Morgunblaðið - 02.12.1981, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981
49
Vonarland, vistheimili og þjónustumiðstöð fyrir þroskaheft fólk var formlega tekið í notkun í haust.
Vistheimili fyrir þroska-
hefta á Austurlandi
Vonarland, vistheimili og þjónustumiðstöð fyrir
þroskahefta á Austurlandi, var formlega tekið í
notkun nú í haust. Þjónustugreinar heimilisins
verða í meginatriðum fjórþættar: foreldraráðgjöf,
dagvistun, skammtímavistun og langtímavistun.
Aðstaða er til að taka á móti tíu einstaklingum í
vistun í einu, ýmist í langtíma- eða skammtímavist-
un. Einnig er aðstaða til að vera með tíu að auki í
dagvistun.
Það var fyrsti áfangi Vonarlands, sem tekinn
var í notkun, en hann er tvö hús með tengibygg-
ingu. Annað húsið er ætlað fyrir þjálfunarskóla og
stjórnun og þar er einnig aðstaða fyrir foreldra
vistmanna, sem vilja dvelja um tíma og fylgjast
með þjálfun og njóta ráðgjafar. Hitt húsið er
heimiliseining með 5 svefnherbergjum fyrir tvo,
auk annarrar aðstöðu.
Við fjölmenna vígsluathöfn kom meðal annars
fram í ávarpi formanns SVA, Aðalbjargar Magn-
úsdóttur, að fullyrða mætti, að Vonarland væri
ekki tekið til starfa, ef ekki hefðu komið til gjafir
og framlög félaga og einstaklinga, en stór hluti
innbúsins væri keyptur fyrir gjafafé.
Af tilefni opnunar Vonarlands voru heimilinu
færðar kveðjur og árnaðaróskir og margar góðar
gjafir.
Á þessu ári er ennfremur ráðgert að ljúka fram-
kvæmdum á lóð heimilisins. Norðan við húsin er
svo risinn grunnur að sundlaug, sem gert er ráð
fyrir að verði tilbúin 1982. Lionsfélagar á Egils-
stöðum hafa gefið alla vinnu til verksins, en
Styrktarfélag vangefinna á Austurlandi hefur lagt
til efni.
Forstöðumaður Vonarlands er Bryndís Símon-
ardóttir.
í stjórn SVA sitja nú: Aðalheiður Magnúsdóttir,
Fáskrúðsfirði, Hulda Bjarnadóttir, Neskaupstað,
Guðmundur Magnússon, Reyðarfirði, Kristján
Gissurarson, Eiðum, og Björg S. Blöndal, Seyðis-
firði. Byggingarnefnd skipa: Astvaldur Kristófers-
son, séra Einar Þór Þorsteinsson og Helgi Seljan.
Vistherbergin að Vonarlandi eru einkar smekkleg og
hlýleg.
Ferðamálaráð varar
við erlendum heitum
Á FUNDI Ferðamálaráðs íslands,
22. okt. sl. var athygli vakin á þeirri
tilhneigingu, sem gætt hefur í vax-
andi mæli, bæði í verzlunarrekstri og
skemmtiiðnaði, að æ fleiri skemmti-
staðir, verzlanir og fleiri aðilar í
viðskiptahTinu reka fyrirtæki sín
undir erlendum heitum. Samþykkti
Ferðamálaráð einróma að vara við
þessari þróun, „sem er í algjörri mót-
sögn við þá stefnu sem ráðið fylgir
og beinist m.a. að verndun og virð-
ingu fyrir íslenzkri menningu, sögu
og tungu.
Ferðamálaráð minnir á að þeir
erlendu gestir er hingað koma
leggja m.a. leið sína hingað til að
kynnast sögu okkar og menningu.
Það er hins vegar ekki geðþekk
kynning á landi og þjóð, sem að
framan er lýst,“ segir í fréttatil-
kynningu frá Ferðamálaráði.
