Morgunblaðið - 02.12.1981, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 02.12.1981, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981 45 nú verið nær einráð sem bygg- ingarefni síðustu 70 árin. Eg hef stundum nefnt íbúðar- byggingar á íslandi heimilisiðnað í gagnrýni á ríkjandi hætti við byggingu húsa. Það er staðreynd að langflestir Islendingar hafa sjálfir að talsverðu marki byggt sínar íbúðir og þannig hefur nán- ast öll þjóðin verið beinn þátttak- andi í verklegum framkvæmdum þótt vafasamt sé hvort flokka megi það til verktakaiðnaðar skv. viðtekinni skilgreiningu. Sjálf- stæðir byggingarmeistarar, sam- vinnufélög og verktakafyrirtæki hafa einnig átt verulegan þátt í uppbyggingu íbúða. Einkum hafa frjáls verktakafyrirtæki náð að sýna hvers þau er megnug þar sem bæjaryfirvöld hafa sýnt þessum málum skilning með því að hafa tryggt lóðaframboð til verktaka- fyrirtækja eins og t.d. Akureyri. Nokkuð snar þáttur og nú ört vaxandi er bygging svokallaðra verkamannabústaða, en um þá voru fyrst sett lög 1929 og hófust framkvæmdir við fyrstu húsin 1931 hér í Reykjavík. Þessi gerð íbúðarbygginga, sem nýtur sér- stöðu í fjármögnun frá hinu opinbera hefur gjarnan verið boð- in út á verktakamarkaði, enda kveða gildandi lög um þessar framkvæmdir á um það. Hitt er svo annað mál að spurn- ing er hvort þeim lögum hafi verið framfylgt t.d. hér í Reykjavík þar sem stjórn Verkamannabústaða eða stofnun þess hefur bæði byggt sjálf i sumum tilvikum og fer í öllum tilvikum með yfirstjórn og samhæfingu verkþátta, leggur til efni, gerir verkáætlanir o.s.frv. eða samkvæmt eðli verktakaiðn- aðar starfar sjálf sem aðalverk- taki. Virkjanir — rafveitur Enda þótt fyrsta rafveitan hafi verið byggð hér á landi 1902 var það ekki fyrr en með Elliðaáaveit- unni fyrir réttum 60 árum að tala má um fyrstu virkjun í þess orðs skilningi. Afkastageta Elliðaáa- stöðvarinnar var 1500 kw. 1939 var samaniögð afkastageta rafstöðva 20 þús. kw., 1962 um 130 þús. Þróun hefur verið mjög ör á þessu sviði einkum þó síðustu ár og þess má geta að afköst nýjustu virkjunar Islendinga, Hrauneyja- fossvirkjunar, verða 210 þús. kwött eða 140-föld afköst Elliða- áastöðvarinnar fyrir 60 árum, samt eru aðeins um 10% nýtan- legrar vatnsorku virkjuð og lítið sem ekkert af hluta jarðhitaork- unnar. Fyrstu virkjanirnar og allt fram að 1960 voru smáar á mælikvarða nútímans en þar ber að sjálfsögðu hæst Sogsvirkjanirnar en fyrsta virkjun við Sogið var fullgerð 1937 og framkvæmd af danska verk- takafyrirtækinu Höjgárd & Schulz og allar virkjanirnar við Sogið voru framkvæmdar að mestu af dönskum verktökum, enda þótt íslendingar yfirtækju sífellt stærri hlut af stjórnun þeirra verka og starfsmenn væru að yfirgnæfandi meirihluta ís- lenskir. Það var síðan á sjöunda áratugnum að samþykkt voru lög um þrjár stórvirkjanir og hafa þær allar verið reistar nánast al- farið af hinum frjálsa verktaka- iðnaði. Sú fyrsta af ísiensk- dansk-sænskri samsteypu, Foss- krafti sf., sú næsta af júgóslav- neska verktakafyrirtækinu Energoproject og nú síðast nánast alfarið af íslenskum verktaka- fyrirtækjum. Islenskir