Morgunblaðið - 17.03.1982, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 17.03.1982, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1982 31 • Lárus Guðmundsson hefur stnðið sig mjög vel f Belgíu. Allt útlit er fyrir að hann skrifi undir samning á næstu dögum. Knattspyrnan í Belgíu: Standard hefur forystuna LIÐ Standard er nú í forystu í 1. deildinni í Belgíu með 36 stig. And- erlecht fylgir fast á eftir með 35 stig. Lokeren er í fimmta sæti með 32 stig. Lokeren vann stóran sigur um helgina á Lierse, 4—0. Arnór Guð- johnsen átti mjög góðan leik með liðinu og fékk lofsamlega dóma í hlöðum í Belgíu eftir leikinn. Pól- verjinn Lubanski var besti maður liðsins í lciknum og sýndi sannkall- aða snilldartakta. Pétur Pétursson kom inn á í leik Anderlecht og lék síðustu 50 mín- úturnar. Hann kom inn á fyrir Danann Brylle. Lárus Guð- mundsson átti goðan leik með Waterschei en lið hans er nú í 10. sæti í deildinni. Sævar Jónsson hefur staðið sig vel með CS Brugge og er fastur maður í liðinu. Ragnar Margeirsson lék hins veg- ar ekki með Gent. Kðrfuknaitleikup V J Einkunnagjöfín: Valur: Torfi Magnússon 7 Leifur Gústafsson 7 Valdimar Guðlaugsson 6 Jón Steingrímsson 6 Kristján Agústsson 5 Ríkharður Hrafnkelsson 4 Bjartmar Bjarnason 5 ÍS: Bjarni Gunnar Sveinsson 6 Árni Guðmundsson 6 Gísli Gíslason 6 Guðmundur Jóhannesson 6 Ingi Stefánsson 5 Þórður Óskarsson 6 Sveinn Ólafsson 5 Spánn Úrslit leikja á Spáni um síðustu helgi urðu þessi: Betis — Real Madrid 0—0 Cadiz — Bilbao 3—0 Las Palmas — Osasuna 0—0 Gijon — Espanol 4—1 Castellon — Valencia 1—4 Barcelona — Zaragoza 2—0 Santander — Hercules 2—0 Sociedad — Sevilla 1-0 Atl. Madrid — Valladolid 2-0 Staða efstu liða. Barcelona 28 19 5 4 67—24 43 Sociedad 28 16 6 6 49—28 38 Real Madrid 28 15 7 6 47—27 37 Valencia 28 15 3 10 43—37 33 Bilbao 28 14 3 11 48—33 31 Zaragoza 28 12 6 10 39—42 30 Úrslit leikja í Belgíu um síðustu helgi urðu þessi: Anderlecht — FC Brugge 2—1 Standard — Liege 0—0 Malines — Waregem 0—1 CS Brugge — Gent 0—0 Waterschei — Molenbeek 2—1 Antwerpen — Beveren 2—0 Tongres — Beringen 1—0 Cortrai — Winterslag 0—1 Lokeren — Lierse 4—0 Staðan í 1. deild: Standard 26 13 10 3 40:21 36 Anderlecht 26 14 7 5 40:25 35 AA Gent 26 11 II 4 30:16 33 Antwerpen 26 13 6 7 33:18 32 Lokeren 26 12 8 6 34:26 32 Courtrai 26 11 8 7 30:29 30 Lierse 26 12 5 9 36:39 29 Beveren 26 9 n 7 29:21 28 Waregem 26 9 8 9 26:23 26 Waterschei 26 9 7 10 35:41 25 Molenbeek 26 10 4 12 32:32 24 Winterslag 26 8 7 11 19:30 23 FC Liege 26 8 6 12 30:36 21 Beringen 26 7 6 13 26:40 20 CS Brugge 26 6 8 12 28:47 20 Tongeren 26 7 7 12 28:47 21 FC Brugge 26 5 7 14 33:42 17 Malines 26 5 4 17 23:43 14 • Gunnar Páll virðist vera í góðri æfingu um þessar mundir. Holland Úrslit leikja í Hollandi um síðustu helgi urðu þessi: RODA, Kerkrade — AZ ’67 1—2 lltrecht — Haarlem 2—0 Deventer — NEC, Nijmegen 0—0 PSV — Feyenoord 1—2 NAC, Breda — Tilburg 1—4 Sparta - PEC, Zwolle 1—1 Groningcn — Twente 3—0 Den Haag — de Graafschap 2—1 Ajax — Maastricht 2—0 Staða efstu liða er nú þannig: I»SV 23 17 2 4 58:23 36 Ajax 23 16 3 4 78:33 35 AZ ’67 23 14 4 5 48:28 32 lltrecht 23 13 4 6 40:27 30 Feyenoord 