Morgunblaðið - 17.03.1982, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 17.03.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1982 7 Innilegar þakkir sendum við börnum okkar, tengdabörnum, skyldfólki og vinum sem glöddu okkur með heimsóknum, gjöfum og góðum óskum á 70 og 75 ára afmælum okkar, 26. febrúar og 5. marz sl. Lifið heil. Guðmundur Jónsson, Jónína Sigurrós Gunnarsdóttir, Innra Hólmi. Útsala Allskonar karlmannafatnaöur. T.d. karlmannaföt nýkomin. Terelyne/ull kr. 898,- Terelyne/ull/Mo- hair kr 998,- úlpur. Terelyne-buxur, fiauelsbuxur, gallabuxur, skyrtur, frakkar, peysur, sokkar o.fl. Andrés, Skólavörðustíg 22. R O Y A L SKYNDIBÚÐINGARNIR ÁVALLT FREMSTIR ENGIN SUÐA Tilbúinn eftir fimm mínútur 5 bragðtegundir Það þarf ekki lengur vitnanna viö. Þaö er klárt mál O.M.D. er hljómsveit sem kann aö smíöa fallega og jafnframt grípandi tónlist, sem vinnur stööugt á. Settu nú stefnuna á næstu verzlun okkar og tryggöu þér eintak á Architecture & Morality. . steinorhf Simar 85742 09 85055. ■■■■■■■ Davíð Oddsson Guðmundur H. Garðarsson Styttist í stóra atburði Það er mikið um að vera á þjóðmálasviði og samstarfsaöilar í ríkiksstjórninni komnir í hár saman á flestum samstarfssviðum. Hér skal engum getum leitt að því stríði, sem stjórnar- sinnar heyja innþyrðis, en minnt á gamla stað- reynd að það vinnur aldrei neinn sitt dauðastríð. Þaö sem er hinsvegar efst í hugum Reykvíkinga er, hve óöum styttist í borgarstjórnarkosn- ingarnar — og hve miklum sköpum skiptir fyrir borgarsamfélagið að hnekkja völdum Alþýöu- bandalags og meöreiðarsveina í borgarmálum. Sigur sjálfstæðismanna vinnst aðeins í samátaki hins breiða stuöningsfjölda flokksins, þar sem hver og einn, karl og kona, ungur og gamall, vinnur ötullega, hver á sínum vettvangi, í jöfnum stíganda fram að kosningum. Munum: ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Mánuðir mik- illa átaka (íudmundur G. (iar<V arsM>n, furmaður fulllrúa ráðs sjáirslaodisfélaganna í Reykjavík, segir í fréUa- bréfi Vardar: „Vinstri-meirihlulinn hefur ekki gætt hagsmuna borgarbúa í atvinnumálum sem skvldi. I tæp 4 ár hafa vinstri llokkarnir fariil med voldin í landinu og á sama tíma hfa þeir einnig sljórn- ad Revkjavík. Afleiðingarnar eru: • Reykjavik er ordin lág- launasvæði. • Atvinnutækifærum fækkar í Reykjavík. • Reykvísk atvinnustefna fyrirfinnst ekki. • Kjármagn Reykvíkinga er sett í atvinnuupp- byggingu annars staðar á landinu. Ilagsmunir Reykvíkinga hafa verid fyrir borð bornir með freklegum hætti. I>etta finna allir Reykvík- ingar. Hvarvetna blasa staðreyndirnar við. í kjör dæmismáhim, í atvinnu-, skatla- og fjármálum svo nokkuð sé nefnt. I>að er tími til kominn að Reykvíkingar hristi af sér hlekkina. I>að er tími til kominn að hefja Reykjavík aftur til vegs og virðingar. Við viljum efla hag borg- arbúa, velferð Reykvík- inga. Við viljum framfarasinn- aða atvinnustefnu, reyk- víska atvinnustefnu. Við viljum réttláta kosn- ingalöggjöf sem tryggir jafnan rétt allra lands- manna til áhrifa á Alþingi. Við viljum borgarstjórn- armeirihluta, sem vinnur af einlægni að framgangi hagsmunamála Reykvík- inga. Kramundan eru mánuðir mikilla átaka í stjórnmál- um.