starfsmenn hafa þó við allar þessar virkjanir verið í yfirgnæfandi meirihluta og við síðustu virkjun hafa öll stjórn- unarstörf jafnt og önnur störf ver- ið unnin af Islendingum. öll þessi verk hafa verið boðin út á frjáls- um verktakamarkaði, en sú síð- asta, Hrauneyjafossvirkjun var boðin út í hlutum m.a. fyrir til- stuðlan verktakasambandsins til þess að gera innlendum fyrirtækj- um betur kleift að taka verkið að sér vegna trygginga-, tolla- og fjármögnunarmála, sem of langt mál er að fara út í hér, en þau mál höfðu vissulega mismunað verk- takafyrirtækjum þeim erlendu í vil. Aður en lokið er við þennan þátt verður kastað hér fram einni spurningu. Allir virðast sammála um að islenskir verktakar hafi öðlast dýrmæta reynslu við síð- ustu stórvirkjanir. Eiga verktak- arnir nú að fara á atvinnuleysis- styrk þangað til ráðamenn geta komið sér saman um hvar næst eigi að vinna? Húsbyggingar hins opinbera Við Islendingar eigum nánast engar gamlar byggingar uppi- standandi en þegar litið er yfir byggingar hins opinbera frá fyrri hluta þessarar aldar kemur nafn eins manns í hugann oftar en allra annarra en það er Guðjón Sam- úelsson arkitekt. Sá maður teikn- aði og hafði yfirumsjón með lang- flestum þeim stórbyggingum, sem byggðar voru á íslandi á fyrsta uppgangstímabili íslensks bygg- ingariðnaðar upp úr 1920 og er það nánast með ólíkindum hvað mað- urinn hefur komist yfir. Lands- banki, Hvanneyri, Reykholt, Há- skólinn, Landspítali, Laugarnes- kirkja, Þjóðleikhús, Arnarhvoll, Hótel Borg og Eimskipafélagshús- ið, svo nokkur séu nefnd. Flestar húsbyggingar hins opinbera höfðu yfir sér skipaða byggingarnefnd og sá hún hverju sinni um framkvæmdina í óljósri samvinnu við arkitekt og húsið var byggt í reikning. Öll skipu- lagning var í mjög lausum reipum og mun ákvörðunartaka um opin- berar byggingarframkvæmdir öll hafa verið það allt fram á síðasta áratug. Eg vil leyfa mér að vitna hér í skýrslu nefndar, sem skipuð var um endurskoðun opinberra framkvæmda 1965, en þar segir: „Þótt nefndin hafi ekki eytt miklum tíma í að kanna, hvernig ákvarðanir um að hefja opinberar framkvæmdir verði til eins og nú standa sakir, telur hún óhætt að staðhæfa, að hin venjulega aðferð í því efni sé þessi: Ráðherra, sem í hlut á, sann- færist með einhverjum hætti um, að tiltekin framkvæmd sé nauð- synleg og samþykkir, að undirbún- ingur að mannvirkjagerð sé haf- inn. Hann hlutast þá að jafnaði til um, að veitt sé í fjárlögum venju- lega einhver heilleg fjárhæð til ótilgreindra byrjunarfram- kvæmda. Að jafnaði er þessi ákvörðun tekin á grundvelli bygg- ingarnefndarteikninga einvörð- ungu og þess kunna að vera dæmi, að ákvörðun um framkvæmd sé tekin áður en byggingarteikningar eru fullgerðar. Eftirleikurinn að þessari ákvörðun er allþekktur. Hálfgert mannvirkið skapar sívaxandi þrýsting á fjárveitingar, sem ár hvert eru ónógar. Lausaskuldum er oft safnað í heimildarleysi og heildarkostnaður verður nær und- antekningalaust óhóflegur." Starf nefndar þessarar, en störfum hennar stýrði Jón Sig- urðsson fyrrverandi ráðuneytis- stjóri, varð síðan til þess að ný lög voru sett um opinberar