Morgunblaðið - 17.03.1982, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.03.1982, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1982 Utgefandi Framkvaemdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, simi 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 110 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 7 kr. eintakiö. Upphlaup í ríkisstjórninni Enginn veit enn hvaða endi upphlaupið innan ríkisstjórnarinnar fær. Það hófst sem deila um framkvæmdir í þágu varnarliðsins, er nú farið að beinast að Blönduvirkjun og því kann að lykta í átökum stjórn- arliða um kjaramál. Hér á þessum vettvangi hefur þegar verið gerð grein fyrir síðustu atburðum í þróun Helguvíkurmálsins í ríkisstjórn- inni. Ráðherrar saka hver annan um valdníðslu og annan yfirgang, þingflokkar framsóknarmanna og alþýðubandalagsmanna eru á önd- verðum meiði. Framsóknarmenn standa einhuga að baki utanríkis- ráðherra, kommúnistum hefur mistekist að reka fleyg í þingflokk sam- starfsmanna sinna í rikisstjórninni. Annað er uppi á teningnum, þegar litið er til ákvarðana um Blöndu- virkjun. Um það mál er ekki samstaða í þingflokki framsóknarmanna. Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, og Páll Pét- ursson, þingflokksformaður, eru á öndverðum meiði í afstöðunni til Blönduvirkjunar. Steingrímur er í ráðherranefnd, sem samþykkti, að skrifað skyldi undir samning við 5 hreppa af 6 um Blönduvirkjun. I tilefni af þeirri undirskrift sagði Páll Pétursson, þingflokksformaður: „Þetta er eftir öðru. Hjörleifur (iðnaðarráðherra innsk.) ræður sér nefnilega ekki sjálfur. Hann er látinn gera þetta. Pálmi Jónsson er eiginlega orðinn allt annað en landbúnaðarráðherra .. .Hins vegar væri kannski rétt að Hjörleifur tæki við landbúnaðarmálunum, vegna þess að við höfum ekki efni á því að vcra landbúnaðarráðherralausir mörg ár í röð.“ Þessar kveðjur fá tveir ráðherrar, sem ásamt Steingrími Hermanns- syni samþykktu samningana um Blöndu, frá formanni fjölmennasta þingflokksins að baki ríkisstjórninni. I Blöndumálinu er því ekki um skýr átök milli kommúnista og framsóknarmanna að ræða, heldur splundrast stjórnarliðið í smærri einingar. Ef til vill hefur það einmitt ráðið mestu í skyndilegri kröfu iðnaðarráðherra um að ganga frá þessu máli, að með henni sá hann sér fært að koma höggi á Framsóknarflokk- inn. Er svo sannarlega undarlegt að sjálfur formaður Framsóknar- flokksins skuli stuðla að þessum óvinafagnaði í eigin flokki. í Þjóðviljanum í gær kveður svo við nýjan tón í afstöðu Alþýðubanda- lagsins til kjaramála. Nú er það ekki talið duga fyrir „alþýðuna" í landinu, að hin nýja stétt Alþýðubandalagsins sitji við kjötkatla kerfis- ins og vermi ráðherrastóla. Þvert á móti lætur Þjóðviljinn í það skína að grípa verði til verkfallsvopnsins. Hafa slíkar hótanir ekki sést í stjórn- málaskrifum blaðsins síðan í tíð ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar á árunum 1974 til 1978. Viðræður fulltrúa ASÍ og vinnuveitenda hófust á mánudag og af því tilefni segir Þjóðviljinn: „Deiluna á að vera hægt að leysa án meiriháttar illinda. Hafi hins vegar ekki tekist samningar fyrir 15. maí í vor má búast við