“ Dýrkeypt tilraun Davíð Oddsson, borgar stjóraefni sjálfstæðisfólks, segir í sama Varðarbréfi: „Nú eru aðeins hundrað dagar til næstu borgar stjórnarkosninga í Reykja- vík. I>ann tíma verða allir Sjálfstseðismenn að nýta til hins ýtrasta. I'að er reynd- ar í þágu allra Reykvíkinga að vel takist til á næsta kjördegi. I>að voru aðeins sárafá atvkæði sem úrslit- um réðu 1978. Á þeim valt sú niðurstaða að vinstri- stjórnartilraun skyldi gerð í Reykjavík næstu fjögur ár þar á eftir, með Reykvík- inga sem tilraunadýr. iH'ssi tilraun hefur orðið okkur borgarbúum öllum dýrkeypt Sumt af því, sem aflaga hefur farið verður aftur tekið og úr því má ba'ta. Annað hefur haft varanlegan skaða í för með sér. Loforð vinstriflokkanna voru glæst og gyllt. Gull og grænir skógar áttu að blasa við. Kn hvað hefur gerst. „Gullið“ hefur að sönnu verið hrifsað úr vös- um borgaranna og „grænu skógarnir" hafa minnt á sig, þegar meirihlutinn hef- ur gengið á tré og útivist- arsvæði til að bjarga afleið- ingum eigin sleifarlags í skipulagsmálum í horn. lausnirnar góðu áttu ekki að bitna á borgurunum, öðru nær. En hvað stendur eftir? Við skulum skoða það aðeins nánar. l’yrsta verk vinstriflokk- anna var að fara þangað með krumlurnar, sem við Sjálfstæðismenn leljum að þeir hafi átt minnst erindi. þ.e. dýpra ofan í vasa Reykvíkinga. Kasteigna- gjöldin á borgarana voru hækkuð stórlega. I>að mátti kannski segja, að í þeim efnuni hafi vinstri flokkarnir, og þá ekki síst Alþýðubandalagið, verið sjálfum sér samkva'mir. I>eir hafa alltaf í raun verið andvígir því að borgarbúar séu sjálfs síns herrar og búi í eigin húsna-ði. I'eirra a'r og kýr eru að íhúarnir séu sem flestir leigjendur hjá því opinlK'ra, sem skammti þeim húsnæði rétt eins og annað úr hnefa eftir sínum geðþótla. Sigur jón l’étursson þarf ekki að ímynda sér, að Rcykvík- ingar séu þegar búnir að gleyma hugmyndum hans og áformum um að taka leigunámi það húsnæði sem ekki væri nýtt á þann hátt sem hnnum og hans nótum væri að skapi. I»ess- ir menn líta á há fasteigna- gjöld sem eina af aðferðun- um til þess að stugga við fólki sem „býr í of stóru húsnæði". Við Sjálfstæðismenn höfum lýst því yfir með af- gerandi hætti, að okkar fyrsta vcrk í nýjum meiri- hluta verði það að lækka fasteignagjöldin á nýjan leik. l>að efast enginn um að við þau orð verði staðið. Oþarft er að minna les- endur þessa blaðs á, að vinstriflokkarnir létu ekki sitja við að hækka fast- eignagjöldin ein. Öll önnur gjöld voru jafnframt sett í topp eða því sem næsL Á þessu kjörtímabili hef- ur hart og fast verið deilt uni skipulagsmál og hafa m.a. skoðanakannanir sýnt, að í þeim efnum telja Reykvíkingar sig eiga sam- leið með okkur en ekki vinstriflokkunum, sem nú allt í einu hafa í þessum málaflokki allir eina rödd með Alþýðubandalaginu. Kólk verður að gera sér grein fyrir því, að við þær kosningar sem í hönd fara, gefst síðasta tækifærið til þess að forða því, að byggð borgarinnar verði færð upp í Rauðavatnsheiðarnar með öllum þeim gífurlega stofnkostnaði og óbærilega rekstrarkostnaði, sem það mun hafa í för með sér. l>að stórkostlega slys verð- ur að forðast." Strásykurinn í gulu pökkunum sem þú notar ... í baksturinn, í kaffið, í teið, í matinn, á morgunmatinn, út á grautinn, út á skyrið. er fyrsta flokks strásykur. VANTAR ÞIG VINNU VANTAR ÞIG FÓLK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.