Morgunblaðið - 30.04.1982, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982
Minning:
Stefán Bjarnason
verkfrœðingur
Kveðja frá starfsfélögum í
Iðntæknistofnun Islands
í dag kveðjum við félaga okkar
og vin, Stefán Bjarnason, verk-
fræðing. Hann réðist til starfa hjá
Iðntæknistofnun íslands (sem þá
hét Iðnaðarmálastofnun) árið
1965 og starfaði þar óslitið i 16 ár.
Þegar Stefán kom þar til starfa
átti hann fjölbreyttan starfsferil
og mikla lífsreynslu að baki. Hann
var kominn af dugmiklum og lífs-
glöðum foreldrum, og sjálfur mun
hann ekki hafa sparað krafta sína
og fjör meðan allt lék í lyndi, enda
var hann ör í lund og skjótur til
athafna eins og margir af ætt-
mennum hans.
Stefán hóf störf sín hjá Iðn-
tæknistofnun sem ráðgefandi
verkfræðingur og ávann sér fljót-
lega vináttu þeirra, er með honum
störfuðu, því að hann var félags-
lyndur maður og lífsglaður. En
brátt kom í ljós, að hann gekk ekki
heill til skógar. Eins og margir
góðir drengir hafði hann ekki
ávallt verið sigursæll í baráttunni
við hin viðsjálu öfl tilverunnar.
Styrjaldarárin munu hafa verið
honum þungbær, en þá dvaldi
hann erlendis, oft við erfiðar og
hættulegar aðstæður, en um þá
reynslu var hann ekki margorður.
Við, sem með honum störfuðum,
sáum hvernig þjakandi sjúkdómur
lagði hramm sinn af æ meiri
þunga á þennan lífsglaða mann.
Stefán var ekki gefinn fyrir að
kvarta, en aðeins þeir, sem reynt
hafa, vita hve þungbært það er
vinnufúsum manni að finna krafta
sína þverra og neyðast til að hopa
á hæli á vettvangi hinna daglegu
starfa.
Sá sem þessi kveðjuorð ritar
fyrir hönd starfsfélaga Stefáns
hefur þekkt hann frá barnæsku,
og ósjálfrátt koma margar minn-
ingar frá æskuárunum upp í hug-
ann. Ég minnist þess, er við
nokkrir félagar vorum á ferð heim
í jólaleyfi úr menntaskóla. Við
höfðum gengið í ófærð allan dag-
inn fram í myrkur, því að þá voru
hvorki jeppar né vélsleðar. Um
kvöldið ókum við síðan á hesta-
sleða út á ísilagt vatn. Það hafði
hlýnað í veðri og ísinn tekinn að
bráðna. Brak og brestir kváðu við
er við þeystum í stjörnubjartri
nóttinni yfir ísiiagða slóð. Þetta
var eins og ævintýraferð í álf-
heimum, og við vorum ungir og
fullir af fögnuði og lífsþorsta.
Þannig vildi ég minnast Stefáns.
Nú hefur þessi vinur okkar
fengið þá hvíld er hann þráði svo
mjög síðustu árin. Enginn veit
hvað við tekur að enduðu æfiskeiði
hér. Enginn þekkir með vissu
„rúnir þær, sem ráðast hinumeg-
in“. Samt leyfi ég mér, fyrir hönd
+
Okkar innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö hiö
sviplega andlát ástkærs sonar okkar, bróöur, mágs og frænda,
ÆVARS RAGNARSSONAR,
Hrísalundi 8.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og stjórnar Nesskips hf. og skipsfé-
laga ms. Suöurlandi.
Sigríöur Tryggvadóttir, Ragnar Pálsaon,
aystkini, mágar, mágkonur
og frændsystkiní.
Hjartanlegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
útför
JÓSAFATS SIGVALDASONAR,
Blönduóai.
Ingibjörg Pétursdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og jaröarför
GUÐMUNDAR B. ODDSSONAR
frá Bolungarvík.
