Morgunblaðið - 30.04.1982, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 30.04.1982, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982 BYGGISTÁ ÞESSU Þið fáió steypustál járnbindivír mótavír gluggagirði þakbita þakjárn pípur í hitalögn og vatnslögn í birgðastöó okkar Borgartúni 31 sími27222 Allt úrvals efni á hagkvæmu verði. Traust og ending hvers mannvirkis byggist á góöu hrá- efni og vandaðri smíói. ÞAÐ SINDRA STALHF KLÆÐIÐAF STEYPUSKEMMDIR MEÐ ÁLKIÆÐNINGU 0 I I Nýleg könnun Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins á steypuskemmdum og sprungumyndunum í íslenskum húsum leiddi í Ijós að ein haldbesta vörnin er að klæða húsin áli. A/KLÆÐNING ásamt fylgihlutum uppfyllir allar óskir um gerðir, liti og lengdir. A/KLÆÐNING hefur allt sem til þarf, allt til síðasta nagla. INNKAUP HE ÆGISGÖTU 7. REYKJAVÍK - SÍMI 22000 Liðsauki til ÍR Körfuknattleiksdeild ÍR hefur borist góður liösauki fyrir næsta keppnistímabil og ekki mun veita af, því þaö vantaöi tilfinnanlega breidd í úrvalsdeildarliö félagsins. Liðsauk- inn er fólginn i þeim Hreini l>or- kelssyni og Kristjáni Oddssyni, sem báöir hafa ákveöið að ganga í ÍR. Hreinn hefur leikiö meö Grindavík í 1. deild, hann er bráðefnilegur leik- maður og var m.a. valinn í landsliðiö á hinum nýlokna vetri. Kristján þekkja ÍR-ingar betur, hann var áö- ur í ÍR, en líkaöi ekki lífið í þeim herbúðum undir forystu Bob Stanl- eys síðasta vetur og gekk til liös við KR. Þá er það að frétta af ÍR- vígstöðvunum, að félagið er langt komið í samningaumleitunum við bandarískan þjálfara fyrir úr- valsdeildarliðið. Er hér ekki um leikmann að ræða og reyndar óvíst hvort félagið teflir fram Banda- ríkjamanni þó þeir verði ekki bannaðir. — gg. • Paolo Rossi skorar 1 landsleik gegn Spáni. Rossi með Juventus á sunnudaginn í GÆR rann út 2 ára bann, sem Paolo Rossi, ítalski knattspyrnu- framherjinn frábæri, var dæmdur í fyrir meinta þátttöku í mútumálinu sem skók ítölsku knattspyrnuna fyrir tveimur árum. Dpphaflega var hann dæmdur í þriggja ára bann, en áfrýjunardómstóll mildaði dóminn í 2 ár. ítalska knattspyrnustórveldiö Juventus festi fljótlega kaup á stráknum eftir að hannið tók gildi, borgaöi Perugia offjár og á laugar- daginn rennur sá dagur upp aö Rossi fær tækifæri til aö vera traustins verður. Juventus mætir Udinese á úti- velli á laugardaginn og eftir að hafa skorað 4 mörk í æfingarleik með Juventus í vikunni var hinn 25 ára gamli Rossi valinn í liðið. Juventus og Fiorentina eru efst og jöfn í ítölsku deildarkeppninni um þessar mundir og það er margra álit að tilkoma Rossi í lið Juventus muni gera útslagið um hvort liðið verður ofan á. Þá er endurkoma Rossis ekki síður mikilvæg fyrir ítalska lands- liðið í knattspyrnu sem reynir í sumar að verða heimsmeistari. Það hefur löngum loðað við ítalska liðið að það geti ekki skorað mörk. En þegar Rossi skaust kornungur upp á stjörnuhimininn í Argent- ínu 1978, var hann einn af mark- hæstu mönnum HM og maðurinn á bak við óvænta velgengni ítalska landsliðsins, sem hafnaði í 4. sæt- inu. Jafntefli NOREGUR og Finnland skildu jöfn í vináttulandsleik í knattspyrnu sem fram fór í Stavangri í gær. 1—1 urðu lokatölurnar, Ikalainen skoraði fyrir Finna, en Hallvar Thoresen jafnaöi fyrir Noreg. Paal Jakobsen var rek- inn út af i síðari hálfleik. Einn með 12 rétta í 32. leikviku getrauna kom fram aöeins ein röö meö 12 réttum og var vinningur fyrir hana kr. 123.815. - en meö 11 rétta reyndust vera 36 raðir og vinningur fyrir hverja röö kr. 1.474.- Tólfarinn er í eigu Reykvík- ings, scm var meö 36 raða kerfisseð- il og tekur því meö sér einnig 6 raðir meö 11 réttum, og heildarvinningur fyrir seðilinn veröur því kr. 132.659,- Fyrsta opna golfmótið GOLFKLÚBBUR Hellu Rangárvöll- um gengst fyrir afmælismóti á Strandarvelli á Rangárvöllum laug- ardaginn 1. maí nk. Leiknar verða 18 holur meö og án forgjafar. Ræst verður út kl. 9—11 fyrir hádegi og 13—15 eftir hádegi, og er væntan- legum þátttakendum bent á að mæta innan þessara tímamarka. Á árinu verður GHR 30 ára, en klúbburinn var stofnaður 22. júní 1952 að frumkvæði feðganna Helmuts og Rudolfs Stolzenwald, Ásgeirs Ólafssonar og fleiri áhugamanna á Hellu. Fyrstu 10 árin hafði GHR vallaraðstöðu á Rangárbökkum við Hellu, en næstu 10 árin lá starfið að mestu niðri, vegna aðstöðuleysis og ann- arra orsaka, en 1972 fær GHR land á Strönd til afnota, og 1977 er orðin veruleg gróska í starfsem- inni, vellinum komið í rækt og vel við haldið, og meðlimum hefur fjölgað ár frá ári, og eru nú í dag 50—60, flestir frá Hvolsvelli og Hellu. Frá sl. sumri hefur staðið yfir bygging golfskála, sem verður tek- inn í gagnið 1. maí, og GHR hefur tryKRt sér land undir 18 holu völl, og áformað er að hefja fram- kvæmdir við stækkun vallarins á þessu sumri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.