Morgunblaðið - 17.03.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1982
15
Eiginkona Harrison Williams hughreystir mann sinn eftir að hann sagði af sér og áður en hann gekk til fundar
við fjölmiðlamenn.
Þungu fargi var lyft
af þinginu þegar
Williams sagði af sér
Krá Önnu Hjarnadóttur. TréUaritara Mbl. í Wa.shington.
I*að var grafarþögn í þingsalnum á fimmtudag þegar Harrison Willi-
ams, öldungadeildarþingmaður demókrata frá New Jersey, sagði af sér
þingstörfum. Hann kaus að segja af sér í stað þess að neyða þingheim til
að greiða atkvæði um hvort ætti að reka hann úr þinginu. Kftir sex daga
umræður um mál Williams var augljóst að meira en tveir þriðju hlutar
þingsins vildu að hann yrði rekinn. Knginn hefur verið rekinn úr öldunga-
deildinni síðan í þrælastríðinu. Williams er þriðji öldungadeildarþing-
maðurinn í sögu handaríska þingsins sem er fundinn sekur um lögbrot.
Hann var kærður fyrir mútur og samsæri eftir Abscam og dæmdur í
þriggja ára fangelsi og til að borga 50.000 dollara sekt í október. Hann
hefur áfrýjað dómnum, en meirihluti þingmanna telur að hann hafi sett
blett á heiður öldungadeildarinnar og eigi því ekki heima þar lengur. I*eir
telja hins vegar að dómsmálaráðuneytið og alríkislögreglan, FBI, eigi
ekki að komast upp með starfsemi eins og Absram. Mál Williams mun
leiða til rannsóknar þingsins á starfsemi ráðunevtisins, en þó sérstaklega
FB1.
Abscam var tilraun FBI til að
grípa þingmenn glóðvolga við
lögbrot og það reyndist tilraun
sem tókst. Grunlausir þingmenn,
7 úr fulltrúadeildinni og 1 úr öld-
ungadeildinni, voru kynntir fyrir
starfsmanni FBI sem var dulbú-
inn sem arabískur prins og þeim
boðið upp á brennivín og him-
inháar fjárfúlgur. I staðinn lof-
uðu þeir að reynast prinsinum
innanhandar í þinginu. Fundir
þingmannanna með prinsinum
voru festir á filmu og sýndir al-
þjóð í sjónvarpi. Þeir sáust
drekka sig útúrfulla, troða þykk-
um seðlabúntum í vasa sína, lofa
öllu fögru og monta sig af mik-
ilvægi sínu og góðum sambönd-
um í Washington. Flestir þeirra
voru síðar ákærðir fyrir lögbrot
og filmurnar notaðar gegn þeim
í réttarsalnum. Þeir voru fundn-
ir sekir og enginn þeirra situr
lengur í þinginu.
Williams tók aldrei við pen-
ingum og þáði ekki vín, en hann
þáði hlutabréf í títan-námu, sem
vinur hans ætlaði að opna og
hefja framkvæmdir í með aðstoð
100 milljóna dollara sem prins-
inn lofaði að lána þeim félögum.
Hlutabréfin áttu að vera í nafni
vinarins, svo að enginn vissi að
Williams hefði ágóða af nám-
unni. Hann talaði sig upp í æs-
ing um hvernig hann gæti notað
góð sambönd sín í þinginu eftir
23ja ára starf þar til að selja
ríkisstjórninni títan og lét eins
og varaforsetinn og ráðherrar
sem hann sagðist þekkja vel,
hefðu mikil áhrif á ákvarðanir
stjórnarinnar í sambandi við
kaup á títani.
Siðferðisnefnd öldungadeild-
arinnar samþykkti einróma í ág-
úst eftir ítarlega rannsókn að
Williams væri sekur um að hafa
misnotað embætti sitt og vanvirt
öldungadeildina og lagði til að
hann yrði rekinn. Williams stað-
hæfði við réttarhöld, rannsókn
nefndarinnar og umræðurnar í
þinginu að hann væri saklaus.
Hann hefði hagað sér heimsku-
lega, en ekki framið neinn glæp.
Hann sagðist hafa vitað að
hlutabréfin myndu reynast ein-
skis virði því vinur hans hefði
áður haft stórbrotnar hugmynd-
ir um gróðavænlegar fram-
kvæmdir, en þær hefðu ávallt
reynst lítilsnýtar skýjaborgir.
Hann afþakkaði beina pen-
ingagjöf, en lofaði prinsinum þó
að hjálpa honum um dvalarleyfi
í landinu fyrir ættingja hans.
Williams sagðist aldrei hafa gert
neitt í því sambandi. Skömmu
eftir síðasta fund Williams með
prinsinum var Abscam á forsíð-
um blaðanna.
