Morgunblaðið - 17.03.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1982
23
Susan Anspach á stórleik í mynd Dusan Makavejev, MONTENEGRO.
leikkonunnar.
Tveir margreyndir og ágætir
sænskir leikarar leggja sitt af
mörkum til að bæta heildar-
myndina — þeir Per Oscarson,
sem sálfræðingurinn og Erland
Josephson í hlutverki sem hann
er sem skapaður í, hins ráðvillta
eiginmanns. Þá er júgóslavneski
leikarinn Bora Todorovic hreint
magnaður í hlutverki kráareig-
andans, sannarlega eftirminni-
legur og sama verður sagt um
Lisbeth Zachariasson í erfiðu
hlutverki fyrrverandi eiginkonu
hans.
Tæknilega er Montenegro
prýðisvel gerð, tónlistin sprottin
frá rótum sögunnar og hás gleði-
konurödd Marianne Faithful er
hún syngur slagarann um Lucy
Jordan ómissandi.
En Montenegro er fyrst og
fremst kvikmynd frumlegs, ein-
staks leikstjóra sem hvergi er
smeykur við að fara eigin götur
og koma sínum mjög svo per-
sónulegu skoðunum á framfæri.
Hann á örugglega eftir að
hneyksla suma með þessari
fyrstu mynd sinn í ein átta ár og
þá einkum vegna erótískra uppá-
tækja, en skemmta fleirum og
það rækilega.
hafi N-Ameríku. Er ekki til full
mikils mælst að ætlast til þess að
nemar í leiklistarskóla smáþjóðar
ráði við verk sem listamenn risa-
veldis kveinka sér undan? Ekki
held ég það. Ef Brynja Bene-
diktsdóttir getur ekki gert krafta-
verk með undarlegan texta þá geta
starfsbræður og systur annars-
staðar á hnettinum það varla.
Brynja Benediktsdóttir hefur
nefnilega til að bera alveg furðu-
legan skilning á möguleikum
leiksviðs. Finnst mér hún gjarnan
nálgast textann á svipaðan hátt og
myndhöggvari marmarablokk.
Þannig öðlast textinn í meðferð
Brynju einskonar þrívíddarskír-
skotun, hann hljómar og hann
verður að sjónrænni upplifun sem
lykur um áhorfandann líkt og
landslag séð úr opinni bifreið.
I sýningu leiklistarskólans á Le
Balcon verður hinn sjónræni þátt-
ur ef til vill full áleitinn, í það
minnsta tapaði ég mér í myndmáli
textans og hinnar óaðfinnanlegu
leikmyndar Sigurjóns Jóhannes-
sonar (sem fenginn var til sýn-
ingarinnar með góðfúslegu leyfi
Þjóðleikhússtjóra eins og segir í
leikskrá). Ég stóð mig að því hvað
eftir annað að sjá ekki leikarana
heldur þær ímyndir sem þau stóðu
fyrir. Svona eins og á sviðinu
dönsuðu dúkkur, viljalaus verk-
færi í höndum hins hvassa skáld-
lega vilja Jean Genet/ Sigurðar
Pálssonar/ Brynju Benediktsdótt-
ur/ Sigurjóns Jóhannssonar og
ljósameistarans David Walters.
Ég gat ómögulega gert mér ljósa
grein fyrir sjálfstæðum vilja
hinna ungu leikara. Þótt vissulega
mætti greina baráttu hinna ungu
leitandi sálna við tálmyndir
verksins, baráttu sem kiknaði
undan ógnarlegri yfirbyggingu
stjórnenda sýningarinnar.
Vissulega tókst hinum ungu
leikurum misvel að sigrast á oki
yfirbyggingarinnar og þar með að
festa hendur á tálmyndum Le
Balcon en ég tel ekki rétt að gera
hér upp á milli manna. Tíminn á
eftir að greina hafrana frá sauð-
unum. Ég vil að lokum þakka hin-
um hugrökku lífsþyrstu ungu leik-
urum fyrir að gefa okkur hvers-
dagsmönnum tækifæri til að up-
lifa heimsmynd Jean Genet. Hin
ungu leikaraefni heita Arnór Ben-
ónýsson, Ellert A. Ingimundarson,
Kjartan Bjargmundsson, Erla B.
