Morgunblaðið - 02.12.1981, Síða 22
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981
Ferðamálaráð íslands:
I þessum austurhluta fyrstu hæðar Hótel Esju verður í framtíðinni þjónustumidstöd fyrir gesti hótelsins og aðra,
en nú er unnið við fyrsta áfanga þeirrar þjónustumiðstöðvar og er áætlað að taka hann í notkun í jan.—feb. á
næsta ári.
Hótel Esja stækkar við
sig á fyrstu hæð hótelsins
BREYTINGAR standa nú yfir á
fyrstu hæð Hótel Esju þar sem
austurhluti hæðarinnar verður inn-
réttaður fyrir ýmis konar þjónustu
og mun þar skapast aðstaða fyrir
rakarastofu og ýmsar smærri
verslanir.
Að sögn Einars Olgeirssonar,
hótelstjóra Hóte! Esju, verður
stækkað í áföngum og nú er ver-
ið að vinna við einn þriðja hluta
fyrstu hæðarinnar. í austurhlut-
anum var lengi til húsa Kr.
Kristjánsson með bílaumhoð og
verkstæði.
Sagði Einar að við þessa
stækkun fengi söludeild Flug-
leiða sem fyrir er í húsinu
stærra rými og einnig Ramma-
gerðin. Sagði Einar að meiningin
væri að koma þarna upp þjón-
ustumiðstöð fyrir hótelgesti
jafnt sem aðra, þar sem á boð-
stólum væri hin og þessi þjón-
usta eins og rakara- og hár-
greiðslustofa, minjagripaverzl-
anir, smábúðir ýmis konar,
nuddstofa og annað. Bætti Einar
því við að ekki væri endanlega
ákveðið hvað í boði yrði.
Það er áætlað að sögn Einars
að taka þennan hluta fyrstu
hæðarinnar í notkun um mán-
aðamótin jan,—feb. á næsta ári,
ef allt gengur að óskum. Meðan
þessar breytingar yrðu gerðar,
yrði gerður gangur frá þjónustu-
miðstöðinni í móttökuna og hún
stækkuð.
Ekki vissi Einar um endanleg-
an kostnað við þessar breyt-
ingar, en sagði hann ekki mikinn
og að hann myndi fljótt skila sér
til baka í leigu. Búðirnar verða
leigðar út til aðila og sagði Einar
að nokkur tilboð væru þegar
komin inn. Helsti kostnaðurinn
sagði Einar að væri vegna hita-
kerfis, en það verður lagt um
austurhluta fyrstu hæðarinnar.
Mikil aukning á
ferðum Bandaríkja-
manna til Islands
í FRÉTTATILKYNNINGU frá Ferðamálaráði íslands segir að á
tímabilinu janúar—ágúst í ár hafi þeim Bandarfkjamönnum er
heimsóttu Island fjölgað um rúmlega 17 prósent miðað við sama
tímabil árið 1980. Á sama tíma fækkaði ferðamönnum til annarra
Evrópulanda, sem eru aðilar að European Travel Commission, um
tæplega 2 prósent.
Jóhann Ögmundsson í hlutverki
Fjalla Eyvindar í samnefndu leikriti
1957.
„A senu
og í sal“
Æviþættir Jóhanns
Ögmundssonar leikara,
söngvara og smiðs
„Á SENU og í sal“ nefnist titill bók-
ar um æviþætti Jóhanns Ögmunds-
sonar söngvara, leikara og smiðs á
Akureyri og út er komin hjá Skjald-
borg á Akureyri. Erlingur Davíðsson
skráði æviþættina, en bókin er
prýdd fjölda mynda.
I lok bókarinnar segir Jóhann
Ogmundsson svo: „Mörgu er nú
sleppt enda kemst engin ævisaga
sjötugs manns í eina bók ef öll
væri skráð. Fyrirfram var ég ráð-
inn í það særa sem fæsta og helzt
engan, enda má oft satt kyrrt
liggja..
