Morgunblaðið - 30.04.1982, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982
11
Kappræðufundur um borgarmál úr sögunni:
Ungu mennirnir í vinstri flokkunum
treysta sér ekki til að verja meirihlutann
- segir Árni Sigfússon formaður Heimdallar
leik. Þó er kappkostað að viðhafa
fullan heiðarleik gagnvart höf-
undinum, sem sagði: „Ef við hlæj-
um, þá skulum við hlæja að ein-
hverju, sem er þess virði, að hlegið
sé að því.“ Og nú á Eftirlitsmaður-
inn að verða vorgleði Akureyr-
inga, ef mér leyfist að segja svo.
— Nú eruð þið báðar leikstjór-
ar, þið Guðrún Ásmundsdóttir.
Hvernig hafið þið skipt meðykkur
verkum?
— í fyrstu var ætlað, að Guð-
rún tæki að sér allt verkið, en
nokkru síðar varð hún að takast á
hendur hlutverk í nýju leikriti eft-
ir Kjartan Ragnarsson, sem heitir
Skilnaður. Þá valdi hún mig til að
taka við og ljúka verkinu. Við unn-
um alla forvinnu saman í Reykja-
vík ásamt Jóni Hjartarsyni. Svo
kom Guðrún norður og var hér
nokkurn tíma, en um síðustu mán-
aðamót vorum við hér báðar og
samræmdum hugmyndir okkar og
vinnubrögð. Enginn ágreiningur
kom upp milli okkar um skilning
eða efnistök, enda erum við gaml-
ar vinkonur og búnar að þekkjast
lengi. Reyndar var það Guðrún,
sem fyrst kenndi mér leiklist og
leikstýrði fyrstu sýningunni, þar
sem ég kom fram í atvinnuleik-
húsi. Síðan höfum við leikið mikið
saman og ég undir hennar stjórn.
Kannski leikur hún einhvern tíma
undir minni stjórn, hver veit?
— Hefur þú verið leikstjóri oft
áður?
— Frumraunin var „Týnda
teskeiðin" hjá Leikfélagi Sauð-
árkróks, en sú sýning var, — þó að
maður eigi ekki að vera að mont-
ast, — valin á leiklistarhátíð
áhugamannaleikhúsa í Ábo í
Finnlandi. Svo stjórnaði ég líka
tveimur leiksýningum á Selfossi,
„Stalín er ekki hér“ og „Fjölskyld-
an“, og var aðstoðarleikstjóri við
uppsetningu á „Jóa“ eftir Kjartan
Ragnarsson hjá Leikfélagi
Reykjavíkur.
— Hefur þér þótt skemmtilegt
að vinna hér?
— Já, það segi ég satt, og mér
hefur samið mjög vel við leikara
og starfsfólk Leikfélags Akureyr-
ar. Þetta hefur verið skemmtileg-
ur tími. Gestur E. Jónasson leikur
eftirlitsmanninn, Þráinn Karlsson
borgarstjórann og Guðlaug Her-
mannsdóttir borgarstjórafrúna.
AIls eru leikendur ellefu, en
nokkrir eru í fleiri en einu hlut-
verki. — Fyrstu nóttina mína hér
fæddust nokkrir litlir kettlingar
hérna í íbúðinni og hafa dafnað
vel. Það hlýtur að vita á gott og að
allt verði í stakasta lagi hjá okkur.
Sv.P.
arbúar fengju að nýju þennan
20% afslátt af fasteignagjöld-
um.
Ilver trúir nú Framsókn?
Nú eru kosningar framundan.
Framsóknarflokkurinn finnur
óánægju almennings brenna á
sér. Þá er gripið til þess ráðs að
lofa því að gera aldrei aftur það,
sem flokkurinn barðist harðri
baráttu fyrir á þessu kjörtíma-
bili. Hver trúir nú slíkum mál-
flutningi? Hver trúir því í al-
vöru að Framsóknarflokkurinn
muni allt í einu söðla um eftir
kosningar og lækka fasteigna-
gjöldin? Þeir borgarbúar eru
ekki margir, sem láta blekkjast
svo auðveldlega.
