Morgunblaðið - 27.02.1982, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982
13
£SS
s i WKm
|.Tj Sn' Jgf ssr pi
-
Bókamarkaðurinn
Bóksalafélag íslands opnaði sinn árlega bókamarkað í Sýningahöll-
inni á Artúnshöfða á fimmtudaginn. Bókaþjóðin lét ekki segja sér þetta
tvisvar og fjölmennti eins og meðfylgjandi mynd ber með sér. Alls
munu vera um 6000 bókatitlar á boðstólum og verðið við allra hæfi að
sögn bóksalanna. Opið verður um helgina.
„Aðildarafslátturinn er
ekki greiddur úr sjóðum
launþegahreyfingarinnar“
— segir Eysteinn Helgason framkvæmdastjóri Samvinnuferða
„VIÐBRÖGÐIN við þessari nýjung
Samvinnuferða-Landsýnar, koma
mér ekki á óvart. Annarsvegar eru
það viðbrögð markaðarins, fólk hef-
ur flykkst á skrifstofur okkar hér í
Reykjavík og úti á landi, náð í ferða-
bæklinginn, kynnt sér ferðirnar og
síðan pantað ferðir. Hinsvegar eru
það viðbrögð keppinauta okkar, þau
koma heldur ekki á óvart. Við höf-
um áður bryddað upp á nýjungum og
fengið sambærileg viðbrögð af
þeirra hálfu,“ sagði Eysteinn Helga-
son framkvæmdastjri Samvinnu-
ferða-Landsýnar þegar Morgunblað-
ið leitaði álits hans á viðbrögðum
hinna ferðaskrifstofanna vegna til-
boðs Samvinnuferða um ókeypis far
til Reykjavíkur fyrir það fólk af
landsbyggðinni, sem tekur þátt í
ferðum Samvinnuferða.
Keppinautar okkar hafa verið
með dylgjur um óheiðarlega sam-
keppni og ýmis slagorð. Gott dæmi
um þetta er bréf ferðaskrifstofunn-
ar Útsýnar til alþingismanna, þar
sem lögð er áhersla á þjóðhagslega
óhagkvæma samkeppni, sem hlýtur
að teljast nýyrði í heimi viðskipt-
anna. Einnig er gott dæmi um þetta
hvernig aðildarafsláttur Samvinnu-
ferða-Landsýnar brennur fyrir
brjósti forráðamanna Útsýnar. Að-
ildarafslátturinn er ekki greiddur
af sjóðum verkalýðshreyfingarinn-
ar, heldur kemur hann til af þeirri
einföldu staðreynd, að ferðaskrif-
stofan Samvinnuferðir-Landsýn er
í eigu fjöldasamtaka og leggur
áherslu á hagkvæmt verð fyrir fé-
lagsmenn þessara hreyfinga,“ sagði
Eysteinn.
Þá sagði Eysteinn að reynt væri
að gera lítið úr afslættinum, en
hann kæmi á verð, sem þegar væri
lægra en keppinautanna og tekin
væru dæmi um eigin afslátt, sem
næmi allt að 10 þúsund krónum á
mann. „Þarna er dómgreind al-
mennings stórlega misboðið, því að
hin svonefndu normalfargjöld til
sólarlanda og sem forstjóri Útsýnar
nefnir, eru nánast aldrei notuð. Þau
fargjöld sem notuð eru, eru sér-
fargjöld og hópfargjöld, sem eru á
bilinu frá 5500 til 6500 krónur (en
ekki 11.500 til 13.000) á mann og eru
reyndar heldur ekki notuð af ferða-
skrifstofunum. Þær nota leigu-
flugsverð, sem er mun lægra. Orð
Útsýnarforstjórans eru því ódýr
augiýsingabrella.“
Þó að viðskiptavinum okkar um
land allt hafi reynst auðvelt að
skilja þessa nýjung, þá hefur keppi-
IIM 1400 undirskriftir fullorðinna og
unglinga 16 ára og eldri hafa safnast
meðal íbúa í Vogahverfi í Reykjavík,
en þeim var safnað til að andmæla
fyrirhugaðri breytingu á rekstri Voga-
skóla. Ráðgert er að færa kennslu 4.
til 9. bekkjar úr 3000 manna hverfi
yfir í Langholtsskóla.
í frétt frá Foreldra- og kennara-
félagi Vogaskóla segir að félagið
hafi barist gegn þessari breytingu
og telur félagið langflesta íbúa
nautum okkar ekki tekist að skilja
hvernig við stöndum að fram-
kvæmd okkar ferða, en það er algilt
lögmál í viðskiptalífinu, að aukið
magn, aukin sala, opnar möguleika
á hagkvæmari rekstri og þar af
leiðandi lægra verði. Allir þeir sem
vilja bera saman á hlutlausan hátt
okkar verð og keppinautanna, kom-
ast að þeirri niðurstöðu, að okkar
verð er lægra, þrátt fyrir þá stað-
reynd, að af þessu verði veitum við
aðildarafslátt og förum inn á þá
nýjung að bjóða öllum landsmönn-
um sama verð þegar þeir ferðast
erlendis. Við erum færir um að gera
þetta og það er markmið okkar að
gefa launþegum landsins kost á, að
ferðast á sem ódýrastan hátt.
Markmið keppinauta okkar virðist
vera að hámarka sinn ágóða," sagði
Eysteinn Helgason að lokum.
hverfisins andvíga henni. Hafa
undirskriftalistar verið sendir
menntamálaráðherra, borgarstjórn
Reykjavíkur, fræðslustjóra og
fræðsluráði og þess farið á leit að
yfirvöld breyti ákvörðun sinni. Seg-
ir jafnframt í fréttinni að þeir sem
vilji styðja þessi sjónarmið félags-
ins geti snúið sér til Margrétar
Þorvaldsdóttur í Sólheimum 38 eða
Ara Trausta Guðmundssonar
Karfavogi 58.
Foreldra- og kennarafélag Vogaskóla:
Mótmæla breytingum
á rekstri Vogaskóla
NEC FISH
FINUIX
IERA
í dag laugardag 27. feb. frá kl. 10-5 sýnum
við í verslun okkar aó Lágmúla 7:
HLJÓMTÆKI
SJÓNVÖRP
VIDEOTÆKI
HEIMILISTÆKI
Komió og kynnist því besta
, á markaðnum í dag.