Morgunblaðið - 25.04.1982, Blaðsíða 1
76 SÍÐUR
88. tbl. 69. árg.
SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sovétríkin:
Varað við „alvar-
legum skorti"
Moskvu 24. apríl. Al’.
l’RAVDA, málgagn sovéska kommúnistaDokk.sin.s, birti í dag skvrslu um ástand
efnahagsmála í landinu og kemur þar fram að mikill samdráttur er í flestum
greinum atvinnulífsins. Jafnframt var varaö við því, að „alvarlegur skortur" væri
á na'.stu grösum. Stöðnun og afturkippur einkenndu sovéskt cfnahagslíf á ofan-
verðum siðasta áratug og að sögn vestrænna sérfræöinga hefur hagvöxturinn ekki
verið minni en nú síðan á dögum síðari hcimsstyrjaldar.
Á fyrstu þremur mánuðum þessa
árs hefur hattvöxtur minnkað veru-
lega miðað við fyrra ár, sem þó var
talið mjög slæmt, og samdráttur
orðið í nær öllum greinum nema
gasvinnslunni, sem aukist hefur um
7%. Framleiðsla í bifreiðaiðnaði hef-
ur minnkað um 8%, sement um 9%,
pappír um 5%, í járnbrautaiðnaði
um 8% og framleiðsla tækjabúnaðar
til raforkuvinnslu um 14%. Alvar-
legastur er þó samdrátturinn í land-
búnaðinum en í fyrra nam hann 2%
og á fyrsta ársfjórðungi nú hefur
mjólkurframleiðsla minnkað um
4%. Uppskerubrestur hefur orðið í
Sovétríkjunum þrjú síðustu árin og
er hann talinn munu valda veru-
legum kjötskorti þegar líður á árið.
Hans hefur ekki gætt enn svo neinu
nemur og stafar það af mikilli slátr-
un vegna kornskortsins.
Gjaldeyriseign Sovétmanna í
bönkum á Vesturlöndum er nú minni
en verið hefur um áratugaskeið
þrátt fyrir gífurlega sölu á gulli og
olíu á uppboðsmörkuðum á síðasta
ári og það, sem af er þessu. Rúss-
landssérfræðingar á Vesturlöndum
telja, að þetta ástand kunni að hafa í
för með sér stórpólitíska þýðingu
fyrir fylgiríki Sovétmanna víða um
heim, sem mörg hver standa og falla
með rússneskum fjárframlögum.
T.d. er fullyrt að Kúbumenn yrðu
gjaldþrota á einni nóttu ef þeir
misstu þær 8,5 milljónir dollara, sem
Rússar gefa þeim á degi hverjum.
Bandaríkin:
Ólöglegra inn-
flytjenaa leitað
Wa.shint>ton, 24. apríl. Al’.
MIKIL herferð gegn ólöglcgum innflytjendum er nú á döfinni vestur í Bandaríkj-
unum og er ætlunin að handtaka þá hvar sem til þeirra næst og vísa þeim úr landi.
Er þetta í fyrsta sinn í næstum 30 ár sem til svona aðgerða er gripið en talið er, að
ólöglegir innflytjendur skipti hundruðum þúsunda ef ekki milljónum í landinu.
Aðgerðirnar munu hefjast nk.
mánudag í níu eða tíu ótilgreindum
borgum og hefur verið valinn 400
manna flokkur til að stjórna þeim.
Það var síðast 1954 að leitað var
ólöglegra innflytjenda í Texas og
Kaliforníu en ástæðan að þessu sinni
er fyrst og fremst vaxandi atvinnu-
leysi í Bandaríkjunum. Náið sam-
starf verður haft við yfirvöldin á
hverjum stað til að þau geti komið
fólki, sem nú er atvinnulaust, í þau
störf, sem losna munu við brottvísun
innflytjendanna.
„Með þessum aðgerðum viljum við
einnig sýna, að það er enginn óhult-
ur þótt honum takist að komast
ólöglega yfir landamærin," sagði
einn embættismannanna en lang-
flestir þessara ólöglegu innflytjenda
eru Mexíkanar, sem lengi hafa leitað
stíft til gósenlandsins í norðri.
4
l.josm.: Sigurgcir
Haldið í róður. Einn Vestmannaeyjabátanna siglir úr höfn.
Francis Pym, utanríkisráðherra Bretlands:
Falklandseyjadeilan ekki ieyst
án þess að grípa til vopna
London, 24. apríl. Al‘.