alvarlegum verkfallsaðgerðum með ófyrirsjá- anlegum afleiðingum." Hótun Þjóðviljans um beitingu verkfallsvopnsins á alls ekki rætur að rekja til umhyggju þess eða hinnar nýju stéttar Alþýðubandalagsins fyrir hag launþega, þátttaka flokksins í ríkisstjórn síðan haustið 1978 er ótvíræðasta staðfestingin á því. Nei, Þjóðviljinn mundar nú verkfalls- vopnið til að hóta framsóknarmönnum. Er ekki að efa, að forvígismenn verkalýðsins, sem ganga flokkspólitískra erinda Alþýðubandalagsins í kjaraviðræðum, muni taka undir þessar hótanir Þjóðviljans. Kommún- istar vita, að í þessu máli hafa þeir undirtökin í ríkisstjórninni og hyggja nú gott til glóðarinnar bæði í ráðherranefndum, efnahagsnefnd- um, viðræðunefndum og öðrum nefndum, sem settar eru á fót til að salta sjónarmið framsóknarmanna og veita kröfum kommúnista brautar- gengi. íþróttafram- kvæmdir í ólestri Sveinn Björnsson, forseti íþróttasambands íslands og varaborgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, kvaddi sér hljóðs í borgar- stjórninni fyrir tæpum hálfum mánuði og flutti greinargóða yfirlits- ræðu um „framkvæmdir" vinstri manna í íþróttamálum Reykvíkinga á þessu kjörtímabili. Orðið framkvæmdir er sett í gæsalappir hér að framan, af því að vinstri menn hafa stöðvað allar íþróttaframkvæmdir í höfuðborginni. Aðeins ein nýframkvæmd hefur verið hafin, smíði laug- arhúss við sundlaugina í Laugardal. Að vísu lágu teikningar að þessu húsi fyrir, þegar vinstri menn tóku við stjórn borgarinnar 1978, en það er ekki fyrr en á árinu 1981, sem veitt er fé til að hefja smíði þess. í ræðu sinni sagði Sveinn Björnsson, að með því að ráðast í smíði laugarhússins væru vinstri menn fyrst og fremst að reyna að klóra í bakkann vegna þess framkvæmdaleysis, sem einkennt hefði þróun íþróttamála síðustu þrjú ár. Sveinn taldi hins vegar víst, að núverandi meirihluti borgar- stjórnar kæmist ekki upp úr jörðunni í íþróttaframkvæmdum á kjör- tímabilinu. Vinstri menn hafa ekki svarað þessari hörðu gagnrýni Sveins Björns- sonar. Kemur það ekki á óvart, því að þeir geta ekki koinið sér saman um gagnrökin. Hvaða köttur á að fá þessa bjöllu? Á meðan vinstri menn velta því fyrir sér, ættu þeir einnig að semja svör við aðfinnslum Sveins Björnssonar vegna „óheyrilegra" fjárhæða, sem varið hefur verið til viðgerða á Sundhöllinni og sundlaugunum í Laugardal. „Höfum byggt þennan akstur upp með miklum auglýsingakostnaðia - segir Óskar Sigurjónsson á Hvolsvelli „ÞVÍ ER fyrst til að svara, að sumir þessara manna á Austfjörðum, sem lagt hafa niður akstur í fjórðungnum, eru ekki raunverulegir sérleyfis- hafar, en ég læt það þó liggja milli hluta. Þegar hringvegurinn var opnaður sumarið 1974 hafði ég ekið lengi til Kirkjubæjarklausturs, en við opnun vegarins hófum við akstur austur á Höfn. Um svipað leyti hætti Haukur Sigfússon, sérleyfishafi á Reyðarfirði, akstri milli Egilsstaða og Hafnar í Hornafirði, en nú vill Haukur fá sérleyfið á þessari leið á ný. Þegar ég hóf akstur á leiðinni Höfn-Egilsstaðir var þessi sérleið talin svo rýr að ekki væri komandi nálægt þessu,“ sagði Óskar Sigurjónsson, einn eigenda Austurleiðar á Hvolsvelli og sérleyfishafi á leiðinni