23 10 9 4 45:39 29 Lárus Guðmundsson: „Hef ekki skrifað undir neinn samning vii i lið Watei rschei“ - en samningaviðræður eru í fullum gangi „ÞAÐ er ekki rétt hafi það einhvers staðar komið fram að ég hafi skrifað undir tveggja ára samning við Wat- erschei. Það standa yfir samninga- viðræður á milli mín og forráða- manna félagsins. Ég hef ekkert skrifað undir ennþá en málin munu væntanlega skýrast alveg á næstu dögurn.” Þetta sagði Lárus Guðmundsson, knattspyrnumaðurinn snjalli, sem nú leikur hjá Waterschei í Belgíu, er hann var spurður að því hvort hann væri búinn að gera tveggja ára samning við félagið eins og kom fram í einu dagblaðanna hér í fyrra- dag. Lárus sagði að forráðamenn fé- lagsins hefðu í fyrstu boðið honum þriggja ára samning en hann hefði ekki gengið að honum. Nú færi hann að athuga málið mjög gaumgæfilega. Ef af samningum yrði, þá gæti allt eins farið svo að hann myndi semja til eins árs. En hugsanlegt væri að hann gerði tveggja ára samning við félagið. — Mér hefur líkað alveg sér- lega vel hér í Belgíu. Ég hef leikið fimm síðustu leiki Waterschei og gengið all vel. Skorað tvö mörk og fiskað eina vítaspyrnu sem gaf mark. Liðinu hefur gengið mjög vel að undanförnu. Aðeins tapað einum leik af síðustu tíu leikjum. Og þegar svona vel gengur, þá gleðjast menn eðlilega. I síðustu viku lék ég þrjá leiki og get ekki neitað því að ég er svolítið þreyttur. Það er mjög mikið álag á leikmönnum hér. Sér- ílagi þó framlínumönnum. Þeir verða bókstaflega að skora og sýna hvað í þeim býr. Annars fá þeir ekki sín tækifæri. Hjá Waterschei eru fimm er- lendir leikmenn en aðeins þrír leika með í hverjum leik. Hinir bíða eftir fyrsta tækifæri sem gefst ef einhver stendur sig ekki í leikjum. Knattspyrnan hér er hröð og nokkuð hörð. Það er oft illa brotið á framlínumönnum og hef ég ekki farið varhluta af því í síðustu leikjum. Fengið marga slæma pústra. Það er nokkuð einkennandi hér að leikmenn hugsa mikið um pen- inga og bónusgreiðslur þær sem í boði eru ef sigur vinnst í leik. Eft- ir einn bikarleikinn sagði til dæm- is einn af betri leikmönnum Wat- erschei við mig: „Það var nú allt í lagi að fá nokkur spörk í þessum leik fyrst að við sigruðum." Þetta var í bikarleik sem gaf af sér meiri bónus en venjulegur deildar- leikur. Að mínu mati eru þrjú lið sterk- ust hér í Belgíu. Anderlecht, Lok- eren og Standard. En samt sem áður geta þau alls ekki verið örugg um sigur í leikjum sínum. Við höf- um til dæmis sigrað Anderlecht, sagði Lárus. Að sögn Lárusar benti allt til þess að hann myndi ganga frá samningi við Waterschei í lok vik- unnar. En óvíst í hve langan tíma. — ÞR FH vantar aöeins 1 stig til að verða ísl-meistari Kinn leikur fer fram í 1. deild kvenna í kvöld í Laugardalshöllinni. Leeds tapaði Úrslit í ensku knattspyrnunni í gærkvöldi urðu þessi: 1. deild: Arsenal — West Bromwich 2-2 Wolverhampton — Leeds 1—0 2. deild: Barnsley — Luton Town 4-3 Grimsby Town — Watford 0—2 Orient — Norwich City 1 — 1 Shrewsbury — Wrexham 1 — 1 Valur og Þróttur mætast kl. 21.45. Staðan í 1. deild kvenna er nú þessi: FH 13 10 1 1 246:163 22 Fram 13 8 4 1 266:186 20 Valur 13 6 4 3 199:165 16 Vík. 