Morgunblaðið - 25.04.1982, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1982
25
ERUM FLUTTIR
------------7-1
í ný|a húsiö við hliöina
Skoðanakönnun
um hundahald
í Hafnarfirði
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjardar hef-
ur falið yfirkjörstjórn í Ilafnarfírði
framkvæmd skoðanakönnunar um
það, hvort leyfa skuli hundahald i
kaupstaðnum eður eigi — sam-
kvæmt samþykkt bæjarstjórnar frá
29. september 1981.
A kjörseðli vill bæjarstjórnin að
spurt verði: Ertu fylgjandi því að
hundahald verði leyft í Hafnar-
firði. — Á kjörseðlinum skal síðan
standa já og nei og skal kjósand-
inn krossa við hvort orðið sem
hann vill.
Skoðanakönnunin fer fram
samhliða bæjarstjórnarkosning-
um hinn 22. maí.
Nú eru síðustu
forvöð að bóka
sig í Flugleiða-
ferðina á
„Wholesale
Buyers’ Gifts
Fair”
„Wholesale Buyers’ Gifts
Fair’’ er ein þekktasta kaup-
stefna fyrir heildsala sem
haldin er í London. Eins og
nafnið bendir til eru þar
sýqdar allar þær vörur sem
flokka má sem gjafavörur.
Kaupstefnan stendur yfir
dagana 16. til 19. maí.
Flugleiðir bjóða sérstaka
ferð á Wholesale Buyers’
Gifts Fair. Brottför er
sunnudaginn 16. maí, gist
verður á Londoner Hotel,
en þaðan er aðeins 5
mínútna gangur til sýning-
arstaðarins Mount Royal.
Heimferð er fimmtudag 20.
maí. Verðið er aðeins
4.970 krónur, miðað við
gistingu í 2ja manna her-
bergi og innifalið er flugfar,
gisting í 4 nætur, morgun-
verður, akstur til og frá
Heathrow og fararstjórn.
Allar nánari upplýsingar
fást hjá söluskrifstofunni
Hótel Esju og hjá umboðs-
mönnum.
FLUGLEIDIR
Gott folk hfa traustu feiagi