Morgunblaðið - 30.04.1982, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.04.1982, Blaðsíða 32
FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982 um 6—14% Fjármálaráðuneytið hefur gef- ið út reglugerð sem kveður á um la-kkun og niöurfellingu á inn- flutningsgjaldi af bifreiðum og bifhjólum. Innflutningsgjöld hafa þar með verið felld niður af litlum og sparneytnum bifreiðum, en lækkuð af öðrum ökutækjum í 5 til 30 prósent. Aðflutnings- gjöld af bifreiðum hafa verið 35 eða 50 prósent. Breytingar þessar munu hafa í för með sér um 6 til 14 prósent verð- lækkun á bifreiðum og bifhjól- um. Sjá nánar frétt á miðopnu. Síminn á afgreiðslunni er 83033 Lesendaþjónusta Morgunblaðsins: Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 22. maí næst- komandi. Athyglin beinist ekki síst að úrslitunum í Reykjavík, þar sem sjálfstæðismenn keppa að því að endurheimta meirihluta úr höndum vinstri flokkanna. Davíð Oddsson er efsti maður á lista sjálfstæðismanna í Reykjavík og jafnframt borgar- stjóraefni Sjálfstæðisflokksins. Morgunblaðið mun fram að kosningum veita lesendum sín- um þá þjónustu að koma spurn- ingum þeirra um málefni Spurt og svarað um borgarstjórn- arkosningarnar Reykjavíkur og átakamálin í kosningunum á framfæri við Davíð Oddsson. Lesendur geta hringt til rit- stjórnar Morgunblaðsins í síma 10100 milli klukkan 10 og 12 ár- degis, mánudag til föstudags, og verða svör Davíðs Oddssonar við spurningum þeirra birt skömmu eftir að þær berast. Þá má einn- ig senda spurningar í bréfi til ritstjórnar blaðsins. Utan á bréf skal rita: Spurt og svarað um borgarmál, ritstjórn Morgun- blaðsins, Pósthólf 200, 121 Reykjavík. Nauðsynlegt er að nafn og heimilisfang spyrjanda komi fram. Verðlækk- un á bílum • • Ordeyða hjá togaraflotanum: Það eru blikur á lofti, sagði forsætisráðherra ALOJÖR ördeyöa er nú hjá íslenzka togaraflotanum og hefur svo verið um hríð. I>að virðist vera sama hvar togararnir eru á veiöum við landið, hvergi er fisk að fá. Fjölmargir togarar, sem þegar eru búnir með alla „skrapdaga,, eru enn á skrapveiðum, sökum þess að engan þorsk er á fá og fjölmörgum togurum hefur verið lagt við bryggju. Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands ísl. útvegsmanna, sagði í gær, að hann myndi ekki eftir jafn tregum afla, siðan skuttogararnir byrjuðu að koma til landsins snemma á síöasta áratug. Sumir þeirra útgerðarmanna, sem Morgunblaðið ræddi við í gær, sögðu ástandið geigvænlegt. Víða er afli skipanna allt að 50% minni en á sama tíma í fyrra. Þá er nú búið að leggja fjölmörgum togurum í ein- hvern tíma, sökum þess að þeir fiska ekki fyrir olíu, en stóru togararnir eyða til dæmis 20—25 þúsund lítr- um af olíu á sólarhring. Sem dæmi um lélegan afla togar- anna má nefna, að einn Austfjarða- togaranna var með 6 tonn eftir 4 daga og annar landaði 45 tonnum eftir rösklega viku útivist. Togarar á Suðurlandi hafa verið að landa þetta 35 til 100 tonnum eftir 10 til 14 daga útivist. Sömu sögu er að segja af Norðurlandi, einn Akureyrartog- aranna kom inn með 79 tonn eftir fullan útivistartima og hefur aldrei komið inn með svo lítinn afla. Af Vestfjörðum er það að segja, að þar hefur togaraafli minnkað um 40% frá árinu 1980. Margir þeirra, sem Morgunblaðið