Morgunblaðið - 17.03.1982, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.03.1982, Blaðsíða 32
Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 Síminn á afgreiðslunni er 83033 MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1982 Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins: Haföi ekki hugmynd um undirritun samninganna 500 á dag í Reykjavík hófst aðalskoðun bíla hinn 15. febrúar sl. og anna bifreiðaeftirlitsmenn kringum 500 bílum á dag. Guðni Karlsson, forstöðumað- ur Bifreiðaeftirlits ríkisins, tjáði Mbl. í gær að búið væri að skoða rétt um 11 þúsund bíla og væru heimtur nokkuð góðar. Steingrími var þad full- ljóst segir Hjörleifur „É(> HAFÐI ekki hut'mynd um að þad ætti að undirrita í i>a‘r. Þetta er hrein vitleysa, sem haft er eftir Iljörleifi í Dagblaðinu og Víni í dag, að ég hafi átt hugmyndina að þessu. Það var ekki minn.st einu orði á að undirritunin ætti að fara fram á mánudag," sagði Steingrímur Hermannsson ráðherra og formaður Fram- sóknarflokksins, er Mbl. spurði hann í gær, hvort honum hefði ekki verið Ijóst fyrir þingflokksfund Framsóknar á mánudag, að Blönduvirkjunarsamningarnir yrðu undirritaðir þann hinn sama dag. „Við Steingrímur fórum yfir þetta í þriggja manna ráðherranefndinni, sem fjallað hefur um málið, snemma á mánudagsmorg- un og þar var full eining um málsmeðferð, einnig á ríkisstjórnarfundi sem haldinn var vegna þessa litlu síðar, en þá gerðu Steingrímur og Tómas Arnason það að kröfu sinni að fyrirvari yrði hafður á við undirritunina vegna þingflokks þeirra. Ég ra-ddi síðast við Steingrím kl. 17 á mánudag og þá var honum fullljóst að undirritunin ætti að fara fram kl. 18,“ sagði Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráð- herra aftur á móti aðspurður um þetta sama mál. Steingrímur sagði það rétt vera, að hann og Tómas hefðu á áður- nefndum ríkisstjórnarfundi beðið um að umræddur fyrirvari yrði á hafður, en þá hefðu þeir ekki reiknað með að undirritunin væri svo skammt undan, enda ekki verið minnst á það af hálfu iðnaðarráð- herra. í tilefni af því að iðnaðar- ráðherra lét hafa það eftir sér í DV, að hugmyndin um þessa málsmeð- ferð væri frá Steingrimi komin sagði Steingrímur, að sér hefði verið tjáð að eftir að málið var komið í hnút eins og hann orðaði það hefði komið tillaga frá fjármálaráðherra um þessa meðferð mála. Steingrímur bætti því við, að sér fyndist ekkert athugavert við þessa málsmeðferð iðnaðarráðherra. „Okkur kemur þetta í raun ekkert við. Honum er heimilt að láta undirrita samninga á þennan hátt. Þetta er hans mála- flokkur og samningurinn undirritað- ur með fyrirvara um samþykki ríkis- stjórnarinnar.“ Málið verður tekið fyrir á þing- flokksfundi Framsóknarflokksins í dag að sögn Páls Péturssonar. Hann var spurður í gær hvort hann teldi sig hafa meirihluta í þingflokknum gegn Blönduvirkjunarsamningum. „Ég er svo sem ekkert að berja neitt á það, en af fenginni reynslu hef ég óbilandi trú á þingflokki Framsókn- arflokksins. Þar verður tekin afstaða til aðferða. Það þarf að breyta þess- um samningi og fá skynsamlegri samning, sem allir geta sætt sig við,“ svaraði Páll. Forsætisráðherra lýsir yfir trausti á utanríkisráðherra Þrfr þingflokkar styðja Ólaf Jóhannesson í Helguvíkurmálinu Alþýðubandalagið segir Ólaf stofna stjórnarsamstarfinu í hættu í FMK/KDr utan dagskrár á Al- þingi í gær lýsti Gunnar Thorodd- sen, forsætisrádherra, yfir stuðningi við Olaf Jóhannesson, utanríkis- ráðherra. Tilefni umræðnanna voru tilmæli þingflokks Alþýðuflokksins um hvort forsætisráðherra hefði eða myndi kveða upp úrskurð í deilumáli fagráðherra varðandi framkvæmdir í Helguvík. Gunnar Thoroddsen, for sætisráðherra, sagði í svari sínu, að ekki væri þörf úrskurðar í viðkom- andi máli. Þingmenn Sjálfstæðis- flokks, Alþýðuflokks og Framsókn- arfiokks hafa lýst yfir stuðningi við vinnubrögð Olafs Jóhannessonar í þessu máli. Kramkvæmdastjórn og utanríkismálanefnd Alþýðubanda- lagsins mótmæltu hins vegar í gær vinnubrögðum utanríkisráðherra og segir í ályktun Alþýðubandalagsins, að hann hafi „með orðum sínum og gerðum stofnað stjórnarsamstarfinu í hættu“. Geir Hallgrímsson, formaður utanríkismálanefndar, sagði það áiit fulltrúa bæði Alþýðu- og Framsóknarflokks í utanríkis- málanefnd, eftir að utanríkisráð- herra hafi gefið nefndinni skýrslu um framkvæmd þingsályktunar um flutning eldsneytisgeyma varnarliðsins, að framkvæmdir ráðherra í þessu máli