Morgunblaðið - 23.05.1982, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MAÍ1982
43
ísafjörður:
Föndurkennsla
fyrir aldraða
Frá fnafirAi.
í TILEFNI af ári aldraðra,
höfðu aðilar að félagsstarfí
aldraðra og nokkur félög á
ísafírði, samstarf um að
standa að sýningu á föndri
og handavinnu eldri borgara
á ísafírði í Gagnfræðaskólan-
um 15. og 16. maí sl. Báða
dagana var kaffísala til
styrktar félagsstarfí aldraðra
og er ágóða af kaffísölu varið
til kaupa á tækjum til fönd-
urstarfsins.
Föndurkennsla er nýlunda í
félagsstarfi aldraðra á ísafirði,
en er þegar orðin vinsæl.
Kennsla fer fram í opnu húsi í
Vinnuveri, og eins er föndur á
elliheimilinu og sjúkrahúsinu
og voru sýndir munir frá þessu
starfi á sýningunni auk handa-
vinnu, sem unnin hefur verið í
heimahúsum.
Aðstaða til föndurvinnu
verður í vistheimili aldraðra á
Torfnesi, sem tekið verður í
notkun á þessu sumri. Ef fjár-
magn fæst, verður þar um að
ræða gjörbreytingu á högum
eldra fólks, sem horfið er af
hinum almenna vinnumarkaði,
en hefur ennþá verulega getu
og vilja til að hafa eitthvað
þarflegt fyrir stafni.
Úlfar
Mikill fjöldi fólks notfærir aér mt (Vndwkeaaahi á vegum ísafjarðarkaup-
staóar. Myadia er tekia á aámakeiái i báaakyaaum Sjálfsbjargar á ísafirði.
MáirrUar HaOdóndótttr
Verk úr íspinaum, unnin af öldrnAnni íaAráiagum.
IjimL: MátfrMw HalldéniMttir
Fyrirlestur
um vöxt laxa
JÚLÍUS Birgir Kristinsson, sem
undanfarin ár hefur stundað rann-
sóknir á vexti laxa við háskólann i
New Brunswick í Kanada, heldur
fyrirlestur mánudaginn 24. mai kl.
16.00.
Fyrirlesturinn nefnist: Tvískipt
stærðardreifing laxaseiða, þroski,
myndbreyting og hormónar.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
húsnæði Háskólans að Grensás-
vegi 12 og er öllum heimill að-
gangur.
HÚS-
BYGGJENDUR
Til afgreiðslu af lager:
Niðurfallsrör
Rennubönd
Þakrennur
Þakgluggar
Þaktúður
Gaflþéttilistar
Kjöljárn
Klippt og
beygt járn af
ýmsum gerðum.
Öll almenn
blikksmíði.
'B
BREIÐFJÖRÐS
BLIKKSMIÐJA HF
Ltitíó nénmrl upplýminga
mðSégtúni7 Simn29022
SAGA HÓTEL Kaupmannahöfn,
Colbjernsenagade 20,
DK-1652 Copenhagen,
sími (01) 24-99-67
Staösett 200 fm frá járnbrautarstöðinni, 300 m frá Tívolí
og 700 m frá Ráðhústorginu.
íslendingar fi 10% afslaft.
Eins manns herbergi án baös frá kl. 145—165.
Tveggja manna herbergi án baös frá kr. 240—260.
Eins manns herbergi meö baöi kr. 230—240.
Tveggja manna herbergi með baöi frá kr. 340—360.
Morgunmatur er innifalinn. Litasjónvarp og bar.
Með vinarkveðju frá Bredvig fjölskyldunni
með ósk um gleöilegt sumar.
Lúxusvillur í sólskinsparadís
Við bjóðum upp á óvenjulega og
glæsilega gistingu í smáhúsum
(bungalows) og íbúðum í undir-
fögru umhverfi við Puerto de
Andraitx, sem stendur skammt
vestan við Magaiuf-ströndina. í
hverfi þessu eru verslanir, næt-
urklúbbur og diskótek, barir,
veitingastaðir, 2 sundlaugar og
barnalaug, 4 tennisveilir og ákaf-
lega falleg og góð sólbaðs- og
útivistaraðstaða. Örskammt er
niður í hinn fagra fiskimannabæ,
Puerto de Andraitx, þar sem er
iðandi og fjölbreytt mannlíf og
mikill fjöldi viðurkenndra veit-
ingastaöa.
Nánarí upplýsingar á skrifstofu
okkar og myndband (video) til
sýnis.
Brottfarardagar: 29. maí — örfá
sæti laus — mjög góðir greiðslu-
skilmálar. 15. júní — örfá sæti
laus — greiðsluskilmálar. 6. júlí
laus sæti. 27. júlí fullbókað —
biðlisti. 17. ágúst fullbókað —
biðlisti. 7. september — laus
sæti. 28. september — laus sæti.
Ótrúlega ódýr vikuferð
til Parísar 19. júní
Gist veröur á 4ra stjörnu hóteli á
eftirsóttum stað í borginni. Boöiö
verður uppá úrval skemmti- og
skoðunarferða undir leisögn ís-
lensks fararstjóra sem gjörþekk-
ir París. Verð kr. 6.200. Innifalið í
verði: Flug gisting með morgun-
verði, akstur til og frá flugvelli og
íslensk fararstjórn. Athugiö!
Takmarkaður sætafjöldi.
Skotland - Skotland
— í boði er 12 daga ferð um hin
undirfögru skosku hálönd. Heim-
sóttir eru margir af sögufræg-
ustu stöðum Skotlands, svo sem:
Pitlochry, Inverness, Cawtor-
kastali, hið fræga Loch Ness,
Oban, Ayr og Burns Country.
Einnig verður gist í Glasgow og
Edinborg. Brottför: 28. júní. Verð-
frá 10.300. Innifalið í verði: Flug,
gisting og hálft fæði á flestum
stöðum og akstur með mjög góð-
um áætlunarbílum. íslenskur far-
arstjóri.
Nýjung - Nýjung
Skíðaferð um hásumar
til Austurríkis
Já, þetta er alveg ótrúlegt en
staðreynd samt. Einstakt tæki-
færi fyrir þá sem vilja stunda
skíðaíþróttina, sólböð og útiveru
í fögru umhverfi austurrísku Alp-
anna.
Skíðað verður á Stubaital-jöklin-
um í allt að 3.000 m hæð þar sem
frábær aðstaða er jafnt fyrir byrj-
endur sem alvana skíðamenn.
Gist verður á glæsilegu íbúðar-
hóteli með allri aðstöðu svo sem:
Úti-sundlaug, gufubaði, nuddi,
tennisvelli, borðtennis og billi-
ard. Brottför: 12. júní. Verð 9.300.
Innifalið í verði: Flug, gisting og
íslenskur fararstjóri.
Almenn ferða
þjónusta —
öll ódýrustu
fargjöldin
. :
>