ræddi við í gær, sögðu, að ekki væri þess að vænta að þorskurinn gæfi sig fyrr en vestanáttin væri gengin yfir, en yfirleitt fiskast illa í vestan- átt við land allt. Þá virðist botninn hafa dottið úr netavertíðinni og eru margir bát- anna nú farnir að taka upp netin. en áður — Það eru blikur á lofti og það getur brugðið til beggja vona, horfur eru ekki bjartar í ár, sagði Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, í upphafi útvarpsumræðna á Alþingi í gær. — Það hefur syrt í álinn vegna óstjórnar og fyrirhyggjuleysis, sagði Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og bætti við, að þrátt fyrir 60% afla- og verðmætisaukningu síðan 1976 hefði ekkert verið búið í haginn, síðan 1978 hefðu liðið 4 glötuð ár. Geir Hallgrímsson sagði, að Al- þýðubandalagið hefði í stjórnartíð sinni síðan 1978 slegið öll met sem kjaraskerðingarflokkur, kaup hefði ekki verið skert oftar en síð- an þá, sem gengislækkunarflokk- ur, dollari hefði hækkað um 300% frá 1978, þar af um 150% í tíð núverandi stjórnar, og sem vaxta- hækkunarflokkur, útlánsvextir hefðu hækkað um 54% frá valda- töku Alþýðubandalagsins. Geir Hallgrímsson minnti á, að frá því að Alþýðubandalagið Miðstjórn ASÍ: Enn brýnna að félög afli verkfallsheimilda „KFTIR þennan síðasta tafaleik Vinnuveitendasambandsins er það enn brýnna en áður, að félögin svari kalli 72ja manna samninganefndar- innar og afli nú þegar verkfallsheim- ilda,“ segir m.a. í samhljóða sam- Íiykkt miðstjórnar Alþýðusambands slands í gær. í samþykktinni lýsir ASÍ furðu á þeirri fáheyrðu ósvífni, sem sambandið segir að felist í kröfu VSI um frestun samninga. Enn- fremur segir ASÍ, að samþykkt VSÍ gangi þvert á ákvæði bráða- birgðasamningsins frá í nóvember um að viðræður skuli fara fram milli 15. marz og 15. maí með lausn samningamála fyrir augum. Sjá samþykkt ASÍ á miðopnu. komst til valda undir kjörorðun- um „samningana í gildi“ og „kosn- ingar eru kjarabarátta“ teldu launþegar kaup sitt hafa verið skert um 25—30%. Karl Steinar Guðnason (A), varaformaður Verkamannasambandsins, sagði í útvarpsumræðunum, að skýrsla Þjóðhagsstofnunar, sem birtist nú í vikunni, væri „ástarjátning" í garð Vinnuveitendasambandsins. Svavari Gestssyni þótti mjög ámælisvert, að Vinnuveitenda- sambandið krefðist þess, að verka- lýðsforingjar styddu ekki Alþýðu- bandalagið. Hann lýsti því yfir, að kjarakröfur Alþýðusambandsins væru hógværar. Steingrímur Her- mannsson, formaður Framsóknar- flokksins, lagði á það áherslu, að staðið yrði við 35% verðbólgu- markmið ríkisstjórnarinnar í ár og „grunnkaupshækkanir að ein- hverju marki“ væru nú óraunhæf- ar, benti hann á nýgerða kjara- samninga fjármálaráðherra við starfsmenn í ríkisverksmiðjum sem hæfilega fyrirmynd um launahækkanir. Halldór Blöndal (S) minnti á, að af samningsgerð fjármálaráðherra Alþýðubanda- lagsins við opinbera starfsmenn hefði leitt 3% rýrnun á kaupmætti taxta þeirra á síðasta ári. Ljósm.: Snorri Snorrmiwn. Komið úr róðri í Grindavík, en þar hefur afli verið tregur að undanfórnu, sem annarsstaðar á landinu. Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í útvarpsumræðunum: Fjögur glötuð ár síðan 1978 Fjölmörgum skipum lagt við bryggju

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.