Sérstakar þakkir færum við lækni og starfsfólki sjúkraskýlis
Bolungarvikur fyrir góöa umönnun í veikindum hans.
Valgeróur Pálmadóttir,
Höskuldur Guömundason,
Margrét Guömundadóttir, Einar Róbert Árnason,
Oddur Guömundason, Valborg Baldvinsdóttir,
Jakobína Guömundsdóttir, Jónas Georgsson,
Anna Guömundsdóttir, Benedikt Jónsson
og barnabörn.
+
Þökkum innilega samúöarkveöjur, minningargjafir og allan hlýhug
viö andlát og útför fööur okkar, fósturfööur, tengdafööur, afa og
langafa,
SÆMUNDAR ELÍASAR ARNGRÍMSSONAR,
Landakoti, Álftanesi.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks og starfsfólks Borgarspítalans.
Halldóra Sæmundsdóttir, Einar Einarsson,
Jóanna Sæmundsdóttir, Guömundur Georgsson,
Ragnhildur Jónsdóttir,
Arngrímur Sæmundsson, Bára Þórarinsdóttir,
Hildimundur Sæmundsson, Aöalheióur S. Steingrímsdóttir,
Guöjón Brynjólfsson, Sigríöur Steindórsdóttir,
Jóhannes Hjaltested, Sigurlaug Stefánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Skattur á verslunar-
og skrifstofuhúsnæði
samþykktur sem lög
okkar starfsfélaga Stefáns, að
óska honum fararheillar á nýrri
vegferð. Kveðjur og hlýjar hugs-
anir okkar munu fylgja Stefáni yf-
ir landamærin miklu.
Jón Bjarklind
FRUMVARP til laga um sérstak-
an skatt á verzlunar- og skrif-
stofuhúsnæði var samþykkt sem
lög i efri deild Alþingis í gær. Níu
þingmenn greiddu atkvæði með
frumvarpinu, fimm voru á móti en
sex voru fjarverandi.
Þeir sem greiddu atkvæði með
frumvarpinu voru: Helgi Seljan,
Davíð Aðalsteinsson, Geir Gunn-
arsson, Gunnar Thoroddsen, Jón
Helgason, Sigrún Magnúsdóttir,
Stefán Guðmundsson, Stefán
Jónsson og Tómas Árnason.
Sjálfstæðismennirnir Egill
Jónsson, Sigurlaug Bjarnadóttir,
Lárus Jónsson og Salome Þor-
kelsdóttir og alþýðuflokksmaður-
inn Eiður Guðnason greiddu at-
kvæði á móti, en Eiður lýsti því
yfir að stuðningi Alþýðuflokksins
við þetta mál væri lokið, vegna
þess að ekki var fallist á breyt-
ingartillögu flokksins um lækkun
á skattinum.
Allmörg önnur lög voru sam-
þykkt á miðvikudag. Meðal þeirra
voru frumvörp til laga eða breyt-
inga á lögum um eftirtalin efni:
Söluskatt (tvö frumvörp), tollskrá,
aflatryggingasjóð sjávarútvegs,
ríkisborgararétt, Listskreytinga-
sjóð, fangelsi og vinnuhæli, verð-
lag og samkeppnishömlur, stofn-
fjárdeild landbúnaðar,
Búnaðarmálasjóð, ábúðarlög,
jarðalög og almannatryggingar.
Eigendur Þrekmiðstöðvarinnar í tækjasalnum, f.v.: Geir, Niels, Páll og kennarinn Ómar Stefánsson.
