Morgunblaðið - 08.01.1982, Blaðsíða 11
HVAD ER AÐ GERAST UM HELGINA?
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1982 43
„Undir álminum“
aftur á fjalirnar
Þrjú leikrit verða sýnd hjá Leikfélagi
Reykjavíkur um helgina. í kvöld (föstu-
dagskvöld) er sýning á JÓA eftir Kjartan
Ragnarsson og er uppselt á þá sýningu.
Annað kvöld verður fyrsta sýningin eftir
nokkurt hlé vegna hátíðanna á leikriti
Eugene O’Neill UNDIR ÁLMINUM. Þýð-
ingu verksins gerði Árni Guðnason, leik-
stjóri er Hallmar Sigurðsson og leikmynd
gerði Steinþór Sigurðsson. í aðalhlutverk-
unum eru Ragnheiður Steindórsdóttir,
Gísli Halldórsson og Karl Ágúst Úlfsson.
— Á sunnudagskvöldið verður svo leikritið
ROMMÍ sýnt í 121. skipti og þar eru það
Gísli Halldórsson og Sigríður Hagalín sem
fara með hlutverkin tvö. Vegna þrengsla í
leikhúsinu verður aðeins unnt að hafa ör-
fáar sýningar enn á verkinu. — Á mánu-
daginn, 11. janúar, halda Leikfélagsmenn
upp á 85 ára afmæli félagsins með ýmsu
móti. Meðal annars verður haldinn hátíð-
arfundur í kjallara nýja Borgarleikhússins
kl. 18 og eru borgarbúar velkomnir að vera
þar viðstaddir.
Erlendar
kvikmyndir
Sunnudaginn 10. jan. nk. kl. 2.00 verða
sýndar erlendar verðlaunamyndir í kvik-
myndasal Loftleiðahötelsins. Myndirnar
sem sýndar verða eru frá Danmörku, Sví-
þjóð og Finnlandi. Hafa flestar þessara
mynda hlotið verðlaun á kvikmyndahátíð
Nordisk Smalfilm og verður því fróðlegt
að sjá hvar íslenskar myndir standa gagn-
vart myndum frá hinum Norðurlöndunum.
Ætti því enginn að v;rða svikinn af því að
líta við á Hótel Loftleiðum sunnudaginn
10. jan. nk. kl. 2.00. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill meðan að húsrúm leyfir.
Þjóöleikhúsið:
Sýningum fer
fækkandi á
„Dans á rósum“
Föstudaginn 8. janúar og sunnudaginn
10. janúar verða sýningar á Húsi skálds-
ins, ieikgerð Sveins Einarssonar á verki
Halldórs Laxness í leikstjórn Eyvindar
Erlendssonar. Hús skáldsins var frumsýnt
á annan dag jóla en uppselt hefur verið á
allar sýningar hingað til.
Á laugardag og sunnudag kl. 15.00 eru
sýningar á barnaleikritinu Gosa, sem
frumsýnt var milli jóla og nýárs og er
sömu sögu að segja af því að uppselt hefur
verið á allar sýningar til þessa. Gosi er í
leikbúningi og Ieikstjórn Brynju Bene-
diktsdóttur.
Á laugardagskvöld verður sýning á leik-
riti Steinunnar Jóhannesdóttur, Dansi á
rósum, í leikstjórn Lárusar Ýmis Óskars-
sonar. Verk þetta var frumsýnt í október
sl. Sýningar lágu niðri á verkinu allan des-
embermánuð meðan Hús skáldsins og Gosi
voru að komast á svið en nú hefjast sýn-
ingar að nýju. Er fólki bent á að sýningum
fer nú fækkandi á Dansi á rósum.
Á sunnudagskvöld verður á Litla sviðinu
2. sýning á ungverska leikritinu Kisuleik,
eftir István Örkény í leikstjórn Benedikts
Árnasonar. Verk þetta var frumsýnt í
gærkvöld (7. jan.) fyrir fullu húsi.
Fyrirlestur í Fé-
lagi áhugamanna
um heimspeki
Sunnudaginn 10. janúar flytur Hannes
H. Gissurarson fyrirlestur á vegum Félags
áhugamanna um heimspeki. Fyrirlestur-
inn nefnist „Ósýnilega höndin" og fjallar
um hagfræði og heimspeki Adam Smiths.
Fyrirlesturinn er haldinn i Lögbergi,
stofu 101, og hefst kl. 14.30. Öllum er heim-
ill aðgangur.
