Morgunblaðið - 27.02.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982
23
Grikkir banna
Póllandssöfnun
Aþcnu, 26. febrúar. AP.
STJÓRN sósíalista hefur bannad
störf nefndar sem hafði að mark-
miði að safna peningum og hjálpar
gögnum fyrir pólsk börn og fyrir
aldraða í Póllandi. Maria Kyprio-
taki-Perraki, aðstoðarfélagsmálaráð-
herra, sagði í bréfi til nefndarinnar
að ekki væri gert ráð fyrir slíku
starfi í lögum frá 1931.
í nefndinni áttu meðal annars
sæti Odysseus Elytis, nóbelsverð-
launahafi í bókmenntum og
Ioanna Tsatsos, fyrrverandi
forsetafrú Grikklands.
Yfirleitt eru safnanir af þessu
tagi mjög sjaldgæfar í Grikklandi,
að frátöldum árlegum herferðum
Rauða krossins og Krabbameins-
félagsins. En í lögum frá því fyrir
stríð er gert ráð fyrir að félagsmá-
laráðherrann geti leyft slíkar saf-
Veður
víða um heim
Akureyri 1 alskýjað
Reykjavík 3 skúr á síó.
klst
Amsterdam 2 heiðskirt
Aþena 14 heiðskírt
Barcelona 12 léttskýjað
Berlín -2 skýjað
BrUasel 4 heiðskírt
Chicago -1 skýjað
Dyflinni 9 heiðskírt
Feneyjar 5 hélfskýjaö
Frankfurt 0 skýjað
Færeyjar vantar
Genf 3 skýjað
Helsinki 1 heiðskírt
Hong Kong 14 skýjað
Jerúsalem 16 skýjað
Jóhannesarborg 27 heiöskírt
Kaupmannahöfn -3 skýjað
Kairó 22 skýjað
Las Palmas 20 skýjað
Lissabon 14 heiðskírt
London 6 skýjað
Los Angeles 21 skýjað
Madrid 11 heiöskírt
Malaga 15 skýjað
Mallorca 13 skýjað
Mexíkóborg 22 skýjað
Miami 26 skýjað
Moskva -4 skýjað
New York -2 heiöskírt
Nýja Delhí 23 skýjað
Osló -1 skýjað
París 6 skýjað
Perth 31 skýjað
Rió de Janeiró 33 skýjað
Rómaborg 12 heiðskirt
San Francisco 16 heiðskirt
Stokkhólmur 0 skýjað
Sydney 27 skýjaö
Tel Aviv 22 skýjaö
Tókýó 9 heiðskírt
Vancouver 8 rigning
Vínarborg 0 snjókoma
nanir ef hann sjái ástæðu til þess.
Stjórn Papandreus í Grikklandi
hefur margsinnis neitað að fylgja
fordæmi ýmissa ríkja innan EBE
og NATO, varðandi refsiaðgerðir
gegn pólsku herstjórninni.
Páfinn fer
til Fatima
13. maí nk.
I'áfagardi, 26. febrúar. Al*.
JÓHANNES Páll páfi II tók í dag á
móti forsætisráðherra Portúgals,
Pinto Balsemao, og staðfesti í sam-
tali þeirra að hann myndi koma til
Portúgals 13. maí nk. að því er Bals-
emao skýrði fréttamönnum frá.
Páfi mun vitja hins heilaga
staðar Fatima, en þar birtist
María guðsmóðir þremur litlum
börnum 13. maí 1917 og hefur síð-
an verið mikil helgi á þeim stað.
Skotárásin á páfa var gerð 13. mái
í fyrra og töldu margir táknrænt
fyrir daginn að páfi lifði af tilræð-
ið.
Af börnunum þremur sem guðs-
móðir birtist fyrir sextíu og fimm
árum er eitt á lífi, Lucia do Sant-
os, en hún gerðist nunna jafn-
skjótt og hún hafði aldur til og
hefur alla tíð verið í klaustrinu
sem var reist i Fatima.
Sýning á hrað-
skreiðustu prjóna-
konu heims
liondon, 26. fehrúar. Al*.
GWEN Matthewman, sem talin
er í Guinessheimsmetabókinni
prjóna hraðar en aðrir, hélt í dag
sýningu á fimi sinni í hannyrða-
verzlun í London og vakti óskipta
athygli.
Hraði Gwen Var mældur
fyrir tveimur árum og náði hún
111 „prjónaslögum" á mínútu.
Þess er og getið að hún hefur
prjónað á einu ári 15 peysur og
í þær fór sem svaraði 85 gær-
um. Nýlega lauk hún við að
prjóna gríðarmikinn ullarbol
sem hentar m.a. mjög vel á fíla.