„Markmiðið er holl
hreyfing fyrir alla“
— segja eigendur nýju Þrekmiðstöövarinnar í Hafnarfirði
ÞREKMIÐSTÖÐIN að Dalshrauni 4 í Hafnarfirði hóf starfsemi sina um
siðustu helgi, en þar er boðið upp á alhliða íþróttaaðstöðu fyrir fólk á
öllum aldri. Má þar nefna leikfimi og lyftingar en auk aðstöðu í tækjasal
geta hópar og einstaklingar fengið afnot af 240 fermetra íþróttasal þar
sem stunda má inniíþróttir af ýmsu tagi. Auk þess er boðið upp á
gufuböð, Ijósalampa, nudd og í sérstöku sólbaðsskýli eru heitir pottar þar
sem menn geta slakað á eftir æfmgarnar. Boðið er upp á sérstaka tima
fyrir konur og íþróttakennarar verða til staðar og lciðbeina allan daginn.
Eigendur Þrekmiðstöðvarinn-
ar eru íþróttakennararnir Geir
Hallsteinsson, Páll Ólafsson og
Niels Á. Lund, og auk þeirra
mun Ómar Stefánsson íþrótta-
kennari annast kennslu, en hann
er sérmenntaður í íþróttanuddi.
Á fundi með fréttamönnum
sögðu eigendurnir að markmið
þeirra væri holl hreyfing fyrir
fólk á öllum aldri og væri lögð
áhersla á að leiðbeina fólki eftir
aðstæðum og óskum hvers og
eins. Þá bentu þeir sérstaklega á
sér tíma fyrir konur en þeir eru
mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga frá klukkan 9.50 til
12.00 og svo mánudags- og mið-
vikudagskvöld frá kl. 19.40. Á
þeim tíma og klukkan 20.30 verð-
ur sérstök frúarleikfimi í
íþróttasalnum undir handleiðslu
kveníþróttakennara. Þá kváðust
þeir einnig vilja höfða til eldri
borgara með sérstaka tíma á
morgnana og til greina kæmi að
Félagsmálastofnun greiddi niður
tíma fyrir gamla fólkið.
Að öðru leyti er Þrekmiðstöð-
in opin fyrir fólk á öllum aldri og
af báðum kynjum og eru opnun-
artímar á mánudögum til föstu-
daga frá klukkan 7.00 til 22.00, á
laugardögum frá klukkan 8.00 til
19.00 og á sunnudögum frá
klukkan 9.00 til 19.00. Hægt er
að fá staka tíma og einnig kaupa
mánaðarkort og fyrirtæki og
hópar með yfir 10 manns fá sér-
stakan afslátt á aðstöðu í
íþróttasalnum.
Frost og snjó-
koma á Dalvík
Dalvík, 28. april.
ÞEGAR Dalvíkingar litu út um fóta-
ferðartíma i morgun var jörð alhvít
og mældist 20 cm jafnfallinn snjór,
en snjó hafði að mestu tekið upp af
láglendi. Þegar á daginn leið gerði
norðan kalda með töluverðri snjó-
komu og er nú hriðarveður með 2 til
3 stiga frosti. Eins og veðurútlit er
nú er ekki hægt að segja að sérlega
vorlegt sé yfir að lita. Það er gamalla
manna trú hér á Dalvik að ryðji
Svarfaðardalsá sig fyrir sumarmál
eigi hana eftir að leggja aftur fljót-
lega. Nú á þessu vori gerðist það að
áin ruddi sig fyrir sumarmál, en von-
andi rætist ekki hin gamla trú að
þessu sinni.
Aflabrögð eru sem fyrr með ein-
dæmum léleg hér um slóðir og má
telja að jaðri við fiskleysi. Vegna
aflaleysis hafa 2 bátar héðan sótt
eftir páskastoppið á miðin sunnan
við land og í dag landar annar
þeirra, mb. Bliki, aflanum hér
heima, um 80 lestum. Loðnan
staldraði lítið við hér á víkinni, á
göngu sinni inn Eyjafjörð að þessu
sinni, en smá reytingur af þorski
fylgdi henni og hafa minnstu
dekkbátar lagt net sín hér uppi í
harða landi við sandinn.
Fréttaritarar.