Utivistarferð
að Gullfossi
Það sem af er þessum vetri hefur verið
óvenjulega kalt. Gullfoss er því nú i mikil-
úðlegum klakaböndum, sem birtast okkur í
óviðjafnanlegri fegurð og litadýrð
skammdegissólarinnar. Á sunnudaginn,
10. jartúar, efnir Útivist til skoðunarferðar
að Gullfossi.
Lagt verður af stað frá Umferðarmið-
stöðinni um morguninn kl. 10.00 og komið
aftur til borgarinnar á sunnudagskvöld.
í ferðinni verður komið við í Haukadal
og horft á hverina gjósa, en gos þeirra eru
sérstaklega fögur í frosti og logni. Geysir
verður skoðaður sérstaklega. Einnig verð-
ur andagt í Haukadalskirkju.
Fólk þarf að vera vel búið og hafa með
sér nesti til dagsins. Kunnugir fararstjór-
ar verða með í ferðinni.
Árni Elvar á
Hótel Holti
Árni Elvar, píanóleikari, leikur nú um
þessar mundir á Pínaó-barnum hverja
helgi létt lög, en um helgar er hótelið ætíð
opnað kl. 18.00 fyrir matargesti.
Dansað í Templ-
arahöllinni
Fram eftir vetri verður í Templarahöll-
inni í Reykjavík við Eiríksgötu alla föstu-
daga kl. 21.00 félagsvist og dansað eftir að
spilað hefur verið. Dansað verður á hverju
kvöldi til kl. 1.30. Þetta eru gömlu dans-
arnir en Tríó Þorvaldar sér um að leika
undir dansinum. Þetta er skemmtun án
áfengis.
Vita Andersen í
Norræna húsinu
Danska skáldkonan Vita Andersen er
stödd hér á landi en Alþýðuleikhúsið sýnir
nú leikrit hennar „Elskaðu mig“. Vita mun
á laugardaginn 9. jan. kl. 16.00 ásamt Nínu
Björk Árnadóttur og Kristínu Bjarnadótt-
ur lesa upp úr verkum skáldkonunnar.
Daginn áður, föstudaginn 8. jan., er hádeg-
isverðarfundur á vegum Kvenréttindafé-
lags Islands í Norræna húsinu kl. 12.15,
þar sem Vita Andersen mun lesa upp og
svara spurningum. Fundurinn er öllum
opinn.
LJÓSMYNDIR
SKAFTA GUOJÓNSSONAR
Ljósmynda-
sýning Skafta
framlengd
Vegna mikillar aðsóknar verður sýningu
ljósmyndasafnsins á Reykjavíkurmyndum
Skafta Guðjónssonar frá árunum
1911—’46 opin í Listasafni Alþýðu nú um
helgina, 9.—10. janúar.
Ferðafélag íslands:
Gengið í Reykja-
nesfólkvangi
Á sunnudaginn, 10. janúar, verður geng-
ið í Reykjanesfólkvangi. Farið verður frá
Umferðarmiðstöðinni, austanmegin, kl. 11
f.h. Ekið verður í áttina að Sveifluhálsi, en
gengið vestan megin við hann. Gengið er á
Fjallið eina og í Hrútagjá. Þetta er auð-
veld ganga fyrir alla fjölskylduna og
landslag afar fjölbreytilegt. Aldrei er fólk
of oft minnt á að vera í þægilegum og
góðum fótabúnaði, en einmitt á Reykja-
nesinu er mikið af gömlum hraunum, sem
verður að fara yfir nánast hvar sem gengið
er. Kuldarnir undanfarið hafa trúlega
neytt alla til þess að hafa einungis hlýjan
fatnað við höndina, svo að óþarft er að
minna á slíkt, þegar halda skal í göngu-
ferð.
Á miðvikudagskvöld verður fyrsta
myndakvöldið á árinu að Hótel Heklu. Þar
verða sýndar myndir úr ferðum víðsvegar
um landið.
Tónleikar í
Norræna húsinu
Sunnudaginn 10. janúar kl. 16.00 halda
Unnur Jensdóttir, söngkona, og Jónína
Gísladóttir, píanóleikari, tónleika í Nor-
ræna húsinu. Þar verða flutt verk eftir
Brahms, Debussy, Fauré, Duparc, Rach-
maninoff o.fl. Unnur Jensdóttir er fædd í
Reykjavík. Hún stundaði nám í píanóleik
hjá Katrinu Viðar um 10 ára skeið og eitt
ár í Tónl.skóla Akraness hjá Hauki Guð-
laugssyni. Unnur hóf söngnám í Söngskól-
anum í Reykjavík 1973. Kennarar hennar
voru Rut Magnússon, Garðar Cortes og
Sieglinde Kahmann. Hún lauk 8. stigi í
söng 1977 og 8. stigi í píanó 1979 frá
Söngskólanum.
