Morgunblaðið - 02.12.1981, Side 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981
SNJÓMOKSTURSREGLUR OKTÓBER 1980
SNJÓMOKSTUR OKT. 1980
Alla daga
Alla virka daga
Tvo daga í viku
Einu sinni í viku meðan fært þykir vegna veðráttu og
snjóþyngsla. Heimilt er að opna 2x í viku, meðan
snjólétt er.
Einu sinni í viku.
Einu sinni í hálfum mánuði meðan fært þykir vegna
veðráttu og snjóþyngsla. Heimilt að opna vikulega,
meðan snjóiétt er.
Þegar snjóþyngsli eru mikil eða veðurhorfur slæmar,
má moka aðra snjóléttari vegi i stað þeirra, sem kortið
sýnir, þó lengri séu.
MESTUR kostnaður á íbúa við vetrarþjónustu á þjóðvegum á
árunum 1976 til ’80 var á Vestfjörðum eða 329 nýkrónur.
Mestur var heildarkostnadurinn á Austurlandi eða 3.892
milljónir nýkróna. Á Vestfjörðum var kostnaðurinn 3.383
milljónir, á Norðurlandi eystra 2.731 milljón, á Vesturlandi
2.137 milljónir, á Reykjanesi 1.886 milljónir, á Suðuriandi
1.406 milljónir og á Norðurlandi vestra 1.288 milljónir. Allt
eru þetta meðaltalstölur úr upplýsingariti frá Vegaeftirliti
ríkisins.
Eins og áður sagði var mestur kostnaður á íbúa á Vest-
fjörðum en minnstur var kostnaðurinn á íbúa á Reykja-
nesi, eða 14 nýkrónur. Næst mestur kostnaður á íbúa var á
Austurlandi eða 310 nýkrónur, 149 krónur á Vesturlandi,
123 krónur á Norðurlandi vestra, 109 krónur á Norður-
landi eystra og 73 krónur á Suðurlandi.
í regium um snjómokstur á þjóðvegum frá okt. 1980
segir í annarri grein að Vegagerðin greiði helming kostn-
aðar við snjómokstur á öllum þjóðvegum þegar beðið hef-
ur verið um hann og greiðsla hins helmings kostnaðarins
hafi verið tryggð. Óskir sveitarfélaga um helmingamokst-
ur gangi að jafnaði á undan óskum einstaklinga. Segir í 10.
gr. að á mjög snjóþungum vetrum geti sveitarfélög, sem
verða fyrir verulegum útgjöldum vegna snjómoksturs, sótt
um endurgreiðslu til Vegagerðar ríkisins á hluta þess
kostnaðar sem þeim ber að greiða samkvæmt annarri
grein. Endurgreiðsla skal þó aldrei nema hærri fjárhæð en
helmingi af hluta sveitarfélaga.
Segir í þriðju grein að Vegagerðin greiði allan kostnað
við mokstur nokkurra mikilvægra samgönguleiða, þó ekki
nema ákveðinn fjölda daga í viku eða mánuði.
í samtali við Mbl. sagði Hjörleifur Ólafsson, vegaeftir-
litsmaður hjá Vegagerð ríkisins, að áætlað væri að kostn-
aður við vetrarþjónustu á þjóðvegum fyrir árið 1981 yrði
um fjórir milljarðar gamalla króna eða 40 milljónir nýjar.
Þegar væri kostnaðurinn orðinn hátt í 28 milljónir ný-
króna frá áramótum. Ekki er búið að reikna skiptingu á
milli landshluta.
GETUR GJÖRBREYTT
ÚTLITI HEIMIUSINS
MEÐ NOKKRUM
LÍTRUM AF KÓPAL
Fáður þér Kópal litakort í næstu málningarbúð. Veldu
síðan fallega liti i rólegheitum heima i stofu.
Þú ert enga stund að velja liti, sem fara vel við teppin,
húsgögnin og gluggatjöldin. Það er alveg ótrúlegt hvað
fáeinir lítrar af Kópal geta breytt miklu.
Komdu fjölskyldu þinni á óvart - málaðu fyrir helgi.