Morgunblaðið - 17.03.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 17.03.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1982 3 Siuidhöllin í Reykjavík: Kostnaður við viðgerð og breytingar 5—6 millj. króna „ÞAÐ er rétt að kostnaður við viðgerð og breytingar á Sundhöllinni við Barónsstíg er orðinn mikili og er hann nú á bilinu 5—6 milljónir króna,“ sagði Eiríkur Tómasson lögfræðingur, formaður íþróttaráðs Reykjavíkur þegar Morgunblaðið innti hann eftir kostnaðinum við viðgerðina og breyt- ingarnar og eins hvers vegna verkið var ekki boðið út. „Það er ekki rétt að ekkert af verkinu hafi verið boðið út,“ sagði Eiríkur. „Þar sem því var við komið var það gert, en hins vegar er mjög erfitt að bjóða út verk, þegar um viðhald er að ræða, því sjaldnast er vitað hve viðgerðir verða miklar. Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa unnið að mestu að breytingum sundhallarinnar í tímavinnu og sjá þeir einnig um viðhald á flestum eignum borgarinnar í tímavinnu." Eiríkur sagði, að viðgerð á sund- höllinni væri mjög viðamikil, auk þess sem tveir nýir pottar með vatnsnuddi hefðu verið byggðir. Kvað hann sundhöllina hafa verið illa farna og aðsókn að henni hafa verið orðna mjög dræma. Eftir breytingarnar hefði aðsókn aukist mjög mikið og því myndi viðgerðar- kostnaðurinn skila sér að einhverju leyti til baka. Norskur rækjuveiðitogari hætt kominn NORSKUR rækjuveiðitogari átti í erf- iðleikum úti af Vestfjörðum í fyrrinótt þegar leki kom að skipinu eftir árekst- ur þess við ísjaka. Kom allstórt gat miðskips við sjólínu. Varðskip aðstoð- aði togarann til hafnar. Norski togarinn heitir Thue Jun- ior og var Slysavarnarfélaginu og Landhelgisgæslunni tilkynnt að hann óskaði aðstoðar um kvöldmat- arleytið á mánudag. Var togarinn þá staddur 130 til 150 mílur vest-suð- vestur af Deild. Hélt varðskip á móti Thue Junior og fóru varðskipsmenn um borð með dælur. Var erfiðleikum bundið að dæla úr skipinu þar sem rækjur stífluðu dælur. Ætlunin var að sigla til ísafjarðar en við mynni Önundarfjarðar var kominn það mikil slagsíða á skipið að ákveðið var að halda til Flateyrar. Mun bráðabirgðaviðgerð fara þar fram og skipið síðan halda til Noregs. ÞAÐ SKALVANDA SEM LENGISKAL STANDA Korrugal ál var valið sem þakefni á nýja rað- og einbýlishúsahverf- ið við Granda i Vesturbænum i Reykjavik. Hverfið stendur fyrir opnum Faxaflóanum, þar sem vindálag er mikið og úrkoma oft lárétt eins og víðar hér á landi. Hér þurfti þvi traust þak. Strangar kröfur voru einnig gerðar til nýtískulegs og samræmds útlits húsanna. Valið var Korrugal ál. Korrugal er vandað efni og úthugsað kerfi: Plötur, listar, smeygar, vatnsbretti, hom. Snjallar og traustar festingar. Allt fyrirliggjandi. Uppsetning er auðveld og greinargóðar upplýsingar fyrir hendi. Korrugal er með innbrenndri, varanlegrí lakkáferð sem flagnar aldrei. Það er því sama hvort þú hugsar um uppsetningu, útlit eða endingu. Lausnin er sú sama: Korrugal álklæðning. TÖGGURHR BYGGINGAVÖRUPEILD Bfldshöfða 16 Sími 81530

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.