Morgunblaðið - 30.04.1982, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982
27
Systkinin urðu mjög samhent
og hafa aldrei rofið hópinn og
haldið daglegri umgengni sín á
milli og við foreldra sína meðan
lifðu.
Eftir að Steinunn missti ást-
kæran mann sinn fluttist hún til
Keflavíkur að Vesturgötu 12 og
bjó þar með Agli syni sínum.
Hélt hún fagurt og gott heimili
þar sem barnabörnin áttu vísa
hlýju og var þeim eins og annað
heimili.
Steinunn lét sér mjög annt um
barnabörnin og hélt við þau stöð-
ugu sambandi fram til dauðadags.
Árið 1969 kenndi Steinunn
heilsubrests og átti erfitt með
gang, en var í fullu fjöri andlega
og fluttist hún þá til Maríu dóttur
sinnar að Njarðvíkurbraut 23, í
Innri-Njarðvík, og var hjá henni
þar til María kenndi sér meins og
þurfti að leita lækninga og fór
Steinunn þá á Elliheimilið Garð-
vang, en kom oft til barna sinna
og gisti nokkrar nætur.
Síðasta dag marzmánaðar síð-
astliðinn veiktist Steinunn og var
flutt á Borgarspítalann og var
mikið veik.
Sjúkdómurinn greip hana illa
og var hún meðvitundarlaus
fyrstu dagana, en komst svo til
meðvitundar og var nokkra daga
nokkuð hress, hló og gerði að
gamni sínu og setti saman vísur.
Hún náði því að kveðja fólkið
sitt og ástvini með sömu hlýju og
glaðværð sem einkenndi hana og
mega ástvinirnir þakka Guði fyrir
það.
Aðfaranótt 23. apríl síðastliðinn
lézt Steinunn á Borgarspítalanum.
Við barnabörnin kveðjum ástkæra
ömmu okkar með trega og með
henni er horfinn hluti af lífi
okkar, við trúum því að hennar
bíði betri heimur og betra líf og að
hún bæti þann heim eins og þenn-
an.
Við óskum ömmu alls hins besta
og þökkum henni allt sem við þó
fáum aldrei fullþakkað.
Guð veri með elsku ömmu
minni.
Porsteinn llákonarson
Karlotta S. Þorsteins-
dóttir Minningarorð
Fædd 19. júní 1912
I)áin 25. apríl 1982
Það var í Hafnarfirði í vinalegu
húsi rétt hjá Hellisgerði við hraun
og hríslur, sem Karlotta bjó við
okkar fyrstu kynni.
En hve vorkvöldin þar voru
töfrandi, og í endurminningunni
verður þar svo bjart og hlýtt að
mér finnst sem þar væri sífellt
sólskin.
Hjá því góða fólki, í húsinu sem
nefnt er Hraunkot, var hjartarúm
og húsrúm líkast því sem lýst er í
Brekkukoti skáldsins. Áttu margir
þar athvarf um lengri eða
skemmri tíma þegar á lá. Tókst
þar með okkur Karlottu sú vin-
átta, sem aldrei fyrntist. Var vel-
vild hennar og tryggð slík að fá-
gætt er og reyndist mér sá sjóður
sem unnt var að sækja styrk í þeg-
ar öll sund virtust lokuð.
Karlotta fæddist að Efri-Tungu
í Fróðárhreppi þann 19. júní 1912
og voru foreldrar hennar Kristín
Þórarinsdóttir og Þorsteinn
Matthíasson sem þar bjuggu. Var
hún yngst 5 systkina og átti góða
og glaða æsku. Fluttist hún til
Hafnarfjarðar með foreldrum sín-
um á unglingsárunum og eftir að
móðir hennar lést annaðist hún
föður sinn meðan hann lifði og
reyndist honum frábærlega vel. Á
þeim árum var fátt til að létta
störf verkamannsins, og vann
Karlotta hörðum höndum til þess
að sjá sér og sínum farborða og
mikil var vinnugleði hennar, að
hverju sem hún gekk. Var hún
löngum við síldarsöltun og fisk-
verkun en eftir að börn hennar
fæddust, fyrst Kristín og síðar
Anton Helgi, vann hún ýmis störf
sem betur hentuðu. Álltaf var
lífsbaráttan hörð og hvíld ónóg og
reyndi það mjög á krafta hennar
og þrek.
Að lokum fór svo að heilsan bil-
aði og voru síðustu árin henni
mikil og erfið reyn'sla. Var það al-
veg einstakt að hún skyldi ekki
missa kjarkinn I öllu því and-
streymi.
En í þessum þrengingum naut
hún styrks fjölskyldu og vina. Ber
þá fyrst að nefna Kristínu dóttur
hennar og mann hennar, Braga
Helgason, flugmann, sem gerðu
allt sem í þeirra valdi stóð til þess
að létta henni byrðarnar. Einnig
voru sonur hennar, Anton Helgi
rithöfundur, og kona hans, Mar-
grét Sveinsdóttir, henni til mikill-
aránægju. Eru barnabörnin henn-
ar nú orðin fjögur.
Síðustu árin dvaldi hún að Sól-
vangi í Hafnarfirði við gott atlæti.
Hjúkrunarliði og félögum þar eru
nú færðar þakkir fyrir alúð og
nærgætni í hvívetna.
Um leið og ég þakka Karlottu
einlæga vináttu og tryggð í gegn-
um árin óska ég henni allrar
blessunar við vistaskiptin. Megi
heimkoman verða henni svo björt
og fögur sem vorkvöldin forðum.
