Morgunblaðið - 17.03.1982, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 17.03.1982, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1982 Kristín Teitsdóttir Ijósmóöir Fædd 7. nóvember 1891 Dáin 31. janúar 1982 Sesselja Kristín Teitsdóttir var fædd og uppalin í Illíð í Hörðudal í Dölum vestur. Foreldrar hennar voru þau Teitur Bergsson og Ingi- björg Þorleifsdóttir er þar bjujígu ok önduðust í hárri elli. Börn þeirra hjóna voru: Halldóra, Sess- elja Kristín, sem lézt barnung, Þorleifur, Sesselja Kristín, Guð- björjí 0« Laufey. Börn Teits af fyrra hjónabandi með IngibjörKu Guðmundsdóttur sem féll frá inn- an við fertugt, voru þeir Bergur og Sturlaugur. Þau eru nú öll látin. Er Kristín komst á legg, var hún í vistum svo sem títt var á þeim tíma og dvaldist hún á myndarheimilum, m.a. að Svigna- skarði í Borgarfirði. Kristín lauk ljósmóðurnámi vorið 1918 og sett- ist að á Skarði á Skarðströnd. Sinnti hún upp frá því ljósmóður- störfum í Skarðstrandar- og Klofningshreppi og síðar einnig Fellsstrandarhreppi, ásamt til- heyrandi eyjum á Breiðafirði, sem þá voru allmargar í byggð. Ljósmóðurstarfið við þær að- stæður, sem Kristín bjó við, var ákaflega krefjandi og óvægið og reyndi ailoft á hugrekki hennar og fylgdarmanna, þegar óskað var aðstoðar vegna barnsburðar. Sér- staklega gátu ferðir hennar út í Breiðafjarðareyjar á öllum árstíð- um og í hvers kyns veðráttu verið varhugaverðar. Reyndust sumar ferðirnar hinar mestu svaðilfarir. Kom þá til góða kunnátta breið- firzkra sjómanna sem ger.gið hef- ur í árf k.vnslóð fram af kynslóð, á sjávarföllum og staðsf ningum - Minning skerja á Breiðafirði, mikilli sjó- mennsku og ekki sízt bjartsýni á farsæl ferðalok. I sameiningu tókst þessum samstilltu einstakl- ingum að yfirvinna alla erfiðleika og Ijósmóðirin vann verk sitt af kostgæfni. Kristín var afar farsæl ljósmóð- ir og ávann sér virðingu og viður- kenningu fyrir störf sín. Sængur- konur báru óbilandi traust til Kristínar, en hún var trúhneigð og sagði oft: „Ég treysti guði og kon- urnar treystu mér.“ Kristín lét af störfum eftir tæplega hálfrar ald- ar Ijósmóðurstörf árið 1967, þá 76 ára að aldri. Kristín var gerð að heiðursfélaga í Ljósmæðrafélagi Islands og á nýjársdag 1982 var hún svo sæmd riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir ljósmóðurstörf sín og var hún vel að þeim heiðri komin. Kristín giftist 17. maí 1930 eft- irlifandi manni sínum, Jóhannesi Sigurðssyni, en foreldrar hans voru þau Sigurður Óli Sigurðsson úr Svefneyjum og Helga Þórðar- dóttir, ljósmóðir, Kletti í Gufu- dalssveit, sem bjuggu að Tröð í Álftafirði við Djúp, síðar í Flatey og loks í Reykjavík. Þau hjónin voru fyrsta árið í húsmennsku að Krossi í Skarð- strandarhreppi, en 1931 festu þau kaup á Hnúki í Klofningshreppi og bjuggu þar síðan rausnarbúi. Jóhannes hefur ætíð notið mikils trausts sveitunga sinna og gegnt mörgum trúnaðarstörfum. Hrepp- stjóri hefur hann verið á fjórða áratug, símstöðvarstjóri var hann þar til sl. haust og einnig hefur hann séð um rekstur frystihússins + HELGI FILIPPUSSON stórkaupmaöur, Goðheimum 21, andaöist 16. mars i Hamborg. Sigríður Einarsdóttir og dætur. Eiginmaöur minn. + ÞORLAKUR HELGASON lést 15. þ.m. verkfræðingur. Elisabet Björgvinsdóttir. t Eiginmaður minn, SIGFÚS HALLDÓRSSON, Hraunbæ 82, lést í Landakotsspítala, þann 15. mars. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Sígurborg Helgadóttir. + Sonur minn og bróðir okkar, ELÍAS SÍMON JÓNSSON, Hringbraut 85, Keflavík, lést i Landspítalanum 14. þ.m. Kristín Þórðardóttir og systkini hins látna. + Móðir okkar og tengdamóðir, UNNUR BJARNADÓTTIR íþróttakennari, verður jarðsungin frá Bústaöakirkju, fimmtudaginn 18. mars nk. kl. 15 00. Blóm og kransar afþakkaóir, en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Rauða kross íslands. Fyrír hönd aðstandenda. Jóna Eifa Jónsdóttir, Grétar Tryggvason, Brynjólfur Jónsson, Sigríður Guðmundsdóttir. í Hnúksnesi. Sökum heilsuleysis heyddust þau hjónin til að hægja róðurinn og draga saman seglin og voru þau búlaus síðustu árin. Eigi varð þeim barna auðið, en ólu upp tvær fósturdætur. Elsu Kjartansdóttur úr Fremri-Lang- ey, sem síðar giftist Gunnari Valdimarssyni, sem er bróðurson- ur Jóhannesar. Þau reistu nýbýlið Hnúk II og eignuðust þrjú mann- vænleg börn. Þau skildu. I dag er Elsa í sambúð með Ellerti Pét- urssyni, bifreiðastjóra, og býr í Reykjavík. Hin fósturdóttirin er Erla Þórisdóttir, sem gift er Þorsteini Guðmundssyni, stræt- isvagnastjóra í Reykjavík, og eiga þau fimm efnisbörn Á Hnúksheimilinu hefur verið mjög annasamt og gestkvæmt, vegna stórs vinahóps og embættis- verka Jóhannesar og kom þá vel í ljós hve hæf húsfreyja Kristín var og gestrisin. Hafði hún ráð undir rifi hverju, hvernig haga bæri gestamóttöku og gistingu þeirra og hugsa margir með hlýju til þeirra tíma. Fjöldi barna fékk að vera í sveit að Hnúki. Mörg þeirra dvöldu þar sumar eftir sumar og héldu vin- áttu við þau hjón æ síðan. Einn er sá staður, sem verður manni ósjálfrátt minnisstæður, á Hnúki, en það er eldhúsið, með bekknum góða og olíueldavélinni másandi undir kraumandi pottum, og Kristín á Hnúki að gömlum og góðum sið að inna matargesti eftir því, hvort ómögulega mætti bjóða þeim meira. Sl. tvö ár átti Kristín við van- heilsu að stríða og dvaldi af þeim orsökum löngum á Akranesspít- ala, milli þess að hún skrapp heim til sín á Hnúk eða dvaldi í skjóli nöfnu sinnar, Kristínar Gunnars- dóttur ljósmóður, sem vann þá við fæðingardeild Akranesspítala og var boðin og búin að aðstoða ömmu sína. I október sl. kom Kristín svo til Reykjavíkur og dvaldi eftir það hjá þeim Erlu og Þorsteini í Nökkvavogi. Þann 7. nóvember varð hún níræð. Svo hress var hún þá, að hún hélt vinum sínum dýr- lega veizlu. Kristín var framúrskarandi minnug og rökföst og hafði góða frásagnar- og kímnigáfu. Hún var sannur vinur vina sinna og báru þeir mikla virðingu fyrir henni. Mér er það mjög kært að hafa fengið að kynnast Kristínu á Hnúki og notið gestrisni og höfð- ingskapar hennar og Jóhannesar. Fjölskylda mín vottar Jóhannesi á Hnúki innilegrar hluttekningar við fráfall göfugrar eiginkonu. Við munum ætíð minnast með trega þeirra góðu stunda er við áttum með þeim hjónum. Kristín Teitsdóttir á Hnúki var jarðsett á Skarði á Skarðströnd 9. febrúar sl. en minningarathöfn um hana fór fram í Fossvogskap- ellu í Reykjavík 5. febrúar sl. að viðstöddu fjölmenni. Bjarni Stefánsson Minning: Jóhanna Emilía Björnsdóttir Fædd 29. október 1902 Dáin 23. janúar 1982 Hún elsku amma mín er nú dáin. Þegar ég kom til að heimsækja hana þann 23. janúar sl. á Land- spítalann þar sem hún hafði legið síðustu mánuði ársins og háð harða baráttu við erfiðan sjúk- dóm, hélt ég að ég myndi fá að sjá hana á lífi, en svo var ekki. Hún hafði slökkt á síðasta lífsneistan- um og kvatt þennan heim nokkr- um mínútum áður. Amma, eða Jóhanna Emilía Björnsdóttir, var frá Fáskrúðs- firði. Hún var yngst átta systkina, en aðeins eitt þeirra er á lífi í dag og er það Halldóra Björnsdóttir og dvelur hún á Hrafnistu í Reykja- vík. Foreldrar ömmu voru Björn Einarsson frá Kappeyri við Fá- skrúðsfjörð og Sigurlaug Stefáns- dóttir frá Norðfirði. í þá daga mun hafa verið erfið lífsbaráttan með svo stóran barnahóp og ekki mikið til hnífs og skeiðar og fluttist amma tii Vestmannaeyja á tuttugasta ald- ursári og fór í vist eins og títt var í þá daga. Ári seinna fluttist hún til Reykjavíkur og vann fyrir sér í nokkur ár sem kaupakona og við afgreiðslustörf. Árið 1929 kynntist hún svo afa, Sigurði Guðmunds- syni sjómanni, síðar múrara, og felldu þau hugi saman og giftust og eignuðust fjögur börn, Sigur- laugu Gerðu, fædda 28.11. ’31, sem sautján ára gömul fluttist til Bandaríkjanna og er nú búsett og gift í Kaliforníu og á hún þar 6 börn, sem nú eru öll uppkomin, með manni sínum Robert Thorn. Amma sá Sigurlaugu Gerðu að- eins einu sinni eftir það, eða 30 árum síðar, og urðu þá miklir fagnaðarfundir eins og gefur að skilja eftir svona langan aðskilnað þeirra mæðgna. Einkasonur ömmu er Sigurður Erling, bíla- smíðameistari, fæddur 17. 