Morgunblaðið - 30.04.1982, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982
29
Fræðslufundur foreldra- og kennarafélags Vogaskóla:
Skólarnir fyrir
börnin en börnin
ekki fyrir skólana
Nýlega helt foreldra- og kennarafélag Vogaskóla fræðslufund, en tilgang-
ur fundarins var að vekja athygli á málefnum grunnskólanna og áhrifum
skólanna á þroskaferil barna. Fékk félagið sérfróða menn til að fjalla um
þróun grunnskólanna og ræða um framtíðarhorfur. Fyrirlesarar voru Krist-
ján Gunnarsson fræðslustjóri, Ilrólfur Kjartansson námsstjóri og Laufey
Steingrímsdóttir næringarfræðingur.
„Það var ekki fyrr en með til-
komu foreldrafélaganna sem for-
eldrar gátu haft áhrif á þróun
skólamála hér á landi en þessi mál
eru ekkert sérmál skólanna, held-
ur er nauðsynlegt að foreldrar
hafi aðstöðu til að hafa áhrif á
gang mála og veita skólunum að-
hald og aðstoð," sagði Margrét
Þorvaldsdóttir, formaður for-
eldra- og kennarafélags Voga-
skóla.
„Eins og getur nærri, þá hafa
foreldrar áhuga á að fylgjast með
skólagöngu barna sinna, en
grunnskólarnir eru grundvöllur að
framhaldsmenntun síðar meir. En
markmið foreldra- og kennarafé-
lagsins í Vogaskóla er að skólinn
sé eisetinn og stundaskráin sam-
felld og bekkjarstærðir hóflegar
og.að réttur nemandans til þess
náms, sem er á stundaskrá verði
trvggður," sagði Margrét enn-
fremur.
„Við vonumst til þess að þessi
fræðslufundur verði upphafið að
gagnlegum umræðum um skóla-
mál og að því að foreldrar verði
betur upplýstir af skólayfirvöld-
um um þær stefnur sem taka á í
skólamálum áður en þær koma til
framkvæmda, svo þeir geti haft
einhver áhrif þar á. Foreldra- og
kennarafélög eru eðlilegur hlekk-
ur á milli skólanna og heimilanna
og væntanlega verða stofnuð sam-
tök foreldra- og kennarafélaga
innan grunnskólanna í Reykjavík.
Að lokum vil ég undirstrika það,
að skólarnir eiga að vera fyrir
börnin, en börnin ekki fyrir skól-
ana,“ sagði Margrét Þorvaldsdótt-
ir, formaður foreldra- og kennara-
félags Vogaskóla.
Til fræðslufundarins í Voga-
skóla var boðið foreldrum og
kennurum, fræðsluráði, borgar-
fulltrúum, skólastjórum og full-
trúum kennara- og foreldrafélaga
í grunnskólum í Reykjavík.
Á myndinni eru talió frá vinstri: Arnfinnur Friðriksson og Friðrik Gislason
(Eymenn), Arnar Jónsson (Titanic), Sigurjón Ingólfsson (Eymenn), Elías
Björnsson, forstöðumaður Alþýðuhússins, Sigurgeir Jónsson (Qmen 7), Val-
týr Snæbjörnsson og Magnús Jónasson frá Oddgeirsnefndinni. Liðsmenn
hljómsveitarinnar Radíus gátu vegna anna ekki verið viðstaddir afhending-
una. IJngi maðurinn á myndinni mun vera upprennandi rótari hjá Ey-
mönnum.
Ljósmynd. Mbl. Sigurgeir Jónasson.
Vestmannaeyjar:
Fjáröflun hljómsveita í
Oddgeirsminnisvarðann
Á MIÐVIKUDAG fyrir skírdag
gengust fjórar hljómsveitir í Vest-
mannaeyjum fyrir fjáröflunar-
dansleik í Alþýðuhúsinu og var
ákveðið að allur ágóði skyldi
renna til minnisvarðans um
Oddgeir Kristjánsson. Þetta voru
hljómsveitirnar Eymenn, Qmen 7,
Radíus og Titanic og gáfu félagar
þeirra alla vinnu sína. Að auki
felldi Alþýðuhúsið niður leigu og
gjöld fengust eftirgefin.
Húsfyllir var umrætt kvöld og
urðu margir frá að hverfa. Alls
nam ágóði af dansleiknum kr.
17.550 og er myndin tekin er for-
svarsmönnum Oddgeirsnefndar
var afhent upphæðin.
Sjálfstæðisfélögin í Kópavogi:
Kaffisala 1. maí til
styrktar Hjúkrunarheimilinu
Á HÁTÍÐISDEGI verkalýðsins, 1.
maí, gangast Sjálfstæðisfélögin í
Kópavogi fyrir kaffisölu í Sjálfstæð-
ishúsinu, Hamraborg 1. Þar verða
kaffi og kræsingar á boðstólum frá
klukkan 14 til 18, og rennur allur
ágóði til styrktar byggingu hjúkrun-
arheimilis aldraðra í Kópavogi.
..BygKÍng hjúkrunarheimilisins
er nú komin á lokastig, og vantar
aðeins herslumuninn á að fullgera
fyrsta áfanga.
Við skulum taka höndum saman
og létta róðurinn uns komið er í
heila höfn. Sjálfstæðisfélögin
hvetja alla til að leggja sitt af
mörkum og styrkja þannig gott
málefni," segir í lok fréttatilkynn-
ingar er Morgunblaðinu hefur
borist frá Sjálfstæðisfélögunum í
'Kópavogi.
Frá fræðslufundi foreldra- og kennarafélags Vogaskóla.
Þú gengur ekki fram hjá Lee Cooper, þær ganga með þér
#DDnm
LAUGAVEGI 47 SIMI17575