Morgunblaðið - 17.03.1982, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1982
29
Eyvör Stefánsdóttir
Júlíus Snorrason
Trausti I>orsteinsson
llelgi I'orsteinsson
Dalvík:
l’orsteinn M. Aðalsteinsson
Listi sjálfstæðismanna birtur
FYRIR skömmu var gengið frá
framboðslista sjálfstæðismanna við
bæjarstjórnarkosningarnar á Dalvík
22. maí nk. Sjálfstaðismenn hlutu
tvo menn kjörna í kosningunum
1978, þá Trausta l'orsteinsson og
Júlíus Snorrason, en þeir óskuðu
eftir að taka sæti neðar á listanum í
komandi kosningum.
Listinn á Dalvík er þannig
skipaður:
1. Helgi Þorsteinsson, Ásvegi 2.
2. Þorsteinn Már Aðalsteinsson,
Mímisvegi 17.
3. Eyvör Stefánsdóttir,
Bárugötu 13.
4. Júlíus Snorrason,
Goðabraut 19.
5. Trausti Þorsteinsson,
Böggvisbraut 7. •
6. Björn Elíasson Hólavegi 9.
7. Lína Gunnarsdóttir,
Dalbraut 10.
8. Zophonías Antonsson,
Goðabraut 17.
9. Guðbjörg Antonsdóttir,
Dalsmynni.
10. Oskar Jónsson, Stórhólsvegi 7.
11. Björgvin Gunnlaugsson,
Sunnubraut 9.
12. llallfríður Þorsteinsdóttir,
Drafnarbraut 12.
Prófkjör á Bolungarvík:
Átta hlutu bindandi
kosningu á D-listann
Bolungarvík, 15. marz.
IIM 50% kosningaþátttaka varð í
sameiginlegu prófkjöri stjórnmála-
flokkanna í Bolungarvík, sem fram
fór laugardag og sunnudag. ílrslit í
prófkjörinu urðu sem hér segir:
B-listi Framsóknarflokks hlaut
alls 59 atkvæði. í efsta sæti varð
Benedikt Kristjánsson, í 2. sæti
Sveinn Bernódusson, í 3.—4. sæti
Elísabet Kristjánsdóttir og Gunn-
ar Leósson, I 5.—6. sæti Bragi
Björgmundsson og Örnólfur Guð-
mundsson. Enginn fékk bindandi
kosningu á lista Framsóknar-
flokks.
D-listi Sjálfstæðisflokks hlaut
alls 186 atkvæði. Til samanburðar
má geta þess, að það munu vera
80% þeirra atkvæða, sem flokkur-
inn fékk við sjðustu sveitarstjórn-
arkosningar. Átta hlutu yfir 60%
atkvæða og fengu því bindandi
kosningu í prófkjörinu. Röð þeirra
varð sem hér segir: 1. Olafur
Kristjánsson. 2. Guðmundur Agn-
arsson, 3. Einar Jónatansson, 4.
Björgvin Bjarnason, 5. Örn Jó-
hannsson, 6. Björg Guðmundsdótt-
ir, 7. Víðir Benediktsson, 8. Hreinn
Eggertsson.
G-listi Alþýðubandalags fékk 25
atkvæði. Þar varð hlutskarpastur
Kristinn H. Gunnarsson, 2. Þóra
Hansdóttir, 3. Guðmundur H.
Magnússon, 4. I^ára Jónsdóttir. Þau
tvö fyrsttöldu hlutu bindandi kosn-
ingu. Mörg ár eru liðin síðan Ai-
þýðubandalagið bauð fram til
sveitarstjórnar í Bolungarvík.
H-listi, listi jafnaðarmanna og
óháðra, fékk 94 atkvæði. Af þeim
lista fengu fjórir bindand kosn-
ingu. Röð efstu manna varð sem
hér segir: 1. Valdimar L. Gíslason,
2. Kristín Magnúsdóttir, 3. Aðal-
steinn Kristjánsson, 4. Daði Guð-
mundsson, 5. Jónmundur Kjart-
ansson, 6. Ingibjörg Vagnsdóttir, 7.
Jón S. Ásgeirsson.
Ákveðið hefur verið að fjölga
bæjarfulltrúum á Bolungarvík úr 7
í 9 við næstu bæjarstjórnarkosn-
ingar. Núverandi bæjarstjórn er
skipuð þremur af lista Sjálfstæð-
ismanna, þremur af lista vinstri
manna og óháðra og einum af lista
Framsóknarflokksins.