HAFT ER eftir Francis Pym,
utanríkisráðherra Bretlands, að
hann telji nú „útilokað að leysa
Falklandsdeiluna án þess að
grípa til vopna“. I>á hefur hann
sagt nánum vinum sínum að
vendipunkturinn i deilunni sé
skammt undan. Costa Mendez,
utanríkisráðherra Argentínu he-
fur sagt helmingslíkur á stríði á
milli þjóðanna.
Pym kom í morgun til Lundúna
eftir næsta árangurslítinn samn-
ingafund með Alexander Haig,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Costa Mendez kemur til Washing-
ton í dag til viðræðna við Haig.
Hann hefur látið í ljósi vilja her-
foringjastjórnarinnar til að greiða
íbúum Falklandseyja skaðabætur
fyrir þá röskun, sem orðið hefur á
högum þeirra. Þá hefur hann hælt
Margaret Thatcher fyrir sköru-
lega framgöngu í málinu, en segir
hana vera „of stífa".
Argentínumenn hafa haldið því
fram, að þeir hafi séð tvö bresk
herskip um 90 kílómetra undan
strönd Suður-Georgíu. Talsmaður
breska varnarmálaráðuneytisins
vildi hvorki staðfesta þær fregnir
né bera til baka. Þá vildi hann
ekkert segja um hvort innrás
Breta á eyjuna væri yfirvofandi.
Samtök Ameríkuríkja munu
koma saman til fundar á mánudag
að ósk Argentínumanna. Hafa
þeir sagt Bretum að ráðist þeir
inn í Suður-Georgíu séu þeir þar
með að ráðast á öll samtökin. Því
muni öll aðildarríkin snúast gegn
þeim.
Breskir fjölmiðlar greindu frá
því að Thatcher hefði sett frest til
mánudags til að leysa deiluna með
samningaviðræðum. Takist sam-
komulag ekki fyrir þann tíma
verði flotanum stefnt til innrásar
á Falklandseyjar.
Um borð í HMS Hermes. Breskir sjóliðar i æfingum á dekkinu og búa sig
undir átök við Falklandseyjar.
EBE var-
ar Kanada-
menn við
Brússel, 24. apríl. Al*.
Efnahagsbandalag Evrópu
hefur varað Kanadastjórn við og
hótað að setja innflutningsbann
á kópaskinn nema teknar verði
upp mannúðlegri aðferðir við
drápið á kópunum.
Færi svo að bannið yrði
samþykkt af aðildarlöndunum
10 yrði það Kanadamönnum
verulegt áfall. EBE-löndin 10
keyptu kópaskinn fyrir 1,2
milljónir Bandaríkjadala 1980.
Kaup EBE námu þriðjungi af
heildarútflutningsverðmæti
kópaskinna Kanadamanna
það ár.
Árlega eru um 200.000 sel-
kópar drepnir. Til þessa hafa
þeir verið rotaðir og síðan
skornir á háls á meðan þeir
eru enn í rotinu. Kanadamenn
hafa stöðugt haldið því fram,
að þetta sé sársaukaminnsta
aðferðin fyrir kópana.
Ellefu lét-
ust í tveim-
ur slysum
BrúsM-l og l.ausannc, 24. apríl. Al*.
AÐ MINNSTA kosti fjórir létust
og níu voru fluttir í sjúkrahús í
Briissel, er eldur kom upp i fjöl-
býlishúsi í borginni snemma í
morgun. Tólf var enn saknaó og
var búist viö að tala látinna ætti
eftir aö hækka. íbúar hússins,
sem hrundi til grunna við elds-
voðann, eru allir Tyrkir.
Þá létust sjö manns og 22
slösuðust í Lausanne í Sviss, er
kranabóma brotnaði og féll
ofan á almenningsvagn. Bóm-
an, sem var á byggingarkrana,
var í um 30 metra hæð er hún
brotnaði, er verið var að lyfta
tiltölulega litlu hlassi. Krana-
stjórinn hrapaði úr stjórnhús-
inu, en slapp með smávægileg
meiðsl.
Einn ræningja
Doziers hand-
tekinn
Milano, 24. apríl. Al*.
LÖGREGLAN í Mílanó hand-
tók á miðvikudag Francesco
Lo Bianco, einn ræningja Jam-
es L. Doziers hershöfðingja,
sem leikið hefur lausum hala.
Lo Bianco var einn þeirra, sem
dæmdir voru án þess að hann
væri viðstaddur réttarhöldin.
Lo Bianco er foringi
Genúa-deildar Rauðu her-
deildanna. Fregnum af
handtöku hans var frestað
um nokkra daga til að gefa
lögreglunni frekara ráðrúm
til framhaldsaðgerða. Hann
hlaut 26 ára fangelsisdóm í
réttarhöldunum yfir mann-
ræningjunum.