fram- kvæmdir 1969. Skýrsla nefndar þessarar ber vott um mjög vönduð vinnubrögð og væri holl lesning öllum þeim, sem fást við ákvarð- anatöku í opinberum framkvæmd- um. Annað aðalmarkmið sem nefndin setti sér var að finna leið- ir til að tryggja lágmarkskostnað hverrar opinberrar framkvæmdar eftir að hún hefði verið ákveðin. Var það eindregið álit nefndarinn- ar að ríkinu bæri að stuðla að því að sterk verktakafyrirtæki risu upp en ríkið ætti sem minnst að koma nálægt sjálfri mannvirkja- gerðinni, hverju nafni sem nefnd- ist, eða svo aftur sé vitnað í skýrslu nefndarinnar þegar mælt er með að taka upp ákveðna stefnu við mannvirkjagerð: „Hin nýja stefna miði að eftir- töldum mannvirkjum: 1. Skilja algerlega í milli þeirra aðila, sem „projektera" verk og hinna, sem framkvæma verkið. 2. Takmarka afskipti þeirra aðila, sem nota eiga mannvirkið við undirbúningsstig þess, en gera þeim ekki að annast fram- kvæmdastjórn verksins. 3. Bjóða út á einum stað alla mannvirkjagerð á rikisins veg- um, sem eðli máls og aðstaða á markaðnum leyfir útboð á.“ Mér hefur orðið nokkuð tíðrætt um téða skýrslu af þeim sökum fyrst og fremst að mér vitanlega er starf þessarar nefndar eina al- menna úttektin, sem fram hefur farið á verktakaiðnaði á Islandi. Húsbyggingar annarra opinberra aðila en ríkisins fóru að mestu eft- ir líkum farveg, en þó munu sveit- arfélög eins og t.d. Reykjavíkur- borg mun fyrr hafa farið að bjóða út. Þannig voru skólabyggingar eins og t.d. Laugarnesskólinn og Austurbæjarskólinn steyptar ,upp samkvæmt útboði og í lok sjötta áratugsins var Reykjavíkurborg farin að bjóða út heildarverk til aðalverktala. Útflutningur verk- takaiðnaðar Það var mikið um það rætt á nýafstaðinni ráðstefnu OECD um vísinda- og tækniþróun á íslandi að Islendingar mættu ekki dragast aftur úr í þróuninni. Við vitum að mikið hefur verið gert og mikið er framundan. Út- lensk fyrirtæki hafa allt fram á síðustu ár verið tilkölluð þegar mikið hefur átt að gera. Útflutn- ingur verktakaiðnaðar hefur um langan aldur verið mikilvæg út- flutningsgrein allra vesturevrópu- þjóða og opinber yfirvöld hafa gert sé ljósa grein fyrir mikilvægi þess útflutnings. Útflutningur í þessum atvinnuvegi er vel hugsan- legur því starfsmenn íslensks verktakaiðnaöar eru með þeim hæfustu sem gerast. Þrátt fyrir að nánast öll ytri skilyrði ríkisvalds- ins séu óvinsamleg, hafa sjálf- stæðir verktakar reynt útflutning og það er sérstakt gleðiefni að elsta starfandi verktakafyrirtækið á frjálsum markaði, Véltækni hf., hefur nú fyrir viku síðan undirrit- að samning um verklegar fram- kvæmdir í Saudi-Arabíu, en það land hefur um nokkurra ára bil verið einn stærsti markaður hins alþjóðlega verktakaiðnaðar. Lokaorð: Saga verktakaiðnaðar á íslandi er saga tugþúsunda manna, sem hafa helgað ævistarf sitt verkleg- um framkvæmdum. Þeirri sögu verður ekki gerð grein fyrir í stuttu erindi. Þar sem viðfangsefni þessa hóps hér í dag er spurningin um hag- kvæmni frjáls verktakaiðnaðar, vil ég leyfa mér að nefna nokkrar tölur um markaðshlutdeild hans undanfarin ár og er þá m.a. stuðst við svör samgönguráðherra við