— Gunnar
eru brandar tungunnar. Enn er
mörgum í minni hverning skít-
menni eins og Stalín og Hitler
gátu eitrað hugi þjóða. Og enn eru
einstrengingslegir menn, Brésnjef
og Reagan, að spenna þjóðir í
skeifilegt fjas.
Hinn eðlislægi friðarvilji al-
mennings er þannig kæfður í
áróðri um nauðsynlega varúð
gagnvart fólki, sem innst inni býr
yfir sömu friðarþrá, en er uppá-
lagt að ætla, að engum skuli
treysta á tilgreindu svæði jarðar-
innar.
Það er ógeðslegt skapleysi að
vera niðurlútur jábróðir þeirra
skálkabragða, sem hneppa mann-
lundina í slíka sjálfheldu. Heims-
friðurinn er of dýrmætur til að
vera háður þess háttar mönnum
eingöngu. Hann verður ólíklega
knúinn fram með herbrestum, og
þegar örvænt má þykja um rök-
semdir hnefans, er nokkru hætt-
andi til að reyna mátt mildari eðl-
isþátta. Og öll umræða, hversu
óraunhæf sem hún kann að sýnast
við að færast á svið tiífinn-
inganna, getur varla verið ómerki-
legri en sá bragur, sem nú er í
móð.
En hefir nokkru sinni reynt á
þennan friðarvilja milli framandi
manna? Að því skulum við nú gá.
Síðla árs 1915 barst hingað sú
frétt að sérstakar ráðstafanir hafi
orðið að gera vegna heragabrota
milli Rússa og Þjóðverja á páskum
þ.á. Fréttin var rakin til norsks
rithöfundar, Eivind Berggrav-
Jensen (síðar biskups). Bók hans
kom út í nóvember 1915 og heitir
Krigerliv og religiösitet. Til að
fullvissa mig um þessa merkilegu
frétt pantaði ég bókina hjá
Steen’ske Forlag í Kristianíu (nú
Osló). Ef ég réði yfir nógu plássi
væri fróðlegt að „citera“ þaðan
mikið lesmál.
Þetta byrjaði á aðfangadags-
kvöldið 1914 er veikur klukkna-
hljómur frá nærliggjandi þorpi
snart svo óvinina, enska og þýska,
sem höfðu bækistöðvar í gryfjum
með skotlengdarbili, að þeir
fleygðu vopnum og hrópuðu á máli
mæðra sinna Not shoot ... Nicht
schieszen .. Síðan sameinuðust
þeir á opnu svæði milli skotgraf-
anna og sungu Silent night, holy
night og Stille Nacht, heilige
Nacht. Menn skoðuðu fjölskyldu-
myndir og sögðu Fröliche Weih-
nachten og A merry Christmas.
Með tár í augum skoðuðu þeir
myndir eiginkvenna og barna.
Hinn norksi höfundur tilgreinir
orð eins kapteins: „hjertene var
for fulde, taarene stod mandfolk-
ene í öinene, ingen kunde faa nog-
et frem.“
Þýskur stúdent skildi svo mikið
í ensku að samningar tókust um
það, að ekki skyldi hleypt af skoti
það sem eftir lifði nætur, heldur
ekki á jóladag né næstu nótt. Svo
var það á páskunum að þessi sam-
skipti þóttu keyra svo úr hófi að
fyrrnefnd ráðstöfun var gerð.
Þetta eru dæmi um þann friðar-
draum, sem býr í sérhverju
óspilltu hjarta. Mér er þessi kennd
ekki ókunn. Árið 1930 stóð ég í
miklu mannhafi í Almannagjá.
Messa stóð yfir og lagboðinn hafði
ómað. Skarinn hóf að syngja Af
himnum ofan boðskap ber. Jafn-
snemma, og við hlið mér kvað við
hreimfögur raust, sem söng sömu
bakrödd og ég, en hann sagði: Vom
Himmel hoch ... Er minnið þraut
tókum við tal saman, skiptumst á
adressum og mæltumst til vináttu.
Mér er það ákaflega vel ljóst að
heimurinn er allur annar nú —
með sitt ofbeldi, jafnvel innan af-
markaðra landamæra. En eitt
stendur þó stöðugt: Draumur
fjöldans um frelsið og svikalausa
tilveru. Að þeirri friðarþrá þarf að
hlynna, ekki bara með andríkum
skáldskap og hátíðlegu hljóðskrafi
heldur í djarfri, einlægri al-
heimshreyfingu um allsherjar af-
vopnun.
