Morgunblaðið - 30.04.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 30.04.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982 31 Krá I>órarni Kagnarssyni í Kdinborg. I>RÁTT fyrir að islenska liðið í körfuknattleik tapaði með 24 stiga mun, 90—114, gegn Ungverjum í öðrum leik sínum á Kvrópukeppn- inni í körfuknattleik, sýndi liðið allt annan og betri leik en er þeir mættu Austurríkismönnum í fyrsta leik keppninnar. íslenska liðið lék án fyrirliða síns, Jóns Sigurðssonar, sem er meiddur og veikti það liðið talsvert. Ungverjar eru sennilega með lang sterkasta lið keppninnar, leikmenn liðsins allir mjög hávaxnir, flestir yfir 2 metrar, og því var mjög gott hjá íslensku leikmönnunum að skora 90 stig gegn jafn sterku liði. Leikur íslenska liðsins gefur vonir um að hugsanlega takist að sigra Skota í leiknum í dag. Strangir dómarar Fyrri hálfleikur einkenndist af mjög strangri dómgæslu, dómar- arnir frá Egyptalandi og Austur- ríki. Voru menn á eitt sáttir um að annað eins hefði ekki sést. Leik- menn máttu varla anda á mót- herja sína, þá voru þeir komnir með villu. Alls voru 40 villur dæmdar á leikmenn beggja liða í fyrri hálfleik, 23 á Ungverja og 17 á Islendinga! Fyrri hálfleikur stóð í nær klukkustund og gerðu leik- menn lítið annað en að labba á milli og taka vítaskot. Ungverjar hófu leikinn af gíf- urlegum krafti og voru íslensku leikmennirnir í miklum vandræð- um með hina hávöxnu og eld- snöggu Ungverja. Eftir fimm mín- • Torfi Magnússon var stigahæstur íslensku leikmannanna. ísland á uppleið — þrátt fyrir stórtap gegn Ungverjum útur var staðan orðin 19—9 og eft- ir 8 mínútur var staðan 25—9. Þegar fyrri hálfleikur var hálfn- aður, höfðu Ungverjar náð 19 stiga forskoti, 35—16. En síðari hluta hálfleiksins virtust íslensku leikmennirnir átta sig nokkuð og léku þá af mun meiri yfirvegun og hálfleikstölurnar voru 60—47 fyrir Ungverjaland. Talað við dómarana Svo ofbauð mönnum dómgæsl- an, að yfirmaður mótsins fór til dómaranna í hálfleik og gerði þeim grein fyrir því að með því- líkri dómgæslu yrði sennilega einn leikmaður á móti tveimur í liðun- um síðustu fimm mínúturnar! Voru þeir vinsamlegast beðnir að bæta gæsluna og það gerðu þeir í síðari hálfleik. Einum leikmanna varð að orði, að það hlytu að vera öðruvísi körfuknattleiksreglur í Egyptalandi, en þá sagði einn Skotinn, að egypski dómarinn hefði fengið nýja flautu í jólagjöf og væri að nota hana í fyrsta skiptið! Góður sprettur Gífurlegur hraði var í leik beggja liða í síðari hálfleik. ís- lenska liðinu tókst mjög vel upp og sýndi mjög góða leikkafla. Um miðjan hálfleikinn hafði liðinu tekist að minnka muninn niður í 8 stig. En þá var aftur gefið eftir, Ungverjarnir sigldu fram úr og eftir það var sigur þeirra aldrei í hættu. Besta hlið íslenska liðsins var varnarleikurinn og þar börð- ust allir leikmenn mjög vel. Leikmenn voru nokkuð jafnir að getu, en þó komu Ríkharður Hrafnkelsson, Valur Ingimund- arson og Viðar Vignisson, sem er minnsti miðherji keppninnar (1,92), einna best frá leiknum. Leikurinn í tölum íslenska liðið átti 84 skot utan af velli, 30 hittu, en