Morgunblaðið - 30.04.1982, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.04.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982 13 Rætt við Sigmund Örn Arngrímsson aðstoðarleikstjóra og söngvarana Júlíus Vífil Ingvars- son og Katrínu Sigurðardóttur Júlíus Vífill Ingvarsson Ljóxm. KmíMa Sigmundur Örn Arngrimsson aðstoðarleikstjóri Ljósm. rax. Katrín Siguröardóttir erettuhúsið, Volksoper, og skemmt mér konunglega. Þar ríkir mjög sérstæður andi — þar klappa áhorfendur undir tónlist- inni, taka jafnvel undir meðan á sýningu stendur og þar er gjarnan hlegið dátt. Andinn þar er aiveg gjörólíkur þeim virðulega anda sem ríkir í Staatsóperunni í sömu borg. Það var einmitt þess vegna sem Wilfried Steiner var fenginn til að setja Meyjaskemmuna upp hérna. Hann hefur starfað mikið í Vín- arborg og er gagnkunnugur þess- um óperettustíl. Hann lagði mikla áherslu á að létt væri yfir leikur- um og söngvurum, það er mikið sprellað í sýningunni." Hvernig hefur þér fundist sýn- ingarnar heppnast? „Það er aö sjálfsögðu ekki mitt að dæma en ef maður tekur óper- ettusýningar eins og þær gerast þá held ég að þessi sýning hafi heppnast mjög vel. Á þessum tveim sýningum, sem búnar eru, hefur verið létt yfir áhorfendum og mér hefur fundist að þeir taki þessu mjög vel. Það hefur mjög góð áhrif á mann að finna að áhorfendur hrífast með — maður magnast allur upp og á auðveldara með að samlagast hlutverkinu. Ég held þess vegna að við getum verið ánægð með þær viðtökur sem við höfum fengið.“ „I»rátt fyrir tilfinninga- semina er hún einlæg“ „Þetta hefur verið bæði spenn- andi og krefjandi. Það sem hefur verið erfiðast er það hvað bland- ast mikið saman söngur og tal í þessu hlutverki," sagði Katrín Sig- urðardóttir er blm. Mbl. spurði hana hvernig henni hefði fundist að taka við hlutverki Hönnu í Meyjaskemmunni, en það er henn- ar fyrsta hlutverk. „Ég lauk tónmenntakennara- prófi frá Tónlistarskóla Reykja- víkur en eftir það fór ég í Söng- skólann og lærði þar söng hjá Þur- íði Pálsdóttur óperusöngkonu. Þaðan lauk ég söngkennaraprófi og stunda nú nám hjá einkakenn- ara í Svíþjóð," segir Katrín er blm. Mbl. innir hana eftir hvar hún hefur lært söng. Hvernig fellur þér við hlutverk- ið? „Hanna er ung ástfangin stúlka en hugsanir hennar og viðbrögð eru mjög ólík því sem við eigum að venjast. En mér fellur ágætlega við hana því þrátt fyrir tilfinn- ingasemina er hún einlæg. Ég held að mér sé óhætt að segja að það falli minni rödd ágætlega að syngja tónlist Schu- berts. Hins vegar er þetta hlut- verk sem ég syng á svonefndu miðsviði, og það er e.t.v. ekki mitt sterkasta svið. Annars er það ekki mitt að dæma um hvernig til hef- ur tekist — ég hef reynt að gera mitt besta og vona að sú fyrirhöfn hafi skilað árangri." Og hvað er svo framundan? „Frekara söngnám í Svíþjóð — mér hafa ekki boðist önnur hlut- verk þannig að ég hyggst snúa mér að nárninu á ný þegar sýning- um á Meyjaskemmunni lýkur." Er samkeppnin um hlutverk ekki orðin töluvert hörð milli söngvara hér? „Jú, hún er það eflaust. En ís- lendingar hafa líka alltaf verið óþreytandi í því að hlusta á söng, þannig að söngvarar verða seint of margir hér á landi,“ sagði Katrín. /kjrliliLA AUSTURSTRÆT117 STARMÝRI 2 SUMIR VERSLA DÝRT - AÐRIR VERSLA HJÁOKKUR FULLborð af nýjum ferskum kjötvörum Rauð B.C. Appelsínur epl' 19'-® 16 '5<> Leyft verð 24.00 Leyft verð 22.00 Blóð , 1^7.80 ^ appelsmur 1 / ss2i.oo Svínakótilettur 168.J?g Nýtt svínalæri 78.?r?( 1 kg Ríó aðeins Kaaberkaffi íslenskar Leyft verð 57.20 agúrkur AÐEINS 30.» Leyft verö 42.00 Unghænur AÐEINS 50 » pr.kg. Leyft verð 57.50

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.