Egilsstaðir Höfn, þegar Morgunblaðið ræddi við hann. „Til viðbótar við þetta má benda á að Jón Egilsson hóf akst- ur frá Akureyri til Egilsstaða ár- ið 1967, en þá var leiðin talin svo rýr, að Austfirðingar gáfust upp á að aka. Fyrstu árin, sem við héldum uppi ferðum á milli Hafnar í Hornafirði og Egilsstaða, gekk reksturinn mjög illa, enda mjög lítið að flytja. Hins vegar fannst okkur útilokað, þegar fólk komst loksins með áætlunarbílum aust- ur yfir Skeiðarársand, að það kæmist ekki hinn svokallaða hringveg með áætlunarbílum. Dæmið hefur hins vegar snúist við tvö síðustu árin og nú fyrst má segja að hægt sé að koma ná- lægt þessu, en við höfum sífellt fjölgað ferðum á þessari leið. Áustfirðingar tala mikið um Smyril og að vísu fáum við nokkra farþega þaðan, en þeir eru ekki margir sökum þess, að flestir þeirra, sem koma með Smyrli, koma með eigin bíla. Okkur hefur tekist að fjölga far- þegum mikið síðustu tvö árin með miklum auglýsingakostnaði, en mest er um farþega sem eru með svokallaða hring- og tímamiða sérleyfishafa," sagði Oskar. „Austfirðingarnir ræða mikið um að fá þennan akstur inn í fjórðunginn, og er það fögur hug- sjón, en það er aldrei nefnt að einn eigenda fyrirtækisins Aust- urleiðar, fyrirtækisins sem ann- ast aksturinn milli Hafnar og Eg- ilsstaða, flutti á Höfn þegar þessi akstur okkar hófst. Stundar hann sjómennsku yfir veturinn, en bif- reiðaakstur þann tíma sem ekið er á milli Egilsstaða og Hafnar og því get ég sagt að við séum með okkar starfsemi í Austfirð- ingafjórðungi." Þá sagði Óskar að ferðir í sam- bandi við flug til Egilsstaða og sérleyfisferðir yfir sumartímann væru óskyld mál. „Það er ekki hægt að menn geti gengið til ráð- herra og krafist sérleyfa á þeirri forsendu að þeim gangi ekki nógu vel á sinni leið. Menn geta ekki sagt ef ég fæ ekki þetta eða hitt, þá er ég hættur. Þar sem ég þekki til er barist um allan akstur, hvort sem það er skólaakstur, póstakstur eða eitthvað annað, og ég er ekki búinn að sjá hvort það eru ekki til einhverjir aðilar á Austfjörðum sem vilja halda samgöngunum vegna flugsins áfram, áður en við hjá Austurleið förum að hugsa um hvort við eig- um að taka að okkur þessa þjón- ustu,“ sagði Óskar Sérleyfishafar á Austurlandi hætta akstri: „Viljum fá sérleyfin milli Egilsstaða - Horna- fjarðar og Mývatnsa - segir Haukur Sigfússon á Reyðarfirði „VIÐ ERUM hættir akstri og munum ekki hefja akstur á ný, nema því aðeins að við fáum sérleyfin á leiðunum HornafjörðurEgilsstaðir og Mývatn-Egilsstaðir. Ástæðan fyrir því að við erum hættir akstri, er að við treystum okkur ekki lengur til að halda uppi samgöngum í fjórðungnum að vetrarlagi sökum taprekstrar, á sama tíma og aðilar utan fjórðungsins aka hér að sumarlagi og fleyta rjóraann ofan af,“ sagði Haukur Sigfússon sérleyfishafi á Reyðarfirði, þegar Morgunblaðið ræddi við hann. Þeir sérleyfishafar á Austurlandi, sem hafa lagt niður akstur, eru 5 talsins og eru þeir á svæðinu frá Djúpavogi til Seyðisfjarðar. Samgöngur á landi liggja nú alveg niðri á Austfjörðum og hafa nú þegar skapast mikil vandræði, sökum þess að farþeg- ar komast ekki á milli fjarðanna og Egilsstaða. Samgönguráð- herra