Skákmótið í Mar del Plata:
Timman sigurvegari
- Karpov í
Mar del l'lata, Argentínu, 26. febníar. AP.
BENT Larsen frá Danmörku vann
biðskák sína við Miguel Najdorf frá
Argentínu, Zenon Franco frá Par
aguay sigraði Oscar Panno frá Arg-
entínu og Garcia Palcrmo frá Arg-
entínu og Miguel Quinteros landi
hans gerðu jafntefli á alþjóða-
skákmótinu í Argentínu. Jan Timm-
an frá Hollandi hefur forystu í mót-
inu og er með tíu vinninga. Síðasta
umferðin verður tefld í kvöld, föstu-
dagskvöld, en óvíst að úrslit berist
áður en Mbl. fer í prentun.
í lokaumferðinni tefla saman
Quinteros og Najdorf, Portish og
5.-6. sæti
Garcia Palermo, Franco og Serfio
Giardelli frá Argentínu, Fernando
Braga, einnig frá Argentínu og
Karpov heimsmeistari, Yasser
Seriawan frá Bandaríkjunum og
Panno, Lev Polugaievsky fá Sov-
étríkjunum og Timman og Larsen
og Ulf Anderson.
Staðan að loknum tólf umferð-
um af þrettán er:
I. Timman, llollandi, 9 v., 2. Portish,
llngverjalandi, 7'/« v„ 3.-4. Polugaievsky
og Heriawan, 7 v„ 5.-6. Karpov og And-
erson, 6Vi v„ 7. Larsen, 6 v„ 8.—10.
Braga, Garcia Palermo og Najdorf, 5'/j v„
II. Panno, 5 v„ 12.—13. Giardelli og
Quinteros, 4‘/j v„ 14. Franco 4 v.
Stjórnarhermenn í El Salvador aðstoða særðan félaga í borginni San Felipe í síðustu viku. Hermaðurinn
særðist í árás skæruliða á herflutningabifreið.
Krá Önnu Bjarnadótlur, frétU-
riUra Mbl. í Washinnlon
,,1‘AÐ ER styttra frá Texas til
Kl Salvador en til Massachuss-
etts,“ sagði Ronald Reagan
Randaríkjaforseti í stefnu-
markandi ræðu sem hann
flutti á miðvikudag um löndin
í Karabiska hafinu og Mið-
Ameríku. Ræðu Reagans hafði
verið beðið með nokkurri
óþreyju. Yonast var til að hún
myndi varpa Ijósi á fyrirætlanir
hans í El Salvador. Hann gerði
grein fyrir hugmyndum sínum
um aukna efnahagsaðstoð við
nágrannaþjóðirnar og sagði að
Randaríkjamenn mundu gera
það scm með þyrfti til að
tryggja frið og öryggi á svæð-
inu. Hann sagði ekki hvaða
áhrif stefna hans myndi hafa í
Kl Kalvador. Margir óttast að
tillögur hans muni lítið gagn
gera þar úr þessu en vonast til
að þær muni koma í veg fyrir
frekari uppreisnir í Mið-
Ameríku og í Karabíska haf-
inu þcgar efnahagsaðstoðar
innar verður vart.
Afstaða Reagans þyk-
ir benda til að hann
kynni að grípa til her-
valds í Mið-Ameríku
Stjórnarhermaður leitar að vopnum á farþegum strætisvagns í út-
jaðri höfuðborgarinnar, San Salvador. Einnig er hermaðurinn að
svipast um eftir hugsanlegum skæruliðum.
Afskiptum Banda-
ríkjastjórnar af E1
Salvador er í síauknum
mæli líkt við þróunina í
Víetnam.
Bandaríkjamenn dróg-
ust smátt og smátt inn í
deilurnar þar. í upphafi
var ekki meiningin að
bandarískir hermenn
myndu berjast þar.
Bandarísk stjórnvöld
hafa ekki hugsað sér að
senda herlið til El Salva-
dor. En margir óttast að
aukin efnahags- og hern-
aðaraðstoð muni á end-
anum leiða til enn frek-
ari afskipta af uppreisn-
inni í El Salvador.
Alexander Haig, utan-
ríkisráðherra, og Reagan
eru mjög harðorðir í
garð Kúbu og Nicaragua
þegar þeir fjalla um
Rómönsku-Ameríku.
Þeir fullyrða að sovésk-
um vopnum sé smyglað
þaðan til uppreisnar-
sveita I E1 Salvador.