hafi í einu og öllu verið innan starfssviðs ráðuneytis hans og í samræmi við einróma þingsályktun um málið. Þingflokkur Framsóknar hafi ályktað í sömu veru og því sé ljóst, Blönduvirkjunarsamningarnir: Nauðungarsamningar, sem menn hafa verið kúgaðir til að undirrita - segja forsvarsmenn Landverndarsamtaka vatnasvæda Blöndu og Héraðsvatna að þrír þingflokkar standi að baki utanríkisráðherra í þessu máli. Við umræðurnar voru ráðherrar Alþýðubandalagsins spurðir hvort þeir myndu slíta stjórnarsam- starfinu ef utanríkisráðherra léti ekki að vilja þeirra í þessu máli. Af ráðherrum Alþýðubandalags- ins tók aðeins Svavar Gestsson til máls og í stuttri ræðu svaraði hann ekki þessari spurningu og gat ekki samþykktar fram- kvæmdastjórnar Alþýðubanda- lagsins, sem um svipað leyti var dreift til blaðamanna. Þingmenn lögðu áherzlu á að farið yrði að einróma samþykkt Alþingis í þessu máli. A fundi ríkisstjórnarinnar í gær var fjallað um Helguvíkurmálið, en þar fékkst engin niðurstaða. Sjá „Þrír þingflokkar styðja utanríkisráðherra“ á bls. 18, „Hndirbúningur í samráði við heimamenn" á bls. 2 og „Skipu- lagið og Helguvík“ bls. 12. „VIÐ MÓTMÆLUM harðlega ummælum iðnðarráðherra um að víðtæk samstaða hafi náðst fyrir norðan vegna Blönduvirkjunarsamninga þeirra, sem undirritaðir hafa nú verið með fyrirvara ... Það er óverjandi að byggja þessa miðlun ... Þetta eru nauðungarsamningar, sem raenn hafa verið kúgaðir til að undirrita og algjör óhæfa af hendi stjórnvalda hvernig staðið hefur verið að málum ... Þetta yrði mesta landeyðing sem vitað er um af manna völdum hérlendis. Við munum gera allt til að fá þessum samningum breytt í land- og náttúruverndarskyni. Ef það tekst ekki verður áreiðanlega eftirmáli af okkar hendi.“ Þessar yfirlýsingar eru smásýn- ishorn af mörgum, sem fulltrúar Landverndarsamtaka vatnasvæða Blöndu og Héraðsvatna og ólafur Dýrmundson, ráðunautur í land- nýtingu, létu frá sér fara á frétta- mannafundi sem þeir boðuðu til í gær, en þar kynntu þeir sjónarmið sín vegna nýundirritaðra Blöndu- virkjunarsamninga. Fulltrúar samtakanna sögðu í upphafi fundarins, að þeir væru komnir til Reykjavíkur gagngert til að ræða við iðnaðarráðherra. „Slagurinn stendur ekki um hvort virkja eigi Blöndu, heldur hvernig. Við teljum að það séu sárafáir á móti virkjuninni, en við höfum áreiðanlega meirihlutann með okkar málstað,“ sagði formaður samtakanna, Þórarinn Magnússon m.a. Fundarboðendur gerðu síðan grein fyrir afstöðu sinni og sögðu m.a. að hér væri boðið upp á, af ráðamönnum, virkjun samkvæmt tilhögun I með minni miðlun. Samningurinn hefði verið þannig skýrður að hér væri um að ræða 5 ára tímabil, sem miðlun yrði 220 Gl. Hefðu hreppsnefndarmenn í Lýtingsstaðahreppi til að mynda undirritað samninginn með því skilyrði að ekki verði hækkað í miðlunarlóninu, fyrr en reynsla væri komin á notagildi upp- græðslu. Þeir sögðust telja að sá reynslutími hlyti að vera nær 10 árum en 5, eins og talað hefði ver- ið um. í framhaldi af þessari stað- reynd væri það einföld krafa Landverndarsamtakanna, að miðlunin verði færð að Sandár- höfða eða virkjað eftir tilhögun II með sömu miðlun og nú væri boðið upp á til að byrja með, eða 220 Gl. Landverndarsamtakamenn sögu að með þessu móti áynnist eftir- farandi m.a.: Lónsstærð yrði um 27 ferkílómetrar og góðureyðing minnkaði um 50%. Kostnaður við þessa tilhögun yrði aðeins 3% hærri en við tilhögun I með sömu miðlun. Sá munur myndi jafnast að fullu vegna minni bóta- greiðslna og auk þess fengist 10% betri nýting á miðlunarorku vegna minna yfirborðs á lóninu. Skaðleg umhverfisáhrif minnkuðu einnig í hlutfalli við minna yfirborð. Fundarboðendur tóku skýrt fram, að tillögur þeirra yrðu ekki til að seinka framkvæmdum og orkuverð frá virkjuninni myndi fremur lækka en hækka við breyt- inguna. Sjá „Ákveðnir ráðamenn láti af þvermóðsku sinni og stífni“ í miðopnu blaðsins. Dollarinn yfir 10 kr. SÖLIIGKNGI Bandaríkjadollara fór í fyrsta skipti yfir 10 krónur, eða 1.000 gkrónur í gærdag, þegar sölugengi hans var skráð 10,009 krónur. Frá því, að gengissig sam- kvæmt ákvörðun stjórnvalda, hófst í byrjun marz sl., hefur sölu- gengi Bandaríkjadoilara hækkað um 1,83%, en 4. marz sl. var sölu- gengið skráð 9,829 krónur. Frá áramótum, eða gengis- skráningu 31. desember sl., hef- ur sölugengi Bandaríkjadollara hækkað um 22,228%, en það var skráð 8,185 krónur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.