hefur nú boðað sérleyfis- hafa á Austfjörðum og forstjóra Austurleiðar og Akureyringana, sem hafa sumarleyfin til Aust- fjarða, á sinn fund á föstu- dagsmorgun klukkan 10 árdegis. „Steingrímur Hermannsson samgönguráðherra heldur því fram, að við höfum haft áður sérleyfi, á þeim leiðum sem við viljum nú, og er það rétt. En málið er, að ég hafði til dæmis sérleyfið frá Höfn í Hornafirði til Egilsstaða og var þá skikkað- ur til að aka á þessari leið í fimm mánuði á ári og neyddist ég til að hætta sökum þess, að ekkert var að gera vissan hluta akst- urstímabilsins. Þegar ég hætti sótti Austurleið á Hvolsvelli um sérleyfið, en þeir töldu þetta ekki betra sérleyfi en það, að þeir óku ekki sjálfir. Heldur létu þeir sendibílstjóra úr Reykjavík aka á leiðinni í tvö ár og það aðeins tvo mánuði á ári. Um leiðina til Mývatns, er það að segja, að faðir minn ók á milli Austfjarða og Akureyrar í 40 ár. Þá var honum allt í einu bannað að aka farþegum á leiðinni Ak- ureyri-Mývatn, sem var í leið- inni, og því var sjálfgefist upp,“ sagði Haukur. Þá sagði hann, að stórtap væri á austfirsku sérleyfisleiðunum sem stæði. „Ef við fáum ekki sérleyfin, sem við höfum sótt um, þá finnst okkur sanngjarnt, að aðilarnir frá Hvolsvelli og Akureyri, og sem hafa þessi sérleyfi, fái þau og haldi uppi samgöngum í fjórðungnum yfir veturinn. Við erum tilbúnir að hætta. Ráðherra hefur sagt að hann skrifi ekki undir neitt fyrr en hann hafi haldið samningafund og er nú hálfur mánuður síðan hann sagðist boða til samninga- fundar. Ekki hefur hann talað aukatekið orð við okkur," sagði Haukur. Miklir erfiðleikar munu verða strax í dag við að koma vörum og farþegum milli fjarðanna og Eg- ilsstaða. Samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins ætla Flug- leiðir að reyna að koma vörum niður á firðina tvisvar í viku, en hins vegar verða farþegar að koma sér sjálfir á milli. „Leifur Karlsson formaður út- hlutunarnefndar sérleyfa hefur sagt í viðtali, að núverandi sér- leyfishafar, á leiðunum sem við viljum fá, séu með gífurlegar fjárfestingar, og einnig komi lagabókstafurinn í veg fyrir að við fáum leyfin. Við vísum þessu til föðurhúsanna, því bílarnir, sem þeir hafa notað eru 8—15 ára gamlir og erum við tilbúnir að kaupa þá. Þá kemur allt tal um að veita verði sérleyfin aðil- um, sem hafi haft þau áður, ein- kennilega fyrir sjónir, því hið nýja fyrirtæki Ólafur Ketilsson hf. hefur nú fengið úthlutað leyfi sem Sérleyfishafar Selfoss höfðu áður. Gott dæmi um hvernig að okkur er búið, er að þeir Seyð- firðingar sepi hafa haft leyfið á milli Seyðisfjarðar og Egils- staða, og rækt sínar skyldur af mikilli kostgæfni, hafa ekki fengið að hreyfa sína bíla, þá daga sem Smyrill hefur verið á Seyðisfirði. Ég fór einu sinni á Seyðisfjörð á mínum bíl og það endaði með því að umferðar- máladeild fékk sýslumann Norður-Múlasýslu í lið með sér og tilkynnti hann mér að ef ég kæmi aftur niður á Seyðisfjörð, þann dag sem Smyrill væri þar, yrði ég tekinn fastur og komu þessi fyrirmæli beint frá Einari Ógmundssyni forstöðumanni umferðarmáladeildar Pósts og síma," sagði Haukur Sigfússon að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.