Morgunblaðið - 23.05.1982, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1982
5
Sjónvarp á niánudag kl. 21.20:
Lukkupotturinn — sænskt sjónvarpsleikrit
Á dagskrá sjónvarps kl. 21.20 á
mánudagskvöld er sænskt sjón-
varpsleikrit, Lukkupotturinn
(Jackpot), eftir Kjell-Áke Ander-
son og Kjell Sundvall. Leikstjóri
er Kjell Sundvall, en í aðalhlut-
verkum Tommy Johnson og Marg-
areth Weivers. Þýðandi er Dóra
Hafsteinsdóttir.
Leikritið segir frá Kurre, flutn-
ingaverkamanni í Stokkhólmi, í
starfsgrein þar sem lögum er ekki
alltaf fylgt út í ystu æsar. Við
starf sitt hittir Kurre ekkjuna
Elsu, en ástarsamband þeirra
verður fljótt að engu. Þá tekur
Kurre að leggja drög að meiri
háttar framtíðaráformum. Spurn-
ingin er hvort hann detti í lukku-
pottinn.
Á dagskrá sjónvarps kl. 21.05 er kvikmynd sem Njála, kvikmyndagerð s/f, hefur gert um
Valdimar Björnsson, sem um árabil gegndi embætti fjármálaráðherra í Minnesota. í kvikmynd-
inni er rætt við Valdimar og svipast um á æskustöðvum hans í Minnesota.
Hljódvarp kl. 13.15:
Kosningaúrslit
— og lesið í pólitískar línur
Á dagskrá hljóðvarps kl.
13.15 er kosningaútvarp. Úr-
slit kosninga og umræður.
Umsjón hefur Kári Jónasson.
— í þessum þætti verður
greint frá úrslitum í öllum
kjördæmum, sagði Kári, —
enn fremur verða viðtöl við
leiðtoga flokkanna og fram-
bjóðendur. Svo er ætlunin að
reyna að gera grein fyrir póli-
tískum úrslitum kosninganna.
Við erum búnir að setja alla
lista inn á tölvuna hjá okkur
og skipta þeim upp, þ.e. eftir
því hvaða flokkur styður
hvaða lista úti á landi, þar
sem óháð framboð eru, til þess
að unnt sé að lesa í pólitísku
línurnar.
Kári Jónasson
Cliff
í London
Á dagskrá sjónvarps kl.
22.35 er tónlistarþáttur er
nefnist Cliff í London með
breska dægurlagasöngvaran-
um Cliff Richard, sem margir
muna eflaust eftir. Cliff Rich-
ard er búinn að vera í sviðs-
ljósinu í meira en tvo áratugi
og lætur engan bilbug á sér
finna — virðist enn jafn vin-
sæll og hann var fyrir um
tuttugu árum.
Meskva, Leninan
secni
vk Svartahafió
3ja vikna ferðir með íslenskri fararstjóm
í tengslum við leiguflugið til Kaupmanna
hafnar efnir Samvinnuferðir-Landsýn til
tveggja hópferða til Sovétríkjanna. Stór-
borgirnar Moskva og Leningrad verða sóttar
heim auk þess sem flogið verður til hinnar frá-
bæru baðstrandar Sochi við Svartahafið. Ferð-
imar eru 3ja vikna langar að meðtaldri
nokkurra daga dvöl í Kaupmannahöfn.
Heimsóknin til Sovétríkjanna á áreiðanlega
eftir að koma mörgum á óvart. Þetta stóra og
fallega land býr yfir líflegum borgum og sól-
baðsstöðum sem eiga sér fáa líka. Þangað
flykkjast ferðamenn í æ ríkara mæh og skipta
nú milljónum á hverju ári. Ströngustu kröfum
heimsmenningarinnar er mætt þegar ferða-
menn eru annars vegar, hótel og veitingahús
eru fyrsta flokks og afþreyingaraðstaða eins
og best verður á kosið.
1. dagur: Flogið til Kaupmannahafnar.
2. -5. dagur: Kaupmannahöfn, skoðunarferðir,
frjáls tími.
6. dagur: Flogið til Moskvu.
7,8. dagur: Moskva, skoðunarferðir, frjáls tími.
9. dagur: Flogið til Sochi við Svartahafið,
stærsta og frægasta sólbaðsstaðar Sovét-
ríkjanna. Aðstaðan fyrir ferðamenn er einstak-
lega þægileg og ekki spillir náttúrufegurðin
ánægjunni.
10. -17. dagur: Sochi, skoðunarferðir og frjáls
tími til sólbaða og skemmtunar.
18. dagur: Flogið til Leningrad.
19, 20. dagur: Leningrad, skoðunarferðir,
frjáls tími.
21. dagur: Flogið til Kaupmannahafnar og
síðan heim til íslands.
Brottf arardagar:
18. júní
13. ágúst
Verð
kr. 12.900
miðað við gistingu í 2ja manna herbergi.
Flug og gengi 18. janúar 1982.
Innifalið í verði: Flug, gisting í Kaupmanna-
höfn með morgunverði, gisting í Moskvu og
Leningrad með 1/1 fæði og Sochi með 1/2
fæði, akstur til og frá flugvelh erlendis, íslensk
fararstjórn.
Takmarkað sætaframboð - pantið tímanlega
Samvinnuferdir-Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899