Hérlendis er áberandi hópur,
sem kallar sig hernámsandstæð-
inga. Þeir mættu vera okkar stolt.
Þetta fólk hefir frelsi til að koma
fram hvar sem því sýnist, segja
allt sem í hugann kemur og getur
gengið geiglaust frammi fyrir
hrammi hervaldsins. Þessi frum-
legi hópur, svo agnarsmár í sam-
anburði við hið íburðarmikla
mannhaf heimsins, getur samt
látið til sín taka.
Því miður eru fleiri lönd herset-
in en ísland. Efalaust þráir fólk
þar einnig alfrjálst svið. Eitt sinn
glumdi kallið: Öreigar allra landa
sameinist. Nú er annað kall tíma-
bært: Hernámsandstæðingar allra
landa sameinist. Þar geta íslend-
ingar haft sögulega forgöngu.
Okkar fólk ætti að geta átt greiða
leið inn í öll hersetin lönd, sagt
þar frá reynslu sinni og verið tákn
um skoðanafrelsi. Heiminn vantar
samstilita tilkenningu um afvopn-
un — óháða allri valdastreitu.
íslendingar, sem eitt sinn höfðu
manndráp og herhlaup sem eins-
konar atvinnubótaföndur, hefðu
mikil rök fram að færa við að und-
irbúa hinn nýja grundvöll.
Þá gæti svo farið að stríðsjaxl-
arnir, þegar þeir fara á sín her-
málamót, bjóði með sér hjarta-
hlýjum mæðrum til að þær gætu
haldið ráðstefnur í anda sáttfýsi
og umburðarlyndis meðan þeir eru
að spilla heiminum. Þær þekkja
hugarangrið, nísting þess og kvöl
harnanna.
Þetta eru bara hugarburðir, sem
urðu til við að hlusta á erindi dr.
Gunnars Kristjánssonar.
Fridrik Þorvaldsson
13. Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
Dalbraut 14.
14. Sigfús Þorleifsson, Dalbæ.
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
GOOLE:
Arnarfell ...... 29/03
Arnarfell ...... 12/04
Arnarfell ...... 26/04
ROTTERDAM:
Arnarfell ...... 17/03
Arnarfell ....... 31/3
Arnarfell ...... 14/04
Arnarfell ...... 28/04
ANTWERPEN:
Arnarfell ...... 18/03
Arnarfell ...... 01/04
Arnarfell ...... 15/04
Arnarfell ...... 29/04
HAMBORG:
Helgafell ...... 31/03
Helgafell ...... 19/04
Helgafell ....... 7/05
HELSINKI:
Zuidwal ........ 13/04
Disarfell ...... 29/04
LARVIK:
Hvassafell ..... 29/03
Hvassafell ..... 13/04
Hvassafell ...... 26/4
GAUTABORG:
Hvassafell ..... 30/03
Hvassafell ..... 14/04
Hvassafell ..... 27/04
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell ..... 17/03
Hvassafell ..... 31/03
Hvassafell ..... 16/04
Hvassafell ..... 29/04
SVENDBORG:
Pia Sandved .... 17/03
Helgafell ....... 1/04
Pia Sandved .... 13/04
Hvassafell ..... 16/04
Helgafell ...... 20/04
GLOUCESTER, MASS.:
Jökulfell ...... 20/03
Skaftafell ..... 23/03
Jökulfell ...... 18/04
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell ..... 25/03
Jökulfell ...... 21/04
SKIPADEIUD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavik
Sími 28200 Telex 2101
HÚS-
BYGGJENDUR
Til afgreiðslu af lager:
Niðurfallsrör
Rennubönd
Þakrennur
Þakgluggar
Þaktúður
Gaflþéttilistar
Kjöljárn
Klippt og
beygt járn af
ýmsum gerðum.
Öll almenn
blikksmíði.
'B
BREIÐFJÖRÐS
BLIKKSMIÐJA HF
Leitió núnari upplýsinga
ad Sigtúni 7 Simh29022
r
HITAMÆLAR
ftynrOauuigpuir
USiSl®]l
Vesturgötu 16,
sími 13280.
WIKA
Þrýstimælar
Allar stæröir og geröir
Sðyuflaiuigjiyir
Vesturgötu 16, sími 13280