í þessu sambandi má og rifja
upp að Framsóknarflokkurinn
hefur áður lofað borgarbúum
ákveðinni meðferð í sambandi
við fasteignagjöld. Fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar 1978 gaf
flokkurinn út stefnuskrá, sem
birt var borgarbúum. Þar stóð
skrifað:
„Fasteignaskattur af hús-
næði, sem svarar til einnar
hæfilegrar íbúðar á fjölskyldu,
verði ekki gerður að frekari
tekjulind borgarinnar en nú er.“
Hvernig efndi Framsóknar-
flokkurinn þetta loforð? Það
þekkja þeir borgarbúar sem
þessa dagana leggja leið sína í
Gjaldheimtuna til að greiða
fasteignagjöld sín.
„Okkur hafa borist svör frá ungu
mönnunum í vinstri flokkunum þrem-
ur, Alþýðuflokki, Alþýðubandalagi og
Framsóknarflokki, en því miður er
niðurstaða þeirra sú, að þeir treysta
sér ekki til að mæta okkur á kapp-
ræðufundi um borgarmál," sagði Árni
Sigfússon, formaður lleimdallar, sam-
taka ungra sjálfstæðismanna, í sam-
tali við Morgunblaöiö í gær. En eins
og áður hefur verið skýrt frá í Morg-
unblaðinu, skoraði stjóm Heimdallar
nýlega á ungliðahreyfingar vinstri
flokkanna til kappræðna um borgar-
mál og þau mál er flokkarnir þrír hafa
staðið sameiginlega að á síðasta kjör-
tímabili.
Að sögn Árna Sigfússonar bárust
öll svörin seinna en Heimdallur
hafði farið fram á, líkt og erfiðlega
hefði gengið að komast að niður-
stöðu um hverju svara skyldi. Er
svörin bárust, hefðu ungir fram-
sóknarmenn sagt að þeir væru til-
búnir til að mæta ungum sjálfstæð-
ismönnum á kappræðufundi, þar
sem væru tveir fulltrúar frá hverj-
um flokki, eða átta samtals. Til vara
hefðu framsóknarmenn nefnt sér-
stakan kappræðufund milli þeirra
og ungra sjálfstæðismanna. Æsku-
lýðsnefnd Alþýðubandalagsins
hefði í sínu svari sagst sem fyrr
reiðubúnir til kappræðna um höfuð-
ágreiningsmálin í íslenskum stjórn-
málum, þar á meðal í málefnum
Reykjavíkurborgar. Þeir töldu á
hinn bóginn „óaðgengilegt" að þrír
flokkar með þrjár stefnuskrár
mættu sjálfstæðismönnum einum.
Svipaðan tón kvað Árni hafa verið í
svari ungra jafnaðarmanna, þeir
vildu ekki koma fram með sam-
starfsflokkum Alþýðuflokksins,
meirihlutanum, gegn minnihluta
sjálfstæðismanna.
„Þessi svör valda okkur miklum
vonbrigðum," sagði Árni Sigfússon.
„Vitað er að mikill áhugi er á borg-
armálefnum nú, þegar reynslan af
fjögurra ára stjórn vinstri manna í
Reykjavík liggur fyrir. Það er hins
vegar greinilegt að ungu mönnunum
í þessum flokkum finnst ekki hafa
verið nægilega vel að málum staðið,
og þeir treysta sér ekki til að koma
fram á kappræðufundi og verja
gerðir meirihlutans. Þetta er í
sjálfu sér skiljanlegt, þegar
„afrekalisti" vinstri meirihlutans er
skoðaður, ungt fólk er heiðarlegt, og
ungu mennirnir vilja ekki taka upp
hanskann fyrir eða verja það sem
þeir eru sjálfir óánægðir með.