Skúladóttir, Pálmi Á. Gestsson,
Ragnheiður Tryggvadóttir, Sól-
veig Pálsdóttir og Örn Árnason.
Þá er ótalinn Pétur Einarsson sem
er í því öfundsverða hlutverki að
vera í senn lærifaðir krakkanna
og meðreiðarsveinn á listagyðj-
unni.
Sambandið og LÍÚ:
Selja 25 þúsund þorskanet
frá Portúgal á þessu ári
Innnutningsdeild Ijtndssambands
íslenzkra útvegsmanna og sjávarafurð-
adeild Sambands ísl. samvinnufélaga
hafa nú byrjað á innflutningi þorska-
neta frá Portúgal og er reiknað með að
að minnsta kosti 25 þúsund net frá
I’ortúgal verði seld hérlendis á þessu
ári.
Sambandsfréttir skýra frá því
fyrir skömmu, að innflutningur
þessara neta frá Portúgal hafi meðal
annars verið hafinn til að auka
hingað innflutning frá Portúgal, sem
sé nauðsynlegt, sökum hinna gífur-
legu viðskiptahagsmuna íslendinga
þar í landi. Haft er eftir Guðmundi
Ibsen hjá sjávarafurðadeild Sam-
bandsins, að LÍÚ og Sambandið hafi
snúið sér til fyrirtækisins Fabrica
Lusandesa SARL í Oporto í því skyni
að fyrirtækið framleiddi þorskanet
fyrir Islendinga og hefði fyrirtækið
endurnýjað vélakost sinn að veru-
legum híuta vegna þessa.
Þorskanet hafa til þessa mest ver-
ið keypt frá Japan og Suður-Kóreu,
og seinni árin einnig frá Taiwan og
lítilsháttar frá Hong Kong og Kína.
Portúgölsku netin voru fyrst seld á
Islandi í fyrravetur og gáfust þau vel
og er því gert ráð fyrir aukinni sölu
á þessari vertíð. Guðmundur Ibsen
segir að verðið á portúgölsku netun-
um sé hagstætt, enda sé Portúgal
EFTA-land og þurfti því engan toll
að greiða af netunum.
ÖRBYLGJU-
OFN
rfiöð
snúnings‘
disk'
l/l >>» Katmi •: ,'x*- >•> V
iHH ■
J
Örbylgjuofn með snún-
ingsdiski gerir matargerð
fljótari ... betri ... og
hollari
Hafir þú lítinn tíma, eöa leiöist aö standa lengi yfir
matargerö er örbylgjuofninn frá SHARP svariö. Meö
örbylgjuhitun tekur örstund aö hita, sjóöa eöa steikja
matinn án þess aö bragö eöa ilmefni taþi sér. Snún-
ingsdiskur í ofninum tryggir jafna hitun.
Ef
tíminn
er
Verð aðeins
5.250,-
jgamm' sv-
Ofninn hefur þrjár stillingar: Simmer/Smásuða Full power/Fullur styrkur
Defrost/Þýöir Hitun á ostasamlok- Kartöflur steiktar á 5 mín.
Þýðir djúpfrystan mat, t.d. 200 gr. um og upphitun rétta. Kótilettur steiktar á 7 mín.
kjötstykki á 4 mín., steikir eggjarétti.
Útsölustaðir:
Karnabær Glæsibæ — Fataval Keflavík
— Portið Akranesi — Eplið isafiröi —
Radíóver sf. Húsavík — Álfhóll Siglu-
firði — Cesar Akureyri — Hornabær
Hornafirði — M.M. hf. Selfossi — Eyja-
bær Vestmannaeyjum.
Hverfisgata 103. Sími 25999.