Morgunblaðið - 30.04.1982, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982
Leikfélag Akureyrar frumsýnir „Eftirlitsmanninn“ eftir Gogol:
„Á að vera vorgleði Akureyringa“
— segir Asdís
Skúladóttir
leikstjóri
Leikfélag Akureyrar frumsýnir
Eftirlitsmanninn eftir rússneska
höfundinn Gogol á föstudags-
kvöld, og er þetta leikrit fjórða
verkið, sem félagið sýnir á þessu
leikári. I^eikstjórar eru tveir, Guð-
rún Ásmundsdóttir og Ásdís
Skúladóttir, leiktjaldasmiðurinn
ungverskur, Ivan Török, ljósa-
meistarinn ástralskur, David
Walters, en Gunnar Reynir
Sveinsson samdi tónlist og leik-
hljóð. Þýðandi leikritsins var Sig-
urður Grímsson.
I tilefni frumsýningarinnar átti
fréttamaður Mbl. stutt samtal við
annan leikstjórann, Ásdísi Skúla-
dóttur.
— Hvað geturðu sagt mér um
höfundinn, Ásdís?
— Hann hét fullu nafni Nikolai
Vasilyevitsj Gogol, var rússneskur
maður og var uppi 1809—1852.
Hann reyndi við ljóðagerð í fyrstu,
en reyndist algerlega misheppnað
ljóðskáld og brenndi upplag fyrstu
bókar sinnar, sem hafði að geyma
æskuljóð. Móðir hans og systir
sendu honum frá Úkraínu ýmsar
sveitasögur, þegar hann var kom-
inn til St. Pétursborgar, og úr
þeim samdi hann alþýðusögur,
sem urðu mjög vinsælar. Þá var
hann um tvítugt. Hann var mjög
rómantískur í eðli sínu.
— En hvað um Eftirlitsmann-
inn?
— Það er nú saga að segja frá
því, hvernig hann komst á fram-
færi. Leikritið er skörp ádeila á
yfirstéttina, undirlægjuháttinn,
lygina og falsið í Rússlandi keis-
aratímans, svo að litlar líkur voru
til þess að slíkt verk slyppi í gegn-
um hina ströngu ritskoðun yfir-
valda. En viti menn. Einn af vin-
um Gogols sýndi sjálfum zarnum,
Nikulási I., leikritið, og hann varð
svo hrifinn, að hann heimtaði, að
það yrði sýnt. Frumsýningin var
svo í St. Pétursborg árið 1836, og
„Hann bar upp bónorðið af sjálfsdáðum"
var zarinn viðstaddur. Ef hann
hefði ekki skorist í leikinn, hefði
slíkt verk áreiðanlega verið bann-
að og höfundinum sennilega refs-
að.
— Hvernig urðu svo viðtökurn-
ar?
— Leikritið hlaut strax miklar
vinsældir, og yfirstéttin rússneska
hló, þó að höfundurinn ætlaðist nú
ekki beinlínis til þess. Skömmu
síðar var það sýnt í Englandi, þó
að það tæki Englendinga nokkra
stund að átta sig á því vegna
ókunnugleika á rússnesku þjóðfé-
lagi og ástandinu þar. Síðan fór
það sigurför um Vesturlönd og
hefur alltaf síðan verið talið með
allra fremstu gamanleikjum.
— Höfðar það til okkar?
— Þó að það sýni rússneskt
þjóðfélag í samtíma höfundar,
getum við með auðveldu móti
fundið til skyldleikans, — skyld-
EftirlitsmaAurinn og borgar-
stjórafrúin í ástarbríma.
I.jósm.: I'áll
að semja tvö milliatriði eða tengi-
atriði, þar sem fram koma tvær
nýjar persónur, leikritaskáld og
misheppnaður og gjaldþrota
leikhússtjóri. Þetta gefur leik-
stjóra og leikendum frjálsar hend-
ur til að hverfa yfir í hið dular-
fulla, yfir í hugarburð og ímynd-
un, jafnvel látbragðsleik og söng-
Eftirlits-
maðurinn
( Gestur E.
Jónasson
og Pjotr
Ivanovitsj
(Marinó
Þorsteins*
son)
leikans við kerfisviðjar og möppu-
dýraveldi nútímans, við íslenskan
raunveruleika í knngum okkur.
Leikritið er ósvikið gamanleikrit,
en með bitrum ádeilubroddi.
— Hvernig er leikgerðin, sem
þið ætlið að sýna?