Stjórnvöld í í Nicaragua
neita ásökununum en
hersveitir þar hafa verið
efldar verulega að und-
anförnu og bandarískt
herskip er út af strönd-
um landsins og fylgist
með ferðum þar. Inn-
flutningur sovéskra
vopna til Kúbu þrefald-
aðist á síðasta ári sam-
kvæmt tölum Banda-
ríkjastjórnar.
Harðorð stefna stjórn-
ar Reagans gegn frekari
áhrifum og aðgerðum
Sovétmanna í gegnum
Kúbu og Nicaragua og
fullyrðingar hans um að
hann muni „gera það
sem með þarf“ til að
tryggja „frið og öryggi"
á svæðinu, þykja benda
til, að hann kynni að
grípa til hervalds gegn
frekari útbreiðslu
kommúnismans. Mikil
andstaða er gegn þeirri
hugmynd í Bandaríkjun-
um og skoðanakönnun
sem Newsweek gerði ný-
lega, sýndi að 89 prósent
þátttakenda voru gegn
því að bandarískt herlið
yrði sent til E1 Salvador.
Eins og mál standa nú,
vonast Reagan til að
aukin efnahagsaðstoð
við löndin muni koma í
veg fyrir frekari vinstri-
þróun og eitthvað já-
kvætt komi út úr kosn-
ingunum sem verða
haldnar í E1 Salvador í
lok marsmánaðar.
Vinaþjóðir Banda-
ríkjamanna í Evrópu og
Mexíkó óttast að Banda-
ríkjastjórn bindi allt of
miklar vonir við úrslit
kosninganna. Vinstri öfl-
in í landinu hafa neitað
að taka þátt í þeim þar
sem herstjórnir í E1
Salvador hafa áður fals-
að niðurstöður kosninga
og hætt er við blóðbaði á
kosningadag. Allt bendir
til að hægri öflin muni
vinna verulega á í kosn-
ingunum og það mun
sannarlega ekki leiða til
friðar í landinu. Frjálsar
forsetakosningar voru
síðast haldnar í E1
Salvador 1931 en kosn-
ingarnar nú verða um
nýja stjórn sem á að
undirbúa forsetakjör ár-
ið 1983.
José Lopez Portillo
forseti Mexíkó lagði til í
ræðu um helgina, að þeg-
ar yrði sest að
samningaborði og ekki
beðið eftir úrslitum
kosninganna. Hann
bauðst til að verða milli-
göngumaður í samn-
ingaviðræðum Banda-
ríkjamanna við Kúbu,
Nicaragua og E1 Salva-
dor. Vinstriöflin í E1
Salvador hafa sagst vera
reiðubúin að setjast að
samningaborði og telja
það einu leiðina til
lausnar á vandamálum
þjóðarinnar. Reagan
hefur ekki brugðist við
tillögu Portillos. En
raddir fylgismanna
samningaviðræðna verða
æ háværari.
Bandaríska þingið
fylgist mjög náið með
framvindu mála í E1
Saivador. Mikill fjöldi
fulltrúadeildarþing-
manna var fyrst kjörinn
á þing vegna andstöðu
sinnar gegn þátttöku
Bandarikjamanna í Ví-
etnam-stríðinu. Þeir
munu streitast gegn
frekari afskiptum
Bandaríkjanna af E1
Salvador í lengstu lög.
Tillögur Reagans um
aukna efnahagsaðstoð
við svæðið allt munu
jafnvel mæta andstöðu í
þinginu, þar sem allt að
þriðjungu'r 350 milljóna
dollara sem hann fer
fram á í styrkveitingar
mun væntanlega fara til
E1 Salvador.
Ahugi stjórnvalda á E1
Salvador er stórum
hluta almennings hulin
ráðgáta. Hann veltir því
fyrir sér hvers vegna
milljónum dollara er
varið í styrkveitingar til
lítils lands sem litlu máli
virðist skipta, á sama
tíma og útgjöld ríkisins
til félagsmála og upp-
b.vggingar atvinnu í
landinu eru skorin niður.
Svar stjórnvalda við
þessum vangaveltum er,
að E1 Salvador liggur
milli tveggja mikilvægra
svæða fyrir Bandaríkin,
olíusvæðanna í Suður-
Mexíkó og Panama-
-skipaskurðarins.
Byltingarsinnar komust
til valda í Nicaragua
fyrir tveimur árum og
nú er barist í El Salva-
dor. Eins og Reagan
benti á í ræðu sinni er E1
Salvador ekki svo ýkja
langt frá Banda-
ríkjunum og skiljanlegt
að stjórnvöld hafi áhuga
á framvindu mála þar.
Vandi þjóðarinnar er
mikill og langt í frá að
séð sé fyrir endann á
honum.