Eg lofaði hvorki spennandi
ævintýrum eða kjarnmiklum
hetjusögum og var vandalítið að
standa við það. Kannski mátti
segja ævisögu mína þannig: Fædd-
ur í Hafnarfirði, var fjórtán ár í
Flatey, hefur síðan unnið hjá
Kaupfélagi Eyfirðinga á Akureyri,
lék um hálft hundrað hlutverka
hjá Leikfélagi Akureyrar og nokk-
ur annars staðar, setti þrjátíu og
átta leikrit á svið hér og þar, söng
með Geysi og einsöng með honum
og á eigin vegum, á fimmtíu ára
leikafmæli á næsta ári.“
Námsstefna Norrænu ungteplarahreyfingarinnar:
Norrænu bindindishreyfingunni
vex stöðugt fiskur um hrygg
HÉR Á LANDI var í byrjun nóvembermánaðar haldin námsstefna á vegum norræna Ung-
templarasambandsins, Nordgu. Þátttakendur voru frá öllum Norðurlöndunum nema Græn-
landi og var viðfangsefni námsstefnunnar fyrst og fremst að efla samstarf ungtemplarahreyf-
inga á Norðurlöndum, miðla reynslu og ræða þau málefni, sem helzt eru á döfinni. Þá var
einnig rætt um fjármögnun sambandsins og ungtemplarahreyfinga í hverju landi fyrir sig.
Erlendir þátttakendur voru 20, en 7 voru frá Islandi. Morgunblaðið ræddi við þrjá þeirra,
Kjell-Ove Oscarsson, formann Nordgu, Sverri Hansen, gjaldkera, og Árna Einarsson, for
mann íslenzkra ungtemplara.
Kjell-Ove, sem er frá Svíþjóð,
sagði að bindindishreyfingin þar
væri mjög sterk og innan hennar
væru um 400.000 manns. Innan
hennar væri mikið um áhrifa-
menn innan þjóðfélagsins og því
væri hreyfingin áhrifamikil og
öflug og færi hún nú ört vaxandi
eftir mótbyr liðinna ára. Hann
sagði að nú væri komin fram mik-
il hugarfarsbreyting í baráttunni
gegn vímugjöfum og nú væri mest
byggt á fyrirbyggjandi aðgerðum
fremur en boðum og bönnum.
Starfið beindist aðallega að skól-
um, æskulýðsfélögum og íþrótta-
hreyfingunni. Sagði hann að
árangur væri nokkuð góður og
væri mest að þakka áhrifum Al-
þjóða heilbrigðisstofnunarinnar
og því hve bindindishreyfingin
hefði góðan aðgang að kerfinu.
Mest áherzla væri lögð á að virkja
unglinga 12 til 14 ára, áður en
þeir hæfu notkun vímugjafa og
kæmi þar öflug félagsstarfsemi
og námskeið af ýmsu tagi aö góð-
um notum. Taldi hann að nú hefði
náðst til 2.000 unglinga árlega. Þá
sagði Kjell-Ove að mikill hluti af
starfsemi ungtemplarafélaganna
væru friðarmál og áhugi á þeim
hefði aukizt mjög upp á síðkastið
í kjölfar innrásarinnar í Afgan-
istan og umræðna um kjarnorku-
vopn.
Sverri Hansen, gjaldkeri sam-
bandsins, er frá Færeyjum. Hann
sagði að Nordgu væri fjármagnað
með framlögum aðildarfélaganna
og framlögum frá Norðurlanda-
ráði. Sagði hann Nordgu vera
annað stærsta ungdómsfélag
Norðurlanda og starfsemi þess
mjög útbreidda. Stóru aðildarfé-
lögin í Noregi og Svíþjóð væru
fjárhagslega vel stæð og veittu
þau litlu félögunum í Danmörku,
Færeyjum og íslandi bæði fjár-
hagslegan stuðning og aðstoðuðu
þau á ýmsan hátt með námskeiða-
hald og fleira.