það er 35 pró- sent skotnýting. Liðið fékk 41 vítakast, hitti úr 30, en það er 73 prósent nýting. Þá náðu leikmenn 13 sóknarfráköstum og 22 varnar- fráköstum. Stig íslands: Torfi Magnússon 18, Valur Ingimundarson 17, Rík- harður Hrafnkelsson 16, Símon Ólafsson 16, Viðar Vignisson 7, Axel Nikulásson 6, Guðsteinn Ingimarsson 4, Kristján Ágústs- son 4 og Jón Kr. Gíslason 2 stig. Bestu skotnýtingu íslensku leik- mannanna hafði Kristján Ág- ústsson, 50 prósent, og Torfi Magnússon kom næstur með 45 prósent. Símon Ólafsson hirti flest fráköst, eða 11 stykki. Valur náði 7 fráköstum. Ungverska liðið átti 87 skot utan af vellinum, skoraði úr 46 þeirra, eða 52 prósent. Liðið fékk 27 vítaskot og hitti úr 22 þeirra, eða 81 prósent. Ungversku leik- mennirnir hirtu 18 sóknarfráköst og 36 varnarfráköst. Stigahæsti leikmaður liðsins og jafnframt sennilega besti leikmaður móts- ins, var Losonczy. Hann skoraði 38 stig, en lék samt aðeins með í 18 mínútur. Símon Ólafsson fékk flestar villur islenska liðsins, fimm stykki og varð að hverfa af leikvelli á 34. mínútu. Ríkharður og Torfi fengu báðir 4 villur. Tveir Ungverjar fóru út af með fimm villur í síðari hálfleik. Önnur úrslit ÚKSLIT annarra leikja í Skotlandi urðu þau, að Austurríki vann írland 69—59 og Skotar sigruðu Kgypta 86—74. Ungverjar, Skotar og Aust- urríkismenn hafa allir 4 stig hver þjóð, íslendingar, Kgyptar og írar eiga enn eftir að hala inn fyrstu stig- in. „Er tilbúinn að fara til Stuttgart" — segir Ásgeir Sigurvinsson „ÞAÐ hafa farið fram viðræður milli Bayern og Stuttgart og ég er tilbúinn að gerast leikmaður hjá Stuttgart ef samningar takast," sagði Ásgeir Sig- urvinsson knattspyrnumaður í sam- tali við Morgunblaðiö í gærkvöldi. Það hefur komið fram áður að Stuttgart hafi mikinn áhuga á því að fá Ásgeir til að taka stöðu þýska landsliðsmannsins Hansi Múller, sem er á förum til Ítalíu eftir þetta keppnistímabil. I blöð- um bæði í Múnchen og Stuttgart hafa að undanförnu birst fréttir um að Ásgeir fari að öllum líkind- um til Stuttgart og að félagið muni láta varnarmanninn Bernd Martin upp í kaupin. Engar tölur hafa verið nefndar í blöðunum. „Stuttgart hefur bæði rætt við Bayern og mig en ekkert hefur verið ákveðið ennþá. En ég hef mikinn áhuga á því að skipta um félag og er tilbúinn að fara til Stuttgart," sagði Ásgeir. „Ég hef lítið fengið að spreyta mig í vetur og það hefur tekið á taugarnar. Utslagið gerði leikurinn gegn Duisburg núna í vikunni, þá fékk ég ekki tækifæri þótt Breitner væri meiddur. Að öllu óbreyttu eru ekki miklir möguleikar fyrir mig hjá Bayern og því tel ég rétt- ast að fara að líta annað. Það myndi henta mér vel að fara til Stuttgart því mér líkar mjög vel að búa í Þýzkalandi og knatt- spyrnan hér er fyrsta flokks eins og allir vita,“ sagði Ásgeir að lok- um. — SS. Ásgeir Sigurvinsson í búningi þýska stórveldisins Bayern Miinchen. Þjálfaramál Vals í höfn: Bo iris i ag Stefán þjá Ifa Va llslið lið j i sar neinin m VALSMKNN gengu í gær frá þjálf- aramálum sínum fyrir næstu hand- knattleiksvertið, en augu manna hafa beinst talsvert að því hvernig þeir