11. ’34. Hann giftist Elísabetu Ragnars- dóttur, húsmóður og sjúkraliða, og eiga þau sex börn. Sigfríður Birna, verzlunarm., fædd 14. 11. ’41 var þriðja barnið. Hún á 5 börn með manni sínum, Sigurbirni Davíðs- syni, bílstjóra. Jóhanna Guðríður, húsmóðir, er yngsta barn ömmu. Hún er gift Ágli Ólafssyni línu- manni og á fjögur börn. Árið 1947 fluttu amma og afi að Skúlagötu 78 í Reykjavík og bjó amma þar til ársins 1967, en þá flutti hún til barna sinna og bjó hjá þeim til skiptis þar sem afa missti hún árið 1964 og þótti erfitt að búa ein eftir það. Síðustu árin sem amma lifði bjó hún á elliheimilinu Grund. En þaðan fór hún á Landspítalann í ágúst á sl. ári þegar heilsa og kraftar hennar fóru að þverra. Vissum við öll að hverju stefndi og amma vissi það líka. Hún þráði hvíldina og vildi komast til afa. Amma var afar skörp og skyggn á ýmsa hluti og hún vissi að afi beið hennar handan þessa heims. Ótal margt kemur upp í hugann þegar ég minnist ömmu. Hún var starfssöm og afar snyrtileg og hreinlát kona alla tíð. Hún var vön að taka strax eftir því ef við krakkarnir vorum ekki hrein und- ir nöglum eða um eyrun og urðum við alltaf að þvo okkur rækilega áður en við fengum að heyra sögu, en amma kunni þá list að ferðast í huganum og var afar minnug á ýmsar sögur úr fortíðinni. Margt sagði amma mér frá gamla tíman- um þegar hún bjó á Fáskrúðsfirði og urðu sögurnar eins og lifandi fyrir hugskotssjónum, því amma sagði vel og skemmtilega frá. Já, það var alltaf svo gaman að koma til ömmu og sakna ég hennar svo sáran. Þrátt fyrir erfiðleika og mótlæti í lífinu þá var amma alltaf í góðu skapi. Hún var mjög trúuð kona og vitnaði oft í hina helgu bók. Henni var mikill styrkur að öllum sinum ástvinum, sérstaklega síð- ustu árin sem hún lifði og votta ég þeim mína dýpstu samúð. Við er- um mörg sem söknum hennar djúpt, því amma var ætíð tilbúin til að rétta fram hjálparhönd til barna sinna og barnbarnanna sem nú eru orðin 21 að tölu. Barna- barnabörn eru 9. Ævi ömmu er nú á enda og eftir geymast minningar í hugum okkar allra um aldur og ævi. Amma er farin á vit þess óþekkta, þar sem við öll eigum eftir að hitt- ast. Kveð ég ömmu með trega, og megi Guð blessa hana að eilífu. „Sælir eru hjartahreinir því þeir munu guð sjá.“ (Mattheus.) Margrét Rós Erlingsdóttir Taprekstur í fyrsta skipti á sex árum hjá Caledonian l/ondon, 15. marz. Al*. ST/ERSTA flugfélag Bretlands í einkaeign, British ('aledonian, til- kynnti í dag, að 7,9 milljóna sterl- ingspunda halli hefði orðið á rekstri félagsins á síðastliðnu ári. Kr það í fyrsta skipti í sex ár, að halli verður á rekstri félagsins. Adam Thompson forstjóri Cale- donian sagði tajireksturinn ekki mundu valda félaginu neinum erf- iðleikum, og spáði hann rekstrar- afgangi á þessu ári. British Cale- donian var rekið með 3,1 milljónar punda ágóða 1980. Thompson sagði helztu ástæður fyrir taprekstrinum vera far- gjaldastríðið á Atlantshafinu, auk- inn rekstrarkostnað flugvéla- flotans og samdrátt í farþegaflutn- ingum, sem rekja mætti til ai- menns efnalegs samdráttar í heim- inum. FjárhagsStaða Caledonian er eft- ir sem áður það styrk, að taprekst- urinn mun ekki hafa nein áhrif á flugvélakaup félagsins, og hefur það þegar hlotið bankatryggingar að upphæð 92 milljónir punda vegna kaupa á þremur flugvélum af gerðinni Airbus, sem verða af- hentar 1984. I ágústmánuði í fyrra féllst þriðjungur starfsmanna félagsins á að afsala sér átta prósent kaup- hækkun til þess að ekki þyrfti að koma til fækkunar starfsmanna. Thompson fékk hins vegar 20% kauphækkuq og hefur eftir hækk- unina 53 þúsund punda árstekjur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.