fyrirspurn Birgis Isleifs Gunn- arssonar á Alþingi 22.4.1980. Árið 1978 og 1979 var hlutdeild verktaka í nýframkvæmdum vega- gerðar 11—12%, í verkum hafnar- málastofnunar 14%, við flugvalla- gerð 13%. Á síðasta ári mun þetta hlutfall sennilega vera heldur lægra. Byggingarframkvæmdir hins opinbera eru nær allar unnar af verktökum, en langflest mann- virki eru boðin út í svokölluðum hlutaútboðum í stað heild- arútboða. Allar hitaveituframkvæmdir, virkjanir og flestar framkvæmdir sveitarfélaga eru boðnar út á frjálsum verktakamarkaði. Við sem höfum boðið til þessa mál- þings vonum, að íslendingar beri gæfu til að gera verktakaiðnað að einni sterkustu atvinnugrein þjóð- arinnar, ekki aðeins á heimamark- aði heldur hvar sem íslenskir starfsmenn geta nýtt reynslu sína, sem þeir öðlast á Islandi í baráttu við okkar oft óblíðu náttúruöfl. Gott er að sýna erlendum gestum hitaveituframkvæmdirnar okkar, en hvenær verður íslenskum verk- tökum gert kleift að leggja hita- veitur fyrir fjarlægar þjóðir? Heimur íslendingasagna Eftir Úlf Bragason Árið 1971 kom út í Leningrad bók eftir forstöðumann norrænu- deildarinnar við háskólann þar, dr. M.I. Stéblin-Kaménskij próf- essor. Bókin heitir Mir sagi eða Heimur íslendingasagna. Hún hefur nú verið þýdd á íslensku og mun væntanlega verða gefin út í haust. Er það vonum seinna að svo merk fræði um menningararf ís- lendinga koma fyrir almenn- ingssjónir hér á landi. Höfundurinn segir í formála bókarinnar að hún fjalli um heim- sýn Islendingasagna, einkum hugmyndir, sem þar koma fram, um sannleika, einstaklingseðli, form og innhald, gott og illt, tíma og rúm, líf og dauða. En þótt Stéblin-Kaménskij fáist aðallega við Islendingasögur í þessari bók sinni slítur hann þær ekki úr sam- bandi við annan sagnasjóð íslend- inga á miðöldum. Og það sem meira er um vert, hann setur þær í sögulegt samhengi og gleymir aldrei að viðmið og viðhorf nú- tímamanna og þar með hans sjálfs eru önnur en fólksins á ritunar- tíma sagnanna. í augum Stéblin-Kaménskijs er bókmenntaverkið huglægur heim- ur er birtist þeim sem nýtur þess í táknum fyrir eitthvað í meðvitund hans, meira að segja einatt í tákn- um á táknum. Þetta eru hin töluðu og skrifuðu orð. En orðin gera les- andanum erfitt fyrir að skilja bókmenntir genginna kynslóða því að merking þeirra hefur breyst meira og minna um aldir. Merk- ingarbreytingarnar hafa orðið mestar á orðum sem notuð eru um huglæg fyrirbrigði eins og sál, sannleika og hvað sé gott. Þannig les jafnvel sá sem rýnir í frumrit- ið verkið í þýðingu því að það er erfitt að komast hjá að gæða orðin þar því innihaldi sem nútíma les- andinn er vanur. Þar við bætist að handritin eru oft allt annað en auðveld aflestrar og verður það gjarnan til þess að athygli fræði- mannsins beinist að því sjálfu en síður að verkinu sem þar stendur skrifað. Stéblin-Kaménskij segir einnig í Heimi Islendingasagna að það sé jafneðlilegt að sjá fagurfræðileg viðhorf manna og gildismat í ljósi sögunnar eins og mannlegt sam- félag. Hins vegar sé við ramman reip að draga því jafnskjótt og notuð séu hugtökin fagurbók- menntir, raunsæi, höfundarverk, inntak