myndu leysa þau mál sín. Út- koman varð sú, að Stefán Gunn- arsson og Sovétmaðurinn Boris Akbashow munu hafa samvinnu með undirbúning og þjálfun liðs- ins. Þeir Boris og Stefán eru Vals- mönnum að góðu kunnir, Stefán lék segi kunnugt er með Val um árabil og tók við liðinu um skeið á síðasta keppnistímabili eftir að Boris var látinn hætta, en lið- inu hafði gengið illa undir hans stjórn. Þessi tilhögun er þó háð því að Valsmenn fái framlengingu á dvalarleyfi Borisar hér á landi. Samningstími hans við Val rennur út 1. júní og Valsmenn eru nú að vinna að því að halda honum fram á haustið. Er ekki útséð um hvernig það gengur, því samningsaðilinn er í raun íþróttaráð Sovétríkjanna og svona viðræður taka sinn tíma. Er hugmyndin sú, að fái Vals- menn að halda Boris fram á haustið, muni hann sjá um und- irbúning liðsins í sumar og skila því vel undirbúnu í hendur Stef- áns Gunnarssonar, sem mun eiga erfitt með að þjálfa liðið í sumar vegna anna. Muní Stefán síðan stýra liðinu í 1. deiidar keppninni næsta vetur. — gg. Stjarnan endur- réoi Gunnar E. STJARNAN í Garðabæ, sem sigr- aði f 2. deildar keppninni i hand- knattleik á síðasta vetri og vann sig þar nieð upp i 1. deild í fyrsta skiptið í sögu sinni, gekk i gær frá endurráðningu Gunnars Kinars- sonar, en hann sá um þjálfun liðs- ins á síðasta keppnistímabili. Jafn- framt mun Gunnar leika með lið- inu, en hann hefur náð sér af slæmum meiðslum sem háðu hon- um á siðasta keppnistímabili og voru þess valdandi að hann gat aðeins leikið fáa leiki. Undirbúningur Stjörnunnar hefst fljótlega og í ágúst heldur liðið í æfingabúðir til Vestur- Þýskalands. Þá fer Gunnar á þjálfaranámskeið um mánaða- mót júlí og ágúst. — gg. „Of smávaxnir“ Krá l>«rarni Kagnarssvni í Kdinhorg. UNGVERSKI þjálfarinn, Matyas Ranky, sagði eftir leik Islands og Ungverja- lands, að íslenska liðið hefði komið sér verulega á óvart með góðum leik. „Sér í lagi var vörn liðsins hreifanleg og sterk, en þeir eiga í miklum erfiðleikum þar sem þeir eru svo smávaxnir. Það háði leiknum nokkuð hversu strangir dómararnir voru í fyrri hálfleiknum og leik- menn beggja liða misstu taktinn fyrir vikið. Ég á von á því að okkar lið vinni mótið, en erfiðasti mótherjinn verð- ur austurríska liðið.“ Einar Bollason landslidsþjálfari „Ég var að mörgu leyti ánægður með leik íslenska liðsins, þetta var allt annað og betra heldur en gegn Austurríki og vonandi er þetta að koma hjá okkur. Þessi leikur hefði orðið jafn og spennandi ef við hefðum notið krafta Jónasar og Jóns Sigurðssonar. Leikurinn gegn Skotum verður erfiður, en við munum leggja allt í sölurnar til að ná í okkar fyrstu stig í mótinu. Vonandi getur Jón leikið með gegn Skotum." íslandsmet GUÐRÚN Ingólfsdóttir setti nýtt og glæsilcgt íslandsmet í kúluvarpi á innanfélagsmóti KR í gærkvöldi. Varpaði Guðrún kúlunni 15,11 metra og bætti þar með sitt eigið met veru- lega, en það var 14,21 m. Kramfarir Guðrúnar hafa verið örar að undan- fórnu og þakkar hún því ekki síst sérhönnuðum Adidas-skóm sem hún klæðist nú orðið við keppni. — gg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.