Morgunblaðið - 23.05.1982, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MAÍ1982
19
sett fjölda bóka. Því miður get-
um við ekki komið í veg fyrir að
bókaverslanir selji ósiðlegar
bókmenntir, en öðru máli gegnir
um bókasöfnin, og sérstaklega
skólabókasöfnin. Þar hefur
okkur tekist að koma út úr húsi
allt að 80% af þeim bókum sem
okkur líkar ekki.“
„Foreldrar eiga rétt á
að berja börnin sín“
Á svarta listanum eru m.a.
bækur eftir D.H. Lawrence,
Norman Miller og Erica Young
og kemur það víst fæstum á
óvart. En á listanum er einnig
verðlaunaskáldsaga Salingers:
„Bjargvætturinn í grasinu". Lor-
enzen telur að unglingurinn sem
er aðalsöguhetja bókarinnar, en
hún kom út á sjötta áratugnum,
sé „óamerískur og firrtur allri
föðurlandsást".
MM einbeitir sér ekki aðeins
að skemmtanaiðnaðinum, af-
þreyingu og hámenningu, heldur
leitast við að hafa áhrif á banda-
ríska þjóðfélagið í heild sinni.
„Við erum fylgjandi dauða-
refsingum, kapitalisma, föður-
landsást og kynferðislegri hóf-
semi. Við teljum að foreldrar
eigi rétt á að berja börnin sín.
Það á helst að gerast opinber-
lega, til að auðmýkja krakkana.
En það verður að gæta þess að
berja þau ekki í andlitið eða höf-
uðið, því ekki viljum við valda
þeim líkamlegum meiðslum,
heldur aðeins andlegum.
Við í MM höldum okkur að
jafnaði utan við stjórnmál, en
við styðjum Reagan forseta
heilshugar. Hann hugsar eins og
við, hefur sömu siðgæðishug-
myndir og er sennilega einn af
mestu leiðtogum þessarar ald-
ar.“
MM-samtökin segjast vera á
móti „ljótum“ orðum, hómósexú-
aliteti, rokktónlist, klárni og
kommúnisma. Ennfremur sé
samtökunum í nöp við sósíal-
isma, k.vnfræðslu í skólum,
hjónaskilnaði, kvennahreyfing-
una og fósture.vðingar.
(SIB þýddi og endursagði
úr Vecko-Revyn)
Löður — „Ósómi og sióleyai."
Húsið á sléttunni. — „Góöur fjölskylduþáttur."
„Fólk í skemmtanaiðnaðinum
er hrætt við okkur“
Segir einn af forystumönnum Moral Majority — sam-
takanna, sem m.a. hafa stöðvað framleiðslu á „Löðri“
Eins og fram kom í sjón-
varpsviðtali við Caterine Helm-
ond, sem leikur Jessicu í hin-
um vinsælu sjónvarpsþáttum,
Löðri, er búið að stöðva fram-
leiðslu þáttanna fyrir atbeina
afturhaldsfélagsskapar í
Bandaríkjunum, sem kallar sig
„Siðlega meirihlutann" (Moral
Majority). Nýlega birtist í
sænsku vikuriti viðtal við yfir-
mann Kaliforníudeildar þess-
ara samtaka, John Lorenzen.
I>að fer hér á eftir í lauslegri
þýðingu og endursögn.
„Nú einbeitum viö
okkur aö MASH“
„Okkur tókst að stöðva fram-
leiðslu og sýningar á Löðri. Nú
einbeitum við okkur að 30 öðrum
sjónvarpsþáttum, þ.á.m. MASH.
Við viljum ekki hafa neinn
ósóma og siðleysi í sjónvarpinu."
Sá sem hefur orðið er John
Lorenzen, yfirmaður Kaliforníu-
deildar Moral Majority-sam-
takanna, kristilegrar hreyfingar
sem hefur haft geysimikil áhrif í
Bandaríkjunum. Þessir ný-púrit-
anar telja um eina milljón fé-
laga, en Lorenzen segir að 25
milljónir Bandaríkjamanna
styðji samtökin. MM-samtökin
voru stofnuð árið 1979 af prest-
inum Jerry Falwell. Þau eru
kristin og mjög íhaldssöm, með
ákaflega öfluga útbreiðslumið-
stöð á sínum snærum. MM er
ríkur félagsskapur og nýtur
krafta færustu markaðsfræð-
inga við að koma boðskap sínum
áleiðis.
„Við ákváðum að einbeita
okkur að sjónvarpinu fyrir um
það bil ári síðan og hefur vegnað
vel. Fólk í skemmtanaiðnaðinum
er hrætt við okkur,“ segir Lor-
enzen og hlær.
í Bandaríkjunum eru þátta-
framleiðendur gersamlega háðir
auglýsingatekjum og er þar um
stjarnfræðilegar upphæðir að
ræða. Einnar mínútu auglýsing í
Dallas-þættinum kostar þannig
yfir tvær milljónir króna. Því er
það ekki að undra, að auglýsend-
ur forðist að leggja fé í auglýs-
ingar í þáttum sem hafa fengið
mótbyr.
Vegna þrýsting frá MM hefur
stórfyrirtækið Proctor & Cambel
hætt auglýsingum í fimmtíu
sjónvarpsþáttum á besta sýning-
artíma. Þetta er spurning um
hundruð milljóna Bandaríkja-
dala og talið er að fleiri fyrir-
tæki muni fylgja á eftir.
„Kvikmyndir og bæk-
ur á svartan lista“
„Við höfum sett saman lista
yfir 30 verstu sjónvarpsþættina,
hvað varðar kynlíf, ofbeldi og al-
mennt siðleysi. Við höfum haft
samband við auglýsendur í þátt-
unum og sagt þeim að við mun-
um sniðganga vörur frá þeim.
Jafnframt höfum við svo verð-
launað auglýsendur í góðum fjöl-
skylduþáttum, eins og t.d. Húsið
á sléttunni með því að mæla með
vörum þeirra.“
Hvers vegna vill MM koma
MASH — „Málfarió er ógeöslegt."
MASH fyrir kattarnef, þætti
sem hefur unnið til fjölda verð-
launa?
„Það er fyrst og fremst mál-
farið sem við sættum okkur ekki
við. Það er svo mikið um að verið
sé að grínast með kynlíf og það
er ekki gott fyrir ungt fólk að
horfa á slíkt. Við viljum skapa
betra þjóðfélag."
MM hefur þegar öðlast svo
mikil áhrif, að stóru sjónvarps-
stöðvarnar sýna nú fulltrúum
samtakanna þætti áður en þeim
er sjónvarpað.
„Við getum að sjálfsögðu ekki
haft samskonar eftiriit með
kvikmyndum og við getum með
sjónvarpsefni, en við setjum
margar kvikmyndir á svartan
lista. Þá höfum við einnig bann-
John Lorenzen: — „Við viljum
ekki hafa neinn ósóma og sió-
leysi í sjónvarpinu."
0
U
Takið sumarið snemm
öll f jölskyldan til
MALLORKA
OTCÍKVT