Morgunblaðið - 25.04.1982, Blaðsíða 44
Horfur á að gróður
taki snemma við sér
- segir Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri
„EF ENGIN mciriháttar breyting
verdur á veðurfari, má telja örujjgt
að.tún komi víðast vel undan vetri,
og hér á Suðurlandi líklega mjög vel.
Eins er líklegt að gróður taki yfir-
leitt snemma við sér, ef ekki koma
áföll,“ sagði Jónas Jónsson búnað-
armálastjóri, er Mbl. innti hann eftir
hvernig tún kæmu undan vetri að
þessu sinni og hvernig horfurnar
væru hjá bændum í vor.
„Þessi vetur lagðist fremur
snemma að, hann hófst víðast í
Pólverjar loka
sendiráöinu
í Reykjavík
KÍKISSTJÓRN l'óllands hefur
ákveðið að loka pólska sendiráð-
inu í Keykjavík í byrjun júní og
mun sendiherrann framvegis hafa
aðsetur í Osló. Sendiráöið hefur i
fjölda ára haft aðsetur að Greni-
mel 7 í Keykjavík.
Hnrik Jesaki í pólska sendi-
ráðinu sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að ástæðan fyrir
lokun sendiráðsins og flutningi
þess til Osló, væri einfaldlega
sparnaðarráðstöfun pólskra
stjórnvalda, enda væri ódýrara
að reka eitt sendiráð en tvö. Nú,
þegar sendiráöinu verður lokað,
eru 28 ár liðin frá því að það var
opnað.
Núverandi sendiherra Pól-
lands á Islandi Karol Nowak-
owski verður áfram sendiherra,
en eins og fyrr segir með aðsetri
í Osló. Ekki hefur enn verið
ákveðið hvort einhverjir
starfsmenn sendiráðsins muni
hafa aðsetur á Islandi í fram-
tíðinni.
byrjun október og var harður
framan af. Nú var sl. sumar ákaf-
lega erfitt og voru horfurnar á
tímabili óneitanlega nokkuð
ískyggilegar. En upp úr áramótum
gerði hins vegar betri tíð, sem hef-
ur haldist nokkuð óslitið. Það hef-
ur þannig ræst mikið úr þessu og
nú er almennt nokkuð gott hljóð í
bændum.
Það sem er mikilvægast, er að á
landinu í heild hafa ekki orðið
svellalög. Það hafa að vísu verið
nokkuð miklir snjóar í sumum
landshlutum, en þá hefur tekið
upp jafnt og þétt. Þannig ættu að
vera góðar horfur með sprettu víð-
ast hvar, ef ekki bregður til hins
verra með tíðarfarið. Sauðburður
byrjar víðast þegar vika er liðin af
maí og eru ágætar horfur með
hann víðast á landinu, ef þetta
góða tíðarfar helst."
I.josm. Mbl.: Lárus Karl
Innflutningur jókst um 65% tímabilið janúar-febrúar:
Um 300% verðmætaaukning í inn-
flutningi á kæli- og frystitækjum
INNFLUTNINGUR til landsins jókst um 75,6% í febrúar-
mánuöi sl., samanboriö við febrúarmánuð 1981, en verðmæti
innflutningsins jókst úr tæplega 435,4 milljónum króna í
liðlega 764,4 milljónir króna. Ef hins vegar tímabilið janúar-
febrúar er skoðað, kemur í Ijós, að innflutningur til landsins
hefur aukizt um 65% frá sömu mánuðum árið 1981, en verð-
mæti innflutningsins jókst úr 790,9 milljónum króna í tæp-
lega 1,305 milljarð króna.
ísspöng föst
við Grímsey
ÍSSPÖNG er nú komin að Gríms-
ey og truflar hún siglingar báta
við eyjuna. Hefur verið strengdur
vír fyrir hafnarmynnið, en spöng-
in er löng og mjó og hefur rekið að
vestan upp að eynni. Vestanátt
var við eyna í gær.
Þá má geta þess, að útflutn-
ingur íslendinga jókst í febrú-
armánuði um liðlega 63% frá
fyrra ári, en hann jókst hins
vegar ekki nema um liðlega 40%
tímabilið janúar-febrúar í ár
miðað við sömu mánuði á síð-
asta ári.
Dæmi um aukinn innflutning
einstakra vörutegunda á tíma-
bilinu janúar-febrúar sl. eru
kæli- og frystitæki til heimilis-
nota, en verðmæti þess innflutn-
ings jókst umrædda mánuði
miðað við sama tímabil á árinu
1981 um tæplega 300%, eða úr
708 þúsund krónum í 2,822 millj-
ónir króna.
Þá má nefna, að verðmæti
litsjónvarpa, sem flutt voru inn
umrætt tímabil, jókst um tæp-
lega 81% milli ára, eða fór úr
2,834 milljónum króna í 5,127
milljónir króna.
Verðmæti þvottavélainnflutn-
ingsins á umræddu tímabili
jókst um liðlega 170%, eða úr
1,007 milljón króna í 2,725 millj-
ónir króna.
Ef innflutningurinn er
skoðaður eftir viðskiptalöndum
okkar íslendinga kemur í ljós,
að mest er flutt inn frá Sovét-
ríkjunum þessa fyrstu tvo mán-
uði ársins, eða fyrir liðlega 183
milljónir króna, sem er liðlega
14% heildarinnflutningsins.