Það dróst á langinn að tillaga
siðferðisnefndarinnar yrði tekin
fyrir í þinginu. Þingmönnum
fannst sárt að þurfa að ræða mál
Williams og flestir hefðu viljað
að hann hefði sagt af sér fyrir
löngu, en hann var sannfærður
um sakleysi sitt og vildi ekki láta
„viðurstyggilega starfsemi FBI“
verða til þess að hrekja sig úr
embætti' fyrr en í fulla hnefana.
Howard Beka Baker, leiðtogi
meirihlutans, ákvað loks að taka
málið fyrir. Hann bannaði
nefndarfundi á meðan umræð-
urnar stóðu og fór fram á við
þingmenn að þeir væru viðstadd-
ir og fylgdust með umræðunum.
Það er ekki oft sem allir 100 öld-
ungadeildarþingmennirnir eru
saman komnir, en þeir voru það
við upphaf umræðnanna og í lok
þeirra. Howell Heflin, demókrati
frá Alabama, flutti málið gegn
Williams og sagði: „Þingmaður
sem veit muninn á réttu og
röngu hefði ekki hikað við að
standa upp og fara — yfirgefa
ógeðslega náunga sem blótuðu
eins og sjóara og ganga burt frá
umræðum um prinsa, viðskipti,
falinn ágóða, fals og plat.
Gerdi það ekki
En hann gerði það ekki. Hann
var um kyrrt, hann ræddi málin,
hann samþykkti, sór og lofaði: að
misnota embætti sitt og kjós-
enda sinna og fyrir það verður
að reka hann.“
Daniel Inouye, demókrati frá
Hawaii, talaði máli Williams.
Hann gagnrýndi FBI og Abscam
og sagði að þingið gæti ekki þol-
að þannig starfshætti. „Enginn
okkar er öruggur. Þetta hefði
getað hent okkur alla.“ Hann
sagði að Williams hefði ekki
brotið lögin heldur hagað sér
eins og „asni“.
„Mér finnst að öldungadeild-
arþingmaður eigi ekki að vera
rekinn fyrir að vera asni eða
haga sér eins og asni,“ sagði In-
ouye. „Kannski að alvarlegasti
glæpurinn sem hann framdi sé
sá að hann var okkur til skamm-
ar.“
Williams útskýrði sína hlið á
málinu og þingmenn tóku til
máls. Á miðvikudag varð ljóst að
tillagan yrði samþykkt ef hún
kæmi til atkvæða. Þá varð einn-
ig ljóst að þingmenn eru bál-
öskureiðir út í dómsmálaráðu-
neytið og FBI. Patrick Leahy,
demókrati frá Vermont líkti
starfsmanni FBI og Abscam-
starfseminni við „slímugan, við-
urstyggilegan orm“ og sagði
„öngul sem var dinglað til að
veiða í net“. Þingmenn sögðu að
mál Williams sýndi að FBI gæti
náð hverjum sem er og það yrði
að vernda þjóðina gegn svona
starfsemi.
Williams sagði þegar hann
sagði af sér að takmarki baráttu
sinnar í þinginu væri náð fyrst
rannsókn færi nú fram á athæfi
FBI. Hann sagði að barátta sín
fyrir dómstólunum myndi halda
áfram og á endanum yrði hann
sýknaður. Þingmenn gengu til
hans og tóku í hönd hans eftir að
hann lauk máli sínu. George
Bush varaforseti, sem er forseti
deildarinnar, fór upp á pallana
og faðmaði konu Williams að sér
og óskaði henni allra heilla. Á
eftir sagði Williams að sér þætti
leitt að hafa neitt þingmenn til
að fjalla um þetta leiðindamál,
en hann baðst ekki afsökunar.
Hann vitnaði í Inouye og sagði:
„Það er mannlegt að vera asni.
Biðst maður afsökunar á því?“
Fæst í apótekum, helstu snyrtivöruverslunum og
flestum stórmörkuöum.
Heildsölubirgðir: Friörik Björnsson,
Pósthólf 9133—129 Rvík. Sími 77311.
Placido
Domingo
Óperusöngvarinn
Placido Domingo og popparinn
John Denver leiöa saman hesta sína á plötunni Per-
haps Love. Samstarf þessara
ólíku tónlistarmanna hefur
skilaö einstökum árangri, því
Perhaps Love er ein mest
selda platan í Bandaríkjunum,
Bretlandi og á islandi í dag.
Viö vorum aö taka upp enn
eina sendinguna af þessari
s frábæru plötu.
Líttu viö í dag.
^KARNABÆR
iUinorhf
Smmr »57« o« 15055.
EFÞAÐ ERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU