Morgunblaðið - 22.04.1982, Síða 1
64 SIÐUR
86. tbl. 69. árg.
FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Pólland:
Tugþúsundir manna
reknar úr flokknum
Varsjá, 21. apríl. Al*.
MÁLGAGN pólska kommúnistaflokksins, Trybuna Ludu, skýröi frá því í
dag, að i marsmánuði sl. hefðu 50.000 manns, sem ekki hefðu getað fótað sig
á flokkslínunni, verið reknir úr flokknum eða settir í bann. Frá þessu er sagt
deginum áður en miðstjórn kommúnistaflokksins kemur saman til annars
fundar síns undir herlögum og er litið
flokksins.
Að sögn Trybuna Ludu voru
mennirnir reknir fyrir áhugaleysi
þeirra á starfsemi flokksins, fyrir
„hræsni, ósvífin brot á flokksagan:
um og óskammfeilna óhlýðni". I
febrúar sl. hvatti Jaruzelski hers-
höfðingi til, að sundrungaröflum
innan flokksins yrði sagt stríð á
hendur og hann hreinsaður af fólki,
sem spillst hefði af áróðri Samstöðu.
Félögum í pólska kommúnista-
flokknum hefur farið mjög fækkandi
og hafa hundruð þúsunda manna
ýmist sagt sig úr honum formlega
eða skilað inn flokksskírteinum.
Á fundi miðstjórnarinnar nú verð-
ur fyrst og fremst rætt um þróunina
í efnahagsmálum og er búist við nýj-
um tillögum frá stjórninni í þeim
málum. Að sumra sögn verður einn-
ig tekin afstaða til framtíðar Sam-
stöðu og verkalýðsfélaganna en
kirkjan hefur árangurslaust barist
fyrir því, að stjórnvöld taki upp við-
ræður við forystumenn þeirra.
Um 100 manns söfnuðust saman
fyrir utan réttarsal í Varsjá í dag,
margir með armbindi og merki Sam-
stöðu, til að vera viðstaddir réttar-
höld yfir Jan Rulewski, einum
frammámanna Samstöðu, en hann
er sakaður um að hafa valdið dauða
á það sem aðvörun til annarra félaga
manns í bílslysi á fyrra ári. Réttar-
höldunum var hins vegar frestað til
19. maí og er það í annað sinn, sem
þeim er frestað.
Brottflutningur
hafinn 1 Yamit
t amíl, 21. apríl. AP.
ÍSRAELSHER hóf í dag hrottflutning
fólks frá bænum Yamit á Sinai-skaga
en allur skaginn á að vera kominn í
hendur Egypta nk. sunnudag, 25. apríl.
Hermennimir mættu strax mikilli and-
stöðu íbúanna, sem grýttu þá og
hreyttu í þá ókvæðisorðum.
Mörg hundruð Yamit-búa höfðu
komið sér fyrir uppi á húsþökum og
létu þeir rigna þaðan yfir hermenn-
ina grjóti, flöskum og öðru lauslegu.
Kveikt var í hjólbörðum og hrópað
til hermannanna að hafa sig á brott.
Israelski herinn hefur fyrirmæli um
að fara að öllu með gát og er búist
við að brottflutningur standi yfir
næstu þrjá dagana. Begin, forsætis-
ráðherra, sagði í dag, að staðið yrði
við samningana um afhendingu
Sinai-skagans eins og Camp David-
samkomulagið kvæði á um.
Morgunblaðið/ÓI.K.M.
Landsþing vestur-þýskra jafnaðarmanna:
Krefjast aðgerða
gegn atvinnuleysi
Gripið til „annarra ráðau
ef samningar takast ekki
- sagði Pym á þingi. Argentínsk herskip enn í Port Stanley
Umdon, 21. apríl. Al'.
FRANCIS Fym, utanríkisráðherra
Brcta, sagði i dag, að erfitt yrði að
finna lausn á deilunni um Falklands-
eyjar en ef það tækist ekki „verður að
grípa til annarra ráða“. Pym er nú á
förum til Bandaríkjanna þar sem
hann mun kynna tillögur bresku ríkis-
stjórnarinnar um friðsamlega lausn í
Falklandseyjamálinu. Breska varn-
armálaráðuneytið upplýsti í dag, að
„eitt eða tvö“ argentinsk herskip
væru enn í höfn í l’ort Stanley.
Francis Pym kynnti í dag fyrir
Neðri málstofunni tillögur þær,
sem Argentínumenn hafa lagt fram
með stuðningi Bandaríkjamanna í
Falklandseyjadeilunni. Breska rík-
isstjórnin hefur ekki hafnað þeim
formlega en Pym sagði, að í raun
væri verið að fara fram á, að rétt-
mæti innrásarinnar og ofbeldis
Argentínumanna væri viðurkennt.
Talið er, að tillögurnar geri ráð
fyrir, að Argentínumenn fari með
her sinn á brott, breska flotanum
verði snúið við, eyjarnar lúti fyrst
um sinn stjórn Árgentínumanna,
Breta og Bandaríkjamanna, og e.t.v.
fleiri þjóða, en full yfirráð Argent-
ínu verði viðurkennd fyrir árslok.
Breska varnarmálaráðuneytið
tilkynnti í dag, að argentínskt her-
flutningaskip og annað smærra
væru enn í höfn í Port Stanley á
Falklandseyjum þrátt fyrir hafn-
bann Breta. Talsmaður þess sagði,
að ekki væri litið á þetta sem brot
gegn hafnbanninu þar sem skipin
hefðu verið þar þegar það var sett.
Ekki vildi hann neitt um það segja
hvað gerðist ef skipin létu úr höfn.
Francis Pym fer til Washington á
morgun, fimmtudag, þar sem hann
mun kynna tillögur ríkisstjórnar
sinnar í Falklandseyjadeilunni.
Óháða sjónvarpsstöðin breska seg-
ir, að í þeim sé lagt til, að bæði
ríkin, Argentína og Bretland, kveðji
her sinn heim og að seinna, eftir
hæfilegan umþóttunartíma, verði
teknir upp samningar um yfirráðin
yfir eyjunum.
Loftárásir
Palestínumenn hóta grimmilegum hefndum
Uoirut, Tcl Aviv, 21. apríl. Al'.
ÍSRAELAR gerðu í dag miklar loft-
árásir á bækistöðvar palestínskra
skæruliða í Iábanon og voru skot-
mörkin einkum ratsjárstöðvar, vopna-
búr og víghreiður Palestínumanna á
ströndinni. Sýrlendingar brugðust við
árásunum með því að senda flugvélar
sinar gegn þeim ísraelsku en i loftbar-
daga milli þeirra voru tvær sýrlenskar
vélar skotnar niður. Niu mánaða gam-
alt vopnahlé palestínskra skæruliða og
ísraela er nú á enda.
Að sögn líbanskra stjórnvalda
féllu í loftárásunum, sem stóðu í tvo
tíma, a.m.k. 20 Palestínumenn og 40
særðust en sjálfir hafa Palestínu-
menn ekkert sagt um mannfallið.
Miincnen, 21. apnl. Al'.
VESTUR-ÞÝSKIR jafnaðarmenn samþykktu í dag á landsþingi flokksins að
krefjast nýrra aðgerða í efnahagsmálum til að vinna bug á atvinnuleysinu í
landinu og er talið að þessi samþykkt muni enn auka á ágreininginn við
samstarfsflokkinn i rikisstjórn, frjálsa demókrata. Auk þess var krafist „sjálf-
stæðrar stefnu Evrópuríkjanna í vaxtamálum" ef ekki tekst aö fá Keagan til að
falla frá hávaxtastefnunni í Bandarikjunum.
Aðeins einn fulltrúi af 400
greiddi atkvæði gegn ályktuninni
um efnahagsmálin en í henni er
kveðið á um aðgerðir gegn atvinnu-
leysinu, sem nú nemur 8% af vinnu-
færum mönnum, það mesta í 25 ár.
Hvatt var til aukinna ríkisfram-
kvæmda og að lagður yrði á sér-
stakur viðbótarskattur á hátekju-
fólk, en víst er talið, að frjálsir
demókratar, sem styðjast helst við
smáatvinnurekendur og miðstéttar-
fólk, muni snúast mjög öndverðir
gegn þessum tillögum eins og ávallt
áður.
Helmut Schmidt kanslari varaði
landsþingið sl. þriðjudag við að
ganga of langt í tillögum sínum um
efnahagsmál þar sem ríkisstjórnin
væri þegar komin á ystu nöf í þeim
efnum og lengra yrði ekki gengið í
samstarfinu við frjálsa demókrata.
Haft var eftir ýmsum fulltrúum á
þinginu, að þessi samþykkt ætti eft-
ir að valda Schmidt meiri erfiðleik-
um en ágreiningurinn um varnar-
málastefnuna en hann er sagður
fara minnkandi innan jafnaðar-
mannaflokksins. Varnarmálin,
fyrst og fremst sú stefna Schmidts
að koma fyrir bandarískum kjarn-
orkuflugskeytum í Vestur-Þýska-
landi, verða til umræðu á morgun,
fimmtudag, og er búist við stuðn-
ingi mikils meirihluta þingfulltrúa
við stefnu Schmidts.
Sjá ennfremur „Schmidt
reynir ...“ á bls. 14.
ísraela á Líbanon
Þeir hétu því hins vegar í dag að
hefna árásanna grimmilega og
kváðust kunna vel til verka í þeim
efnum. Sýrlendingar viðurkenndu í
dag að hafa misst tvær flugvélar í
loftbardaga við ísraela en sögðust
sjálfir hafa skotið niður eina flugvél
óvinarins. Því neita talsmenn ísra-
elshers.
I yfirlýsingu, sem ísraelska her-
stjórnin gaf út, segir, að árásirnar
hafi verið gerðar í hefndarskyni
fyrir „grimmilegar árásir“ palest-
ínskra skæruliða á síðustu vikum á
ísraelska borgara jafnt innan ísra-
els sem utan.
Sameinuðu þjóðirnar og Banda-
ríkjastjórn skoruðu í dag á Ísraela
og Palestínumenn að forðast frekari
átök og sagði Dean Fischer, tals-
maður bandaríska utanríkisráðu-
neytisins, að stjórnin harmaði þá
atburði, sem nú hefðu orðið.