Fjölskyldu hennar færi ég sam-
úðarkveðjur.
Þórdís Aðalbjörnsdóltir
Benediktsson, börnum þeirra
hjóna og öðrum ættingjum inni-
legar samúðarkveðjur.
Oddur Ólafsson,
Haukur Þórðarson.
„Anda scm unnasi
fa*r cilífð aldrcgi aðskilið.“
Jll
Þórður Benediktsson hlýtur að
verða öllum ógleymanlegur, sem
muna hann í fylkingarbrjósti í
baráttunni fyrir hugsjónum SÍBS.
Hann kom fram með snjallar
hugmyndir og bar þær fram til
sigurs. Því ætti að mega treysta
að starfssaga hans verði nákvæm-
lega skráð og varðveitt. Kemur þá
m.a. fram hinn mikli þáttur hans í
uppbyggingu vinnuheimilisins að
Reykjalundi. Því miður dvelja
margir í Reykjalundi án þess að
vita upprunalegt heiti eða sögu
þessa staðar, sem reistur var fyrir
þá sjúklinga, sem lifðu af „hvíta
dauðann" með skert starfsþrek, en
þó nokkurt, sem nýst gat við hæfi-
legar aðstæður. Mörgum varð dvöl
í Reykjalundi leiðin út á almennan
starfsvettvang.
Með ólíkindum er hve mörgum
af „gömlu berklasjúklingunum"
hefur auðnast að skila miklu
starfi, þó að fáir berklasjúklingar
hafi gengið heilir hildar til áður
en „nýju berklalýfin" komu til
sögunnar. Svo vinsælt var Vinnu-
heimilið að Reykjalundi að það
var um árabil nefnt „óskabarn ís-
lands".
Þórður Benediktsson gekk til
sinnar baráttu með bilað brjóst en
geislandi af þeirri hetjulund að
sjá hugsjónir rætast. Það var
„kúrinn" hans á Vífilsstöðum að
vera dögum oftar í Reykjavík til
að vinna þingmenn og aðra mekt-
armenn til fylgis við vinnuheimili
SÍBS.
Minnisstæð er mér fyrsta koma
mín til Reykjalundar er Þórður
fór þangað með okkur Jakobínu
Johnsen skáldkonu, til að sýna
henni staðinn. Þá voru þar aðeins
smáhýsi til íbúðar fyrir vistfólk og
starfsfólk, hermannabraggar, sem
höfðu verið sjúkrahús Bandaríkja-
manna voru notaðir fyrir heimil-
ishald og margháttaða starfssemi
vistmanna. Við áttum öll ánægju-
lega stund í húsi Valgerðar, yfir-
hjúkrunarkonu og Snjáfríðar,
ráðskonu.
Það er af miklu að taka að rekja
minningar um Þórð í starfi, rösk-
an þrátt fyrir brjóstmæðina, ljúf-
an í viðmóti. Ég vendi því mínu
kvæði í kross og minnist síðustu
æviára Þórðar. Þótt hann væri
þjakaður af erfiðum sjúkdómi var
bros hans hýrt sem fyrr, hann
fagnaði gestum, en Anna kona
hans vakti yfir því að hann þreytt-
ist ekki um of. Þrátt fyrir and-
streymið var unaðslegt að hitta
þau hjón, svo elskuleg og kjark-
mikil í sjúkdómsraununum.
Þegar Þórður var forseti SÍBS
tók Anna þátt í starfi hans með
móttöku fjölda gesta, erlendra
sem innlendra, hún var frábær
sem húsfreyja á forsetaheimili,
veitingar hennar og viðmót svo
fullkomið, sem fremst mátti
verða. En ef til vill var hún stærst
er veikindi surfu að. Er Þórður var
á Vífilsstöðum, tjaldaði hún á
rýmilegum stað í hrauninu nálægt
hælinu og var þar með börn þeirra
hjóna, svo að fjölskyldan gæti not-
ið sumardaga saman.
Þórður þarfnaðist stöðugrar
hjúkrunar og hjálpar í mörg ár, en
Anna gerði honum fært að dvelja
á heimili þeirra, enda mátti hann
ekki af henni sjá. Svo miklar sam-
vistir gera tómið eftir hann enn
stærra. ,
„Hve |>uny( er lífs að þreyja,
er þú erl frá mér dáinn."
En Önnu mun leggjast líkn með
þraut, barnalán og miklar vin-
sældir munu verða henni huggun
harmi gegn, og áfram mun Þórður
lifa í hjarta hennar og huga, því
að „anda, sem unnast fær eilífð,
aldregi aðskilið".
Ég votta Önnu og öllum vanda-
mönnum dýpstu samúð mína.
Þökk fyrir allt og allt.
Heilsuhæli NLFÍ, Hveragerði,
Þórunn Elfa.
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verda að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendi-
bréfsformi. I»ess skal einnig get-
ið, af marggefnu tilefni, að frum-
ort Ijóð um hinn látna eru ekki
birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa
að vera vélrituð og með góðu
línubili.
Sparaóu þér
fyrirhöfn og peninga
og skoðaðu fyrst og
síðast úrvalið okkar
50—60 tegundir af rúmum
Glæsilegt úrval af sófasettum
Hvergi er meira af furuhúsgögnum
Líttu inn í stærstu, bestu og ódýrustu
húsgagnaverslun landsins
’SHUSGAGNAHOLLIN
HUSGÖGN
BILDSHÖFÐA 20 110 REYKJAVÍK SIMAR: 9181199 81410