13 7 0 6 218:203 14 KR 13 5 2 6 202:184 12 ÍR 13 6 0 7 213:213 12 Akranes 13 4 0 9 164:241 8 Þróttur 13 0 0 13 147:270 0 Lið ÍR kom mjög á óvart um síð- ustu helgi er stúlkurnar lögðu lið FH með einu marki 13—12. KR sigraði lið ÍA á Akranesi 9—7. Víkingur Handknatllelkur __________________/ sigrað’ lið Vals með 17 mörkum gegn 14 og lið Fram vann Þrótt 17—11. Liði FH vantar aðeins eitt stig til þess að verða íslandsmeist- ari. Þorsteinn varpaði kúlu 14,33 metra ÞORSTEINN Þórsson frjálsíþrótta- maður úr ÍR stórbætti sig í kúlu- varpi, er hann varpaði 14,33 metra á móti í San Jose í Kaliforníu um helg- ina. Átti Þorsteinn bezt áður um 13,20 metra. Á sama móti kastaði Þorsteinn spjóti rúmlega 56 metra, en hann hljóp á milli greina og kast- aði áhöldunum til skiptis. Þorsteinn er efnilegur tugþrautarmaður og hyggst keppa í einni slíkri í byrjun aprílmánaðar. Gunnar Páll fyrstur í Stjörnuhlaupi FH GUNNAR Páll Jóakimsson ÍR sigr aði í enn einu vetrarhlaupinu er hann kom fyrstur að marki í Stjörnuhlaupi FH í Hafnarfirði á laugardag. Þrettán hlauparar létu ekki erfiða færð á sig fá, heldur hlupu átta kílómetra vegalengd léttir í bragði. Og ekki lét yngra fólkið sitt eftir liggja. Gunnar Páll hefur sigrað í þeim þremur Stjörnuhlaupum sem fram hafa farið í vetur, og aðeins eitt er eftir, og ekki ólíklegt að hann nái fullu húsi stiga í þessum skemmti- legu hlaupum, sem Haraldur Magn- ússon frjálsíþróttafrömuður í Hafn- arfirði kom á laggirnar á sínum tíma með aðstoð málningarverksmiðjunn- ar Stjörnulita, sem gaf fallega verð- launagripi, sem keppt er um. Lítum annars á úrslitin: KARLAR (8 km): 1. Gunnar P. Jóakimsson ÍR 29:25 2. Einar Sigurðsson UBK 29:32 3. Sighvatur D. Guðmunds. HVÍ 30:16 4. Gunnar Snorrason UBK 30:23 5. Jóhann Sveinsson UBK 31:17 6. Gunnar Birgisson ÍR 31:20 7. Leiknir Jónsson Á 31:40 8. Guðmundur Gíslason Á 31:55 9. Sigurður Haraldsson FH 33:16 10. Gunnar Kristjánsson Á 33:24 11. Árni Kristjánsson Á 33:53 12. Ingvar Garðarsson HSK 34:06 13. Guðmundur Ólafsson ÍR 34:41 KONIIR (3,5 km) 1. Ragnheiður Ólafsd. FH 14:41 2. Hrönn Guðmundsd. UBK 17:19 SVEINAR (3,5 km) 1. Ómar Hólm FH 14:55 2. Viggó Þ.Þórisson FH 15:21 3. Helgi F.Kristinsson FH 17:54 GUÐMUNDUR Rúnar Guðmundss- on frjálsíþróttamaður úr FH stökk 2,01 metra í hástökki á frjálsíþrótta- móti í Norrköping fyrir skömmu, hans bezti árangur t hástökki inn- anhúss í vetur. Er þetta jafnframt sama hæð og Unnar Vilhjálmsson stökk á Islandsmeistaramótinu á dögunum. Guðmundur hefur einnig stokkið TELPUR (1,2 km) 1. Súsanna Helgad. F 5:15 2. Linda B. Ólafsd. F 5:22 3. Anna Valdimarsd. F 5:25 4. íris Ingibergsd. í 5:30 5. Guðrún Ottested í 5:32 STRÁKAR (1,2 km) 1. Ásmundur Einvarðsson F 5:03 2. Finnbogi Gylfason FH 5:09 3. Björn Pétursson F 5:12 tvo metra slétta tvisvar það sem af er árinu, fyrst í janúar og síðan aftur í febrúar, og sýnir það visst jafnvægi hjá honum. Á sama móti brá Guðmundur sér í kúluvarp, stórbætti þar sinn fyrri ár angur og varpaði 14,20 metra. Sló Guðmundur Hafnarfjarðarmet Elí- asar Sveinssonar í leiðinni. Guðmundur Rúnar stökk 2,01 í hástökki 0

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.