í öðru sæti er Vestur-Þýzka-
land, en verðmæti innflutnings-
ins þaðan var liðlega 160,6 millj-
ónir króna, sem er um 12,3% af
heildarinnflutningnum á þessu
tímabili. í þriðja sæti eru Hol-
lendingar, en þaðan voru fluttar
vörur fyrir liðlega 135,3 milljón-
ir króna fyrstu tvo mánuðina á
þessu ári, sem svarar til um
10,3% heildarinnflutningsins.
í fjórða sæti er Danmörk, en
þaðan voru fluttar inn vörur
fyrir tæplega 115 milljónir á
umræddu tímabili, sem svarar
til um 8,8% heildarinnflutnings-
ins. I fimmta sæti eru Bandarík-
in en þaðan voru fluttar inn vör-
ur fyrir tæplega 114,3 milljónir
króna á umræddu tímabili, sem
svarar til um 8,76% heildar-
innflutningsins. Loks má nefna
Svíþjóð, sem er í sjötta sætinu,
en þaðan voru fluttar inn vörur
fyrir liðlega 111,2 milljónir
króna fyrstu tvo mánuði ársins,
sem svarar til um 8,5% heildar-
innflutningsins.
Tekinn við meintar
ólöglegar veiðar
Undarleg þrákelkni
að halda í þetta svæði
segir Davíð Oddsson um Rauðavatnssvæðið
MÉR FINNST það undarleg þrá-
kelkni að halda dauðahaldi í þá
hugmynd að færa framtíðarbygg-
ingarsvæði Keykjavíkur upp á
Kauöavatnsheiðarnar, því þessar
nýju fréttir um hve landið er gegn-
sprungiö gera það erfitt að koma
þar fyrir byggð svo í lagi sé, sagði
I)avíð Oddsson borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, en í Mbl. i
gær sagði Sigurður Harðarson
formaður skipulagsnefndar
Keykjavíkur að það hreytti engu
um skipulagið þótt sprungum á
þessu svæði fjölgaði eða fækkaði.
— Ef til vill væri skiljanlegt
að drífa upp byggð á þessu svæði
ef ekki væri annar kostur fyrir
hendi, en þetta er nánast óskilj-
anlegt þar sem miklu hagkvæm-
ari svæði eru fyrir hendi með-
fram ströndinni, sagði Davíð
ennfremur. — Við verðum að
hafa í huga að á Rauðvatnssvæð-
inu eru sprungurnar aðeins einn
galli af mörgum. Svæðið liggur
hátt og sumar kemur þar um 3
vikum síðar en við ströndina,
það er dýrt að leggja þarna
stofnlagnir og mætti spara
stórkostlegar fjárhæðir ef horfið
væri frá þessu svæði og þá þyrfti
ekki heldur að leggja af besta
neysluvatn borgarbúa, að Bull-
augum.
Mikilvægt er að koma í veg
fyrir að núverandi borgaryfir-
völd komist upp með þessa þrá-
kelkni sína. Síðasta tækifærið til
þess gefst hinn 22. maí nk. og þá
þurfa borgarbúar að taka í
taumana, sagði Davíð Oddsson
að lokum.
FOSTUDAGINN 23. apríl sl. stóð
Landhelgisgæzluvélin TF-RÁN
m/b Draupni V&550 að meintum
ólöglegum togveiðum undan
Kakkafjöru. Málið var sent bæj-
arfógetanum í Vestmannaeyjum
til málsmeðferðar.
Skipstjórinn á Draupni hefur
þegar viðurkennt brot sitt, en
samkvæmt fyrstu mælingum
var mesta fjarlægð frá landi 2,5
sjómílur og vitinn á Stórhöfða
var í 7 sjómílna fjarlægð. Gefur
það stað bátsins um 0,5 sjómílur
innan fiskveiðimarkanna á þess-
um slóðum.
Síðan var mesta fjarlægð frá
landi mæld um 2,7 sjómílur og
vitinn á Stórhöfða í um 6,7 sjó-
mílna fjarlægð. Gefur það stað
bátsins um 0,3 sjómílur innan
leyfilegra fiskveiðimarka.
Mælingarnar voru gerðar með
ratsjá flugvélarinnar og var
haft samband við bátinn og hon-
um sagt að hífa veiðarfærin og
halda til Vestmannaeyja.
Gífurleg skemmdar-
verk í Arbæjarsafni
GÍFURLEG skemmdarverk hafa
verið unnin í Árbæjarkirkju og
gamla bænum i Árbæ og sam-
kvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins mun aðkoman hafa verið
mjög Ijót. Skemmdir voru unnar á
munum og húsbúnaði.
Tilkynnt var um verknaðinn
til lögreglunnar um hádegisbilið
í gær og fóru lögreglumenn og
rannsóknarlögreglumenn á
staðinn. Unnu þeir fram eftir
degi við að kanna skemmdir og
verksummerki, en lögreglan
bannaði myndatökur meðan á
vettvangsrannsókn stóð og
reyndist ekki unnt að fá nánari
upplýsingar áður en Mbl. fór í
prentun í gær.