Morgunblaðið - 25.04.1982, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1982
37
Framkvæmdanefnd Bandalags kvenna í Reykjavik vegna verkefnis á al-
þjóðaári fatlaöra 1981. Standandi: Ingibjörg Magnúsdóttir, gjaldkeri, Guð-
laug Wiium og Ragna Bergmann. Sitjandi: Sólveig Alda Pétursdóttir, ritari
og Björg Einarsdóttir, formaður.
Söfnuðu og keyptu tauga-
greini fyrir Grensásdeild
FRÁGANGI vegna söfnunar Banda-
lags kvenna í Reykjavík á Alþjóðaári
fatlaðra 1981 er nú að fullu lokið og
framkvæmdanefndin hefur sent frá
sér greinargerð um verkefnið.
Keyptur var taugagreinir á Grens-
ásdeildina.
þessu mikla mannúðarmáli og
vonar að árangur skili sér í
markvissari þjálfun fatlaðra og
betri skilyrðum til að nýta sér-
þekkingu starfsfólks við endur-
hæfingu sjúkra.
Fullkomid öryggi
fyrír þá sem þú elskar
Tirestone
hjólbardar hjálpa
þér ad vemdaþína
Firestone S-211 radial-hjólbarðar upp-
fylla ströngustu kröfur sem gerðar eru.
Þeir eru sérstaklega hannaðirtil aksturs
á malarvegum. Þeir
grípa mjög vel við
erfiðar aðstæður
og auka stórlega
öryggi þitt og
þinna í
umferðinni.
Tiresfone
Fullkomið öryggi - alls staðar
NýBaröi
Garöabæ - Sími 50606
Söfnunin nam alls kr.
1.104.086.93 (110 millj. gkr.) og
hefur fénu verið varið til kaupa á
taugagreini af fulikomnustu gerð.
Grunneining tækisins hefur þegar
verið afhent Endurhæfingardeild
Borgarspítalans og von er á við-
bótareiningu fljótlega. Unnið er
nú að skipulögðum prófunum og
mælingum áður en taugagreinir-
inn verður endanlega tekinn í
notkun.
í heildarútkomu fjáröflunarinn-
ar var þungt á metunum, segir í
skýrslunni, að stjórnvöld felldu
niður aðflutningsgjöld og sölu-
skatt af tækinu, Innkaupastofnun
Reykjavíkurborgar, sem annaðist
viðskiptin erlendis frá, gaf eftir
umboðslaun sin og Flugleiðir
hluta af flutningskostnaði.
Reykvískar konur höfðu for-
göngu um þetta söfnunarátak, en
á síðari stigum framkvæmdarinn-
ar var leitað aðstoðar kvenna
utanbæjar og voru undirtektir alls
staðar jákvæðar. Sérstaklega er
getið um víðtæka fjáröflun hjá
Bandalagi kvenna í Hafnarfirði og
Kvenfélagssambandi Gullbringu-
og Kjósarsýslu, auk framlaga frá
samtökunum Vinahjálp og
Kvennadeild Rauða krossins í
Reykjavík.
Framkvæmdanefndin vill koma
á framfæri þökkum til allra hvar
sem er á landinu, sem lögðu sitt af
mörkum til að árangur næðist í
Geim-
sýning
SÝNING á bókum og bæklingum
um geimvísindi og geimferðir
Bandaríkjamanna hefst í Amer-
íska bókasafninu að Neshaga 16 á
mánudaginn.
Á sýningunni, sem lýkur 7. maí,
verða milli 100 og 150 bækur og
bæklingar.
NESTSELDI
BÍLLEVRÓPU
FIAT 127 SPECIAL
er gjörbreyttur utan sem Innan, en þetta er hinn
frægi 3ja dyra bíll, sem hefur verið mest seldi
bíll Evrópu mörg undanfarandi ár og ekki að
ástæðulausu. Við höfum ekki annað eftirspurn
til þessa, enda hefur þessi sérstaki bíll eitt
hæsta endursöluverö hér á íslandi.
Síðan 1972 hafa 5 milljónir ánægðra FIAT 127
eigenda ekið með þá fullvissu í huga að bíll
þeirra væri hið fullkomna farartæki, bíll sem
ekki væri hægt að smíða betur. En i dag hefur
komið i Ijós að þetta var ekki nema hálfur sann-
leikur, hin nýi FIAT 127 er ennþá skemmtilegri
og vandaðri hvað snertir hönnun og frágang.
SMIÐJUVEGI 4, KÓP. SÍMI 77-200
SÖLUMENN 77-720