I samtali við Mbl. benti Heimir
Hannesson formaður Ferðamála-
ráðs á að samkvæmt lögum væri
skylt að íslenzk fyrirtæki bæru
nöfn er samræmdust íslenzku
málakerfi. Sagði hann að allir
hlytu að vera sammála um að
þarna væri á ferðinni öfugþróun
sem máltilfinningu þjóðarinnar
stafaði hætta af sérstaklega hvað
varðaði yngri kynslóðina. Benti
hann einnig á að vandalaust væri
að finna fyrirtækjum íslezk nöfn
sem væru betri eða jafngóð erlend-
um heitum.
Baughóll 50 á Húsavík rís af grunni.
Húsavík:
Húsiðn framleiðir
steyptar einingar
Húsavík í nóvember.
HÍISIÐN hf. heitir nýtt fyrirtæki,
sem hóf störf á Húsavík sl. sumar og
framleiðir það steyptar einingar til
byggingar húsa. Fyrstu verkefni
fyrirtækisins voru bygging spenni-
stöðva fyrir Rafveitu Húsavíkur og
bílskúrar fyrir einstaklinga. Nú hef-
ur fyrirtækið iokið við að reisa ein-
býlishúsið, sem er að Baughóli 50.
Aður hafa hér verið reist ein-
ingahús, en hlutar þeirra hafa
verið gerðir á Akureyri og víðar,
en slíkt hefur eðlilega í för með
sér mikinn aukakostnað vegna
flutninga, svo að með því að
steypa einingarnar á staðnum
sparast peningar og það eykur
jafnframt atvinnuna í bænum.
Framkvæmdastjóri félagsins er
Hilmar Þorvaldsson, húsasmiður.
Fréttaritari.
ísafjarðarprófastsdæmi:
Vel heppnaður héraðsfundur
HÉRAÐSFUNDUR ísafjarðarpróf
astsdæmis 1981 var haldinn í Bol-
ungarvík fyrir nokkru og hófst með
guðsþjónustu í Hólskirkju. Séra
Torfi Hjaltalín Stefánsson prédik-
aði, en sóknarpresturinn, séra Gunn-
ar Björnsson, þjónaði fyrir altari
ásamt öðrum prestum héraðsins.
Fundarstörf fóru fram í Ráðhússal
Bolungarvfkurkaupstaðar. Var mál
manna, að fundurinn hefði verið
hinn gagnlegasti.
Skýrsla prófasts
Séra Lárus Þorvaldur Guð-
mundsson, prófastur í Holti,
ræddi í skýrslu sinni nauðsyn á
bættum kjörum kirkna við kaup á
rafmagni, betri umgengni og hirð-
ingu kirkjugarða og þá tregðu,
sem ríkir í skilum margra safnaða
á reikningum fyrir kirkjur og
kirkjugarða. Hann fagnaði nýrri
BUalíu-þýðingu og nýrri Handbók
fyrir presta og söfnuði. Þá minnt-
ist hann og þakkaði kristniboðs-
hátíðina á Patreksfirði í sumar
leið, en undurbúningur og fram-
kvæmd hennar hvíldi mest á séra
Jakobi Hjálmarssyni á ísafirði.
Tónlistin í
kirkjunni aðalmálið
Kjartan Sigurjónsson, organisti
á ísafirði, flutti framsöguerindi
um þátt organistans í safnaðar-
starfinu. Fundurinn gerði góðan
róm að máli hans og sendi Sam-
bandi vestfirskra kirkjukóra
kveðju sína og hvatningu til þess
að virkja þann söngáhuga, sem nú
er meðal kirkjunnar fólks víða um
land.
Nýir prestar
Það er gleðilegt, að nú eru nær
öll prestaköll á Vestfjörðum skip-
uð. Nýir prestar eru á Þingeyri og
Suðureyri, þeir séra Torfi H. Stef-
ánsson og séra Kristinn Ágúst
Friðfinnsson. Fundarslit voru i
Hólskirkju, þar sem Bergljót
Sveinsdóttir söng einsöng við und-
irleik Kjartans Sigurjónssonar.
En áður þágu fundarmenn kvöld-
verð í boði sóknarnefndar Hóls-
kirkju og bæjarstjórnar Bolungar-
víkur.
(Krótutilkynning)
Sr. Torfi H. Stefánsson predikar.
Kaffisamsæti að loknum héraðsfundinum. Ljósm. Mbi. Gunnir H*n>«an.