Morgunblaðið - 17.03.1982, Síða 27

Morgunblaðið - 17.03.1982, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1982 27 Gestur Kristinn Loftsson — Minning Fæddur 26. aprfl 1924 Dáinn 23. febrúar 1982 Með fáum orðum vil ég minnast vinar míns Gests Loftssonar, Vík í Kaldrananeshreppi. Við Gestur vorum leikfélagar, vinnufélagar og vinir frá barnæsku. Foreldrar Gests voru hjónin Loftur Bjarna- son og Hildur Gestsdóttir sem bjuggu á Hafnarhólmi og síðar í Vík á Selströnd. Frá báðum þessm býlum var sjósókn og landbúnaður stundaður jöfnum höndum, Loftur var formaður á bátum og byrjaði Gestur ungur að stunda sjó með honum. 17 ára gamall fór Gestur til Akraness og réri þar á vélbáti á vetrarvertíð, hann varð strax mjög liðtækur og duglegur sjó- maður. Hann var upp frá því fjöl- margar vertíðir sjómaður, sunn- anlands og víðar um land og var á sínum sjómannsferli ýmist háseti, kokkur, vélstjóri eða skipstjóri. Þegar Gestur var rúmlega hálf- þrítugur að aldri eignaðist hann 14 tonna bát með bræðrum sínum, og voru þeir formenn á honum til skiptis. Heppnaðist útgerð þeirra vel, og síðar eignaðist hann minni fleytur, ýmist einn eða með öðr- um. Gestur átti alla tíð sitt lögheim- ili hjá foreldrum sínum. Hann missti föður sinn 1964 og um það leyti tók Gestur við bústjórn heimilisins ásamt Hildi móður sinni, og höfðu þau þokkalegan landbúskap, ræktaði hann tún og bætti jörðina. Gesti var margt til lista lagt, hann var góður sund- maður, skarpur spretthlaupari og knattspyrnumaður. Hann endur- reisti ungmennafélagið Neista á Selströnd ásamt sveitungum sín- um, og var þar vel virkur félagi og formaður þess um árabil. Hann var stórhuga til allra fram- kvæmda, vildi hann gjarnan byggja félagsheimili á Drangsnesi og íþróttavöll og endurbyggja sundlaug í Hveravík. Þetta voru hans draumsýnir, sem því miður hafa ekki orðið að veruleika nema að litlu leyti. Það er margs góðs að minnast af okkar ungmennafélagsskap á Selströnd. Þar var oft glatt á hjalla hjá mannskapnum, bæði á íþróttavelli og á skíðum, og kapp mikið. Alltaf var Gestur glaði og góði drengurinn og ekki hvað síst við börnin sem hann umgekkst. Nú er vinur minn horfinn af þess- um heimi, margar voru gleði- stundirnar okkar Gests er við átt- um saman á lífsleiðinni, þær eru geymdar í minningunni um hann. Guð blessi látinn vin. Innilegar samúðarkveðjur til móður Gests, systkina og annara ástvina. Jóhann G. Halldórsson frá Bæ Ingunn Magnúsdótt- ir - Minningarorð Fædd 14. október 1903 Dáin 8. mars 1982 I dag er til moldar borin vin- kona mín Ingunn Magnúsdóttir, Hringbraut 97, hér í borg, og lang- ar mig til að minnast hennar með nokkrum orðum. Ingunn fæddist að Grund í Garði þann 14. október 1903. For- eldrar hennar voru hjónin Sigríð- ur Jónsdóttir og Magnús Gríms- son, sem þar bjuggu. Systkinin á Grund voru 8 sem komust á legg. Þau eru nú öll látin. Ingunn ólst upp hjá foreldrum sínum til 11 ára aldurs, þá fór hún að Reykjafossi í Ölfusi til hjónanna Jónínu Bjarnadóttur og Erlends Þórðar- sonar. Bjó hún þar þangað til að hún stofnaði sitt eigið heimili er hún giftist Bjarna Ilaraldssyni frá Fögrueyri í Fáskrúðsfirði þann 30. júní 1934. Bjuggu þau í hamingjusömu hjónabandi þar til Bjarni lést 1972. Þau eignuðust eitt barn sem dó í fæðingu. Áður en Ingunn giftist eignaðist hún eina dóttur, Kristínu. Ólst hún fyrst upp hjá Jónínu og Erlendi, en þau bjuggu í sama húsi og Ing- unn og Bjarni. Að þeim báðum látnum bjó hún ásamt syni sínum, Erlendi Jóni, með móður sinni og stjúpa. Erlendur Jón var mesta gleðin í lífi ömmu sinnar síðari árin og þótti þeim einstaklega vænt hvoru um annað. Ingunn helgaði heimilinu krafta sína og bar það gott vitni um snyrtimennsku hennar. Hún var ákaflega vinaföst, ekki síst ef börn áttu í hlut. Ég og fjölskylda mín þökkum henni áratuga vináttu. Hún andaðist á Landspítalanum að kvöldi 8. mars, eftir fárra mán- aða sjúkrahússlegu. P.S. t Hjartans þakkir til allra sem veittu okkur ómetanlega hjálp og auösýndu okkur samúö í veikindum og viö fráfall KARLS GUNNLAUGSSONAR bónda, Birnuatööum. Guö blessi ykkur æfinlega. Guörún Jónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför, FRÚ LAUFEYJAR LILLIENDAHL Dyngjuvegi 12, Raykjavík. Ágústa Eínarsdóttir, Guöjón Styrkársson, Gestur Einarsson, Laufey Guöjónsdóttir, Páll Einarsson, Einar Guöjónsson, Ragna Pálsdóttir, Þórdís Guöjónsdóttir. TENGIMŒ • Örugg steypumóta- tenging. • Jafnþykkir og beinir -j veggir. • Engin gliön- un móta. • Tengin eru \ slitin 2 cm inni í veggn- um. Engir ryö taumar. Þú leigir eða kaupir krækjurnar. - Tengimót in spara efni og vinnu. Steypumót eru okkar sérgrein BREIÐFJÖRÐS BLIKKSMIÐJA HF Leitiö nénmri uppiýsinga aöSÁ túni7 Simit29022 Auglýsing um aðalskoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi Keflavíkurflugvallar fyrir árið 1982. Aöalskoöun bifreiöa fer fram í húsakynnum bifreiöa- eftirlitsins aö Iðavöllum 4, Keflavík, eftirtalda daga frá kl. 08 til 12 og 13 til 16. Þriöjudaginn 23. mars Miðvikudaginn 24. mars Fimmtudaginn 25. mars Föstudaginn 26. mars Viö skoðun skal framvísa kvittun fyrir greiöslu bif- reiöagjalda, svo og gildri ábyrgöartryggingu. Vanræki einhver aö færa bifreið til skoöunar á aug- lýstum tíma, veröur hann látinn sæta ábyrgö aö lög- um og bifreiðin tekin úr umferö hvar sem til hennar næst. Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli, 9. mars 1982. J-1 til J-75 J-76 til J-150 J-151 til J-225 J-226 og yfir. Vertu ekki í vafa um hvað ódýrast er að verzla, og kjörin bezt hvar úrvalið er mest Ekki færri en 16 tegundir hárra veggskápa og veggeininga eru til sölu í stærstu húsgagnaverzlun landsins á lægra verði en þú sérð annars staðar. Sem sagt: Vertu ekki í vafa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.