Veturinn 1979—1980 stundaði Unnur
söngnám í London. Meðal kennara hennar
þar voru Rudolf Pierney, Andrew Knight
og Morag Noble, Ilse Wolf og Ubalde
Gardini.
Þetta eru fyrstu sjálfstæðu tónleikar
Unnar Jensdóttur. Hún starfar nú sem
söngkennari við Tónlistarskólann á Akra-
nesi.
Jónína Gísladóttir stundaði nám í pí-
anóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík,
fyrst hjá Hermínu Kristjánsson og síðar
hjá Árna Kristjánssyni og lauk þaðan
tónmenntakennaraprófi.
Jónína hefur komið fram sem undirleik-
ari hjá einsöngvurum og kórum á fjöl-
mörgum tónleikum, bæði heima og utan.
Jónína starfar nú sem kennari við Söng-
skólann í Reykjavík og Nýja tónlistarskól-
ann.
Antonio
Corveiras í
Akureyrarkirkju
Spænski orgelleikarinn Antonio Cor-
veiras heldur í dag, föstudag, kl. 20.30
orgeltónleika í Akureyrarkirkju. Flytur
hann verk eftir J.S. Bach, Schuman, Boyv-
in og fleiri. Daginn eftir, laugardagskvöld,
heldur hann aðra tónleika í kirkjunni og
hefjast þeir á sama tíma, 20.30. Þá leikur
hann verk eftir Franck, Brahms, Satie,
Cook og fleiri.
„Gullna hliðið“
í Garðinum
Litla leikfélagið í Garði sýnir leikritið
„Gullna hliðið" eftir Davíð Stefánsson í
Félagsbíói í Keflavík föstudaginn 8. jan. og
hefst sýningin kl. 21.00. Leikstjóri er Jón
Júlíusson en með aðalhlutverk fara María
Guðfinnsdóttir, Ólafur Sigurðsson, Unn-
steinn Kristinsson og Viggó Benediktsson.
Listmunahúsið
sýnir myndir
Magnúsar
Tómassonar
Sölusýning stendur nú yfir þessa dagana
í Listmunahúsinu, Lækjargötu 2, þar sem
meðal annars er að finna gamlar myndir
eftir Magnús Tómasson. Myndirnar eru
frá árinu 1963, málaðar í olíu og olíukrít-
armyndir, en „mótífin" eru frá Bernhöfts-
torfu og höfninni í Reykjavík.
Hjá Listmunahúsinu eru einnig til sölu
verk eftir Tryggva Ólafsson, Alfreð Flóka,
Gunnar Örn Gunnarsson, Þorbjörgu Hösk-
uldsdóttur, Jón Engilberts, Óskar Magn-
ússon og Blómeyju Stefánsdóttur, en þau
síðastnefndu eiga myndvefnað á sölusýn-
ingunni.
Alþýðuleikhúsið:
Fyrstu sýningar
eftir áramót
„Elskaðu mig“ verður sýnt á föstu-
dagskvöld og sunnudagskvöld kl. 20.30 og
er uppselt. Vita Andersen höfundur leik-
ritsins verður með umræður á eftir sýn-
ingunni á sunnudagskvöldið. „Illur fengur"
verður sýnt á laugardagskvöldið kl. 20.30
og „Sterkari en Súpermann" verður á
sunnudaginn kl. 15.00.
Japani, Englend-
ingur og Kínverji
Hér á landi er nú stödd Yuko Inour,
lágfiðluleikari frá Japan, og enski kontra-
bassaleikarinn Duncan Metier ásamt Jos-
eph Fung, gítarleikara frá Hong Kong.
Þau halda hér nokkra tónleika á næstu
dögum. Á tónleikunum verða bæði ein-
leiks- og samleiksverk, gömul og ný, m.a.
eftir Bach, Hayden, Bartók og fleiri.
Hljómleikarnir í Reykjavík verða í Nor-
ræna húsinu mánudag 11. jan. kl. 20.30 og
einnig leika þau úti á landi sem hér segir:
10. jan. Njarðvík kl. 17.00, 14. jan. Egils-
stöðum, 15. jan. Eiðum og 17. jan. Vík í
taýrdal.