anders- son á Escort, sá bíll leit ekki sér- lega fallega út enda tekið þátt í mörgum álíka mótum. Stig Emil- son ók þeim er lenti í öðru, en það var VW-bjalla. Anders Hulqvist á Volvo 343 hreppti þriðja sætið, kom mörgum á óvart að Per Inge, Evrópumeistarinn, skyldi aðeins ná sjöunda sæti. í samtali við Morgunblaðið Texti og myndir: Gunnlaugur Rögnvaldsson Jón S. Halldórsson og Þórður Valdimarsson við keppnisbíla sína. Þeir voru fyrstir íslendinga til að taka þátt í Noröurlanda keppni í rally-cross. jKlæðum og bólstrumj ígötnul h&sgögn> flotwr _úrval af áklæðum y* $ BÓLSTRUN ÁSGRÍMS, Bergstaðastræti 2, Simi 16807, Keflavík Auglýsing um tímabundna umferðartakmörkun í Keflavík Frá laugardegi 5. des. til fimmtudags 31. des. ’81, aö báöum dögum meötöldum er vöruferming og afferm- ing bönnuö á Hafnargötu á almennum afgreiöslutíma verslana. Á framangreindu tímabili veröa settar hömlur á umferö um Hafnargötu og nærliggjandi götur ef þurfa þykir, svo sem tekin upp einstefnuakstur eöa umferð öku- tækja bönnuö meö öllu. Veröa þá settar upp merk- ingar er gefa slíkt til kynna. Keflavík, 2. desember 1981. Lögregiustjórinn í Keflavík. -------.--- . Rauði kross Islands Laugardaginn 5. desember halda flestar deildir Rauöa kross íslands fundi um vetrarstarfiö og veröa þeir nánar auglýstir hver á sínum staö. Rauöi kross íslands hvetur félagsmenn til þess aö fjölmenna á fundunum og ennfremur eru aðrir vel- komnir til þess aö kynna sér hina marg- þættu starfsemi Rauöa kross íslands og deildanna. _ ... Rauöi kross Islands. \

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.