— Gogol ætlaðist ekki til, að
leikurinn yrði farsi, en hjá okkur
nálgast hann það þó mjög. Eg
vona, að Gogol fyrirgefi okkur
það. Leikfélag MA sýndi Eftirlits-
manninn fyrir mörgum árum með
Pétur Einarsson í titilhlutverkinu,
og þá var verkið mikið stytt. Það
er það líka hjá okkur, við höfum
strikað út nokkur atriði. Hins veg-
ar fengum við Jón Hjartarson til
Fasteignagjöldin og
Framsóknarflokkurinn
eftir Biryi Isl.
Gunnarsson
Þessa dagana eru Reykvík-
ingar að greiða síðustu afborgun
sína af fasteignagjöldum. Mörg-
um reynist það erfitt, enda hafa
fasteignagjöldin á undanförnum
árum hækkað langt umfram
verðbólgu, bæði vegna breyttra
álagningarreglna svo og vegna
þess að fasteignamat í Reykja-
vík hefur nokkur ár í röð hækk-
að mun meir en nemur hækkun
á almennum launatekjum.
Borgarbúar óánægðir
Margir Reykvíkingar hugsa
því vinstri flokkunum í meiri-
hluta borgarstjórnar þegjandi
þörfina, þegar þeir fara með
fasteignagjöldin í Gjaldheimt-
una. Þetta finna vinstri flokk-
arnir og því eru þeir nú að reyna
að hlaupast undan merkjum
gjörða sinna á þessu kjörtíma-
bili.
h’yrstur hefur P’ramsóknar-
flokkurinn riðið á vaðið. Hann
birtir það nú í stefnuskrá sinni
að hann vilji lækka fasteigna-
gjöld í Reykjavík um 20%. En er
þetta ekki nokkuð seint? Er nú
líklegt að nokkur Reykvíkingur
taki mark á þessum orðum
„Nú eru kosningar
framundan. Framsóknar-
flokkurinn finnur óánægju
almcnnings brenna á sér.
I»á er gripið til þess ráðs
að lofa því að gera aldrei
aftur það, sem flokkurinn
barðist haröri baráttu fyrir
á þessu kjörtímabili. Hver
trúir nú slíkum málflutn-
ingi?“
flokksins, þegar ferill hans er
skoðaður síðustu 4 ár? Þessi
stefna er nefnilega dæmigerð
um það, þegar stjórnmála-
flokkur segir eitt en framkvæm-
ir annað. Orð og gjörðir stand-
ast ekki á.
Framsóknarflokkiirinn iolar nú
20% lækkun fasteignagjalda. Flokk-
urinn lét þaö þó verða sitt fyrsta
verk á þessu kjörtímabili aö afnema
20% afslátt sjálfstæöismanna og
hækka fasteignagjöldin, sem því
nam. Framsókn lofaði fyrir kosn-
ingarnar 1978 aö hækka ekki fast-
eignagjiild á venjulegum ibúöum.
Hver skyldi trúa þessu loforði
flokksins nú?
Sjálfstæðismenn
veittu 20% afslátt
I lögum um tekjustofna sveit-
arfélaga segir, að skattur af
íbúðarhúsnæði skuli vera 0,5%
af fasteignamati. Þó er sveitar-
stjórn heimilt að hækka eða
lækka skattinn um 25%. Sjálf-
stæðismenn í borgarstjórn not-
færðu sér árum saman þessa
heimild um afslátt og lækkuðu
skattinn um 20%, þannig að
álagningarprósentan varð 0,421
af fasteignamati. Þegar vinstri
flokkarnir tóku völdin í Reykja-
vík árið 1978 varð það eitt af
þeirra fyrstu verkum að hækka
fasteignagjöldin. Þeir afnámu
20% afslátt sjálfstæðismanna
og hækkuðu álagningarprósent-
una í 0,5.
Sjálfstæðismenn í borgar-
stjórn voru mjög andvígir þess-
ari hækkun og vildu halda sér
við þær álagningarreglur, sem
giltu í þeirra valdatíð. Um þetta
hefur verið deilt í borgarstjórn
á hverju einasta ári í fjögur ár. í
hvert sinn, þegar fjárhagsáætl-
unin hefur verið til afgreiðslu í
borgarstjórn hafa sjálfstæðis-
menn flutt tillögu um að lækka
fasteignagjöldin að nýju og taka
upp aftur þann 20% afslátt, sem
áður var gefinn. Vinstri flokk-
arnir í borgarstjórn hafa allir
fellt þessa tillögu. Framsóknar-
flokkurinn hefur í heilt kjör-
tímabil staðið gegn því að borg-