Heiðarlegra hefði þó verið að segja
það hreint út, eins og Æskulýðs-
nefnd Alþýðubandalagsins gerir að
vísu svo gott sem: þeir vilja ekki
einu sinni ræða borgarmálin án
þess að blanda landsmálum inní.
Það væri í sjálfu sér allt í lagi af
okkar hálfu, og getur komið til
greina síðar, en nú eru það borg-
armálin sem til umræðu eru. Undan
því geta vinstri menn ekki skotið
sér. En niðurstaðan liggur sem sagt
fyrir: Félag ungra framsóknar-
manna, Félag ungra jafnaðarmanna
og ÆnAb treysta sér ekki til að
verja núverandi borgarstjórnar-
meirihluta á kappræðufundi við
unga sjálfstæðismenn," sagði Árni
Sigfússon að lokum.
Með Útsýn á Amerísku heimssýninguna í
Knoxville, Tennessee. — Tækifæri sem
aðeins býðst einu sinni á ævinni.
Ameríska heimssýningin kemur til með að slá öll met. Alþjóð-
leg sýningarsvæði allt frá Kína til Saudi Arabíu. Heimsþekktir
skemmtikraftar eins og Grand Ole Oþry, Bob Hoþe, Rudolf
Nureyev og Boston-ballettinn, Kabuki-hóþur frá Jaþan, Frank
Sinatra, Dean Martin og Sammy Davies jr. Egyptarnir sýna
fjársjóð Tut-Ank-Amons faraós og Ungverjar sýna auðvitað
töfrateninginn hans Rubiks.
23 daga óviðjafnanleg ferð um Bandarík-
in með viðkomu á
Knoxville-
sýningunni.
1. dagur. Föstudagur Flug til New York. ís-
lenskur fararstjóri tekur á móti hópnum á
Kennedy-flugvelli. Ekiö á hótel Summit á
Manhattan.
2. dagur. Laugardagur: 4ra tima skoöunar-
ferö um neösta (syösta) hluta Manhattan,
m.a. fariö upp á 107. hæö í World Trade
Center-byggingunni, um Lincoln Tunnel
undir Hudson-fljótiö yfir i New Jersey, til
noröurs eftir vesturbakkanum, yfir George
Washington-bruna, upp til Cloisters meö út-
sýn yfir til Palaisades. Frjáls tilhögun siö-
degis
3. dagur. Sunnudagur: 4ra tima skoöunar-
ferö um miöhluta Manhattan, m.a. Rockef-
eller Center, St. Patricks-dómkirkjuna, Linc-
oln Center og Central Park. Frjáls tilhögun
siöd., en bent á skoðunarferð (hringferö um
Manhattan) á báti og skoöunarferö i þyrlu.
4. dagur. Manudagur: Ekiö aleiöis til Bost-
on um Connecticut og Rhode Island. Viö-
koma veröur i Mistic. Conn., ekiö yfir brúna
til Newport, R.l. og um Fall River til Plym-
outh, Plymouth Rock skoöaöur, meöfram
noröurströnd Cape Cod, um Quiney til Bost-
on.
5. dagur. Þriöjudagur: 3ja tima skoöunar-
ferö um miöborg Boston. Siöan ekiö til
Gloucester. gönguferö um þann litrika fiski-
bæ. Siöan ekinn hringurinn um Cape Ann
og aftur til hótelsins i Boston.
6. dagur. Miövikudagur: Ekiö áleiöis til
Montreal i Kanada, noröur um Massachus-
etts, New Hampshire og Vermont. Mjög fal-
leg leiö, áning tvisvar á fögrum útsynisstöð-
um
7. dagur. Fimmtudagur: 3ja tima skoöunar-
ferö um Montreal (Gray Line). Siöari hluti
dagsins frjáls, en bent á skoðunarferö meö
báti á St. Lawrence-fljótinu og heimsókn i
Olympiu-þorpiö.