og önnur slik um gömul bókmenntaverk sé höfundunum gerðar upp skoðanir sem trúlega hefðu aldrei hvarflað að þeim. Sérstaklega sé hætta á þessu með bókmenntir sem líkjast á einhvern hátt nútíma skáldverkum eins og Islendingasögur gera. Af því að þær séu á ytra borði að sumu leyti líkar raunsæisskáldsögum hafi hugmyndir nútímamanna um skáldskap og jafnvel sálarfræði verið lesnar út úr þeim. Það er skoðun Stéblin-Kam- énskijs að fólk verði að gera sér grein fyrir muninum á eigin hugmyndum og samsvarandi hug- myndum genginna kynslóða og þannig átta sig á hvað sé sérstætt við þau bókmenntaverk þar sem þessar hugmyndir koma fram. Þetta reynir hann að gera i Heimi Islendingasagna. Með víðtækri þekkingu á efninu og opnum huga hefur Stéblin-Keménskij hér leit- að nýrra lausna á gömlum við- fangsefnum í sagnarannsóknum og komist að athyglisverðum niðurstöðum. Þegar sá sem þetta ritar las bókina Heim Islendingasagna í norskri þýðingu fyrir sex árum varð hún honum opinberun líkust. Eftir að hafa kynnst smáatriða- rannsóknum íslenskra fornsagna- fræðinga og sögufölsunum eins og þeim að Snorri Sturluson hafi ver- ið nútíma guðleysingi og þjóðern- issinni fannt honum hann loksins hafa fundið í höfundi bókarinnar mann sem sæi skóginn fyrir trján- um og leitaðist við að skynja hinn raunverulega anda sagnanna. Vafalaust hefur fleiri lesendum farið sem honum og mun fara. Þessi orð eru síðbúnar þakkir fyrir bókina. M. I. Stéblin-Kam- énskij lést í síðasta mánuði. Minn- ingu hans væri mestur sómi sýnd- ur hér á landi með því að snúa fleiri verka hans á íslensku. Athugasemd frá Bylgjunni: Talstödvarfé- lögin eru þrjú MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Talstöðvaklúbbnum Bylgjunni: „Það vakti óneitanlega furðu okkar að lesa grein í Morgunblað- inu þann 3.11. um ársþing Félags farstöðvaeigenda. Þar segir meðal annars: „Fulltrúar voru á einu máli um að ekki beri að hvika frá þeirri stefnu félagsins að því yrði úthlutað sanngjörnum fjölda rása i nýrri skiptingu 27 MHz tíðni- sviðsins sem nú er til skoðunar í samgöngumálaráðuneytinu, enda er FK eina hagsmunafélag notenda á þessu tíðnisviði." (undirstr. und- irr.). Þetta er mikill misskilningur. Á Islandi eru nú starfandi þrjú talstöðvafélög á 27 MHz tíðnisvið- inu, Félag farstöðvaeigenda, Talstöðvaklúbburinn Bylgjan og Talstöðvaklúbbur Islands, og eiga þau að sjálfsögðu öll hagsmuna að gæta á þessu tíðnisviði. Talstöðvaklúbburinn Bylgjan hefur skrifstofu sína að Hamra- borg 5, Kópavogi. í honum eru um 650 félagar, flestir staðsettir á höfuðborgarsvæðinu, en þó nokk- ur fjöldi víðsvegar um landið (t.d. Sauðárkróki, Stykkishólmi, Suð- urnesjum, Húnavatnssýslu og víð- ar), eða á annað hundrað manns. Skrifstofan er opin alla virka daga frá 20—22 og er símaþjónusta á vegum félagsins meðan á opnun- artíma stendur. Á vegum Bylgj- unnar eru haldin böll, skemmti- kvöld, hljómleikar, farið í ferða- lög, gefið út félagsblað og öll starfsemi með miklum blóma. Þess má svo að lokum geta að Talstöðvaklúbburinn Bylgjan er tæplega 5 ára gamall félagsskap- ur.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.