Sverri sagði, að fyrr hefði bind-
indishreyfingin í Færeyjum verið
mjög sterk, en hefði svo farið
hrakandi þar til nú síðustu árin,
að hún væri að ná sér á strik aft-
ur. Sagði hann að mikilvægur
þáttur í vexti bindindishreyf-
ingarinnar í Færeyjum væri auk-
ið samstarf við Norðmenn og ís-
lendinga. Nú væru um 3.000 félag-
ar í bindindishreyfingum í Fær-
eyjum, þar með talið ýmsum trú-
arlegum hreyfingum. Hann sagði
að vaxandi notkun áfengis í Fær-
eyjum stafaði meðal annars af
götum í áfengislöggjöfinni og
Nefndi þar tilvist „ölklúbbanna"
svokölluðu, sem enn væru til þó
óleyfilegt væri að selja áfengi í
Færeyjum. Hann sagði að nú væri
mest unnið að því að halda ungl-
ingum frá áfengisneyzlu eins
lengi og mögulegt væri og þá með
fræðslu og fyrirbyggjandi aðgerð-
um.
Árni Einarsson sagðist vilja
leggja áherzlu á mikilvægi
Nordgu, sérstaklega fyrir litlu að-
ildarfélögin. Nordgu hefði gert
þeim kleift að auka starfsemi
sína, bæði með fjárframlögum og
annarri aðstoð. Það yki samstarf
aðildarfélaganna og auðveldaði
þeim starfið. Á vegum þess væru
ýmis námskeið og lögð væri
áherzla á að losa unglinga við
hömlur og feimni, svo þeir gætu
tekið óþvingaðan þátt í félagslíf-
inu og teldu sig ekki þurfa að
neyta áfengis til að geta verið
með. Þá hefði litlu félögunum gef-
izt kostur á að senda menn á lýð-
háskóla fyrir tilstilli Nordgu, þar
sem þeir meðal annars lærðu fé-
lagslegar leiðbeiningar og leið-
togastörf.
Kjell-Ove Oscarsson, formaður norrænu ungtemplarahreyfingarinnar, Sverri
Hansen, gjaldkeri og Árni Einarsson, formaður íslenzkra ungtemplara.
Ljósmynd Mbl. Kmilía Björg.
4SF
Árið 1980 og einnig á yfirstand-
andi ári hefur Ferðamálaráð, í
samvinnu við Flugleiðir hf., varið
umtalsverðum fjárhæðum í
Bandaríkjunum til kynningar á
Islandi og þeim ferðamöguleikum
sem hér er boðið upp á. Blaða-
mönnum, sem rita reglulega í fjöl-
lesin blöð og tímarit, var boðið til
íslands bæði árin, svo og hópum
ferðaskrifstofumanna frá þeim
borgum, þar sem vænlegast þótti
að bjóða Islandsferðir. Reglulega
voru sendar út fréttir og greinar
um Island, sem greiðlega gekk að
fá birtar bæði í blöðum og hjá hin-
um fjölmörgu útvarpsstöðvum í
Bandaríkjunum. Ennfremur hefur
verið auglýst í tímaritum og blöð-
um þar.
Eins og áðurnefnd aukning
ferðamanna frá Bandaríkjunum
ber með sér, hafa þeir fjármunir
sem varið var bæði árin skilað sér
aftur með góðum vöxtum í þjóðar-
búið. Miðað við áætlaða meðal-
neyzlu hvers ferðamanns, sem til
landsins kemur, hefur upphæðin
komið u.þ.b. fjórtánföld til baka,
segir í fréttatilkynningunni.
I samtali við Heimi Hannesson,
formann Ferðamálaráðs, kom
fram, að til athugunar er hjá ís-
lenzkum ferðamálaaðilum að stór-
auka Islandskynningar í Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð og er
það gert í beinu framhaldi af
ppinberum heimsóknum forseta
íslands, Vigdísar Finnbogadóttur,
til þessara landa í ár. Hefur
Ferðamálaráð staðið fyrir sér-
stakri kynningardagskrá á Norð-
urlöndum og verður kynningunni
einkum beint til staða utan höfuð-
borga í vetur.
Þá mun Ferðamálaráð taka þátt
í hinni víðtæku Norðurlandakynn-
ingu „Scandinavia today" sem
fara mun fram í mörgum stór-
borgum Bandaríkjanna veturinn
1980—81. Mun Ferðamálaráð nota
þetta tækifæri til að kynna íslenzk
ferðamál og er hér að sögn Heimis
um einstakt tækifæri að ræða til
að koma íslenzkum málum á
framfæri á þessu mikilvæga
markaðssvæði.