8. dagur. Föstudagur: Ekiö áleiöis til Tor-
onto i Kanada, eftir noröurbakka Ontario-
vatns. Ein áning. Eftir hótelskránmgu i Tor-
onto veröur fariö upp i C.N. Tower, „Þjóðar-
stolt kanadisks iönaöar".
9. dagur. Laugardagur: Ekiö til Niagara-
fossanna og þeir skoöaöir, meöfram Erie-
vatni norðanveröu til Detroit i Michigan. Ein
ánmg.
10. dagur. Sunnudagur: 3ja tima skoöunar-
ferö um borgina og fariö i Ford-bilasafmö.
Siöari hluti dagsins frjáls.
11. dagur. Manudagur: Ekiö áleiðis til Chi-
cago i lllinois, um landbúnaöarheruö Ohio
og Indiana. Komiö viö i Toledo, Ohio og
South Bend, Ind.
12. dagur. Þriöjudagur: 5 tima skoöunar-
ferö um borgina. m.a. i Sears-turninn,
hæstu byggingu i heimi. Siöari hluti dagsins
frjáls, en bent er á Museum of Industrial
Science.
13. dagur. Miövikudagur: Ekiö áleiöis til St.
Louis, Missouri, um landbúnaöarhéruö llli-
nois. Ein áning.
14. dagur. Fimmtudagur: 4ra tima skoöun-
arferö um þessa merku borg meö hinum
fræga „nutima sigurboga". Siöari hluti dags-
ins er frjáls, en bent er á batsferðir a Missis-
sippi-fljoti á „hjolaskipi '.
15. dagur. Föstudagur: Kl. 08.00 veröur lagt
í lengstu dagleiöina. Ekiö suöur meö Mis-
sissippi Missouri megin. um Kentucky og
suður til Nashville. Tennessee, þar sem
verður aö. og austur til Knoxville, og gist
þar
16. dagur. Laugardagur: Frjáls tilhögun, en
þeir sem vilja, geta skoöaö Heimssyninguna
1982. Aögangseyrir er ekki innifalinn. Einnig
er bent á möguleika á skoöun á Kjarnorku-
safninu i Oak Ridge
17. dagur. Sunnudagur: Ekiö um suöurhluta
Smoky Mountains, heimsótt m a Indiana-
safniö i Cherokee. North Carolina, og Bill-
more-höllin fræga og hinir fögru garöar þar.
Aögangseyrir ekki innifalinn. Gist veröur i
Asheville, North Carolina.
18. dagur. Mánudagur. Ekiö eftir Blue
Ridge Parkway (fjallvegur meö stórkostlegu
útsyni). Ein aning. Gist veröur i Roanoke.
Virginia.
19. dagur. Þriöjudagur: Ekiö aleiöis til
Washington D.C., m.a. um Shenadoa-dal-
inn, sem er frægur fyrir náttúrufegurö.
20. dagur. Miövikudagur. 5 tima skoðunar-
ferö um höfuöborgina (og Arlington). sem
lykur viö Smithsonian-safmö.
21. dagur. Fimmtudagur: Ekiö um Maryland
til Philadelphia. Pennsylvama. Stutt skoöun-
arferö um borgina. Siðan ekiö noröur um
New Jersey til New York.
22. dagur. Föstudagur: 4ra tima skoöunar-
ferö um nagrenni New York. Siöari hluti
dagsins frjáls Kl. 18.00 er hanastelsboö a
'hótelinu
23. dagur. Laugardagur Brottför af hoteli
um hadegi. Brottför ut á Kennedy-flugvöll kl
17 00. Aö ööru leyti er dagurinn frjáls Flog-
iö er til Islands kl. 20 00.
Allt þetta fyrir kr.
16.615
Feröaskrifstofan
Aöeins 3 feröir:
4. júní, 9. júlí og 6. ágúst.
7
Reykjavík:
Austurstræti 17.
Sími 26611.
Akureyri:
Kaupvangsstræti 4.
Sími 22911.